Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Blaðsíða 36
a$,piTma
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
Espigeröismálið:
Von á ítarlegri
yfirlýsingu
„Við hörmum þann fréttaflutning
sem var á báðum Sjónvarpsstöðvun-
um og reyndar einnig í Degi í gær.
Manni virðist sem umfjöllun um Espi-
gerðismálið sé af fullkominni van-
þekkingu um öll atriði málsins hvort
heldur efnisatriði eða áhrif skilorðs-
rofs í réttarfari," sagði Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, í samtali við DV i morgun.
Aðspurður um kæru sem liggur fyr-
ir hjá lögreglu gagnvart manninum
sem framdi morðið um helgina sem
talsmaður íbúa í Espigerði 4 greindi
frá í gær og skilorðsbundnar eftir-
stöðvar refsidóms sem brotamaðurinn
afplánaði fyrr á árinu sagði Hörður:
„Ég á von á því að frá okkur verði
send ítarleg yfirlýsing um þetta mál í
heild. Ég get bara sagt að mér er
' brugðið yfir þessum fréttum sem eru
byggðar á misskilningi," sagði Hörður
Jóhannesson. -Ótt
3,5 milljarðar
í heilbrigðis-
stofnanir
í 2. umræðu um ijáraukalög þess
árs a Alþingi í gærkvöld var samþykkt
að veita 3,5 milljörðum króna til heil-
brigðisstofnana til að standa straum af
'^hallarekstri ársins. Að sögn Jóns
Kristjánssonar, formannns fjárlaga-
nefndar, var einnig samþykkt að veita
um 12 miltjómmi króna til Ríkislög-
reglustjóra og 14 milljónum til lögregl-
unnar í Reykjavík til að standa
straum af kostnaði við rannsókn
stórra fíkniefnamála undanfarið. -hlh
Það er að mörgu að huga þessa dagana, því jólin nálgast óöfluga. Það þarf að ákveða hvaða jólagjafir á að kaupa, hvernig jólafötin eiga að vera, svo ekki
sé talað um aldamótadressið. Þessar ungu stúlkur voru greinilega að ræða málin þar sem þær sátu á kaffihúsi í borginni í gær.
DV-mynd Hilmar Þór
Biðlisti fyrir gæludýr í einangrunarstöðinni í Hrísey:
Stöðin sprungin og
síminn þagnar ekki
- umsjónarmaöurinn segist vera að gefast upp
„Stöðin er gjörsamlega sprung-
in. Ég er að gefast upp. Heimilið
er undirlagt af símhringingum,
jafnvel fram á nætur,“ sagði Stef-
án Björnsson, umsjónarmaður
einangrunarstöðvarinnar í Hrís-
ey. Langur biðlisti fólks sem vill
flytja gæludýr inn í landið hefur
myndast. Þeir sem sáekja nú um
pláss fyrir gæludýr sín í einangr-
un þurfa að bíða fram í september
á næsta ári. Nú eru í stöðinni
pláss fyrir átta gæludýrabúr.
Stefán sagði að fólk hringdi
trekk í trekk þótt búið væri að
gefa dýrum þeirra ákveðinn tíma
á stöðinni. „Við erum hætt að
svara í hvert skipti sem síminn
hringir, því ella hefðum við ekki
tíma til að sinna dýrunum. Það
þýðir ekkert að skamma okkur
því það er landbúnaðarráðuneytið
sem á stöðina og ræður stærð og
innflutningi. Þeir gefa út leyfi
endalaust, en á sama tima er
biðlistinn eins og raun ber vitni.
Fólk skilur ekkert í því að það
skuli fá leyfi en ekki koma dýrun-
um sínum í einangrun.
Maður hélt að það væri að
draga úr þessum innflutningi, en
hann virðist fremur vera að
aukast heldur en hitt. Aukningin
hefur verið áberandi mikil á
iandsbyggðinni. „
Hákon Sigurgrímsson hjá land-
búnaðarráðuneytinu sagði að til
stæði að stækka einangrunarstöð-
ina um helming. Teikningar væru
tilbúnar og beðið eftir ákvörðun
um fjárveitingu. Ef hún fengist
yrði verkið boðið út strax upp úr
áramótum. Þá væru fyrirhugaðar
endurbætur á gamla húsinu sem
miðuðu að fullkomnari einangr-
un.
Spurður hvort ekki kæmi til
greina að byggja einangrunarstöð
nærri höfuðborgarsvæðinu sagði
Hákon að það væri áfram í um-
ræðunni. Engin ákvörðun hefði
þó verið tekin um slíka byggingu
enn enda væri áherslan á að
stækka Hríseyjarstöðina til að
hægt væri að anna þeirri ótrúlegu
aukningu í innflutningi á gælu-
dýrum sem orðið hefði á árinu.
Ráðuneytið veitti þeir sem sæktu
um leyfi gegn staðfestingargjaldi.
Útilokað væri að draga úr leyfis-
veitingum eða flokka þær eftir að-
stæðum umsækjenda.
-JSS
Veðriö á morgun:
Þurrt og
bjart suð-
vestanlands
Á morgun verður norðaustlæg
átt. 8-13 m/s en 10-15 norðvestan
til. É1 um landið norðan- og aust-
anvert en þurrt og fremur bjart
suðvestanlands.
Hiti verður í kringum frost-
mark framan af degi en síðan
hægt kólnandi.
Veöriö í dag er á bls. 37.
r Bangsahúsgögn
úr tré
fyrir börnin
jkAv*
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavörur
Hjálmar Árnason:
Enginn tilgangur
- Norsk Hydro-fundar
Hjálmar
son.
Arna-
„Það hefðu ekki þjónað neinum
tilgangi að fá fulltrúa Norsk Hydro á
fund iðnaðamefndar þar sem for-
sendur hafa ekkert breyst," sagði
Hjálmar Árnason,
formaður nefnd-
arinnar, í samtali
viðDV.
Árni Steinar
Jóhannsson, full-
trúi vinstri
grænna, fór fram
á við iðnaðar-
nefnd að hún
kallaði fulltrúa
Norsk Hydro á
sinn fund vegna Fljótsdalsvirkjunar-
málsins. Atkvæðagreiðsla fór fram
um tillöguna í nefndinni í gær og
var hún felld með 6 atkvæðum
stjómarliða gegn 3 atkvæðum stjórn-
arandstöðu.
„Það hefur ekkert nýtt komið fram
sem breytir forsendum," sagði
Hjálmar. „í öðm lagi þykir það ekk-
ert eðlilegt að vera að fara bónleið til
Noregskonunga í sjálfstæðu máli.“
Hjálmar sagði að iðnaðarnefnd
myndi funda um Fljótsdalsvirkjun í
kvöld. Síðan væri gert ráð fyrir
„löngum laugardegi". Nefndin
stefndi að því að ljúka málinu um
helgina. -JSS
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i