Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 74

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 74
78 afmæli % - “ ____ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 UV Hjörleifur Sveinbjörnsson Hjörleifur Sveinbjömsson, deild- cirstjóri þýöinga- og flutningsdeildar íslenska útvarpsfélagsins hf., Nes- vegi 76, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Hjörleifur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í vesturbænum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1969, stundaði nám í þjóðfélagsfræði við HÍ 1970-72, sinnti síðan ýmsum al- mennum störfum til sjós og lands, 'stundaði nám í kínversku við Tungumálastofnun Beijingborgar 1976-77, síðan nám í kínversku og kínverskum bókmenntum viö Beijingháskóla frá 1977 og lauk BA- prófi 1981. Hjörleifur hafði umsjón meö og kenndi á ýmsum námskeiðum er lutu að kínverskum málefnum, sögu og menningu, og hélt námskeið i kínverskri tungu við Fjölbrauta- skóli Suðurlands, MH, og Endur- menntunarstofnun HÍ, nú síðast námskeið í kínverskum miðalda- bókmenntum við HÍ á haustönn 1998. Hjörleifur var blaðamaður á Þjóð- viljanum 1983-88, fræðslufulltrúi BSRB 1989-96 og er deildarstjóri þýðinga- og flutningsdeildar Is- lenska útvarpsfélagsins hf. frá 1997. Hann þýddi bókin Villtir svanir eftir kínversku skáldkonuna Jung Chang, 1994. Fjölskylda Eiginkona Hjörleifs er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, f. 31.12. 1954, borgarstjóri. Hún er dóttir Gísla Gíslason- ar, f. 30.11. 1916, fyrrv. verslunarmanns í Reykjavík, og k.h., Ingi- bjargar J. Níelsdóttur, f. 23.2. 1918, húsmóður. Synir Hjörleifs og Ingibjargar Sólrúnar eru Sveinbjörn Hjör- leifsson, f. 26.1. 1983, menntaskólanemi; Hrafnkell Hjörleifsson, f. 10.11.1985, grunnskólanemi. Systkini Hjörleifs eru Ingveldur Sveinbjömsdóttir, f. 19.3.1948, kenn- ari; Ágústa Sveinbjömsdóttir, f. 3.6. 1951, arkitekt; Árný Erla Svein- björnsdóttir, f. 20.6. 1953, bergfræð- ingur. Foreldrar Hjörleifs eru Svein- bjöm Einarsson, f. 24.4. 1919, fyrrv. kennari í Melaskóla í Reykjavík, og k.h., Hulda Hjörleifsdóttir, f. 13.7. 1924, húsmóðir. Ætt Sveinbjörn er bróðir Ingibjargar, móður Einars Júlíussonar eðlis- fræðings. Sveinbjöm er sonur Ein- ars, póstfulltrúa í Reykjavík, bróður Margrétar, móður Hróbjarts Áma- sonar, forstjóra Bursta- gerðarinnar, fóður Jóns Dalbú, sóknarprests í Hallgrímskirkju. önnur systir Einars var Jór- unn Eyfjörð, amma Hjalta Guðmundssonar dómkirkjuprests. Einar var sonur Hróbjarts, b. í Húsum í Holtahreppi, bróður Sigurðar, afa Rúriks Haraldssonar leikara. Annar bróðir Hróbjarts var Kjartan, hreppstjóri á Þúfu, afi Þorsteins Thorarensen borgarfógeta, foður Ástríðar, konu Davíös Oddssonar forsætisráðherra. Hróbjartur var sonur Ólafs, b. í Gaularáshjáleigu í Landeyjum, Sigurðssonar, b. í Hall- geirsey, Jónssonar, bróður Guðrún- ar, móður Tómasar Sæmundssonar Fjölnismanns, langafa