Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Thorbjorn Jag-
land neyðist til
að víkja fyrir
Stoltenberg
Leiðtogi Verkamannaflokksins
í Noregi, Thorbjorn Jagland, vík-
ur sem þingflokksleiötogi og
frambjóðandi flokksins til emb-
ættis forsætisráðherra í kosning-
unum á næsta ári. Jens Stolten-
berg, sem var fjármálaráðherra í
ríkisstjórn Jaglands, verður þing-
flokksleiðtogi og frambjóðandi til
forsætisráðherraembættisins.
Jagland hefur verið gagnrýnd-
ur fyrir að vera ógreinilegur.
Hann virkar feiminn og skortir
útgeislum, einkum í sjónvarpi.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
kannana ykist fylgi Verkamanna-
flokksins yrði Stoltenberg í farar-
broddi.
Kjell Magne Bondevik, forsæt-
isráðherra Noregs, er sagður hafa
ástæðu til að óttast mannabreyt-
ingamar. Hann getur nú ekki
lengur spilað á óvinsældir Jag-
lands. En Bondevik vísar því á
bug að breytingamir hafi afleið-
ingar á þingi.
Al Fayed fær
höfundarrétt á
myndum af
Díönu prinsessu
Mohamad A1 Fayed, eigandi
Harrods stórverslunarinnar í
London, fær höfundarrétt á
myndum af Díönu prinsessu og
syni sínum Dodi sem teknar vom
er þau komu til Villa Windsor í
París daginn áður en þau létust í
bílslysi í París 1997.
Áfrýjunardómstóll í London
hnekkti úrskurði hæstaréttar frá
því í mars síöastliðnum um að
birting breska blaösins Sun á
myndunum væri ekki brot á höf-
undarréttarlögum. Hæstiréttur
hafði jafnframt úrskurðað aö birt-
ing myndanna hefði verið al-
menningi í hag.
Díana og Dodi dvöldu í tvær
klukkustundir í Villa Windsor,
húsi hertogahjónanna af Windsor
sem Fayed keypti 1987. Sagt var
aö Díana og Dodi hefðu verið að
íhuga að búa í húsinu. Myndim-
ar, sem deilt var um, vom teknar
með öryggismyndbandsvél og
vom seldar Sun af starfsmanni
fyrirtækisins sem bar ábyrgö á
öryggi hússins. Eigendur fyrir-
tækisins höfðu ekki samþykkt
söluna.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftlrfarandi
elgnum verður háð á þelm sjálf-
um sem hér segir:
Laufengi 104, 3ja herb. íbúð merkt 0102,
Reykjavík, þingl. eig. Hildur Bjömsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands hf.,
höfuðst., þriðjudaginn 15. febrúar 2000 kl.
14.00, ___________________
Veghús 31, 50% ehl. í íbúð á 7. hæð t.v. í
A-homi merkt 0701, Reykjavík, þingl.
eig. Auður Sigurjóna Jónasdóttir, gerðár-
beiðandi íslandsbanki hf., höfuðst. 500,
þriðjudaginn 15. febrúar 2000 kl. 14.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVIK
Flugránsfarþegar koma stjórn Tonys Blairs í vanda:
Helmingurinn
vill ekki heim
Leiguflugvél er væntanleg til
Bretlands í dag til að flytja farþega
afgönsku farþegaþotunnar, sem var
rænt og snúið til London, aftur
heim til Kabúl.
Helmingur farþeganna hefur þó
engan áhuga á að snúa aftur til
stríðshrjáðs heimalands síns. Flug-
ráninu lauk á friðsaman hátt í gær-
morgun, fjómm dögum eftir að það
hófst í Kabúl.
Sjötíu og fjórir þeirra sem voru
um borð í afgönsku þotunni ætla að
biðja um hæli sem pólitískir flótta-
menn í Bretlandi.
íhaldsmenn gagnrýndu stjórn-
völd harðlega fyrir að sýna ekki
nóga hörku í málefnum pólitískra
flóttamanna. Vísuðu þeir í fréttir
Jack Straw, innanríkisráöherra Bret-
lands, þarf aö glíma viö farþega af-
gönsku farþegaþotunnar.
ljölmiðla um að flugránið hefði ver-
ið þaulskipulagt samsæri fjöl-
margra um borð í vélinni til að
komast til Bretlands og lifa þar á al-
mannabótakerfmu.
„Við megum ekki horfa upp á það
að sú ímynd styrkist að Bretland sé
auðvelt viðureignar fyrir flótta-
menn,“ sagði William Hague, leið-
togi íhaldsflokksins.
Lögreglan handtók 21 mann úr
vélinni í gær og lagði hald á fjórar
byssur, fimm hnífa, tvær hvellhett-
ur og tvær handsprengjur.
Heimildarmenn sögðu í gær að
ólíklegt væri að Jack Straw, innan-
ríkisráðherra Bretlands, myndi
verða við beiðni um hæli þar sem
um innanlandsflug var að ræða.
Ungur piltur kastar pappírsrifrildi upp í loftiö fyrir utan sjómannakirkju heilags Páls í Valletta, höfuöborg Möltu. Hefö
er fyrir þvi á þessari sólrfku Miöjaröarhafseyju aö kasta svona pappírsrifrildi yfir dýrlingastyttur þegar gengiö er meö
þær um götur borgarinnar. Haldið var upp á dag heilags Páls í gær. Heilagur Páll kom til Möltu áriö 60 eftir Krist þeg-
ar skip sem var aö flytja hann til Rómar strandaöi. Upp frá því varö eyjan kristin.
