Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
Viðskipti_________________________________________________________________________dv
Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 1,141 m.kr. ... Mest með hlutabréf 443 m.kr. ... Húsbréf 316 m.kr ... Lang-
mest viðskipti með bréf íslandsbanka, 217 m.kr. og lækkuðu bréfin um 1,5% ... Viðskipti með bréf Landsbanka 49 m.kr.
og hækkuðu bréfin um 3,2% ... Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,04% og er 1.465 stig ... Hampiðjan hækkaði um 6% ...
Búnaðarbanki lækkaði um 2,3% ... SS hækkaði um 5,6%
íslenski
hugbúnaðar-
sjóðurinn eykur
hlut sinn í
Hugviti hf.
íslenski hugbúnaðarsjóður-
inn hefur aukið hlut sinn í Hug-
viti hf. Eftir aukninguna nemur
eign íslenska hugbúnaðarsjóðs-
ins í Hugviti kr. 1.864.588 að
nafnverði eða sem nemur um
19,92% af heildarhlutafé í félag-
inu. Hugvit er stærsta félagið í
hlutabréfasafni íslenska hug-
búnaðasjóðsins og nemur eign-
arhluturinn um 26% af heildar-
eignum á bókfærðu verði.
í frétt frá Islenska hugbúnað-
arsjóðnum segir að Hugvit sé
eitt af þeim kjamafélögum sem
sjóðurinn hefur íjárfest í frá
stofnun. Hjá félaginu starfa nú
um yfír 100 starfsmenn í 3 lönd-
um. Hugvit hefur hlotið fjölda
alþjóðlegra verðlauna og viður-
kenninga fyrir helstu fram-
leiðsluvöru þess, GoPro hugbún-
aðinn. Þá er Hugvit einnig þátt-
takandi í nokkrum stórum verk-
efnum sem verið er að vinna að
hérlendis og líkleg eru til að
hafa jákvæð áhrif á fyrirtækið á
næstunni. Árangur félagsins í
markaðssetningu á erlendum
mörkuðum hefur verið framar
vonum á þessu ári og byggir sá
árangur á sterkri stöðu á heima-
markaði. íslenski hugbúnaðar-
sjóðurinn hefur mikla trú á fé-
laginu og hæfni þess í að ná
frekari árangri á erlendum
mörkuðum á komandi árum.
Krossanes og
ísfélag
Vestmannaeyja
sameinast
Stjóm Krossaness hf. hefur á
fundi sinum í dag samþykkt sam-
runaáætlun um sameiningu
Krossaness hf. og ísfélags Vest-
mannaeyja hf. undir nafni ísfélags
Vestmannaeyja hf.
Samkvæmt samrunaáætluninni
fá hluthafar í Krossanesi hf. 15,5 %
eignarhlut í hinu sameinaða félagi.
Sameiningin skal miðuö við 31.
ágúst 1999. Stjóm ísfélags Vest-
mannaeyja hf. mun fjalla um sam-
mnaáætlunina á fundi í næstu
viku.
Samrunaáætlun er fyrirliggjandi
hjá Verðbréfaþingi og kemur þar
fram að aðilar era sammála um að
Isfélag Vestmannaeyja hf. leiti eftir
skráningu á Verðbréfaþing Islands
svo fljótt sem auðið er.
General Electric:
„Tvöfaldur sigur"
annaö árið í röð
General Electric hefur verið kos-
ið virtasta fyrirtæki heims og jafn-
framt hefur forstjóri þess, Jack
Welch, verið kosinn virtasti fyrir-
tækjastjómandi veraldar fyrir árið
1999.
Þetta eru niðurstöður árlegrar
könnunar sem Financial Times og
PricewaterhouseCoopers stóðu fyrir
á dögunum. General Electric var
einnig valið virtasta fyrirtæki
heims í raftækjaiðnaðinum, en nið-
urstöður könnunarinnar birtust í
frétt Viðskiptablaðsins á viðskipta-
vef vísis.is.
