Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Vel undirbúið tilboð lögmanna sem bjóðast til að annast leyfis- og sölutilboð:
Bjóða fólki að selja
ÍE sjúkraskrár þess
- annast úrsagnir eða semja við IE um réttláta greiðslu fyrir hverja kennitölu
Nú um helgina fara í prentun 65
þúsund bréf sem berast munu fólki
á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku
- bréf frá valinkunnum lögmönnum
sem bjóða einstaklingum og f]öl-
skyldum að taka að sér að selja fyr-
ir fólkið aðgengi íslenskrar erfða-
greiningar aö sjúkraskrám þess fyr-
ir miðlægan gagnagrunn. Skapa
þannig leið til að einstaklingar fái
peninga fyrir að gefa viðkvæmar
persónuuplýsingar um sjálfa sig.
Verkefni þetta hefur verið í undir-
búningi allt frá því í október og hef-
ur hvílt yfir því leynd.
Hér er með öðrum orðum verið
að bjóða almenningi að lögmaður
taki að sér að selja ÍE eða einhverj-
um öðrum leyfi fyrir aðgengi að
sjúkraskrá einstaklinga gegn
ákveðnum umboðslaunum.
Hugmyndin er sprottin af eftirfar-
andi staðreyndum:
Gengi hlutabréfa í deCode Gene-
tics, sem er móðurfyrirtæki ÍE -
rekið af einkaaðilum - hefur hækk-
að sem nemur meira en tíu þúsund
milljónum króna á tiltölulega stuttu
timabili - frá því að íslensk yfirvöld
veittu fyrirtækinu 12 ára einkaleyfi
til rekstrar fyrir miðlægan gagna-
grunn. Fyrirtækið byggir rekstur
sinn á rannsóknum í þágu lyfja-
fyrirtækja úti í heimi byggðum á
endurgjaldslausu aðgengi að sjúkra-
skrám einstaklinga á Islandi.
Samkvæmt þessu hafa menn sagt:
Hvers vegna ættu einstaklingarnir
sjálfir ekki að fá greitt fyrir að veita
íslensk/alþjóðlegu stórgróðafyrir-
tæki aðgengi aö persónulegum
sjúkraskrám?
Það sem höfuðborgarbúar og síð-
ar landsmenn allir munu á næst-
unni fá inn um bréfalúguna er
kynningarbréf undirritað af tals-
manni lögmannanna. Þar er einnig
úrsagnareyðublað úr gagnagrunnin-
um annars vegar og hins vegar um-
boðseyðublað til handa lögmanni til
að semja um réttláta greiðslu fyrir
að samþykkja að vera í grunninum.
Lögmennirnir munu freista þess að
ná sem hagstæðustu verði fyrir
hverja kennitölu sem hugmyndin er
að gæti t.a.m. verið greitt fyrir með
peningum eða hlutabréfi. Síðan
verður haldin skrá yfir alla þá sem
hafa óskað liðsinnis við að semja
við ÍE.
Eina upphæðin sem ÍE greiðir
fyrir einkaleyfið er 70 milljónir
króna á ári til ríkisins. I því felst að
heilbrigðiskerfið er varðveisluaðili
sjúkraskránna og útvegar eigið
faglært starfsfólk í opinberu starfi
til að veita ÍE þær upplýsingar sem
almenningur heimilar. -Ótt
Lögmaður Janet-
ar til Spánar
Róbert Árni Hreiðarson, lög-
maður Janetar Grant, er nú stadd-
ur á Spáni en þar mun hann m.a.
ætla að ganga
erinda Janetar
og hinna ríkis-
fangslausu
barna hennar,
Ástþórs Marios
og Moniku Ósk-
ar.
Áður en Ró-
bert lagði upp í
för sina til Spán-
ar sendi hann
ræðismanni
Spánar á íslandi,
Sigurði Gísla Pálmasyni, bréf
vegna máls Janetar þar sem hann
óskar eftir samvinnu spánskra yf-
irvalda við lausn á vanda Janetar
og bama hennar. Tillaga Róberts
er fyrst og fremst sú að aflétt verði
banni við því að Janet komi til
Spánar næstu fimm árin en einnig
að Ástþór og Monika fái tíma-
bundið fararleyfi þannig að þau
geti yfirgefiö Spán og sameinast
móður sinni á íslandi. í bréfmu
segir að faðir barnanna sé sam-
mála slíkri ráðstöfun en börnin
búa nú hjá föðurömmu sinni og
afa í Malaga.
