Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 lö'W fréttir 16 ára aldurstakmark fyrirsæta í endurskoöun barnalaga: Barnungir krakkar í sýningarstarfi - segir félagsmálaráðherra og minnir á ábyrgð foreldra Páll Pétursson félagsmálaráðherra segir að tilmæli umboðsmanns bama, Þórhildar Líndal, um að lág- marksaldur til þátttöku í fegurðar- og fyrirsætukeppnum verði 16 ár, hafi farið til nefndar sem vinni að endur- skoðuninni. Hann segir það sitt álit, að það sé „sjálfsagður hiutur" að 16 ára aldurstak- mark fari inn í bamalögin, en eðlilegt sé að það fari inn með almennri lagabreytingu. Páll kveðst hafa gert ráð fyrir að nefnd Davíðs Þórs lagaprófessors lyki störf- um í fyrra. Hún sé búin að vera að síðan 1997, en hafi þá tekið við verk- inu frá annarri nefnd sem hefði leyst upp. Hann hafi verið að smáýta á endurskoðunina nú og vonist til að henni ljúki fyrir vorið. Páll segist hafa séð sjónvarps- myndina umræddu „Bak við tjöldin í tískuheiminum“ og sér hafi fundist hún „ógeðsleg og hræðileg“. Hins vegar sé spuming um heimildagild- ið. Aðeins eitt sýningarfyrirtæki sé kannað, en önnur ekki. „En ég tel víst að aldurstakmarkið verði liður í nýju frumvarpi. Ef nefndin setti það ekki inn, þá teldi ég fastlega koma til greina að gera það sjálfur áður en ég legg málið fram. En ég tel einboðið að nefndin geri þetta. En þó þetta sé ekki bannað með lögum, þá skil ég ekki þetta fólk sem lætur bamunga krakka 1 svona sýn- ingarstand. Á þessu aldri hlýtur svona vinna að koma niður á grunn- skólanámi. Mér finnst að foreldram- ir geti heldur ekki skotið sér undan ábyrgð." -JSS Félagsmálaráðherra telur einboöið að 16 ára aldurstakmark í fegurðar- og fyrirsætukeppnum fari inn í barnalög, en minnir jafnframt á ábyrgð foreldra. Lágmarksaldur hjá Eskimó módels 16 ár: Ekki hægt að komast neðar - segir talsmaður skrifstofunnar um efni sjónvarpsmyndarinnar „Við erum ánægðar með að þessi mál skuli vera komin á hreint í eitt skipti fyrir öll,“ sagði Þórey Vil- hjálmsdóttir, talsmaður Eskimó módels. Hún sagði að það sem sést hefði í margumtalaðri sjónvarps- mynd væri einungis bundið við Elite en ekki Ford-skrifstofuna sem Eskimó módels starfar fyrir. Hún sagði að skrifstofan myndi að sjálfsögði svara umboðsmanni barna, sem spurt hefur skrifstofurn-. ar hér á landi um fjölda og aldur stúlkna sem þær hafa sent út. Þórey sagði, að stúlkur, yngri en 16 ára, sem Eskimó módels hefði sent út, hefðu undantekningarlaust farið með foreldrum sínum. Að visu hefði ein stúlka farið fylgdarlaus út, en hún hefði búið heima hjá Katie Ford og fjölskyldu hennar. Yngstu stúlkurnar sem farið hefðu á þeirra vegum væru 14 ára. Þær væru þrjár talsins. Aldurstakmark í Ford- keppninni hefði nú verið hækkað upp I 16 ár. Það hefði verið gert í Ford-keppninni sem haldin var í apríl á þessu ári. „Við höfðum heyrt óljóst af þessu ástandi sem lýst var í myndinni en aldrei lent í neinu með okkar stúlk- ur. Þetta var hrikalega ljótt sem kom þarna fram og ánægjulegt að það skuli vera búiö að afhjúpa þessa menn. Ég held að allar móðurskrif- stofur, sem senda stúlkur til Mílanó hér eftir, eigi eftir að gera köfu um að svonefndir kynningarfulltrúar komi ekki nálægt þeim. Það er áreiðanlega einsdæmi að ein skrif- stofa skuli hafa komist upp meö þetta í svona langan tíma. Ég held þeir hafi náð botninum þama. Það er ekki hægt að komast neðar.