Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
9
Útlönd
Serbneskur ráðherra
hótar blaðamönnum
Aðstoðarforsætisráðherra
Serbíu, Vojislav Seselj, réðist í gær
harkalega að fréttamönnum óháðra
fjölmiðla og sakaði þá um samsæri.
„Þið starfið fyrir erlendar leyni-
þjónustur og eruð meðsekir um
morðið á Pavle Bulatovic varnar-
málaráðherra," sagði Seselj.
Seselj hótaði beinlínis blaða-
mönnum í Belgrad lífláti. „Þið skul-
uð ekki halda að þið lifið af ef við
gentm árás. Þið vinnið gegn ykkar
eigin ríki,“ æpti aðstoðarforsætis-
ráðherrann á fundi með frétta-
mönnum í höfuðborginni i gær.
„Þið fáið greitt af Bandaríkja-
mönnum fyrir að eyðileggja ríkið.
Þið eruð svikarar, það er ekkert
verra til en þið. Þeir sem vinna fyr-
ir Bandaríkjamenn eiga eftir að
flnna fyrir afleiðingunum," hélt
Seselj áfram.
Hann sagði að morðið á
Bulatovic væri ekkert annað en
hryðjuverk framkvæmt af Banda-
ríkjunum, Bretlandi og Frakklandi.
Hermenn bera kistu Pavles Bulatovics, varnarmálaráöherra Júgóslavíu, viö
útför hans í bænum Rovci í gær. Aöstoðarforsætisráöherra Serbíu réöist í
gær á blaöamenn og sögöu þá eiga aöild aö moröinu á Bulatovic.
Sagði hann stjómvöld í Belgrad
brátt leggja fram sönnunargögn til
stuðnings máli sínu.
„Þið eruð meðsekir. Þið eruð
eins og morðingjamir. Haldið þið
að blaðamenn séu heilagar kýr?
Þið eruð vissulega kýr en varla
heilagar,“ sagði Seselj einnig. Að-
spurður hvort hann óttaðist um
eigið líf svaraði hann: „Hvers
vegna ætti ég að vera hræddur?
Það eruð þið sem eigið að vera
hræddir."
Blaðið Vecernje Novosti í
Belgrad greindi frá því í morgun að
Bulatovic hefði verið skotinn 17
skotum á veitingastað í hverfmu
Banjica nálægt knattspymuvellin-
um Rad. Morðinginn skaut inn um
glugga veitingastaðarins. Bulatovic
lést stuttu eftir að hann var fluttur
á hersjúkrahús eftir skotárásina.
Svartfellingar, sem styðja Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta, sóttu
veitingastaðinn og var Bulatovic
fastagestur þar.
Vinsældir Blairs
enn á niðurleið
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og ríkisstjórn hans
eiga greinilega ekki upp á pall-
borðið hjá breskum kjósendum.
Vinsældir Blairs og manna hans
halda áfram að dala og er nú svo
komið að minna en 50 prósent
þjóðarinnar styðja stjórnina. Það
hefur ekki áöur gerst frá þvl
Verkamannaflokkurinn komst til
valda eftir kosningarnar 1997.
Samkvæmt skoðanakönnun
Gallup fyrir Daily Telegraph
styðja 49 prósent kjósenda Verka-
mannaflokkinn. Það er fjórum
prósentustigum færri en í könn-
un í síðasta mánuði. Blair getur
þó huggað sig við það að íhalds-
flokkurinn virðist ekki hafa grætt
á vinsældatapi stjórnarinnar.
Maöur þarf nú ekkert aö vera sérlega hár í loftinu til aö rétta hjálparhönd. Þaö sannast best á þessum brosmilda
strákiingi frá Austur-Tímor sem lætur sig ekki muna um aö aðstoða sér eldri drengi viö aö rekja vatnabuffalóa yfir
hrísgrjónaakrana svo hægt sé aö sá í þá. Og auövitaö tilheyrir aö veröa pínulítiö drullugur i framan.