Þetta er annað árið í röö sem
General Electric og Jack Welch
hljóta þessa kosningu, en árið 1998
teygði könnunin sig i fyrsta sinn út
fyrir Evrópu og náði til fyrirtækja í
N-Ameríku, S-Ameríku, Asíu, Afr-
iku og Miðausturlöndum.
Viðskiptablaðið segir að í fyrra
hafi General Electric hlotið yfir-
burðakosningu og hafi þá hlotið tvö-
falt fleiri atkvæði en þau fyrirtæki
sem á eftir komu. Munurinn hafi
hins vegar ekki verið eins mikill í
ár og þeir hafi því „aðeins“ hlotið
25% fleiri atkvæði en næsta fyrir-
tæki, sem var Microsoft. Þrátt fyrir
það hafi ekki verið um fækkun at-
kvæða að ræða hjá þeim heldur hafi
Microsoft bætt svona hressilega í.
Jack Welch efstur stjórn-
enda
Jack Welch var efstur á lista yfir
virtustu fyrirtækjastjómendur, en á
hæla hans komu Bill Gates hjá
Microsoft og Lou Gerstner hjá IBM
í öðru og þriðja sæti. Jurgen
Schremp hjá DaimlerChrysler var
sá evrópski stjómandi sem hæst
komst á lista, í fjórða sæti, og fyrir-
tæki hans náði einnig besta árangri
allra evrópskra fyrirtækja, eða í
fimmta sæti fyrirtækjalistans.
Hæsti nýi stjórnandinn inni á
listanum var Michael Dell í banda-
ríska fyrirtækinu Dell, en hann
stökk beint upp í fimmta sæti.
Einnig vekur athygli að af tólf efstu
fyrirtækjunum eru fimm þeirra úr
upplýsingatæknigeiranum, Micro-
soft (2), IBM (4), Dell (7), Hewlett-
Packard (11) og Intel (12).
Þau fyrirtæki sem stærstu stökk-
in tóku á milli ára voru Sony, sem
stökk upp í sjötta sæti úr 24. frá þvi
árið áður og er hæst allra asískra
fyrirtækja á lista. Dell stökk upp
um tuttugu sæti, úr 27. og í það sjö-
unda og Wal-Mart, verslunarkeðjan
bandaríska, stökk upp í níunda sæti
úr því sautjánda.
Nýir starfsmenn hjá Norræna
fjárfestingarbankanum (NIB)
Eftirtaldir íslendingar tóku til
starfa hjá Norræna íjárfestingar-
bankanum árin 1998 og 1999. Sjö ís-
lendingar starfa hjá NIB en alls eru
starfsmenn bankans 128 talsins.
Hinir nýju starfsmenn eru:
Sigurður Ingólfsson hefur verið
ráðinn til starfa við áhættustýringu
hjá NIB. Verkefni hans felast m.a. i
því að þróa innra áhættumat við-
skiptamanna og tölfræðilegt líkan af
útlánaáhættu bankans í heild. Sig-
urður lauk M.Sc. prófi í hagfræði
frá HÍ árið 1997 og starfaði á Hag-
fræðistofnun HÍ og sem stunda-
kennari við HÍ þar til hann réðst til
NIB.
Kári Sigurðsson hefur verið ráð-
inn tímabundið sem fjármálasér-
fræðingur hjá NIB. Hann starfar á
sviði upplýsingatækni og fjármála-
greiningar. Kári lauk B.Sc. prófi í
hagfræði frá Háskóla íslands vorið
1999. Frá 1998 starfaði Kári sem sér-
fræðingur á Hagfræðistofnun Há-
skóla Islands auk þess að vera
stundakennari við sama skóla.
Magnús Þór Ágústsson hefur ver-
ið ráðinn tímabundið sem sérfræð-
ingur hjá NIB. Hann starfar við ijár-
mála- og áhættudreifingu. Magnús
lauk C.Sc. frá verkfræðideild HÍ
1997 og M.Sc. prófi frá hagfræði-
deild HÍ 1999. Magnús starfaði sem
hugbúnaðarráðgjafi hjá Hópvinnu-
kerfum ehf. frá 1996 og sem ráðgjafi
hjá AQS AB frá 1997.
