Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Neytendur
Sparnaðarráð:
Gamalt verö-
ur sem nýtt
Rakir skápar
Til að losna við
sagga í skápum
er gott að setja
viðarkol í skó-
kassa eða eitt-
hvað álíka, gera
göt á lokið og
setja í skápinn.
Einnig er ráð
að hengja nokkr-
ar krítar í skáp-
inn.
Myglulykt
Tii að fá góða lykt í skápinn er
gott að setja greninálar í nælon-
sokk. Þær halda mölnum (sem
getur leynst í gömlum húsum)
burtu.
Til að losna við vondan þef úr
kistlum er gott ráð að setja katta-
sandsilmefni í skó-
kassa og láta hann
standa í kistlinum
yfir nótt.
Föt í geymslu
Geymið föt sem
ekki henta árstíð-
inni i piastrusla-
körfum með loki.
Þá eru fötin vel var-
in og enginn raki
kemst að þeim.
Postulínsdiskar í geymslu
Setjið þykkan pappír eða
munnþurrkur á miUi diskanna
um leið og þeim er raðað upp.
Ekkert hellist niöur
Festu teygju með teiknibólum
innan á skúffuna og settu litlu
glösin, s.s. naglalakksglös og
slíkt, bak við teygjuna. Þá detta
þau ekki um koll þegar þú opnar
skúffuna.
Innpökkun
Til að mæla hvað þarf utan
um pakkann af gjafapappír úr
langri rúllu er best að vefja fyrst
bandi um pakkann, skera lengd-
ina og nota bandið til að mæla
lengd gjafapappírsins.
Áður en bandið er bundið um
böggul sem á að fara í póst er
gott að væta það með vatni. Við
það er minni hætta á að bandið
renni til og þegar það þomar
heldur það þéttar um böggulinn.
Einfaldur nálapúöi
Ef þér líkar ekki lyktin af sáp-
unni er óþarfi að henda henni.
Hana má nota sem nálapúða.
Nálar og prjónar smyrjast þá við
sápuna og smjúga auðveldlega í
gegnum þykk efni þegar saumað
er með þeim.
Skartgripir
Eggjabakkar þjóna góðum til-
gangi sem skartgripaskrín.
- Setjið krítarmola í skart-
gripaskrínið til aö síður faUi á
skartgripina.
- Til að forðast að keðjur flæk-
ist skaltu hengja þær á pinnan
innan á skápdymar í svefnher-
berginu.
- Settu stóra króka úr sturtu-
stönginni á stöngina í fataskápn-
um þínum til að hengja á veski
og belti. -GLM
DV
Heilsa:
Fallegt hár krefst umhirðu
Hár er höfuðprýði eru orð að
sönnu. En til þess að hárið haldist
fallegt er nauðsynlegt að halda því
hreinu og heilbrigðu.
Höfuðhár er jafn mismunandi
milli einstaklinga og fingrafór.
Sjampó sem hentar einum þarf því
ekki að henta öðrum. Við hárþvott
þarf að skola sjampó og sérstaklega
hámæringu mjög vel úr hárinu.
Annars er hætta á kláða í hár-
sverði, exemi, flösu eða hárlosi. Þá
er ekki ráðlegt að böm sitji í bað-
vatni með sjampói i því það getur
valdið ertingu á viðkvæmri húð
barna.
Flestir þvo hár sitt annan hvern
dag en aðrir sjaldnar. Með hvers
konar hárhreinsiefnum hárið er
þvegið fer mest eftir vana og smekk
hvers og eins því hárið verður jafn
hreint með öllum tegundum
sjampós. Rétt er þó að taka með i
reikninginn að mismikið þarf af
sjampói eftir tegundum og því getur
dýrt sjampó sem þarf lítið af reynst
drjúgara en ódýrt sjampó sem þarf
mikið af.
Feitt hár
Heilbrigt og glansandi hár er þak-
ið örlítilli fítu frá fitukirtlum í hár-
sverðinum. Þegar hárið veröur of
feitt er það vegna þess að fitukirtl-
arnir framleiða of mikið af karl-
hormóninu testósteróni. Fitan skað-
ar ekki hárið-en mörgum finnst feitt
hár illviðráðanlegt og óaðlaðandi.
Mikið úrval af sjampói sem sagt
er sérstaklega fyrir feitt hár er á
markaðnum hérlendis. En sam-
kvæmt þýskri neytendakönnun er
engin trygging fyrir því að slíkt
sjampó reynist bettir í baráttunni
við feitt hár en venjuleg sjampó.
Hver og einn ætti því að prófa sig
áfram þar til rétta sjampóiö er fund-
ið.
Þurrt og skemmt hár
Sól, klór, þurrkun með hárblás-
ara, permanent, litur o.fl. getur
skaðað hárið þannig að það missi
gljáa, ofþomi og verði erfitt viður-
eignar.
Þegar hárið verður mjög þurrt
hafa ystu flögur þess skemmst og
hárið klofnað. Til þess að koma hár-
inu í lag þarf meira en venjulegan
hárþvott. Hárið verður að fá fitu og
hana má t.d. fá með sérstakri hár-
næringu. Hins vegar endist hárnær-
ingin aðeins þar til hárið er þvegið
næst því sjampóið þvær næringar-
efnin burt.
