Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 20
20 ^sygarðshornið LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 Bókmenntaverðlaunin Óþarft er að tala um tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna sem eitthvert reginhneyksli. Algjör- lega virðist hafa gleymst í hita um- ræðunnar að tilnefndar voru fræði- bækur og almenn rit sem ánægja virðist ríkja með og nú í fyrsta sinn voru bamabókaverðlaun Reykjavík- urborgar höfð með, sem hefði átt að vekja meiri athygli á þeim bamabók- um sem tilnefiiingu fengu. Það er sér- lega óviðfelldið að sjá fjallað um góð- skáld sem undirmálsfólk óg skussa. Það nær engri átt að tala um fólk eins og Þorstein frá Hamri. Braga Ólafs- son eða Steinunni Sigurðardóttur eins og þar væra alþekkt leirskáld á ferð. Verk þessa fólks hafa til þessa einkennst af allt öðm en „meðal- mennsku"; Þorsteinn frá Hamri er að vísu manna prúðastur en samt er orðalagið „borgaraleg snyrti- mennska" satt að segja dónalegt þeg- ar hann á í hlut, en þetta lét Súsanna Svavarsdóttir hafa eftir sér að ein- kenndi tilnefnda höfúnda og kvartaði um leið yfir því að Ólaf Jóhann Ólafs- son vantaði, sem mun þá væntanlega vera að hennar mati ímynd bóhems- ins í íslensku bókmenntalífi, nokkurs konar arftaki Dags Sigurðarsonar. En hann vantaði. Og Ólaf Gunn- arsson sem var að ljúka stórvirki. Og Þórunni Valdimarsdóttur, svo að þrír höfundar séu nefndir sem almennt lof hafa fengið fyrir skáldsögur sínar. Og úr því að skáldsögur sem era aug- lýstar vora í banni hjá dómnefnd fag- urbókmennta þá vantaði kannski einn mann mest og vekur mesta fúrðu; Sigurð Pálsson, þetta öndvegis- skáld sem sniðgenginn er ár eftir ár af dómnefndum. Það vantaði fullt af bókum en einkum og sér i lagi vant- aði þær skáldsögur sem mesta at- hygli hafa vakið nú fyrir þessi jól. Hvers vegna? Dómnefndin sem tilnefiidi í flokk fagurbókmennta virðist hafa sett sér það markmið að sniðganga sérstak- lega þær bækur sem útgefendur sjálf- ir hafa hampað. Hún virðist hafa unnið eftir því sjónarmiði að útgef- endur sjálfir séu fullfærir um að vekja athygli á söluvænlegum bók- um; hennar hlutverk sé að vekja at- hygli á hinum bókunum, þeim sem hljóðlátari væra, góðu bókunum. Hún virðist hafa starfað eftir þeirri reglu að bókmenntagildi sé ævinlega í öfúgu hlutfalli við sölutölur og aug- lýsingamagn. Auglýsingaskram kringum skáldsögur virðist í augum dómnefndarmanna setjast eins og skúm á þær. Slíkar bækur era flekk- aðar samkvæmt þessum þankagangi, sem við sjáum lika árlega í greinum Jóhanns Hjálmarssonar í Morgun- blaðinu sem hamrar á þeirri kenn- ingu sinni að því meir sem bækur séu auglýstar þeim mun verri séu þær, og ekki nóg með það; þvi þykk- ari sem þær séu, þeim mun verri séu þær. Þetta er misskilningur. Bækur era auglýstar vegna þess að útgefendur telja sig hafa ástæðu til að ætla að þær auglýsingar skili árangri - og auglýsingar skila árangri sé um að ræða góð- an vaming og snefil af áhuga hjá almenn- ingi. Fólk hefúr áhuga á höfundum vegna þess að það hef- ur lesið einhveijar bækur eftir þá höfúnda og finnst þeir skrifa vel. Síðustu forseta- kosningar færöu okkur heim sann- inn um að þrotlausar auglýsingar á einhverju sem ekki hefur hljóm- grunn skila engu - þá auglýsti Ástþór Magnússon fyrir stjamfræðilegar upphæðir og uppskar ekkert. Samkvæmt þessu er til hin óflekk- aða bók. Hin drifhvíta skáldsaga sem er ónumið land fyrir bókmennta- manninn sem einn kann að meta, og einn kann að skilja. Skáldsagan sem engar klisjur era sagðar um, engar stjömur era gefnar, ekkert umtal er um, enginn áhugi á meintum höfúnd- inum (því hann má ekki vera á stalli enda Roland Barthes búinn að sanna í einni af páfabullum sínum að Höf- undurinn sé ekki til); skáldsagan sem er hreinn og hvítur snjór; skáldsagan sem enginn hefúr lesið - Fyrr en ég kem að þessu landi og uppgötva það. I öllum bókmenntafræðingum blundar þannig lítill Leifur, lítill landvinningamaður. Ólafur Jóhann Ólafsson átti aldrei nokkra mögu- leika á því að verða tilnefhdur þvi að ferill hans allur er flekkaður látlausri velgengni, stöðugu umtali, áhuga al- mennings. Það er ekki