Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 jólaundirbútiingtirinn í desember. 25" Helga Guðrún Johnson á fullu í jólabakstri: „Þessi jól voru sérstök og þótt ég sé vön að vera innan um margt fólk á jólum þá voru þetta örugglega fjölmennustu jólin sem ég hef upplifaö." klæddum okkur upp í búninga. Ég átti dúkku sem sprautaði vatni og ætlaði að nota hana til að skemmta gestum. Við foldum okkur í fata- henginu og biðum þess að verða köll- uð fram. Eitthvað stóð nú á kallinu og við gleymdumst í langa stund. Mér fannst þetta heil eilífö og ég man alltaf hvað mér leiddist þarna i fatahenginu. Þegar svo á endanum var kallað í okkur var nokkuð af okkur dregið og dúkkan orðin vatns- laus. Jólasveinaatriðið okkar var því ekki alveg eins og við höfðum skipu- lagt en við fengum klapp og sælgæti að launum." Helga Guðrún minnist líka frænda síns frá Bandaríkjunum sem tók ekki virkan þátt i jólagleðinni með fjölskyldunni enda nýgenginn í Hare-Krishna söfnuðinn. „Á meðan við héldum kristileg jól frammi í stofu var þessi frændi minn að reyna að frelsa hina unglingana í fjölskyld- unni með Hare Krishna boðskap. Ég hafði engan áhuga á þessu og ég held að hann hafi ekki náð neinum á sitt band,“ segir Helga Guðrún og bætir við. „Þessi jól voru frábrugðin öðr- um jólum og mjög skemmtileg. Þótt ég sé vön að vera innan um margt fólk á jólum þá voru þetta örugglega fjölmennustu jólin sem ég hef upplif- að,“ segir Helga Guðrún Johnson. -aþ Valdimar Ornólfsson: „Viö fengum kerti og spil og stundum bækur og þá ekkert endilega barnabækur." Valdimar Örnólfsson, íþróttastjóri HÍ: Dönsuðum alltaf kringum jólatréð Sigurbjöm Einarsson biskup: Ákaflega djúp kyrrð og friður Sigurbjöm Einarsson bisk- up er fæddur 1911. Hann segir jólin þegar hann var tiu ára hafa verið ósköp lík öðrum jólum í baðstof- unni austur í Meðallandi. Þau hafl þó verið býsna mikið frábrugðin þeim jólum sem nú þekkjast. „Lífið var einfalt og fá- brotið miðað við það sem nú er. Það sem ég lifði á jólum og á hátíðum yfir- leitt var helgin. Mér fannst það vera ánægjulegt þegar helgin kom inn í bæ- inn og inn i okkur sjálf. Við fengum enga jólagjöf nema kannski eitt kerti. Það var nokkum veginn ör- uggt. Kannski fengum við eina sokka, vettlinga eða nýja skó, en það var ekki sjálfsagt. Helgin gekk í garð klukkan sex, þegar útiverkum var lokið og undir- búningnum heima fyrir. Þá voru jólasálmamir sungnir og húslestur- inn lesinn um kvöldið. Það var mik- il kyrrð yfir aðfangadagskvöldinu og jólanóttinni. Það var ákaf- lega djúp kyrrð og friður sem fylgdi því. Þá var ýmis til- breytni, - svo sem eins og það að gefa fuglunum ríf- lega og einnig öllum fénaði. Allt sem lifði innan og utan bæjar átti að njóta helgi jólanæturinn- ar. Þá logaði ljós í baðstof- unni um nótt- ina. Snemma á jóladagsmorg- un vaknaði maður við að þá skyldi les- inn húslestur- inn. Það var mikil tilbreytni og það var öðmvisi aö vakna þann morgun en alla aðra morgna ársins. Fólk gerði sér dagamun í mat; all- ir fengu þá ríflegar skammtað. Eitt- hvað var bakað á öllum bæjum, enda kom fólk saman á jóladagskvöld og að kvöldi annars í jólum. Þá buðu nágrannar hverjir öðrum og gjarnan var spilað sem var líka tilbreyting. Það var þó aldrei spilað á jólanótt, það var alveg regla." -HKr. Sigurbjörn Einarsson biskup: „Fólk geröi sér dagamun í mat; allir fengu þá riflegar skammtaö." I f D » ** f # Jolagjofin i a Síðir ekta pelsar. Verð aðeins kr. 135.000. Aldamóta / jóladress. Handunnin gjafavara í úrvali. Opið virka daga kl. 10-18, laugard. I0-I5,sunnud. 