“ Þórey kvaðst ekki vita um neinar íslenskar stúlkur sem lent hefðu í þeim aðstæðum sem sjónvarps- myndin sýndi. Hins vegar hefði hún eitt sinn hitt enska stúlku sem orð- ið hefði fyrir því. Hún heföi ekki verið með neinn til að passa upp á sig. -JSS Sveinn Þormóðsson ljósmyndari gaf Reykjavíkurborg filmusafn sitt: Ómetanlegur skerfur til sögu borgarinnar - sagði borgarstjóri við móttöku gjafarinnar „Þetta er ómetanlegur skerfur til sögu þessarar borgar. Sveinn hefur vaxið með borginni og hvert manns- bam sem eitthvað fylgist með þekkir Svein. Hann hefur skráð vöxt og þroska borgarinnar og ég þakka hon- um þetta rausnarlega framlag," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri þegar Sveimi Þormóðsson, ljós- myndari DV, afhenti Reykjavíkur- borg filmusafn sitt, sem spannar árin frá 1950 til 1976, til eignar. Afhending- in fór fram í Ráðhúsinu í gær. Sveinn gaf borginni filmusafnið í tilefni af útgáfu ævisögu sinnar, Á hælum löggunnar, sem Reynir Traustason blaðamaður hefur skráð. Ingibjörg Sólrún og Sigur- jón Baldur Hafsteinsson, forstöðu- maður Ljósmyndasafns Reykjavik- ur, tóku við gjöflnni sem fyllir sex stóra pappákassa. Sveinn sagðist ánægður með að fllmumar væru í réttum höndum. „Ég veit ekki betri eiganda að filmusafninu en Reykjavíkurborg. Hér hef ég búið allan minn aldur,“ sagði Sveinn. Hann bætti við að engar kvaðir fylgdu gjöfmni aðrar en þær að safnið yrði skipulagt og fengi þann sess sem því ber að Sveinn Þormóösson Ijósmyndari afhendir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra filmusafn sitt og um leiö nýja ævisögu sína sem Reynir Traustason skráöi. DV-mynd ÞÓK mati borgaryflrvalda. Sveinn hóf feril sinn sem ljósmynd- ari um 1950. Hann starfaði sjálfstætt framan af en var fastráðinn ljósmynd- ari á Morgunblaðinu til ársins 1976. í framhaldinu starfaði hann á Dagblað- inu og síðan DV við sameiningu Dag- blaðsins og Vísis. Þar er hann enn í fullu starfi. -hlh Utþrá Finns Mikið er rætt um sameiningu ís- landsbanka og Landsbankans. Fundir hafa átt sér stað milli starfsmanna bankanna og er talið að helsti ágreining- ur um sameiningu sé innan íslands- banka þar sem Björn Björnsson fer fyrir liði. Nú heyrist að sjálfur bankamálaráð- herrann Finn- ur Ingólfsson sé lítt uppnæm- ur yflr sameiningunni en leyfi samt mönnum að sprikla. Finnur er sagður hugsa stærra og vilja sameiningu Landsbankans eða Búnaðarbankans við erlenda bankakeðju. Er þar helst horft til norrænu bankakeðjunnar Merita- Nordbanken sem er sameign Svía og Finna. Sá banki er að bera ví- urnar í norska Kreditkassen og talið er víst að ísland sé einnig á óskalistanum... Bið borgar sig Það er ekki mikil gleði meðal * Markúsar Arnar Antonssonai- út- ) varpsstjóra og annnarra stjómenda RÚV með þá tillögu Hjálmars Jónssonar alþingis- manns að Sjónvarp- ið verði skikkað til aö koma þeim 60 til 70 sveitabæjum 1 sem ekki ná sjón- varpsmerki í san band. Telja RÚV menn aö kostnað ur við endur- 1 varpsstöðvar : verði ekki undir 230 milljónum króna og þeir peningar séu ekki til. Innanbúðarmenn hafa reiknað út að stóran hluta sjónvarpsbæjanna sitji einn til tveir einstaklingar á aldrinum 60 til 70 ára. Með því að biða í 10 ár verði málið sjáífkrafa I leyst þar sem bæimir verði komnir 1 í eyði og bændumir til byggða... Nýr dagskrárstjóri Senn líður að því að Sigurður Valgeirsson , dagskrárstjóri Sjón- varpsins, taki pokann sirrn og haldi út á grösugar lendur PR- mennskunnar í sam- vinnu við son sinn. Þess er beðið I of- væni að nýr maður verði ráðinn í hans starf. Inn Sjónvarpsins segja menn að erfltt verði fyrir útvarpsráð að ganga fram hjá Rúnari Gunnarssyni sem verið hefur varadagskrárstjóri um ára- skeið ef ekki áratuga. Hann er sagður þaulreyndur í faginu... Fyrrum æstur Halldór Blöndal hefur þótt mjög harðsnúinn á stól forseta Alþingis. Hann gefur ekkert eftir og þannig hefur honum lostið saman við þungavigtarmenn á borð við Steingrim J. Sigfússon þannig aö klukknahljómur hefur fyllt sali þingsins þegar for- setinn hefur lamið á spilverk sitt, bjölluna. Halldór hefur mátt taka sig og miðla málum og sætta sjónarmið. Ýmsum finnst honum fara hlut- verkið vel úr hendi en öðrum mið- ur. í ljósi nýrrar stöðu Halldórs gerði samflokksmaður hans, séra Hjálmar Jónssonþessa vísu: Fyrrum œst sig upp hann gat og á honum þungur skrióur. En nú er Dóri diplómat og deilur setur niður. Umsjón Reynir Traustason I Netfang: sandkom @ff. is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.