Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Page 7
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
7
Viðskipti
Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 1.385 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 736 m.kr. ... Mest viðskipti með
Flugleiðir, 140 m.kr ... Grandi hækkaði mest eða 6% ... En SS hækkaði um 5,9% ... SH hækkaði um
4,17% ... Tæknival og Pharmaco lækkuðu um rúm 4% ... Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,97%
270 milljóna króna hagnaður ÚA af reglulegri starfsemi fyrir skatta:
Veltufé frá rekstri
776 milljónir króna
- sem er met í sögu félagsins
DV, Akureyri:
Útgeröarfélag Akureyringa skil-
aði 270 milljóna króna hagnaði af
reglulegri starfsemi, fyrir skatta, á
liðnu ári. Eftir
að tekið hefur
verið tillit til 102
miiljóna króna í
reiknaðan tekju-
skatt og 10 millj-
óna króna gjald-
færslu vegna
óreglulegra liða
nemur hagnaður-
Guðbrandur Sig- úm 157 milljón-
urðsson, for- um króna. Veltu-
stjóri ÚA. fé frá rekstri nam
776 milljónum
króna á árinu sem er mesta fjár-
munamyndun á einu ári í sögu fé-
lagsins.
Heildarvelta samstæðunnar á
liðnu ári nam tæpum 5 milljörðum
króna og jókst um rúm 18% frá ár-
inu áður. Rekstrartekjur, þ.e. heild-
arvelta að frádregnum eigin afla til
vinnslu, voru samtals 4.050 milljón-
ir króna samanborið við 3.486 millj-
ónir króna árið áður.
Afskriftir námu samtals 657
milljónum króna, samanborið við
556 milljónir króna árið áður. Af-
skriftir jukust því inn rúmar 100
milljónir króna á milli ára. Megin-
skýringin er sú að við sameiningu
ÚA og Jökuls þann 1. september sl.
hækkuðu bókfærðar veiðiheimild-
ir félagsins um 1.300 milljónir
króna. 1 árslok námu því bókfærð-
ar veiðiheimildir félagsins tæpum
2,6 milljörðum króna, sem verða
síðan afskrifaðar á 10-12 árum.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
móðurfélagsins varð tæpar 270
milljónir króna, samanborið við 9
milljónir árið áður. Þegar tekið
hefur verið tillit til reiknaðra
skatta að fjárhæð 102 milljónir
króna og óreglulegra gjalda að fjár-
hæð 10 milljónir er félagið gert upp
með 157 milljóna króna hagnaði,
sem fyrr segir. Árið áður nam
hagnaður félagsins 251 milljón
króna þar sem stærsti hlutinn var
söluhagnaður eigna.
„Ég er mjög ánægður með þessa
niðurstöðu enda er hún í fullu
samræmi við áætlanir félagsins“
segir Guðbrandur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa hf. Hann segir það
sérlega ánægjulegt að veltufé frá
rekstri hafi aukist mjög venflega
þriðja árið i röð. „Ég hef oft bent á
þá staðreynd að veltufé frá rekstri
er mun áreiðanlegri mælikvarði á
rekstrarárangur sjávarútvegsfyrir-
tækja en hagnaður, þar sem það
mælir betur hversu miklum pen-
ingum reksturinn skilar. Veltufé
frá rekstri félagsins nam 274 millj-
ónum króna árið 1997, 552 milljón-
um króna á árinu 1998 og 776 millj-
ónum króna á nýliðnu ári. Það hef-
ur því nær þrefaldast á einungis
þremur árum sem segir sína sögu
um stigvaxandi bata í rekstri fé-
lagsins. Nýliðið ár er besta ár í
sögu félagsins frá upphafi hvað
það varðar,“ segir Guðbrandur.
Hann segir rekstrarhorfur fyrir
yfirstandandi ár góðar. „Við ger-
um ráð fyrir að reksturinn haldi
áfram að batna á árinu og að veltu-
fé frá rekstri aukist enn frekar. Þó
er rétt að hafa í huga að rekstrar-
forsendur í íslenskum sjávarútvegi
eru síbreytilegar og geta breyst til
hins verra á skömmum tíma“ seg-
ir Guðbrandur.
-gk
deCODE skráð
á 16,5-17
- segir The Times
The Times segir að Morgan
Stanley sé líklegt til þess að taka
ekki tillit til 1,5 milljarða dollara
verðmætis deCODE á gráa mark-
aðnum heldur muni félagið verða
metið á nálægt 500 milljónir dollara
eða sem svarar um 37 milljörðum
íslenskra króna. Það svarar til þess
að skráningargengi deCODE sé
16,5-17 miðað við að um 30 milljón
hlutir séu útistandandi í félaginu.
Það er nánast sama gengi og FBA,
Landsbankinn, Búnaðarbankinn og
Hof keyptu 16% hlut í félaginu á
síðastliðið sumar. Gengi félagsins
hefur verið yfir 50 dollarar á hlut-
inn á gráa markaðnum að undan-
fómu og hækkaði lítillega í gær.
Hins vegar segir að miðað við
mikinn áhuga bandarískra fjárfesta
á fjárfestingum í líftækniiðnaðinum
búist sérfræðingar við því að fyrir-
tækið muni hækka hratt í verði.
Haft er eftir fjárfesti að deCODE
muni þjóta upp eins og raketta.
„Það kæmi mér ekki á óvart að
verðmæti félagsins myndi ná 2
milljörðum dollara," segir hinn
ónefndi fjárfestir.
DEKK OG FELGUR OG MARGT FLEIRA.
UTSALA- UTSALA
ÚTSÖLULOK LAUGARDAGINN 12. FEBRÚAR.
FJARSTYRINGAR
VERÐ FRÁ 3.990
25-50%
AFSLÁTTUR.
UTVARP/GEISLI
NU 19*900
AÐli
ÞRAÐLAUS
GJORGÆSLA
SEÐ ASTANDi
LBARÐANNA
19.900
ALFELGUR
30%
1?% afsláttur
14« KR. 7.716
^ 15” KR. 8.172
4 STK- ALFELGUR
OG NY NEGLD DEKK
14*' KR. 49.900
15" KR. 56.900
NY SNJODEKK
30%
AFSLÁTTUR
155-10R13,
165-70R13,
175-70R13,
175-70R14,
185-70R14,
175-65R14,
185-65R14,
195-65R15,
KR. 2.845
KR. 3.111
KR. 3.102
KR. 3.467
KR. 3.780
KR. 3.731
KR. 4.091
KR. 4.537
JEPPADEKK
30%
AFSLATTUR
235-75R15, KR. 7.016
30x9,50R15, KR. 7.583
31x10,50R15, KR. 8.033
4 STK. MEÐ 15x8 ÁLFELGUM
30" DEKK + FELGUR, KR. 74.900
31" DEKK + FELGUR, KR. 77.900
SENDIBILADEKK
~k 30%
AFSLÁTTUR
185-R14,
KR. 4.804
195-70R15,
KR. 5.946
TALFELGUR
J20-40%
fj/ afslAttur
0PIÐ FRA KL. 8-20
DEKK OG FELGUR
AF NÝJUM BÍLUM
ÁLFELGUR. 16x7,
6 GATA, DEKK 245-70R,
4 STK.
KR. 25.000
ALFELGUR. 16X7,
6 GATA,
NÝ DEKK, 265-75R16,
KRT.K60.000
ALFELGUR, 15x6,
5 GATA,
DEKK, 205-75R15,
4 STK.,
KR. 20.000
VERSLUN SUQURLANDSBRAUT 16
108 REYKJAVIK - s. 588 9747.