Helga yfir- læknis, fóður Tómasar yfirlæknis og Ragnhildar, fyrrv. ráðherra. Móðir Sveinbjörns var Ágústa Sveinbjörnsdóttir, sjómanns og smiðs í Hafnarfirði og Reykjavík, Stefánssonar, b. í Vogmn á Vatns- leysuströnd, Guðmundssonar. Móðir Ágústu var Ástriður Guðmundsdótt- ir, b. I Nýjabæ í Garðahverfi, Þor- valdssonar, og Helgu Jónsdóttur, b. á Hofi á Kjalarnesi, bróður Magnúsar, langafa Sveins Egilssonar forstjóra. Jón var sonur Runólfss, b. á Ketils- stöðum, bróður Magnúsar, langafa Árna Eiríkssonar kaupmanns, afa Styrmis Gunnarssonar ritstjóra. Magnús var einnig langafi Sigríðar, langömmu Guðmundar Magnússon- ar, forstööumanns Þjóðmenningar- húss. Runólfur var sonur Magnúsar, b. á Bakka, Hallgrímssonar, b. í Am- arholti, Þorleifssonar. Móðir Hall- gríms var Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hallgrímssonar, sálma- skálds, Péturssonar. Hulda er dóttir Hjörleifs, b. í Súlu- holtshjáleigu í Villingaholtshreppi, Sigurbergssonar, b. i Fjósakoti i Með- allandi, Einarssonar. Móðir Hjörleifs var Árný Eiríksdóttir. Móðir Huldu er Ingveldur Ámundadóttir, b. í Kambi, Sigur- mundssonar, b. þar, Jóhannssonar. Móðir Ingveldar var Ingibjörg, syst- ir Sigríðar, móður Magnúsar Kjar- ans stórkaupmanns, foður Birgis Kjarans alþm. og Sigriðar, móður Jóhanns Sigurjónssonar, forstjóra Fiskistofu. Ingibjörg var dóttir Páls, b. í Þingskálum, bróður Júlíu, móð- ur Helga Ingvarssonar yfirlæknis, föður Ingvar stórkaupmanns, fóður Júlíusar Vífils, borgarfulltrúa og óperusöngvara. Páll var sonur Guð- mundar ríka, ættföður Keldnaættar, Brynjólfssonar af Víkingslækjarætt, Guðlaugs Tryggva, Jóns Helgasonar prófessors og Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Vinir og ættingjar eru velkomnir á Nesveginn mOli kl. 17.00 og 19.00 á afmælisdaginn. Hjörleifur Sveinbjörnsson. Eyjólfur Arnason Eyjólfur Árnason, fyrrv. skip- stjóri, Hraunbæ 158, Reykjavík, er sjötiu og fimm ára í dag. Starfsferill Eyjólfur fæddist í Hafnarfirði en flutti á fyrsta ári til Reykjavíkur og ólst þar upp í vesturbænum, lengst af við Framnesveginn. Hann var í Miðbæjarskólanum, stundaði síðar nám við Stýrimannaskólann i Reykjavík og lauk þaðan fiski- mannsprófi 1949. Eyjólfur hóf sjómennsku fjórtán .ára og var þá á bátum frá Stafnesi. Hann var síðan á bátum frá Sand- gerði, var stýrimaður á bátum frá Sandgerði 1949-53, var skipstjóri á Kára Sölmundarsyni frá Reykjavik frá 1954 sem reri frá Sandgerði og Grindavík og á síld á sumrin. Hann var skipstjóri á Sigurkarfa eitt ár, á Val RE og skipstjóri á Stjömunni RE sem var gerð út frá Keflavík til 1973 er hann kom í land. Eyjólfur hóf þá störf i kerskálum í álverinu í Straumsvík og starfaði þar til 1994 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Eyjólfur kvæntist 14.11. 1952, Ketilríði Bjamadóttur, f. 9.3. 