Bein stjórn frá London vofir yfir Norður-írlandi:
Breskum hermönnum fækk-
að til að bjarga friðarferlinu
Stjómvöld á Bretlandi og írlandi
eru að undirbúa úrslitatilraun til að
bjarga friðarferlinu á Norður-ír-
landi. Tillagan gerir meðal annars
ráð fyrir því að fækkað verði í
breska herliðinu í héraðinu, að því
er sagði í fréttum útvarps og sjón-
varps í morgun.
írska ríkisrútvarpið RTE hafði
eftir ónafngreindum heimildar-
mönnum sínum að skæruliðum
írska lýðveldishersins (IRA) yrði
einnig gert að sýna það og sanna
fyrir maímánuð að þeim væri al-
vara i að láta vopn sín af hendi.
Fréttir RTE fóru í loftiö aðeins
nokkrum klukkustundum áður en
frestur sem IRA hafði verið gefinn
til að heita afvopnun átti að renna
út. Meirihluti mótmælendatrúar-
manna á Norður-írlandi þrýstir
mjög á bresk stjómvöld að við loka-
Bertie Ahern, forsætisráöherra ír-
lands, er míkiö í mun aö finna lausn
á þráteflinu á Noröur-írlandi.
frestinn verði staðið og að Norður-
írland fari aftur undir beina stjóm
frá Lundúnum.
Breskir og írskir embættismenn
héldu fundi í alla nótt til að reyna
að finna lausn, að því er heimildar-
menn hermdu.
Þráteflið i afvopnunarmálinu hef-
ur verið helsta ljónið á veginum fyr-
ir því að hægt væri að framfylgja
friðarsamkomulaginu sem gert var
á fostudaginn langa árið 1998. Það
samkomulag batt enda á þrjátíu ára
blóðsúthellingar kaþólskra og mót-
mælenda sem hafa kostað meira en
þrjú þúsund manns lífið.
Bertie Ahem, forsætisráðherra
írlands, hét því í gær að halda
áfram þar til lausn fyndist.
„Ég geri mér grein fyrir að tím-
inn líður en við verðum engu að síð-
ur að halda áfram,“ sagði hann.
Fundað um Líbanon
ísraelskir og líbanskir herfor-
ingjar funda í dag í viðurvist al-
þjóðlegra eftirlitsmanna um leiðir
til að stöðva stríðið í suðurhluta
Líbanons.
Roland Dumas stefnt
Saksóknari i París stefndi í gær
Roland Dumas, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakklands, og
fyrrverandi ástkonu hans fyrir
rétt vegna meintrar spillingar
sem olíurisinn Elf Aquitaine teng-
ist.
Sniðgengu ræðuna
Franskir og belgískir stjórnarer
indrekar voru í gær flarverandi
þegar nýr for-
maður Öryggis-
og samvinnu-
stofnunar Evr-
ópu, ÖSE, hélt
ræðu í aðal-
stöðvum stofn-
unarinnar í Vín.
Nýi formaður-
inn er nýr utanríkisráðherra Aust-
urríkis, Benita Ferrero-Waldner.
Hún er í Þjóðarflokknum sem
myndað hefur stjórn með Frelsis-
flokki Jörgs Haiders. Þetta var í
fyrsta sinn sem Belgar og Frakkar
sniðgengu fund ÖSE.
Koch vill ekki víkja
Roland Koch, forsætisráðherra
Hessen í Þýskalandi, vildi enn í
gær ekki láta undan þrýstingi um
að segja af sér vegna aöildar að
hneykslinu tengdu leynisjóðum
kristilegra demókrata.
Friðsamleg stækkun
George Robertson, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði í gær
að Rússar þyrftu ekki að hafa
áhyggjur af stækkun bandalags-
ins í Evrópu.
Þrýst á Wiranto
Yfirmaður herafla Indónesíu,
Tyasno Sudarto, sagði í morgun
að Wiranto öryggismálaráðherra
yrði að hlýða skipunum Ab-
durrahs Wahids forseta og víkja
úr embætti.
Baráttan harðnar
Öldungadeildarþingmaðurinn
John McCain krafðist þess í gær
aö George
Bush, ríkis-
stjóri. í Texas,
léti af óheiðar-
legum baráttu-
aðferðum.
McCain sagði
Bush hafa leigt
fyrirtæki til að
spyrja kjósendur leiðandi spurn-
inga í sima og ófrægt hann um
leið undir því yfirskini aö um
skoðanakönnun væri að ræða.
Weizman yfirheyrður
Lögregla yfirheyrði í gær Ezer
Weizman, forseta ísraels, vegna
rannsóknar á meintri mútuþægni
hans. Weizman tók viö hundruð-
um þúsunda dollara frá frönskum
milljónamæringi.
Saknað eftír aurskriðu
Sjö manna fjölskyldu er saknað
eftir aurskriðu nálægt bænum
Zenica í Bosníu í gær. Aurskrið-
an hreif með sér sjö hús.
Viðkvæmar viðræður
Viðkvæmar viðræður fóru
fram í fundarherbergi bandaríska
utanríkisráðuneytisins þar sem
rússneskur njósnari kom fyrir
hlerunarbúnaði. Engin mikilvæg
leyndarmál voru þó rædd.
Sent bréf um fjöldamorð
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch saka Vladimir
Pútin, starfandi
forseta Rúss-
lands, um að láta
sig engu skipta
fjöldamorð rúss-
neskra her-
manna á óbreytt-
um borgurum í
Grosní. Hafa
samtökin sent Pútín bréf vegna
málsins.