Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 17 I>V Fréttir 30 brúttólesta stálbátur fyrir Bílddælinga: Sjósettur innan skamms - enginn samningur um frekari smíði, segir Matthías Einarsson Skipasmíöastöðin á ísafirði er nú að ljúka smíði á 30 brúttólesta stál- skipi sem hleypt verður af stokkunum um miðjan mánuðinn. Matthías Einarsson framkvæmda- stjóri segir að Skipasmíðastöðin á ísa- firði sé eina stöðin á landinu sem er að smíða fiskiskip frá grunni. Hjá Ósey í Hafnarfirði sé reyndar líka ver- ið að setja saman stálbáta en þeir skrokkar eru smíðaðir í Póllandi. „Staðan í greininni er og hefur ver- ið barningur og menn hafa ekki verið með smíðaplön til langs tíma. Á síð- asta ári vorum við reyndar með tvo báta undir, Reykjaborg og Stapavík, og síðan þennan bát. I dag erum við í svipaðri stöðu og þegar við vorum að klára Stapavíkina að það er enginn samningur um frekari smíði í höfn.“ Báturinn sem nú er verið að ljúka við er smíðaður fyrir Guðlaug Þórðar- son og fyrirtæki hans, Þiljur ehf. á Bíldudal. Skipið er gert til dragnóta- Nýja skipinu, sem verið er að smíða fyrir Bílddælinga, verður hleypt af stokkunum innan skamms. Matthías Einarsson, framkvæmda- stjóri Skipasmíðastöðvarinnar á ísafirði. DV-myndir Hilmar Þór. og línuveiða og er mjög vel búið tækj- um. Báturinn er 15,7 metrar á lengd og 4,8 metrar á breidd og telst vera 30 brúttólestir. Hann er hannaður af Sig- urði Jónssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra stöðvarinnar. Að sögn Matthíasar mun báturinn kosta um 60 milljónir króna. „Við erum lika í viðgerðum og smíðin á þessum bát tekur ekki nema um einn þriðja af verkgetu mannafl- ans yfir árið. Það þyrfti að smíða þrjá svona báta á ári til að hafa fulla virmu við nýsmiði fyrir mannskapinn. Við erum því heilmikið í viðhaldi skipa og að smfða það sem tU feUur, eins og snjóskóflur á moksturstæki og annað. í dag starfa um 20 manns hjá fyrirtæk- inu og af þeim vinna um 15 eða 16 við framleiðsluna," segir Matthías Ein- arsson. -HKr. Sérsmíðum snjókeðjur undir allar gerðir vinnuvéla og vöruflutningabifreiða. Snjókeðjumarkaðurinn G.Á. Pétursson, Faxafeni, 14, . s. 568 5580. Gefum okkur Öllum betri frarntíð m 'w *• ■ Ert þú aflögufær? Bamakuldaskór sérverslun meö barnaskó í bláu húsi v/Fákafen, sími 568 3919. smáskór st. 19-27 V. 2.990 Opið: mán.-fim. föstudaga laugardaga sunnudaga 10-18 10-19 10-18 13-17 Sunnuhlíð sími:462 4111 Kápa Jakki kr, 8.990- Kr. 6,390-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.