Vítamín fyrir háriö
í auglýsingum er fólki talin trú
um að sjampó með vítamínum geri
hárið glansandi og fallegt. Slíkt er
ekki rétt. Þau vitamín sem gagnast
hárinu, aðallega B-vítamín, þarf að
gleypa.
Sumir kaupa sér sjampó með sól-
vöm þegar haldið er til sólrikra
staða. Slíkt sjampó ver hárið hins
vegar ekki gegn þeim skaða sem sól-
in getur valdið hárinu. Einfaldara
og ódýrara er að kaupa sér einfald-
lega sólhatt eða klút yfir hárið.
Flasa í hári veldur mörgum hug-
arangri og óþægindum. Flasan
myndast yfirleitt við það að dauðar
hárframur losna úr hársverðinum
vegna sveppasýkingar. Best er að
nota sérstakt flösusjampó til að
halda flösunni niðri.
Bara vatn í háriö
Mjög misjafnt er hversu oft fólk
þvær sér um hárið. Frá heilbrigðis-
sjónarmiöi skiptir það ekki megin-
máli hversu oft hárið er þvegið.
Sumir halda að daglegur hárþvottur
örvi fitukirtlana og þá sé hættara
við því að hárið fitni. Aðrir halda
að milt sjampó geti valdið því að
hárið þorni. Hvorug þessara stað-
hæfinga er rétt. Þvoi maður sér um
hárið daglega þarf ekki að nota sér-
stakt sjampó fyrir feitt hár eða
þurrt hár. Þá nægir venjulegt
sjampó í flestum tilfellum. Sé hárið
stutt og heilbrigt þarf raunar aðeins
hreint vatn við daglegan hárþvott.
Þurrt hár er gott aö þvo annað slag-
ið með mildu sjampói svo það fái
svolitla fitu.
Margþætt hlutverk
Hlutverk sjampósins er að
hreinsa fitu og óhreinindi úr hár-
inu en einnig að gefa því fitu svo
það ofþorni ekki. Stærstur hluti
sjampósins er vatn og ýmis hreinsi-
efni. Einnig er oft að finna efnin
keratín og pantenól sem eiga að
vernda hárið og gera það meðfæri-
legra eftir þvott.
Þeir sem eru með mjög rafmagn-
að hár ættu að reyna sjampó með
hámæringu (2 í 1) því slíkt sjampó
inniheldur meðal annars efni sem
eiga að afrafmagna hárið.
Margar tegundir sjampós inni-
halda auk áðurtaldra efna rotvam-
arefni sem eiga að koma i veg fyrir
bakteríur og sveppi. Flestar teg-
undir innihalda einnig ilmefni sem
eiga m.a. að yfirgnæfa lykt af öðr-
um efnum sem lykta ekki eins vel.
Sumt sjampó inniheldur ekki tilbú-
in ilmefni heldur efni unnin úr
jurtum og ávöxtum sem gefa góða
lykt. Þessi efni hafa það fram yfir
tilbúnu ilmefnin að þau gefa hár-
inu m.a. gljáa.
Auglýsingaskrum
Eins og áður sagði er mikið úrval
hársnyrtivara hér á markaði og era
gæði þeirra og verð æði mismun-
andi. Ekki vantar hástemmdar lýs-
ingar á eiginleikum varanna í aug-
lýsingum en flestar þeirra eru að-
eins orðin tóm, samanber að
vítamín í sjampói hafi áhrif á hárið.
Þá er stundum tilkynnt að varan
hafi ekki verið prófuð á dýram en
hins vegar er það oft þannig að öll
efnin í vörunni hafa þegar verið
prófuð ein og sér á dýram.
Þeir sem vilja með sanni geta sagt
að hárið sé þeirra höfuðprýði ættu
þvi að vanda valið vel á sínum hár-
snyrtivörum.
(Heimild: Heilsubók fjölskyldunn-
ar, Neytendablaðið o.fl.)
-GLM
Franskur karamellubúöingur
Þessi franski karamellubúðingur
er upplagður sem eftirréttur með
helgarmatnum.
Uppskrift:
1/2 bolli sykur
11/4 bolli mjólk
1 1/4 bolli rjómi
6 egg
6 msk. sykur
1/2 tsk. vanilludropar
Aöferð
1) Hitiö ofninn í 180° C, hálffyllið
stóra pönnu af vatni og látiö hana
til hliðar.
2) Til að búa til karamellusósuna
hrærið þið saman 1/2 bolla af sykri
og 4 msk. af vatni í potti og látið
malla þar til blandan er orðinn
karamellukennd.
3) Til að búa til réttinn sjálfan er
mjólk og rjóma blandað saman í
pott og látið maha þar til það næst-
um því sýður. Á meðan er gott að
þeyta saman egg, afgarignum af
sykrinum og vanilludropunum.
4) Hellið heitri rjómablöndunni
út i og hrærið vel saman. Hellið síð-
an allri blöndunni í kökusprautu-
poka og sprautið blöndunni í fjórar
litlar skálar. Áður en blöndunni er
hellt í skálamar er karamellusós-
unni hellt jafnt í skálamar.
5) Bakið í um 1 1/2 til 2 klukku-
stundir. Látið síðan í kæli yfir nótt.
Áöur en rétturinn er borinn fram er
skálunum skellt á hvolf og rétturinn
losaður úr þeim og settur á litla
diska þannig að karamelluhliðin
snúi upp.
-GLM
Þessi franski karamellubúðingur er upplagður sem eftirréttur með helgar-
matnum.