1924, húsmóður. Hún er dóttir Bjarna Bjamasonar, bónda á Gautshamri á Drangsnesi, og k.h., Önnu Ás- kelsdóttur húsfreyju. Börn Eyjólfs og Ketilríðar eru Anna Bjarney Eyjólfsdóttir, f. 26.10. 1946, húsmóðir á Selfossi; Ámi Eyjólfsson, f. 20.8. 1954, þjónn og heildsali í Reykjavík; Sigrún Jóna Eyjólfsdóttir, f. 9.9. 1955, skrifstofumaður i Reykjavík; Eyjólfur Ketill Eyjólfsson, f. 20.2. 1958, tölvufræðingur í Reykjavík; Ragnheiður Steinunn Eyjólfsdótt- ir, f. 25.1. 1968, starfsmaður við flugfélagið Atlanta, búsett í Hafn- arfirði. Systkini Eyjólfs: Magnús Árna- son, f. 11.3. 1922, nú látinn, verka- maður í Reykjavík; Anna Rósalilja Árnadóttir, f. 6.7. 1923, nú látin, húsmóðir í Keflavík og í Hafnarfirði; Ásdís Árnadóttir, f. 6.11. 1926, nú látin, húsmóðir í Reykjavík; Sigurður Þorkell Ámason, f. 15.3. 1928, skipherra hjá Landhelgisgæslunni; Sigur- bergur Árnason, f. 25.11. 1930, skipasmiður, iðnfræðingur og lengst af starfsmaður hjá íslensk- um aðalverktökum, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Eyjólfs voru Árni Steindór Þorkelsson, f. 24.6. 1888, d. 17.7. 1932, skipstjóri i Reykja- vík, og k.h., Steinunn Magnús- dóttir, f. 28.8. 1897, látin, húsmóð- ir. Ætt Árni var bróðir Steinunnar, ömmu Mörtu Guðjónsdóttur, kennara við Landakotsskóla. Önnur systir Áma var Ingveldur, amma Helenar Eyjólfsdóttur söngkonu. Árni var sonur Þor- kels, b. í Lambhaga, Ámasonar. Móðir Þorkels í Lambhaga var Steinunn Þorkelsdóttir, b. í Krýsuvík, Valdasonar, og Þómnn- ar Álfsdóttur, b. í Tungu í Flóa, Arasonar, hreppstjóra á Eystri- Loftsstöðum, Bergssonar, ættfoð- ur Bergsættar, Sturlusonar. Móðir Árna var Ingveldur, langamma Páls Jenssonar pró- fessors. Systir Ingveldar var Sig- ríður, langamma Harðar Sigur- gestssonar, forstjóra Eimskips. Ingveldur var dóttir Jóns, b. á Set- bergi í Hafnarfirði, ættföður Set- bergsættarinnar, og bróður Sig- urðar, afa Ottós N. Þorlákssonar, fyrsta forseta ASÍ. Móðir Ingveld- ar var Sigríður Þórðardóttir, b. á Reykjum í Biskupstungum Jóns- sonar, b. á Rafnkelsstöðum, bróð- ur Sigurðar, afa Vilborgar, langömmu Sigurborgar, móður Emils Jónssonar forsætisráð- herra. Sigurður var einnig afi El- ínar, langömmu Eyjólfs, föður Sveins, stjórnarformanns Frjálsr- ar fjölmiðlunar. Steinunn, móðir éifmælisbams- ins, var dóttir Magnúsar, b. í Krókskoti i Garði, Eyjólfssonar. Eyjólfur heldur upp á afmælið með fjölskyldunni. Sigrid Toft Sigrid Toft húsmóðir, Selási 11, Egilsstöðum, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starsferill Í Sigrid fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún var í Landa- ■ J. kotsskóla, stundaði 'nám við VÍ og lauk það- an verslunarprófi 1942. Sigrid stundaði versl- unarstörf við verslun fóður síns í Reykjavík, starfaði hjá Pósti og Sigrid Toft. en hún vann ötullega að uppbyggingu þess fé- lags. Sigrid var búsett í Keflavík 1949-72, í Reykjavík 1974-78 en hefur verið búsett á Eg- ilsstöðum frá 1978. Sigrid var einn af stofnendum Systrafé- lags Keflavíkursóknar 1965, sat í stjóm félags- ins frá stofnun og var formaður 1968-70. Hún hefur starfað mikið i kvenfélaginu Bláklukk- um á Egilsstöðum, var síma á Keflavíkurflugvelli, hjá verk- takafyrirtækinu Þórisósi og við Verslunarmannafélag Austurlands formaður 1986-88 og var um árabil meöhjálpari í Egilsstaðakirkju. Fjölskylda Sigrid giftist 17.8. 