Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
Rúnar Júlíusson bassaleikari er 54 ára gamall en er mesti töffari aldarinnar
samkvæmt Bók aldarinnar.
er spámaður í sínu föðurlandi, hvað
þá á slnu móðurmáli. Eflaust vilja
fáir gangast við þeim frábæru ný-
yrðum sem hér eru sett í skamma-
krók en þeir reyndu þó.
Og hvað á barnið að
heita?
Nafngiftir bama eru eitt af því
sem hefur verið talin þörf á að mið-
stýra á íslandi svo fólk fari sér ekki
að voða í nafngiftum. Ef öll þau
skondnu tvínefni sem hér lenda á
lista eru til í raunveruleikanum þá
er ástæða til þess aö herða enn eft-
irlit með nafngiftum:
Hreinn Sveinn
Ljótur Drengur
Ævar Eiður
ÓskÝr
Eina Ósk
Andrés Öm
Leifur Amar
Kolbrún Mjöll
Jón Barði Hafstein
Jón Jón
Það geta áreiðanlega allir hlegið
að þessum lista og því hvemig nöfn-
in birtast í ýmsum föllum, nema
auðvitað þeir sem þarna eru taldir
upp.
Hvaða hljóð er þetta?
Ekki verður annað en dáðst að
þeirri áræðni höfunda að birta lista
yflr hljóð aldarinnar. Stafsetning
hljóðanna er eins og hún er í bók-
inni.
Brrrruuummm...
Bfllinn.
Rrrrriinng-rrrrinngg...
Síminn. Frá sveitasíma til GSM.
Didididid di - didididi di...
Vekjaraklukkan.
Tikktikk tikk tikktikk...
Ritvélin.
Dugg dugg dugg dugg...
Vélbáturinn.
Vúúúúúúummmmmmm...
Ryksugan.
Diiiiiiiiiii...
Hljóð sem Útvarpið sendi út á
morgnana til að stilla tækin áður en
útsending hófst. Tónninn undir
stillimyndinni er mjög líkur þessu
en ekki eins vinsæll.
Sssskkkkrrrrrdiiiiiibrrrrrdiii-
brrriiidiirrr...
Hliðrænar gagnaséndingar t.d.
fax.
Klikk klakk....krrrr krrrr
Greiðslukortavélar.
Klagg tssss...
Gosdós opnuð.
Hvernig er veðrið?
Hverjum þykir sinn fugl fagur og
veðrið heima er alltaf best. Ef
marka má svör landsbyggðarbúa
þegar útvarpsstöðvar hringja á
sumrin, rignir aldrei utan borgar-
marka Reykjavíkur. Hvað um það.
Hér er listinn yflr hlýjustu staði
landsins samkvæmt mælingum
Veðurstofunnar.
Vík í Mýrdal 5,3
Vatnsskarðshólar 5,3
Stórhöfði 4,8
Reykjanes 4,7
Sámsstaöir 4,6
Fagurhólsmýri 4,6
Kirkjubæjarklaustur 4,5
Straumsvík 4,5
Grundartangi 4,5
Keflavíkurflugvöllur 4,4
Hólar í Hornaflrði 4,4
Má ég benda á að þessir staðir
eru allir á sunnanverðu landinu.
Kannski ætti að reyna að stöðva
fólksflóttann af landsbyggöinni meö
betri skjólfatnaði?
Bjarni Benediktsson er efstur lista
yfir valdamestu menn aldarinnar og
þaulsætnustu stjórnmálamennina.
Mikið er þetta fallegt
Fegurð er í auga sjáandans og
ekki verður deilt um smekk. Þessar
klisjur er rétt að hafa í huga þegar
skoðaður er listi yfir 10 fallegustu
staði á íslandi en hann er byggður á
mati Ómars Ragnarssonar. Vegna
efasemda um hlutleysi Ómars er
rétt að taka fram að ekki stendur til
að sökkva neinum þessara staða
undir vatn.
