Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 « viðtal Gunnar Þorsteinsson í Krossinum: Bið fyrir morðingja móður minnar - áttræð móðir hans fáll fyrir hendi morðingja í Espigerði Gunnar segir aö fíkniefnin séu hinn raunverulegi sökudólgur í málinu en ógæfu- maöurinn sem réö móöur hans bana haföi sprautaö sig meö amfetamíni. Á föstudagskvöldiö fyrir rúmri viku féll rúmlega áttræö kona, Sigurbjörg Einarsdóttir, íbúi í Espigeröi 4, fyrir hendi moröingja. Þessi tilhœfulausi og tilvilj- anakenndi verknaöur skaut öörum íbúum hússins skelk í bringu og vakti óhug og spurn- ingar í hjörtum allra sem fréttu afþessu voöaverki. Gunnar Þor- steinsson, forstööumaö- ur í Krossinum, er son- ur Sigurbjargar og hann lýsir atburöum og eftirmálum fyrir DV. Eg var erlendis vikuna áður en þetta gerðist en kom heim á mánudegi," segir Gunnar. „Mín beið fjöldi verkefna og því gaf ég mér því miður ekki tima til að heimsækja móður mína þessa annríku daga. Seint á fóstudeginum var ég á leið í sjón- varpsupptöku uppi í Kringlu fyrir Skjá einn. Þá fannst mér að ég væri svo ná- lægt aö ég gæti alveg skroppið til henn- ar í stutta heimsókn en gerði það ekki vegna tímaskorts. Á þeirri stundu hef- ur þessi voðaatburður sennilega verið að gerast.“ Gunnar sat fyrir svörum í sjónvarp- inu ásamt Snorra Einarssyni í Betel en þama vom staddir fieiri fuiltrúar trú- arsafnaða og ræddu trúmál og fleira yflr góðri máltíð. „Ég ók Snorra vini mínum heim og fór síðan sjálfúr heim og við konan mín vorum að leggja af stað í kaffiboð hjá vinafólki o'kkar þegar siminn í bílnum hringdi. Ég svaraði og heyrði rödd Einars bróður míns segja: Mamma er dáin. Hann bætti svo við: Hún var myrt. Mér fannst ég vera lamaður fyrst á eftir. Þetta kemur að manni eins og högg. Ég fór inn, lagðist niður og reyndi að átta mig en konan mín fór og sótti bömin okkar og við vorum fljót- lega öil saman komin á heimili mínu og grétum saman og báðum saman.“ Hugsaði til bróður míns „Mér varð hugsað tii Einars bróður míns sem kom að móður okkar látinni og ég taldi að væri einn niðri í Espi- gerði og ég fann sárt til með honum og fannst að hann mætti ekki vera einn. Ég treysti mér ekki til að fara til hans og bað konuna mína, Ingibjörgu, að gera það en hún er gríðarlega sterk manneskja. í þeim svifúm hringdi síminn og aft- ur var það Einar og var nú á leið heim til okkar ásamt Geir Jóni Þórissyni lögreglumanni sem þekkir fjölskyld- una vel og varð þegar ljóst þegar hann kom á vettvang hvað þurfti að gera. Hann tók utan um Einar bróður minn og huggaði hann og kom svo með hon- um upp eftir og við sátum öll saman til klukkan fjögur um nóttina og þaðan hringdum við í yngstu systur mína sem því miöur var stödd erlendis. Við grétum saman og báðum til Guðs.“ Atburðarásin í Espigerði Atburðarásin þetta óheiilakvöld í Espigerði, eins og Gunnar veit hana réttasta, var á þá leið að sennilega milli klukkan sex og sjö um kvöldið hringdi morðinginn dyrabjöllu í annarri íbúð í húsinu og fékk að hringja þar stutt símtal. Hann hafði ekki frekari samskipti við húsráðend- ur þar en hvarf á braut og mun hafa knúð dyra næst i 7D, þar sem Sigur- björg bjó, og þeirri heimsókn lauk með því að hann réð henni bana með egg- vopni. „Það sækir á mann vantrú fyrst í stað,“ segir Gunnar. „Maður viil ekki trúa því að þetta geti hafa gerst, ekki með þessum hætti. Þessi vantrúartil- finning gerir enn vart við sig og mér frnnst þetta allt óraunverulegt og býst við að móðir mín hringi þá og þegar.“ Einar, bróðir Gunnars, sem er bú- settur í Svíþjóð, var gestkomandi á landinu og bjó hjá móður sinni. Hann hafði farið út og kom aftur milli 8 og 9 um kvöldið og ætlaði að opna dymar á 7D með lykli en gat í fyrstu ekki opn- að þar sem móðir hans lá örend fyrir hurðinni. Hann lagðist á hurðina og opnaði með afli og varð þá ljóst hvað hafði gerst. „Þetta var gríöarlegt áfall fyrir hann,“ segir Gunnar. „Harrn hélt fýrst að hún hefði orðið fyrir slysi, fallið og rekið sig í. Hann reyndi fyrst að hringja i mig en náði svo í sambýlis- mann systur minnar og síðan hringdi hann í lögregluna." Enginn sá morðingjann yfirgefa vettvanginn, að minnsta kosti hafa engin vitni komið fram. Þó ætti það að vera fólki