Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 34
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 DV » bókarkafli Sigurfinnur Jónsson frá Sauðárkróki: Lifði af ellefu þús- und volta straum - maðurinn sem ekkert bítur á Á villisvínaveiðum í Póllandi. Gylta sem Sigurfinnur skaut af 30 metra færi með Berettunni og einni kúlu. Lífssaga Sigurfinns Jóns- sonar á Sauöárkróki er um margt ótrúleg. Þetta er mað- ur sem fer sínar eigin leiöir, hefur lifaö af 11 þúsund volta háspennustraum, oröió fyrir bíl, næstum drukknaö í brunagaddi og er þá fátt eitt taliö. Ævisaga Sigurfmns heitir Háspenna, Lífshœtta og þaö er Árni Gunnarsson frá Reykjum á Reykjaströnd sem fœrir hana í letur. DV fékk leyfi til aö birta hugleiöingar Sigurfinns um veiöiskap en hann er ein haröasta skytta í Skagafiröi þrátt fyrir fötlun sína en Sigurfinnur er meö hönd úr ryöfríu stáli í staö þeirrar sem brann af honum í há- spennustaurnum foröum. Hugleiðingar um rjúpuna Rjúpan er íslenskur fugl og hefur búið í þessu landi lengur en nokkur maður veit. Hún hefur lært að búa hér og lagað sig að umhverfmu sem hefur tekið miklum breytingum þau 1200 ár sem þjóðin hefur búið hér í sambýli við hana og hún hefur að- lagast hinni síbreytilegu veðráttu þessa lands. Hún er okkar fugl. Margt hefur verið rætt og ritað um sveiflumar í stærð rjúpna- stofnsins. Og þrátt fyrir aö ég hafi fylgst með henni lengur og af meiri áhuga en ýmsir aðrir er fráleitt að ég hafi tiltæka neina afdráttarlausa skýringu á því fyrirbæri. Ég er þó sæmilega viss um að veiðarnar hafa meiri áhrif á stofn- stærðina en viðurkennt er og ég held þvi fram nokkuð afdráttarlaust að veiðitímabilið þurfi að stytta. Það er ekkert vafamál að skilyrði til veiða geta verið svo hagstæð vegna snjóalaga og ýmissa annarra þátta að það geri veiðimönnum tiltölulega auðvelt að skjóta meginhluta stofns- ins á veiðitímanum. Við megum ekki gleyma því að veiðimönnum fer árlega fjölgandi og þeir eru sí- fellt fleiri sem nota hinar ýmsu gerðir farartækja sem gera mönn- um kleift að komast á örskömmum tíma á veiðisvæði sem voru næstum óaðgengileg fyrir örfáum árum. Kenningamar um ungadauða vegna sjúkdóma í stofninum eða iUviðra gef ég fremur lítið fyrir. Ef þessar skýringar væru réttar þá vildi ég sjá einhverjar tætlur eða dreifar af fiðri á þeim svæðum sem rjúpan heldur sig á. Á öllu mínu sparki um fjöll og fimindi í áratugi hef ég ekki séð neitt það sem bendir til fárs í ungstofni ellegar að ég hafi séð neitt sem bendi til að rjúpan hrekist út á sjó í illviðrum. Rjúpan lætur fenna yfir sig Ég hef þá trú að rjúpan finni á sér veður og búi sig undir þau. Ég minnist þess eitt sinn að ég gekk fram á rjúpur sem höfðu látið skefla yfir sig. Þá var ég á heimleið eftir að hafa lent í illviðri, stórhríð með mikilli fannkomu. Ég var að ryðjast í gegnum snjóskafl þegar ég hrein- lega steig ofan á rjúpu sem skeflt hafði yfir og upp úr skaflinum flugu síðan nokkrar sem höíðu notað sömu aðferð. Ég varð undrandi á þessu en það sagði mér ýmislegt. Þá trúi ég að rjúpur séu næmari fyrir bleytu og slagviðri en frost- hrið. Þá ályktun dreg ég af reynslu frá Málmey á Skagafirði en þar hef ég stundað veiðibjölluskyttiri að haustlagi um langt árabil. Þama verpir rjúpa en aöeins sárafá pör. Fyrstu árin, sem ég kom þama, stóð enn uppi rúst af fjárhúsi og eitt sinn í