Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Page 33
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
Milljónamæringurínn
bamshjartað
- afgreiðir sand og tínir rusl en á hlutabréf fyrir milljónir
__ Wærmynd 33
með
Már Ásgeirsson, starfsmaöur hreinsunardeildar Gatnamálastjóra, er þekktur fjárfestir sem á hlutabréf í 170 félögum.
Már Ásgeirsson, eða
Mási eins og hann er
kallaður af starfsfélög-
um sínum og vinum,
starfar hjá Gatnamála-
stjóra Reykjavíkurborg-
ar. Á veturna aðstoðar
hann við afgreiðslu á
sandi og salti og leggur
þannig sitt af mörkum
til þess að fólk komist
leiðar sinnar. Á sumrin
vinnur hann við að
hreinsa rusl af umferð-
areyjum og víðar og
margir hafa séð hann á
vegferð sinni um borg-
arlandið þar sem hann
er síötull og trúr yfir
litlu.
egar Mási er ekki í vinnunni
er hann í stöðugu sambandi
við ráðgjafa sína í verðbréfa-
viðskiptum. Hann er með ráðgjafa
hjá þremur verðbréfafyrirtækjum,
Einn hjá Kaupþingi, annan hjá
Landsbréfum og þann þriðja hjá
Verðbréfamarkaði íslandsbanka,
VÍB.
Hefur keypt hlutabráf
Í40 ár
Það að safna hlutabréfum og eign-
ast hlut i sem flestum fyrirtækjum
er helsta áhugamál hans. Mási eyð-
ir litlu en leggur allt lausafé sitt í
hlutabréfakaup. Hann hefur keypt
hlutabréf í 40 ár og í dag á hann
hlutabréf í 170 fyrirtækjum. En hef-
ur hann ekki efnast vel á þessum
viðskiptum?
„Ég átti hlutabréf fyrir 3 milljón-
ir að nafnvirði síðast þegar ég setti
saman skattskýrsluna mína,“ segir
Már þar sem við sitjum á gömiu
bilsæti í tækjageymslunni i bæki-
stöð 3 við Miklatún og spjöllum um
verðbréf og peninga.
„Ég er nýlega búinn að kaupa
mér íbúð og þá seldi ég hluta af
bréfum tvisvar sinnum til þess að
eiga fyrir afborgunum. Þetta voru
t.d. bréf í Opnum kerfum sem höfðu
gefið mér ágæta ávöxtun.“
Selor helst ekki bráf
Már segist gera þetta fyrst og
fremst til þess að vera með, vera
þátttakandi í íslensku atvinnulífi,
eins og hann orðar það. Hann segist
ekki eyða peningum í neitt annað
sem heitið geti nema heimilisrekst-
urinn.
Már er 58 ára gamall og hefur
starfað á vegrnn Gatnamálastjóran í
Reykjavík í rösk 40 ár eða síðan
1958 þegar hann var 17 ára gamall.
En hvenær eignaðist hann fyrstu
hlutabréfin?
„Það var árið 1958 og það voru
bréf í Eimskipafélagi íslands. Ég hef
ekki hugsað mér að selja þau enda
sel ég helst ekki bréf sem ég hefi
eignast nema eins og þarna um dag-
inn út af íbúðinni."
Már segist fylgjast með hræring-
um á verðbréfamarkaði með því að
lesa Morgunblaðið og fylgjast með
fréttum en reiðir sig að öðru leyti á
ráðgjöf starfsmanna verðbréfafyrir-
tækjanna.
„Það er orðið auðveldara að
standa í þessu en það var. En mörg
fyrirtæki eru enn lokuð og erfitt að
ná í hlutabréf í þeim þótt þau séu al-
menningshlutafélög.“
Hann hefur einnig tekið þátt í
flestum útboðum á hlutafé sem hafa
farið fram undanfarin misseri. Þar
má nefna Steinullarverksmiðjuna,
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
Búnaðarbankann og fleiri.
Fer á aðalfundi þegar
hann getur
Már kynnir sér ársskýrslur fyrir-
tækja eins og aðrir hluthafar og
mætir á aðalfundi þegar hann hefur
tök á því og sömuleiðis hluthafa-
fundi. Vegna þess hve hann á hlut í
mörgum fyrirtækjum er hann mjög
þekkt andlit i viðskiptalíflnu, ekki
síður en stórforstjórar og jöfrar sem
hafa tífóld árslaun á við hann.
„Ég kemst ekki alltaf frá vinnu og
fer yflrleitt aldrei á aðalfundi nema
fyrirtækja sem eru hérna í Reykja-
vík en ég á bréf í mörgum fyrirtækj-
um úti á landi.“
Nýjustu fjárfestingar Más eru í
hinu umdeilda fyrirtæki Gagnalind
sem hefur komist i fréttir vegna
eignarhalds íslenskrar erfðagrein-
ingar á því sem sumir telja of stór-
an hlut í fyrirtækinu.
„Ég fékk samtals 1.000 einingar.
Helminginn frá mínum manni í
Landsbréfum og helminginn frá
VÍB. Þetta lítur vel út.“
Vill eiga í Frjálsri fjöl-
miðlun
Már er mikiU iþróttaáhugamaður
og á hlutabréf bæði í KR og Fram og
segist hafa vilyrði fyrir bréfum í
Stoke og finnst að fleiri íþróttafélög
ættu að fara á markaðinn og nefnir
sérstaklega Grindavík og Vest-
mannaeyjar.
En í hvaða fyrirtækjum langar
Má til þess að fjárfesta sem hann á
ekki þegar bréf í?
„Það væri gaman að eiga hlut i
fjölmiðlafyrirtækjum eins og ís-
lenska útvarpsfélaginu. Svo hef ég
lengi reynt að eignast hlutabréf í
Fijálsri fjölmiðlun en það er mjög
lokað félag.“
Kristján Loftsson og
Mási
í Sandkomsdálki í DV birtist á
dögunum lítil saga um það hvernig
Kristján Loftsson forstjóri, sem er
oft kenndur við Hval, stakk eitt sinn
upp á Mása í stjórn Granda. Þar
mátti skilja að Mási væri enginn
aufúsugestur á aðalfundum. Það
rétta er að margir forstjórar stórra
fyrirtækja eru góðvinir Mása og
gefa sér alltaf tíma til að gefa hon-
um skýrslu um ástand og horfur
mála eins og öðrum hluthöfum.
Kristján Loftsson gerði þetta af al-
kunnum grallaraskap sínum og af
því urðu engir eftirmál enda hann
og Mási mestu mátar. Það sama má
segja um Mása og Kristin Björns-
son, forstjóra Skeljungs, sem kom
nokkuð við þessa sögu.
Már keypti á dögunum sína eigin
íbúð í fyrsta sinn en hann hefur
fram til þessa haldið heimili með
aldraðri móður sinni sem nú hefur
brostið heilsu til þess að standa fyr-
ir búi sjálf. Már segist kunna afar
vel við sig á nýja staðnum en hann
eigi enga konu enn.
„Kannski er það það sem mig vant-
ar,“ segir milljónamæringurinn með
bamshjartað að lokum. -PÁÁ
CITY WALKER
13764
CITY MEN
City Walker eru skór sem sameina
bæöi gæði og þægindi. Polyuretan-
blandan eykur endingu sólans og
gerir það að verkum að hann veitir
gott viðnám. Sérhannaður höggdeyfir
( hæl minnkar álag á hné, ökkla
og mjaðmir.
SKÓUERSLUN
KÓPAV0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI5541154