Kverkíjöll
Askja
Skaftafell
Þingvellir
Vestmannaeyjar
Jökulsárlón
Jökulgil í Landmannalaugum
Mývatn
Langisjór
Homvík
Og þá sagði hann...
Við höfum alltaf haft gaman af
hnyttnum tilsvörum. Hér kemur
listinn yfir orðheppnustu menn ald-
arinnar. Það er vert að taka eftir að
þó konur tali meira en menn er eng-
in þeirra á listanum. Enn fremur er
það óheppilegt fyrir kjaftaska nú-
tímans að allir á listanum eru dán-
ir.
ff£/ bestu
Ámi Pálsson, prófessor
Tómas Guðmundsson, skáld
Halldór Laxness, skáld
Jónas Jónsson frá Hriflu, ráð-
herra
Ólafur Thors, ráðherra
Bjami Jónsson, prestur
Páll ísólfsson, tónskáld
Einar Benediktsson, skáld
Steinn Steinarr, skáld
Jónas Guðmundsson, stýrimaður
Töffarar aldarinnar
Það er erfitt að vera töff og enn
erfiðara að vera töffari. Listinn yfir
tíu mestu töffara aldarinnar er
skemmtilegur en athyglisverður
fyrir það að sá sem er í efsta sæti er
54 ára en sá yngsti á listanum fimm-
tugur. Töffaraskapur er því tíma-
laust fyrirbæri.
Halldór Laxness kemst á lista yfir
umdeilda og áhrifamikla menn á
öldinni.
Rúnar Júlíusson
Jón Baldvin Hannibalsson
Haukur og Öm Clausen
Þorsteinn Jónsson, flugmaður
Jóhannes Jónsson á Borg
Óttar Felix Hauksson
Ingólfur Guðbrandsson
Ragnar Bjamason
Björgvin Halldórsson
Bóbó á Holtinu
Æ, hvað þetta var leiðinlegt
Islenska þjóðin hefúr oft orðið fyrir
vonbrigðum. í þeim efiium er slíkt úr-
val að það er einkennilegt að ekki
skuli vera til sérstakt orð, líkt og þjóð-
arsorg, yfir það þegar þjóðin verður í
heilu lagi fyrir vonbrigðum. Lítum að
lokum á listann yfir vonbrigði aldar-
innar.
Gleðibankinn lendir í 16. sæti í
Eurovision 1986.
Bein Jónasar Hallgrimssonar sögð
úr dönskum bakara 1946.
Árangurslítill leiðtogafúndur í
Reykjavík 1986.
Gullskipið á Skeiðarársandi reynist
vera þýskur togari 1983.
Prins Póló breytir um svip og bragð
1995.
Dætur Sophiu Hansen em enn í
Tyrklandi.
Bær Njáls á Bergþórshvoli reynist
vera gamalt ijós 1951.
Heimsmeistaramótið í handbolta á
íslandi 1995.
Guliæðið reynist byggt á sandi 1905.
14-2 leikurinn við Dani í Kaup-
mannahöfii í ágúst 1967.
Athygli vekur að tvö ártöl, 1986 og
1995 koma tvisvar sinnum fyrir á von-
brigðalistanum. Það hljóta að hafa ver-
ið mikil vonbrigðaár. -PÁÁ
SSoríístofusett,
iÁ-ri/óon),
só/ar o (/ „ó/a/jtm),
stant/MuAiáir
s/att/ioC
ANTIK GALLERY
Vegmúla 2, sími 588 8600
á útivist
Svefnpokar
frá kr. 4.400
Vandaður útivistarfatnaður
og búnaður á góðu verði j
fyrir alla fjölskylduna
Her> aslá
úr vandaðri flís
n A frá kr. 7.900
Göngustafir
frá kr. 2.980
Bakpokar
frá kr. 4.800
ERÐIN
Eyjarslóð
tjavík • sími 511 2200
persónuleg sé/verslun í útivist