Útboðsgengi Sæplasts 9,00
Á morgun hefst hlutafjárútboð í
Sæplasti hf. Útboðsgengi hefur ver-
ið ákveðið 9,00 en boðið er út hluta-
fé fyrir að nafnvirði 30 milljónir
króna eða samtals 270 milljónir
króna að raunvirði.
Útboðið er í umsjá Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. (FBA) en
tilgangur þess er að styrkja eigin-
fjárstöðu Sæplasts í kjölfar mikilla
fjárfestinga á árinu, en fyrirtækið
hefur keypt þrjár verksmiðjur, tvær
í Noregi og eina í Kanada, það sem
af er árinu.
Útboðið stendur til 22. desember
næstkomandi.
Steinþor Bjarni
Ólafsson, fram- Ármannsson,
kvæmdastjóri forstjóri FBA.
Sæplasts.
Innherjar kaupa í FBA
Innherjar keyptu í lok nóvember
hlutabréf í FBA fyrir 105,5 m.kr. að
nafnverði, eða um 325 m.kr. að
markaðsverðmæti miðað við nú-
verandi gengi hlutabréfa í FBA.
Samtals er um að ræða um 1,55%
hlutafjár.
Innherjaviðskiptin voru tilkynnt
í gær og er um fem viðskipti að
ræða, mest með 50 m.kr. að nafn-
verði. Ekki er unnt að ráða af til-
kynningunum hvort um einn og
sama aðila er að ræða í öllum til-
vikum.
Breytt skipurit Islenskra aðalverktaka
I tengslum við sameiningu Ár-
mannsfells, Álftáróss, Verkafls,
Nesafls og Byggingafélagsins Úlfars-
fells, innan samstæðu íslenskra að-
alverktaka hf., hefur verið gengið
frá nýju samræmdu skipuriti fyrir
íslenska aðalverktaka hf. og dóttur-
félög.
Eftirtaldir skipa framkvæmda-
stjórn íslenskra aðalverktaka hf.
Stefán Friðflnnsson er forstjóri ís-
lenskra aðalverktaka hf. Stefán er
viðskiptafræðingur frá Háskóla Is-
lands og rekstrarhagfræðingur MSc
frá Warwick University. Hann starf-
aði sem framkvæmdastjóri Vöra-
markaðarins frá 1978-1986, sem að-
stoðarmaður fjármálaráðherra
1986-1988, sem aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra 1988-1990 og sem for-
stjóri íslenskra aðalverktaka
hf. frá 1990.
Guðmundur Geir Jónsson
er framkvæmdastjóri fram-
kvæmdasviðs á Keflavíkur-
flugvelli. Guðmundur er raf-
magnstæknifræðingur frá
Tækniskólanum í Odense.
Hann hefur starfað hjá Is-
lenskum aðalverktökum frá
1973 sem deildarstjóri raf-
magnsdeildar og sem fram-
kvæmdastjóri framkvæmda-
sviðs ffá 1998.
Gunnar Sverrisson er fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs. Gunnar
er viðskiptafræðingur af fjármála-
sviði frá Háskóla íslands. Hann starf-
aði sem fjármálastjóri Ármannsfells
hf. 1992-1996, sem forstöðumaður
stjórnunarsviðs hjá Kaup-
þingi hf. 1996-1998 og sem
framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Islenskra aðalverktaka
hf. frá 1998.
Gunnlaugur Kristjánsson
er ffamkvæmdastjóri tæknis-
viðs. Gunnlaugur er bygg-
ingatæknifræðingur frá
Tækniskóla íslands. Hann
starfaði hjá Ármannsfelli hf.
og Aseta 1982-1987 og hjá
Álftárósi ehf. frá 1987-1999
sem tæknilegur fram-
kvæmdastjóri.
Haukur Frimannsson er yfirverk-
fræðingur. Haukur er byggingaverk-
fræðingur frá Háskólanum í Kaup-
mannahöfn. Hann hefur starfað sem
verkfræðingur hjá Islenskum aðal-
verktökum frá 1961 og sem yfirverk-
fræðingur frá 1993.