-GAR
Stofnun Árna Magnússonar fær á sunnudag afhent að gjöf myndskreytt handrit af Snorra Eddu sem barst til Kanada
á síöustu öld og hefur veriö þar í einkaeign. Snorra Edda er til í allmörgum pappírshandritum frá því eftir siöaskipti
og barst eitt þeirra meö íslenskum landnemum til Kanada. Sá sem skrifaði og myndskreytti handritiö mun vera
Jakob Sigurösson, skáld og bóndi í Vopnafirði á 18. öld. Ræöismaöur íslands í Minnesota, Örn Arnar læknir, og fjöl-
skylda hans keyptu handritiö og gefa Arnastofnun. Rósa Þorsteinsdóttir sýnir hér handritiö. DV-mynd Hiimar Þór
84 fóstureyðingar gerðar á kvennadeild Landspítalans í janúar:
Tíðni fóstureyðinga má
rekja til lítillar umræðu
- Finnar hafa boðið fríar getnaðarvarnir fyrir yngri en 18 ára
Alls voru 84 fóstureyðingar fram-
kvæmdar S janúarmánuði síðastliðn-
um en í fréttum í vikunni var fullyrt
að á annað hundrað umsókna um fóst-
ureyðingar hefðu borist kvennadeild
Landspítalans. Svava Stefánsdóttir,
yfirfélagsráögjafi á Kvennadeild Land-
spítalans, segist í viðtali við DV telja
að brottfall í janúarmánuði heföi ver-
ið á milli 10 og 15 konur. Af því leiðir
að tæplega eitt hundrað konur hugð-
ust fara í fóstureyðingu á umræddu
tímabili.
„Ég kannast ekki við tölur sem
fram komu í fréttunum. Meirihluti
þessara kvenna var á aldrinum 16-25
ára eða 50 konur. Þrjátíu og tvær kon-
ur á aldrinum 26 til 46 ára gengust
undir aðgerð og tvær á aldrinum 13 til
15 ára. Þess ber að geta að engin 13
ára stúlka var í þeim hópi,“ sagði
Svava og bætti við að margar konur
kæmu í viðtal og sumar eingöngu í
þeim tilgangi að tala. Þá er alltaf visst
brottfall vegna fósturláta og annarra
ástæðna.
Fjöldi fóstureyðinga hefur verið
svipaður milli ára, að undanskildu
síðasta ári, en þá var íjöldi aðgerða
807 talsins. Til samanburðar hefur
fjöldi aðgerða verið á bilinu 702 til 764
frá árinu 1996 til ársins 1998.
„Vissulega er fjöldi fóstureyðinga
áhyggjuefni en tíðni þeirra má rekja
til of lítillar opinnar umræðu um
þessi málefni. Upplýsa þarf unga fólk-
ið mun betur um ábyrgð þess á eigin
kynlífi og það á við mn bæði kynin,“
segir Svava. „Það er mikil þörf á að
auka aðgengi unglinga að getnaðar-
vömum. Finnar hafa haft opna mót-
töku fyrir ungt fólk og tala fóstureyð-
inga þar hefur lækkað umtalsvert frá
því fjöldi þeirra var hvað mestur fyr-
ir nokkrum árum. Finnar hafa boðið
fríar getnaöarvarnir fyrir þá sem era
undir 18 ára aidri og veriö með opnar
umræður um ábyrgð þess að hafa
samlíf.“
Félagslegar ástæöur
Löggjöfln um fóstureyðingar hér
á landi er frá árinu 1975 og er fjór-
skipt. í fyrsta lagi er hún leyfð ef
konan á mikinn fjölda bama og
skammt er liðið frá siðustu bam-
eign. í öðru lagi ef hún býr við bág-
ar heimilisaðstæður eða vegna
slæms heilsufars. I þriðja lagi
vegna æsku og þroskaleysis og að
siðustu vegna annarra ástæðna.