úrhellisrigningu, er ég skaust þar inn, sátu nokkrar rjúpur á garða- bandinu. Þetta voru ungar og ný- lega orðnir fleygir. En undir garða- bandinu var mikið af rjúpnadriti sem sýndi að þarna höfðu rjúpum- ar leitað afdreps í þó nokkur skipti. Fuglatalning glórulaus hringavitleysa Ég tel það fremur til óskhyggju en vísinda að telja að hægt sé að mæla stærð stórra og útbreiddra fugla- stofna eins og rjúpunnar. Ég var eitt sinn fenginn til leiðsögu ásamt fóð- ur mínum til fuglatalningar við Drangey. Þetta var laust eftir 1950 og þama var á ferðinni elsti og reyndasti fuglafræðingur landsins á þeim tíma. Um þetta ferðalag vil ég segja sem fæst annað en það að sú aðferð sem þama var notuð og sú niðurstaða sem hún gaf fór langt meö aö sannfæra mig um að svona „vísindaleiðangrar" væru ekki bara gagnslausir heldur glórulaus hringavitleysa. Það má vera að dálæti mitt á rjúpunni sé að einhyerju leyti bund- ið skapgerð minni. Ég er ör til lund- ar, óþreyjufullur og kappgjam. Þar að auki er ég mikill útivistarmaður og náttúrubam að upplagi. Á rjúpnaskyttiríi fæ ég útrás fyrir alla þessa eðlisþætti og mér hefur jafn- framt tekist að læra á sjálfan mig og temja ýmislegt sem þar var ábóta- vant. Einhvern tíma var roskinn skip- stjóri og mikUl aflamaður spurður að því hver væri galdurinn viö að fiska. „Maður verður að læra að hugsa eins og þorskurinn", var svarið. Það er mikið til í þessu og eins er það með rjúpuna. Til þess að ná árangri og þó ekki síst til að auka á ánægjuna við veiðamar þarf rjúpnaskyttan að geta sett sig í spor rjúpunnar og finna út hvar líklegt sé að hún haldi sig hverju sinni. Og þar getur margt spilað inn í, því það eru ótrúlega margir þættir sem hafa áhrif á þetta. Eitt af mörgu sem einkennir góð- an skotveiðimann er að ganga vel um veiðisvæðið og skilja ekki eftir sig rusl eða neitt það sem spillt get- ur umhverfinu. Margir halda sig t.d. við þá reglu að hirða upp eftir sig allar tómar patrónur. Þessa reglu, sem ég viðurkenni að er allra góðra gjalda verð, hef ég brotið í all- mörg ár og geri enn! Og ástæðan er einfaldlega sú að á sumrin fæ ég mér göngutúra um veiðisvæðin mín frá vetrinum áöur og upplifi á ný rjúpnatúrana. Ég fæ mikið út úr þessu. Patrónumar vísa mér þama veginn og yfirleitt man ég hvaða skoti hver þeirra tengist. Svona get ég rakið mig áfram eins og við lest- ur dagbókar sem ég auðvitað færi að loknum hverjum veiðidegi. Þess- ar yfirlitsferðir gefa mér mikið og miklu meira en lestur dagbókarinn- ar. Barátta við fálka Það er útbreiddur misskilningur að fálkinn slái rjúpuna með væng- barðinu, eins og margir vilja halda fram. Sjálfur hef ég tvívegis orðið vitni að því er fálki slær rjúpu og í bæði skiptin á sama hátt. Hann slær með klónni, eða öllu heldur fætin- um. í fyrra sinnið var ég á gangi rétt neðan viö Lambárbotninn og þá sé ég hvar fálki er að elta rjúpu og leikurinn berst í áttina til mín. Svona á að giska í 10 metra fjarlægð frá mér er hann búinn að ná rjúp- unni og þá sé ég aö hann lyftir upp hægri fætinum, seilist með hann fram að nefi og slær. Höggið var svo mikið að hausinn fór af rjúpunni sem datt niöur fyrir framan fæt- urna á mér og hausinn auðvitað líka þar skammt frá. Mér sýndist þessi fálki vera ungi frá vorinu Kominn heim á Sauðárkrók af rjúpnaveiðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.