Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
Spurningin
Kvíðir þú fyrir
jólunum?
Rúnar Gunnarsson verkamaður:
Nei, ég get ekki sagt það.
Björgvln Kristbergsson borgar-
starfsmaður: Já, svo sannarlega.
Ég vildi að allt væri ódýrara i
stressmánuðinum.
Jóna Ósk Konráðsdóttir skrif-
stofum.: Nei, alls ekki.
Elvar Örn Brynjólfsson nemi:
Nei, það er nógur tími.
Bára Þórðardóttir nemi: Nei, alls ekki.
Kristján Hreinsson skáld: Nei, ég
er vel undirbúinn, m.a.s. búinn að
gefa út bók.
Lesendur
Jesús Kristur og James Bond
Kraftaverkið í
kvikmyndahúsinu
Nú er Jesú Kristur í gervi James Bond.
Bondaðdáandi skrifar:
Mikil reynsla sem ég
varð fyrir á nýjustu Bond
myndini segir mér að
Jesú Kristur sé aftur
kominn til að lækna
mannkyn og gera fólk
betra. Nú er hann í gervi
James Bond..
Þannig var að ég fór
ásamt 11 ára syni mínum
í Laugarásbíó til að berja
augum nýjustu mynd
syrpunnar sem nýtur gíf-
urlegra vinsælda sem
fyrr. Við settumst fram-
arlega í salinn og þegar
herlegheitin hófust kom í
ljós að við vorum of ná-
lægt tjaldinu.
Drengurinn stakk upp á að við
færðum okkur aftar í salinn sem við
gerðum. Hann hafði forystu og valdi
sér bekk sem var ósetinn að öðru
leyti en því að tvær pelsklæddar
konur sátu á bláendanum. Þar sem
ég var í humátt á eftir drengnum
sem beið þess að þær hleyptu hon-
um fram hjá heyrði ég að konan á
endanum sem virtist vera um sex-
tugt sagði hálfbrostinni röddu að
hún gæti ekki staðið upp. Ég fylltist
samúð og hnippti í soninn og sagði
honum aö við skyldum setjast ann-
arstaðar. Við völdum bekkinn fyrir
framan konuna og til að barnið átt-
aði sig á kringumstæðunum skýrði
ég fyrir honum að hún væri lömuð.
Við nutum myndarinnar til hins
ítrasta enda gerði Bond hvert
kraftaverkið á fætur öðru. Hver
mannraunin af annarri var sem
leikur í meðförum hans. Þegar ljós
kviknuðu til merkis um að hlé væri
komið til að endurnýja poppkorns-
birgðir stóðum við upp og settum
stefnu á sælgætissöluna.
Það var þá sem við urðum fyrir
umræddri upplifun sem varð okkur
og þá sérstaklega mér til að trúa því
að Kristur birtist mannkyni sem
James Bond. Þar sem við skutum
okkur á milli sætaræðanna sáum
við aftur loðklæddu kon-
umar á bláendanum.
Okkur til ólýsanlegrar
undrunar stóð lamaða
konan upp. Svo var ekki
að sjá að lömun hennar
væri lengur til staðar og
hún gekk tiltölulega
styrkum skrefum í átt að
sælgætissölunni ásamt
hinni loðklæddu ver-
unni.
Við feðgar fylgdum agn-
dofa á eftir og minnstu
munaði aö við gleymd-
um að kaupa popp sem
okkur var þó ofarlega í
huga. Sem í leiðslu tók-
um við okkur stöðu við
hlið lömuöu konunnar og ræddum
málið okkar í millum. Svo var að
sjá að hún væri sjálf ekkert upp-
næm yflr kraftaverkinu og hún leit
undan og roðnaöi frekar en leyfa
okkur aö heyra af upplifuninni.
Eftir hlé var okkur tíðrætt um at-
burðinn þegar tóm gafst frá hraðri
atburðarás myndarinnar. Niður-
staða mín er sú að Jesús Kristur
birtist mannkyni með þessum hætti
og geri kraftaverk í kvikmynd og á
bíógestum. Drengurinn er meira ef-
ins og hann er á þeirri skoðun aö
þama hafi einfaldlega verið á ferð
venjuleg kona sem ekki hafi nennt
að standa upp í bíó. Hver veit?
Spillingin í Framsókn
Guðbjörg Gunnarsdóttir skrifar:
Nú er lag, Finnur!
Þegar sjálfseyðingarhvötin ríður
ekki við einteyming þýðir ekki að
benda á að allt sé öðrum að kenna.