Vilja svipta Edith
Cresson
Dómsyflrvöld í Belgíu hafa farið
fram á það að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ESB, svipti
Edith Cresson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Frakklands og fram-
kvæmdastjóra ESB, friðhelgi. Þar
með yrði hægt að ákæra hana fyrir
spillinguna sem átti mikinn þátt í
þvi að öll framkvæmdastjóm ESB
neyddist til að segja af sér fyrir
tæpu ári.
Talsmaður belgíska dómsmála-
ráðuneytisins sagði menn einkum
hafa hug á að yflrheyra Cresson
vegna svokallaðs Berthelots-máls.
René Berthelot var tannlæknir og
náinn vinur Cresson. Hún réði
hann til starfa til ESB í Bmssel á
góðum launum sem ráðgjafa
varðandi alnæmi. Hann hafði enga
sérþekkingu í sjúkdómnum.
friðhelgi
Belgísk dómsmálayfirvöld vilja yfir-
heyra Edith Cresson.
Símamynd Reuter
Ekkert vitað um
tölvuhakkarana
Bandarísk stjómvöld viður-
kenndu í gær að þau hefðu enn
ekki nokkra hugmynd um hverjir
hefðu staðið fyrir árásum tölvu-
hakkara á vinsæl netsvæði að
undanfornu, með þeim afleiðing-
um að starfsemi þeirra stöðvaðist
um tíma. Þau hafa fyrirskipað
endurskoðun öryggis allra tölvu-
kerfa til að ganga úr skugga um
að ekki hafi verið átt við þau.
Vamarmálaráðuneytið sagði aö
farið yrði yflr um tíu þúsund
tölvukerfi.
Meðal þeirra netsvæða sem
urðu fyrir barðinu á
tölvuhökkurunum voru Yahoo,
eBay, Amazon.com og fréttavefur
CNN. CBS-sjónvarpsstöðin sagði í
gærkvöld að tjónið sem
hakkaramir ollu væri metið á 1,2
milljarða dollara.
Alríkislögreglan, FBI, fer með
rannsókn málsins og er það litið
mjög alvarlegum augum.
Lögmaður Færeyja:
Þjóðaratkvæði
um sjálfstæöið
Færeyingar munu ganga til
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði eyjanna frá Danmörku síðar á
árinu.
„Ég vona að við getum haldið
þjóðaratkvæðagreiðslu um tillög-
una seint í haust, í síðasta lagi í des-
ember,“ sagði Anfinn Kallsberg, lög-
maður Færeyja, í viðtali við frétta-
mann Reuters í gær.
„Ekki skiptir mestu máli hvenær
það verður gert. Mikilvægt er að
lokatillagan njóti víðtæks stuðning
á lögþinginu og meðal færeysku
þjóðarinnar. Það er ekkert stórmál
þó að það taki tveimur mánuðum
lengur að tryggja það,“ sagði lög-
maðurinn.
Samsteypustjórn Kallsbergs, sem
kom til valda eftir kosningamar fyr-
ir nærri tveimur árum, hafði gert
sér vonir um að sjálfstæðismálin
gengju hraðar fyrir sig. Stjómar-
andstaðan, sem vill halda nánum
tengslum við Danmörku, hefur hins
vegar séð til þess að hægar hefur
gengið en áformað.
Kallsberg verður að sannfæra
Anfinn Kallsberg, lögmaöur Fær-
eyja, býst viö þjóðaratkvæöa-
greiðslu um sjálfstæöiö í haust.
þingmenn um að sjálfstæði muni
ekki leiða til mikilla efnahagsþreng-
inga í landinu.
Aðeins 4 verð:
200 - 500 - 1000 - 1500
:skór, buxur, peysur, jakkar,
úlpur, kjólar, barnafatnaður.
ÞORPID
Kjörgarði, Laugavegi Niðri í Bónusi.