13-15. Sigurstjarnan í bláu húsi við Fákafen. Sími 588 4545. Æskujól Valdimars Ömólfssonar voru haldin í vetrarríkinu á Suður- eyri við Súgandafjörð. Valdimar rifj- ar upp jólin 1942 en þá var hann tíu ára gamall. „Söngur og aftur söngur er það sem kemur fyrst upp í hugann þegar ég minnist æskujólanna heima á Suðureyri. Mamma var organisti og pabbi söng í kirkjukómum þannig að það tilheyrði að bamahópurinn, en við vorum tíu, færum i kirkju á jólum," segir Valdimar. Fleiri jólasiðir vom hafðir í heiðri Stefán Karl Stefánsson leikari: Hurðaskellir gekk um og skellti hurðum Stefán Karl Stefánsson leikari hef- ur alltaf verið mikið jólabam í sér og jólin árið 1985, þegar hann var tíu ára, em ein þau skemmtilegustu sem hann man eftir. „Þetta voru góð jól og ein þau bestu í minningunni. Ástæðan var nefnilega sú að ég fékk lítið, hvítt Yamaha-píanó í jólagjöf frá mömmu og pabba. Mig hafði lengi dreymt um að eignast hljóðfæri og það má eigin- lega segja að ég hafi ekki slitið fing- urna af hljómborðinu síðan,“ segir Stefán Karl. Hann segist reyndar alltaf hafa fengið flestar gjafirnar, enda yngst- ur þriggja bræðra. „Ég fékk alltaf að gera mest og til að mynda kom það oftast í minn hlut að velja jóla- tréð. Ég var algerlega óður í aö skreyta tréð á Þorláksmessukvöld. heima hjá Valdimar. „Við dönsuðum tU dæmis mikið i kringum í jólatréð. Það var aUtaf einstök stemning og hátíðleg þegar íjölskyldan sameinað- ist við jólatréð. Það var mikU reglu- semi á heimUinu og ég minnist þess líka að það var mikið spUað á jólun- um. FuUorðna fólkið spUaði bridds en við krakkamir héldum okkur við einfaldari spU.“ Skipst var á jólagjöfum. Valdimar segir þær hafa verið smáar miðað við það sem tíðkast í dag. „Við feng- um kerti og spU og stundum bækur og þá ekkert endUega barnabækur.“ Hangikjöt var á borðum öU jólin og á heimUi Valdimars var einnig laufabrauð sem fjölskyldan bjó tU í sameiningu. „Amma mín var að austan og sumir segja að hún hafi komið með laufabrauðið tU Suður- eyrar en það tíðkaðist almennt ekki á Vestfjörðum á þessum áram. Með þessu drukkum við gjaman bland, appelsín og malt, sem okkur krökk- unum fannst auðvitað afbragðsgóður drykkur," segir Valdimar. -aþ Stefán Karl Stefánsson leikari: „Ég fékk alltaf aö gera mest og til aö mynda kom þaö oftast í minn hlut aö velja jólatréö." Ég man líka að HurðaskeUir kom í heimsókn þessi jól sem önnur. Hann gekk um húsið og skeUti huröum áður en hann gaf okkur bræðrunum gjafir. Þetta voru ógleymanlegar heimsóknir og við biðum aUtaf spenntir eftir jóla- sveininum." Hvíta píanóið, sem er í raun skemmtari, stendur þó upp úr í minningunni. „Ég tók strax tU við að æfa prógramm og svo þegar við fór- um í jólaboð á jóladag þá spUaði ég og söng fyrir gestina. Ég hefði ekki getaö fengið betri gjöf,“ segir Stefán Karl Stefánsson. -aþ merískir TILBOÐ Hvildarstoll úrtaui kr. 39.900,- Símmúla 28 - 108 Reykjavík - Sími 568 0606

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.