Framsóknarmenn hafa mátt horfa
upp á minnkandi fylgi í hverri skoð-
anakönnuninni á fætur annarri. Og
hverjar eru skýringamar?
Menn hafa nefnt allt milli himins
og jarðar en að mínu viti er ekkert
jafnhættulegt stjórnmálaflokki og
spilling, sérstaklega þegar slíkur
hrunadans er dansaður fyrir opnum
tjöldum í fjölmiðlum. Það sem nú er
að koma upp á yfirborðið varðandi
Guðmund Bjamason, fyrrum land-
búnaðarráðherra, vegna
landakaupa í ráðherratíð
hans er og á eftir að reynast
flokknum dýrt.
Ég tek það fram að ég hef
oft séð ástæðu til að styðja
Framsókn og þess vegna er
þetta blóðugra en ella. Þetta
lítur illa út og maður hreyk-
ir sér ekki af því á vinnu-
stað að hafa stutt flokkinn.
Nú hefur Finnur gefið út yf-
irlýsingu þess efnis að maður úr
„réttum flokki" verði ráðinn í
Seðlabankann.
Og nú les maður að það verði
hugsanlega Helga Jónsdóttir! Loks
þegar færi gafst að koma sér
upp úr spillingarfarinu og
gera eitthvað af viti, annað
hvort halda áfram að spara
og ráða engan í stað Stein-
gríms eða að setja flinkan
fagmann í stöðuna, þá er
þetta útkoman. Það verður
auðvitað hlegið að svona
ráðslagi.
Finnur, geröu nú eitthvað
smart í stöðunni, komdu
okkur upp úr bitlingaruglinu, nóg
er aö gert. Fjallið er að taka jóðsótt
eftir eins og hálfs árs meðgöngu og
allir bíða spenntir. Best væri að
engin mús fæddist.
Finnur
Ingólfsson.
íþróttir í vanda:
Sjálfboðaliða
Pétur Hrafn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Körfuknattleiks-
sambands íslands, skrifar:
Stefán Ingólfsson vill meina í
kjallaragrein í DV að körfuknatt-
leiksíþróttin eigi í vanda og nefnir
fækkun á iökenda- og áhorfenda-
fjölda. Gríðarleg uppbygging hefur
átt sér stað í körfuknattleiknum á
undanfomum árum. Um þróun iðk-
endafjölda boltagreina hérlendis
vísast til hjálagðrar töflu og geta
lesendur dæmt hver fyrir sig um
vanda körfuknattleiksins. Aldrei
hefur verið varið jafnmiklum fjár-
munum til fræðslu- og uppbygging-
arstarfs og einmitt undanfarin ár.
Ný félög hafa sprottið upp um allt
land. Einnig á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutverk KKÍ hefur verið að búa til
umgjörð fyrir þessi félög til aö
ILH@H[M]Q5)Æ\ þjónusta
allan sólarhríngimi
H H
i i ^ \ \ j i
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
blrt verða á lesendasíðu
Það dettur engum í hug aö foreldrar
í sjálboðastarfi reki félagsmiöstöðv-
arnar í borginni.
starfa innan og hefur það tekist
mjög vel.
Vandamál höfuðborgarsvæðisins
hefur verið að fá fólk til starfa. Það
er ekki nýtt vandamál. Sum af nýju
félögunum sem stofnuð voru á höf-
uðborarsvæðinu hafa ekki lifað af.
vantar
Þar hefur ekki verið um að kenna
skorti á iðkendum heldur skorti á
sjálfboðaliðum til starfa hjá deild-
unum. Þannig var körfuknattleiks-
deild lögð niður sem var með á milli
90 og 110 iðkendur í yngri flokkum.
í dag eru þessir iðkendur á götunni.
Ástæðan; skortur á sjálfboðaliðum.
Það er auðvelt að gagnrýna en
erfiðara að koma með lausnir. Ég
sakna þess að Stefán skuli ekki
koma fram með hugmyndir að
lausn á vandamáli íþrótta í Reykja-
vík. Körfuknattleiksráðið og
íþróttabandalag Reykjavíkur eiga
að krefjast þess af Reykjavíkurborg
að borgin ráði starfsmenn sem
vinni fyrir deildir félaganna. Þessir
starfsmenn sjái um allan almennan
rekstur deildanna og taki þá vinnu
af þeim sjálfboðaliðum sem starfa
innan þeirra. Þannig fengist festa
og meiri gæði í starf deildanna. Það
dettur engum í hug að foreldrar í
sjálfboðastarfi reki tónlistarskólana
í borginni. Það dettur engum í hug
að foreldrar í sjálboöastarfl reki fé-
lagsmiðstöðvamar í borginni. Það
virðist hins vegar vera í lagi að for-
eldrar í sjálfboðastarfl reki íþrótta-
hreyfinguna, stærstu forvarnarsam-
tök landsins!