minnisstætt því hann var al- blóðugur og í miklu uppnámi. Frávita af fíkniefna- neyslu „Drengur- inn, þessi ógæfúmaður, var frávita af flkniefna- neyslu, hafði sprautað sig með am- fetamíni. Það er ein höfúð- ástæða þess að hann fremur þetta voðaverk og það er alger tilviljun að móðir mín verður fómar- lambið en ekki einhver annar. Hvort hann hefur ætlað sér þetta þegar hann knúði dyra vitum við ekki. Hvort hann var með auðgunarbrot í huga þegar hann knúði dyra vitum við ekki. En við vit- um að hann leitaði í skúffúm og skáp- um og fór í veski móður minnar, sennilega í leit að einhverju fémætu. í mínum huga er það alveg skýrt að fíkniefhin em hirrn raunverulegi söku- dólgur í þessu máli. Ef þessi vesalings piltur hefði ekki verið viti flrrtur og sviptur allri dómgreind af völdum þeirra þá hefði hann ekki gert þetta.“ Var húsum kunnugur Morðinginn heitir Elfs Helgi Ævars- son, 26 ára gamall. Hann hefúr ítrekað komið við sögu lögreglunnar fyrir önn- ur afbrot - skjalafals, þjófhaði og lík- amsárás. Hann hafði átt erfitt upp- dráttar allt frá æskuárum og leiddist snemma út í neyslu fíkniefna sem hann hafði ítrekað leitað sér meðferð- ar við. Hann fór síðast í meðferð fyrr á þessu ári en hafði fallið í sama far á ný skömmu áður en hann myrti Sigur- björgu. Elís var húsum kunnugur í Espigerði 4 þar sem móðir hans hefur leigt íbúð um tíma og hann hafði nokkmm sinn- um komið tO hennar í heimsókn og þá hafa aðrir íbúar orðið varir við hann. í fjölmiðlum hefúr nokkuð verið ftallað um tilvik sem átti sér stað í Espigerði 4 skömmu áður en morðið var framið en þá barst lögreglunni kvörtun vegna framferðis Elísar í húsinu. Enpinn í jjölskyldunni hefur noKkru sinni seð hann „Eftir því sem ég kemst næst mun hann hafa haft í frammi ógnandi hegð- un við íbúa í húsinu og hrækt á eftir þeim. Þar sem ekki var lögð fram kæra og hann ekki leiddur fyrir dómara þá get ég ekki séð forsendur til þess að lögreglan hefði átt eða verið í aðstöðu til að svipta hann frelsi," segir Gunn- ar. „Ég hef aldrei séö þennan pilt og ekkert okkar systkina þekkti neitt til hans. Það voru því engin tengsl milli hans og okkar og engar ástæður fyrir þessum verknaði svo ég viti eða geti gert mér í hugarlund." Því er líklegt að þegar Elis knúði dyra hjá Sigurbjörgu þetta örlagaríka kvöld hafi það verið í fyrsta sinn sem hún sá piltinn. En það varð jafnframt það síðasta." Elís var handtekinn á laugardegin- um eftir eftirgrennslan lögreglu og við yfirheyrslur á sunnudegi játaði hann að hafa orðið valdur að dauða Sigur- bjargar. „Geir Jón Þórisson hringdi í mig á sunnudeginum, rétt áður en ég fór á samkomu í Krossinum, og flutti mér fréttir af framgangi málsins. Ég fann fyrir ákveðnum létti en sársaukinn var áfram gríðarlegur. Á þessari sam- komu prédikaði ég ekki en talaði frá hjarta mínu við söfnuðinn og við báð- um saman til Drottins fyrir þessum ógæfúmanni og aðstandendum hans.“ Hvaða tiifinningar bærast í brjósti Gunnars þegar hann hugsar um Elís og þann verknað sem hann framdi? Bið fyrir honum „Ég bið fyrir honum. Það er ekki fordæming í mínu hjarta í garð þessa ógæfusama manns heldur eingöngu vorkunnsemi. Hann hefúr áreiðanlega átt sína drauma og vonir um lífið en siðan missti hann tökin á því og náði ekki fótfestu á ný. Ég og min fjölskylda höfúm sett okkur í samband við móð- ur hans og ég hef rætt við hana og við ætlum að hittast fljótlega. Við höfúm líka haft uppi á fóður hans og systur. Við viljum hitta þetta fólk og ræða við það og biðja með því. Það auðveldar okkur og þeim að bera þá þungu byrði sem við öllum hljótum að bera eftir þetta.“ Gunnar segir að fjölskyldan hafi þjappað sér saman í kjölfar þessa sorg- aratburðar og reynt að veita hvert öðru styrk og huggun við þessar erfiðu aðstæður. „Kjaminn í okkar trú er sá að lífið er í Kristi og dauðinn er ávinningur. Móðir mín er farin frá okkur til þess að vera með Drottni. Það sem erfitt er við þetta er að sætta sig við þessar kringumstæður sem varpa skugga á brotthvarf hennar. Eiríkur Sigurbjömsson, vinur Fjölskyldan hefur þjappaö sér saman í kjölfar þessa voöa- atburöar en þaö var Einar, bróöir Gunnars, sem fyrstur kom á vettvang.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.