Svava sagði flestar fóstureyðingar
vera vegna félagslegra ástæðna.
„Það er vert að geta þess að til að
tíðni fóstureyðinga fari ekki vaxandi
verður umræða um þessi mál og að-
gengi fyrir ungt fólk að aukast. Stað-
reyndin er sú að það þarf tvo til að
getnaöur eigi sér stað og bera karl-
menn ekki síður ábyrgð á getnaði en
kvenmenn," segir Svava.
-hól
Stuttar fréttir i>v
Hugsaði lengi
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, seg-
ist hafa tekið
sér langan um-
hugsunarfrest
áður en hann
tók þá ákvörð-
un að sækjast
formlega eftir
endurkjöri.
Þungar ávirðingar
í bréfl sem Fjármálaeftirlitið
sendi bankaráði Búnaðarbankans
vegna brota á verklagsreglum seg-
ir að brotin séu skýr og að eftirlit-
ið líti þau alvarlegum augum.
Ávirðingar Fjármálaeftirlitsins
eru mjög þungar og segir í bréf-
inu að verklagsreglur hafi verið
brotnar í veigamiklum atriöum.
Stöð 2 greindi frá.
Nýr hjá Hafró
Sjávarútvegsráðherra hefur ráð-
ið dr. Ólaf S. Ástþórsson til að
gegna starfl starfi aðstoðarforstjóri
Hafrannsóknarstofnunar frá og
með 1. febrúar síðastliðnum.
Áskorun um frestun
Dýraverndunarfélag Reykjavíkur
hefur sent borgaryfirvöldum bréf
þar sem skorað er'á borgaryfirvöld
að fresta frekari aðgerðum til fækk-
unar flækingsköttum í borginni.
Lítil veiði
Lítil sem engin loðnuveiði var i
nótt en menn eru vongóðir um að
veiðin glæðist um helgina.
Óska liðsinnis
Umhverfisvinir ætla að óska
eftir liðsinni náttúruvemdarsam-
taka í Noregi í
baráttu sinni
fyrir því að um-
hverfismat fari
fram á áhrifum
Fljótsdalsvirkj-
unar, sagði Ólaf-
ur F. Magnús-
son, talsmaður
Umhverfisvina, í samtali við
fréttastofu Sjónvarpsins.
Samningaviðræður
Samningaviðræður Islenskrar
erföagreiningar og stjórnenda heil-
brigðisstofnana um aðgang að upp-
lýsingum úr sjúkraskrám til flutn-
ings í miðlægan gagnagrann á heil-
brigðissviði eru nú í burðarliðnum.
Mbl. greindi frá.
Uppgjöf
Formaður Sambands banka-
manna segir markaðslaunakerfi
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
vera uppgjöf og atvinnurekendum
séu með því afhent öli völd í launa-
þróun í landinu. Stöð 2 greindi frá.
Yfirdrátt án ieyfis
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra staðfesti í samtali
við Dag að til hennar hefðu leitað
foreldrar ólögráða unglinga sem
hefðu fengið yfirdráttarheimUd á
viðskiptakort sín, án þess að leitað
væri eftir leyfi foreldranna.
Nýr gagnagrunnur
Vinna er að hefjast við það hjá
íslenskri miðlun á Raufarhöfn og
Stöövarfirði að skrá 87 þúsund
handskrifaðar færslur úr skjala-
safni Ljósmyndasafns Reykjavík-
ur í gagnagrunn.
Fleiri flóttamenn
17 flóttamenn komu tU landsins
í fyrra. Hefur fjöldinn þre- tU fjór-
faldast á nokkurra ára bUi sam-
kvæmt upplýsingum Rauöa kross
Islands. Mbl. greindi frá.
RARIK suftur?
Ámi Johnsen viðraði áhyggjur
sínar af óljós-
um fréttaflutn-
ingi um til-
færslu RARIK
tU Akureyrar á
Alþingi í gær
og lagði, í raun,
fram kröfu um
að RARIK
kæmi tU Suðurlands, ef hún færi
þá nokkuð. -hdm