Þverpólítískt sukk
EJ skrifar:
Það vakna ýmsar spurningar
vegna erflðleika í atvinnurekstri á
ísafirði og Flateyri þar sem þing-
maður er ekki langt undan. Skel-
fiskur ehf. á Flateyri og Básafell á
Isafirði eru fyrirtæki í klandri sem
Einar Oddur Kristjánsson tengist
sterkum böndum . Stutt er síðan
kúffiskvinnsla Skelflsks á Flateyri
sem mikið hafði verið látið með
lokaði og var flutt til Langaness.
Fyrirtækið virðist hafa þegið
hundruð milijóna króna í styrki af
almannafé. Sérstaklega hafði Finn-
ur Ingólfsson iðnaðarráðherra ver-
ið örlátur á styrki af fé sem eyrna-
merkt er ráðherra. Byggðastofnun
hefur lánað ómælt til stofnunar-
innar. Þá fékk fyrirtækið niðurfell-
ingu skulda í nauðasamningum og
hefur aftur farið fram á hið sama.
Þarna kemur alþingismaðurinn
Einar Oddur Kristjánsson við sögu
sem aðaleigandi. Þá er annar stór
eignaraðili alþingismaðurinn
Ágúst Einarsson. Annar er í stjóm
en hinn í stjórnarandstöðu. Getur
verið að þarna sé á ferð
þverpólítískt sukk?
Öld kveður og árþúsund einnig:
Tímamótum verður
ekki frestaö
Ýmsir góðir menn vilja endilega
fresta þessum miklu tímamótum
um eitt ár -
til ársloka
2000. Þeir
skrifa lærðar
greinar í blöð-
in, sumar
þónokkuð lang-
ar og hafa með-
al annars fyrir
sér fyrri tíma
menn sem voru
ekki alveg með á
nótunum frekar
en þeir sem lengi
slógu því fóstu að
jörðin væri flöt.
Birgir Sveinsson
skrifar hér í blaðið
29. nóvember:
„Ávallt verður að
ljúka hverjum tug til
þess að talan 10
verði til.“ Alveg lauk-
rétt, eins og meðfylgj-
andi mynd af mál-
stokk sýnir glögglega:
Talan; 10 verður til
strax og hún birtist, en
ekki þegar komið er að
tölunni 11. Teljarinn
byrjar á 0, bæði i hinu
efnislega og hinu hug-
læga, tímatalinu m.a. gn „ .
Þanmgfæðist barrnö ánúlV
ekki 1 ars, Jesu-bamið h . “
ekki heldur, sem hið J||jr
kristna timatal er mið- = Fkkert
að við. Þannig er nú byrjará
það. En þeim sem ekki • ’
fást til að byggja á stað-
reyndum er auðvitað frjálst, í lýð-
ræðinu sem við lifum við - og öllu
tjáningarfrelsinu, að byggja á öðru,
jafnvel sandi. En það reynist ekki
mjög haldgott. En njótum nú helgi
aðventunnar, hinnar síðustu á
þessari öld og árþúsundi.
Tilboö óskast:
Mokstur Fram-
sóknarfjóssins
Axel hringdi:
Ég er með auglýsingu. Fólk
vantar til að moka út Framsóknar-
íjósið. Verkefnið er fólgið í að
hanna sérstök siðblindugleraugu.
Flokkurinn ábyrgist nóg af til-
raunadýrum, enda vandamálið út-
breitt innan Qokksins. Moksturs-
verkefnið er fjölbreytt, allt frá
manni sem gefur vinum, flokks-
systkinum og vandamönnum ríkis-
jarðir, upp í það að flytja heilar
ríkisstofnanir út á land bara vegna
þess að framsóknarmanninn lang-
ar til að búa þar eftir að hann
hætti sem ráðherra. Annar ráð-
herra setur landið undir vatn svo
við íslendingar getum haldið
áfram að greiða niður raforku fyr-
ir erlend álver- og Framsóknar-
flokkinn. Tilboð óskast.