1974 Magnúsi Pálssyni, f. 28.10. 1926, fyrrv. for- manni Verslunarmannafélags Aust- urlands. Hann er sonur Páls Þor- lákssonar og Þorbjargar Kjartans- dóttur. Fyrri maður Sigrid var Einar Þorsteinsson húsasmiðameistari. Böm Sigrid og Einars em Krist- ín, f. 11.1. 1949, lífeðlisfræðingur, gift Kristjáni Má Sigurjónssyni verkfræðingi og eiga þau tvo syni; Guðrún, f. 21.9. 1950, var gift Valdi- mar Elíassyni fiskverkanda og eign- uðust þau fimm börn; Helga, f. 8.7. 1952, d. 8.10. 1970; Þorsteinn, f. 23.5. 1955, byggingaverktaki, var kvænt- ur Jónu I. Óskarsdóttur og eignuð- ust þau tvö böm en Þorsteinn er nú kvæntur Bryndísi Richter og eiga þau þrjú böm. Systur Sigrid: Irmgard, f. 14.4. 1934, kennari i Reykjavík, gift Leó Munro; Margret Kristine, f. 1.8. 1943, húsmóðir á Ólafsfirði, gift Birni Þór Ólafssyni íþróttakennara; Anna Luise, f. 18.7.1946, húsmóðir í Reykjavík, gift Indriða Indriðasyni byggingatæknifræðingi. Foreldrar Sigrid: Hartwig Toft, f. 8.12. 1900, forstöðumaður Brauns- verslunar á ísafirði og síðar í Reykjavík og síðar kaupmaður í Reykjavík, lengst af við Skólavörðu- stíg, og k.h., Christine Toft, f. Harms 3.12. 1903, frá Lúbeck í Þýskalandi. Sigrid og Magnús eru að heiman. Til hamingju með afmæíið 11. desember 85 ára______________ Anna Ástrós Ólafsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. 80 ára_________________ Guðrún Ólafsdóttir, Skálagerði 7, Reykjavík. Guðrún Öfjörð, Nesvegi 62, Reykjavík. 70 ára Kristjana Kristjánsdóttir, Stóragerði 13, Reykjavík. Kristján Eiríksson, Sólvöllum, Bakkafirði. Rósa Ámadóttir, Höskuldsstöðum, Akureyri. 50 ára Andrés Sigmundsson, Brimhólabraut 10, Vestmannaeyjum. Diðrik Haraldsson, Austurvegi 25, Selfossi. Fríða María Ástvaldsdóttir, Hörgshlíð 16, Reykjavík. Ólafur Jóhann Óskarsson, Reykjamörk la, Hveragerði. Sigurjón Valdimarsson, Bæjartúni 17, Kópavogi. 40 ára Björgvin Þórisson, Engjaseli 75, Reykjavik. Bryndís Bragadóttir, Tjarnarbrú 18, Höfn. Fiona Caroline Isobel Nicholson, Akurgerði 15, Reykjavík. Hafdís Edda Stefánsdóttir, Birkimel 18, Varmahlið. Hafsteinn Öskarsson, Vesturbergi 70, Reykjavík. Jens Kristján Jensson, Samtúni 36, Reykjavík. Napoleon Gelito, Leifsgötu 32, Reykjavík. Ólöf Berglind HaJldórsdóttir, Skipholti 26, Reykjavík. Pálmi Vilhjálmsson, Rauðalæk 20, Reykjavik. Ragnheiður Valtýsdóttir, Langanesvegi 8, Þórshöfn. Sigurður Ingi Jónsson, Fannafold 146, Reykjavík. Viðar Sigurðsson, Furugmnd 72, Kópavogi. Ævar Birgir Jakobsson, Flúðaseli 95, Reykjavík. fróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.