Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 Utlönd Stuttar fréttir i>v Rússar gefa íbúum Grozní lengri frest til að hypja sig: Fæstir ferðafærir Hryggbrotinn særði 4 í skóla Schröder endur- kjörinn leiötogi jafnaðarmanna Gerhard Schröder Þýska- landskanslari var endurkjörinn leiötogi Jafnaðarmannaflokksins SPD í gær og fékk 86 prósent at- kvæða. Enginn bauð sig fram á móti honum. Þetta er mun betri útkoma en í apríl í vor þegar Schröder fékk stuðning aðeins 76 prósent landsfundarmanna þegar hann tók við formannsembættinu af hinum vinsæla Oskari Lafontaine sem yfirgaf ríkisstjóm- ina í fússi. Gott gengi kanslarans nú er talið til vitnis um að honum hafi gengið vel að sefa jafnaðarmenn af gamla skólanum sem leist illa á niðurskurðarstefnu hans á fyrsta árinu í embætti. Schröder ítrekaði á landsfund- inum í gær að hann myndi ekki hvika frá þeirri stefnu sinni að gera umbætur á velferöarkerfinu og lækka skatta til aö stuðla að auknum hagvexti. Sautján ára nemandi í hollensk- um framhaldsskóla særði fjóra þeg- ar hann hóf skothríö á gangi skól- ans og í kennslustofu í gær. Þetta mun vera fyrsta slíka skotárásin í Hollandi. Aðrir nemendur við skól- ann segja að skotmaðurinn hafi ver- ið reiður vegna þess að kærastan hryggbraut hann. Þeir sem særðust voru kennslu- kona og þrír nemendur. Lögreglan telur að pilturinn hafi hleypt af tíu skotum. Að skothríðinni lokinni yfirgaf hann staðinn en gaf sig fram síðar. Starfsmenn hjálparstofnana segja að allt að fimmtíu þúsund íbúar séu enn eftir í Grozní, höfuðborg Tsjetsjeníu, og búi við hræðilegar aðstæöur. Fæstir þeirra eru þó fær- ir um að yfirgefa borgina sem líkt er viö helvíti á jörðu. Þeir eru ýmist of gamlir, of sjúkir eða of fátækir til að komast burt. Þá hafa margir særst í árásum Rússa á borgina og geta ekki geng- ið, að því er fram kemur á vefsíðu BBC. Rússneskir ráðamenn virðast hafa framlengt frest þann sem þeir gáfu ibúum Grozní til aö hafa sig á brott. 1 dreifimiðum sem varpað var niður úr flugvélum var íbúunum sagt að þeir yrðu að vera famir burt fyrir laugardag. Að öðrum kosti yrðu þeir drepnir. Leiötogar á Vest- urlöndum fordæmdu Rússa harð- lega fyrir að setja íbúum Grozní úr- slitakosti. Vladímír Rúsjafló, innanríkisráð- herra Rússlands, sagði í viðtali við rússnesku sjónvarpsstöðina NTV í gær að varðstöð sem koma átti upp fyrir utan Grozní og sem flóttamenn Rússneskur hermaður við öllu bú- inn í Tsjetsjeníu. áttu að fara um yrði mönnuð fram yfir laugardaginn. „Við munum leyfa fólki sem get- ur farið fyrir þann ellefta að fara í gegn,“ sagði ráðherrann, klæddur í hermannafót, við sjónvarpsfrétta- menn. Hann bætti þó við að sama varð- stöð myndi taka við flestum flótta- mönnunum eftir þann ellefta desem- ber og því yrði óbreyttum borgur- um gert kleift að komast á brott. „Þeir sem geta farið burt frá átakasvæðunum ættu að gera það við fyrstu hentugleika til aö stofna ekki eigin lífi og ástvina sinna í hættu,“ sagöi innanríkisráðherr- ann. Ekki sást til flóttamanna nærri varðstöðinni í gær. Talsmaður Clintons Bandaríkja- forseta sagði í gær að óliklegt mætti telja að Bandaríkin skæru niður aö- stoð sína við Rússland. Clinton hef- ur engu að síður sagt að Rússar muni gjalda dýru verði fyrir hernað sinn gegn uppreisnarmönnum múslíma í Tsjetsjeníu. Mannrétt- indasamtökin Amnesty Intemation- al hvöttu rússnesk stjómvöld í gær til að standa við skuldbindingar sín- ar samkvæmt alþjóðalögum og láta af árásum á óbreytta borgara. Marsklúðrið er mikið áfall Visindamenn bandarisku geim- vísindastofnunarinnar NASA hafa nú gefið upp alla von um að könn- unarflaug þeirra, sem átti að lenda á reikistjörnunni Mars á föstudag, sé i starfhæfu ásigkomulagi. Eyði- legging könnunarfarsins er mikið áfaO fyrir NASA og gæti valdið því að næstu könnunarferð til rauðu reikistjömunnar yrði frestaö, að því er starfsmaður stofnunarinnar sagði í gær. NASA áformar að senda annað far til Mars árið 2001. Óvíst er nú hvort hún verður farin. íbúar Singapore þurfa ekki aö hafa áhyggjur af snjó yfir vetrarmánuöina eins og viö hér á Fróni. Þaö er því kannski ekki undarlegt þótt þeir láti barnslega gleöi sína (Ijós þegar þeir komast í tæri viö snjó, þótt gervisnjór sé. Myndin var tekin í mikilli verslanamiöstöö í miöborg Singapore þar sem gervisnjó var dreift um allt. Albright miðlar málum í