Jakob Bjarnason er framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs. Jakob er við-
skiptafræðingur ffá Háskóla íslands.
Hann starfaði hjá Landsbanka ís-
lands 1989-1999, m.a. sem fram-
kvæmdastjóri Hamla hf., dótturfélags
Landsbanka íslands, og sem fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviös Lands-
banka Islands hf.
Ólafur Hauksson er framkvæmda-
stjóri framkvæmdasviðs. Ólafur er
byggingaverkfræðingur frá Háskóla
íslands og Civil Enginer frá DDH.
Hann starfaði hjá Verkfræðistofunni
Fjarhitun 1984-1991, sem verkefnis-
stjóri hjá SH Verktökum 1992-1993 og
sem verkefnisstjóri hjá Ármannsfelli
hf. 1993-1999.
Stefán Friðfinns-
son, forstjóri ís-
lenskra aðal-
verktaka hf.
Brynjólfur nýr
staðgengill
bankastjóra
Landsbankans
Brynjólfur Helgason hefur verið
ráðinn í stöðu staðgengils banka-
stjóra Landsbanka Islands hf.
Brynjólfur er jafnframt fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Landsbankans.
Brynjólf-
ur er við-
skiptafræð-
ingur að
mennt,
cand. oecon.
frá Háskóla
íslands og
með MBA-
próf í
rekstrar-
hagfræði
frá INSEAD i Frakklandi. Brynjólf-
ur hefúr gegnt ýmsum störfúm í
Landsbankanum. Hann var sér-
fræðingur í hagdeild bankans,
ffamkvæmdastjóri markaðssviðs
þegar það var fyrst sett á laggim-
ar, aðstoðarbankastjóri á árunum
1988 til 1997 og framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs frá árinu 1998.
Hann er formaður stjómar Lýsing-
ar hf. og Landsbankans-Framtaks
hf. og er enn fremur í stjóm Lands-
bankans-Fjárfestingar hf. Jafii-
framt er hann formaður stjómar
Landsnefhdar Alþjóða verslunar-
ráðsins. Eiginkona Brynjólfs er
Hrönn Kristinsdóttir.
HSC hf. selur
hugbúnað til
Moskvu
Hótel Orlenok í Moskvu hefur
skrifað undir kaup á hótelhugbún-
aði frá HSC hf. (www.hsc.is). Þetta
er fyrsta salan á kerfum HSC utan
íslands en meðal viðskiptavina hér
á landi má nefna Lykilhótel, City
Hótel og Hótel Selfoss.
Orlenok sem er 400 herbergja
hótel i miðborg Moskvu tekur nú í
notkun rússneska útgáfú af bókun-
arkerfi HSC sem byggt er ofan á
viðskipta- og upplýsingakerfið
Navision Financials. HSC hefur
undanfarið unnið ötullega að því
að byggja upp sölunet á erlendum
mörkuðum. Úppsetningin í Rúss-
landi mun þannig fara fram í sam-
starfi við endursöluaðilann Impact
Soft sem er rússneskur söluaðili
Navision sem undanfarið hefur
unnið að þýðingu og staðfærslu á
lausnum HSC fyrir rússneskan
markað.
Sala á lausnum HSC á erlendum
mörkuðum mun einkum fara fram
í gegnum söluaðila Navision á
hveijum stað fyrir sig en HSC hef-
ur nú þegar skrifað undir endur-
sölusamninga við Navision söluað-
ila i 14 löndum og unnið er að því
að fjölga söluaðilum erlendis enn
frekar. Kerfi HSC eru þróuð á
ensku en auk rússneskrar útgáfu
er nú m.a. unnið að þýðingu og
staðfærslu á kerfunum á tékk-
nesku og þýsku af samstarfsaðilum
í viðkomandi lönd
Sundagarðar
stækka
í SR-mjöli
Sundagarðar ehf. hafa aukið
hlut sinn í SR-mjöli hf. lítillega,
eða um 0,8%. Nú eiga Sundagarðar
5,28% hlut en áttu fyrir 4,49%.