hægt að „upp- götva“ hann. Þaö er ekki hægt að láta aðra sjá að maður sé frumlegur í hugsun og víðlesinn maður með því að segjast hafa lesið hann. Það er al- veg sama hvemig bók hann skrifar: hann verður aldrei tilnefndur af dóm- nefhd sem sett er saman eins og sú sem hér starfaði. En það er samt óþarfi að rífa klæði sin. Það er bara gaman að fólk skuli rífast um þessa hluti og dómnefnd sem er djörf og umdeild er kannski ekki verri en hver önnur. Og sitthvað hefur gerst í sögu þessara verðlauna eða hvort man nú nokkur eftir því þegar þessi verðlaun vora að byrja og til- nefndar vora tíu bækur í hvorum flokki. Þá starfaði svona nefiid eins og núna sem taldi hlutverk sitt að Guðmundur Andri Thorsson vekja athygli á alvöra bókmenntun- um og sjá í gegnum auglýsingamold- viðrið. Þá hlutu tilnefrimgar ýmsar bækur sem sumar era maklega gleymdar og aðrar bíða þess að ein- hver leifúr komi að þeim, og sumar eflaust orðnar hluti af bók- menntaarfinum. Eina vantaði þó. Hún var eftir höfúnd sem alltof mikið hafði þá þegar verið látið með. Höfúnd sem var hampað. Höfúnd sem editorar á stóra forlögun- um hlutu að hafa búið til. Höfúnd sem hlaut að vera lélegur úr því að bækur hans seldust og vora auglýstar. Höfundurinn hét Einar Már Guð- mundsson og bókin hét Englar al- heimsins. Dómnefndin sem tilnefndi í flokk fagurbókmennta viröist hafa sett sér þaö markmið að sniðganga sérstaklega þœr bœkur sem útgefendur sjálfir hafa hampað. gurílífí Stjörnur og hórur í lífi Snorra Freys - leikmyndahönnuður endasendist um allan bæ í leit að höttum, skóm og ullarnærbrókum 6.50 Ræs. Vekjaraklukkan smeygir sér í gegnum svefnrofann - Tónlist verður að fréttum, fréttir að tónlist, tónlist aftur að fréttum. 7.30 Vakna. Andsk... klukkan orðin svona margt. Vek börnin, kem öllum af stað (fæði og klæði). 8.30 Út í bíl. Úti er snjóföl. Það munar litlu en munar samt, bíll- inn drífur ekki upp innkeyrsluna. Moka hana niður á fast. Bíllinn drífur ekki upp vatnshalla götunn- ar. Kannski ég ætti að setja vetrar- dekkin undir. Sendi Skarphéðinn fimmara út að ýta, hann ýtir Vol- vo-sleðanum út götuna á fast land. Það er gott að eiga góða að. 9.25 Börnunum hefur verið kom- ið á stofnun, vinnudagur getur hafist. Búningar frá Rauða krossinum möguleika í sýningunni. 22.30 Þykjumst búnir að lýsa sýn- inguna svona á borði, nokkuð góð- ir með okkur, nú á bara eftir að gera ALLT. 23.00 Held heim í faðm fjölskyld- unnar sem að stærstum hluta er löngu sofnuð. Best að byrja morg- undaginn snemma til að koma ein- hverju í verk. Markmið dagsins: Finna það sem upp á vantar í búningum fyrir „Stjömumar" í Iðnó, svona það sem ekki fannst í haugnum hjá Rauða krossinum og hæfir fyllibyttum.mellum, hús- vörðum og öðru mis-yndislegu fólki austur í Moskvu. Helst máta allt eftir æfinguna kl. 16.00. Ganga frá því að rétt efni verði pöntuð fyrir Hægan Elektra á litla sviði Þjóðleikhússins. Koma hand- riti og skotlista á Braga í Hreyfi- myndasmiðjunni. Koma bak- grunnsefni til Fríðu sminku (ljós- myndir: lífið í ræsinu í Rússlandi, viðtöl við Gulag-fórnarlömb og annað fréttaefni). Snorri Freyr Hilmarsson er eftirsóttur leikmyndahönnuöur sem hefur í mörg horn aö líta. Ullarnærbrækur og galakjólar 14.00 Mæti niður í Iðnó með fullan bíl af búningum, eftir viðkomu hjá Stefaníu í búningasafni Sjónvarps, Arma Supra, Þjóðleikhúsinu og hundrað öðrum stöðum í bænum. Ullarnærbrækur og gala-kjólar og 27 pör af skóm, eitthvað fyrir alla. Nema Gunna Hansson, lögguna. Mig vantar enn rússneskan löggugalla allt nema ef vera skyldi húfuna. Magnús nagar vörina 14.25 Sit æfingu og fer yfir ýmis mál með Magnúsi Geir Þórðarsyni leikhússstjóra sem er svo spenntur yfir leikritinu að hann nagar stöðugt á sér neðri vörina; merki- legt að hann skuli ekki vera búinn með hana. Æfmgin dregst til 17.20. Ekki tekst að máta búninga nema á tvo leikara, Sigrúnu Eddu og Stef- án Jónsson. 19.00 Matur. Súpa og brauð (aldrei tímir Magnús neinu). 19.30 Við Magnús (upptendraðir eftir æfinguna) setjumst ásamt Dodda ljósaskáldi yfir módel og handrit og fórum yfir lýsingar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.