Miðausturlöndum Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, kom í gær- UPPBOÐ Á nauðungarsölu sem fram á að fara föstudaglnn 17. desember 1999, kl. 16.00, við Bílageymsluna, Skemmu v/Flugvallarveg, Keflavík, hefur að kröfu ýmlssa lögmanna og sýslumannsfns í Keflavík verið krafist sölu á eftlrtöldum bifreiðum og lausafjármunum: AL-778 BJ-903 FR-798 G1857 GY-165 H-647 HD-607 IC-516 JB-784 JS-972 KT-024 KV-158 LA-199 LF-250 LO-140 LX-449 MA-032 MB-097 MV-231 OE-529 OG-390 OR-066 PB-896 PE-639 PG-685 PJ-559 PY-321 R22682 R55442 R9316 RT-114 SJ-136 SP-669 TM-752 TN-577 TZ-156 YG-217 UF-277 ZS-443 UI-018 Ö-230 UN-291 Ö-653 VY-267 XN-819 Y1666 Enn fremur verður selt ýmislegt lausafé. Greiðsla við hamarshögg SYSLUMAÐURINN I KEFLAVIK. kvöld tfl ísraels tfl að reyna að blása nýju lífi í friðarviðræður ísraela og Palestínumanna. Albright kom frá Damaskus þar sem hún átti viðræður við Hafez al-Assad Sýrlandsforseta. Albright er sögð vera með skflaboð frá Assad tU Ehuds Baraks, forsætis- ráðherra ísraels, um mikUvæg atriði sem gætu komið friðarviðræðum Sýrlendinga og ísraela í gang á ný. Rétt fyrir komu Albrights tU ísra- els reyndi Barak að friða Palestínu- menn með því að bjóðast tU að stöðva fyrirhugaða smíði 1800 nýrra húsa fyrir gyðinga á herteknu svæðunum. Nýjasta kreppan í friöarviðræðunum myndaðist þegar ísraelsk yfirvöld buðu út smíði á 500 húsum fyrir gyð- inga á Vesturbakkanum. Samningamenn Palestínumanna hótuðu á mánudaginn að hætta við- ræðunum um lokasamkomulag hætti stjóm Baraks ekki við fleiri nýbygg- ingar á herteknu svæðunum. Barak kvaðst viss um að málið leystist inn- Madeleine Albright, utanríkisráö- herra Bandaríkjanna. an nokkurra daga. Gaf hann í skyn að tUgangslaust væri að reisa ný hús þegar búast mætti við friðarsam- komulagi innan nokkurra mánaða. Lögreglustjóri fer frá Lögreglustjórinn í Seattle tU- kynnti í gær að hann myndi segja af sér í vor. Borgarstjórinn í Seattle vísaði því á bug að hann hefði ýtt lögreglustjóranum til hliðar. Jeltsín til Kína Boris Jeltsín Rússlandsforseti mun í dag undirrita samkomulag um samband við Hvíta-Rússland og síðan halda til Kína. Tals- maöur rúss- neska utanrík- isráðuneytisins visaði því á bug að samband væri á mUli Kínaheimsókn- ar Jeltsíns og gagnrýni Vestur- landa á striðið í Tsjetsjeniu. 17 létust í flugslysi 17 létu lífið í gær er flugvél á leið frá Manila til Cauayan á FU- ippseyjum hrapaði. Presturinn var níðingur Presturinn, sem stjómaði kórn- um við brúðkaup belgíska krón- prinsins um helgina, var ákæröur í júní síðastliðnum fyrir kynferð- islega áreitni gegn drengjum á ár- unum 1992 til 1994. Honum var sleppt gegn loforði um að fara í meðferð. Bin Laden til Taílands Embættismenn í TaUandi og Kambódíu vísuöu því á bug í gær að sádiarabíski hryðjuverkamað- urinn Osama bin Laden væri við landamæri Kambódíu og Laos og hygðist reyna að komast til TaUands. McCain fram úr Bush Ný skoðanakönnun sýnir að öldungadeUdarmaöurinn John McCain frá Arizona nýtur meira fylgis meðal þeirra sem lík- legir eru tU að taka þátt í for- kosningunum í New Hamps- hire en George Bush, ríkis- stjóri í Texas. Nýtur McCain fylgis 35 prósenta kjósenda en Bush 32 prósenta. Fylgi útgefandans Steves Forbes er 12 prósent. Grikkir setja skílyrði Ekki er lengur víst að Grikkir samþykki að Tyrkland verði hugsanlegur aðUi að Evrópusam- bandinu. Hafa Grikkir sett Tyrkj- um ýmis skilyrði. 11 ára í 2 ára fangelsi DómstóU í Liverpool í Englandi dæmdi í gær 11 ára dreng í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að stela tösku af 85 ára konu. Frá 7 ára aldri hefur drengurinn, sem er sonur vændis- konu og fikniefnaneytanda, sex sinnum komið fyrir rétt. Ný útvarpsstöð Færeyingar fá nú nýja útvarps- stöð, Rás 2, eftir að útvarpsstöðin Atlantic Radio lagði upp laupana. Máiaferli um byssur Stjórn BUls Clintons Banda- ríkjaforseta ætlar að hefja mál gegn byssuframleiðendum á næsta ári sam- þykki þeir ekki viðamiklar breytingar á markaðssetn- ingu og dreif- ingu á byssum. í Bandaríkjun- um láta um 100 manns lífið á hverjum degi af völdum ofbeldis þar sem byssum hefur verið beitt. Sprengjumaður gripinn Lögreglan í S-Afríku handtók í morgun hvítan mann sem grunaður er um sprengjuárásir á hommabar og pitsustað í Höfðaborg í síðasta mánuði. 48 særðust í árásinni á pitsustaðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.