Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Spurningin
Hvað myndirðu gera ef
þú ættir 3 milljarða?
Helgi Davíð Björnsson nemi: Ég
myndi leggja peningana inn á
banka og lifa á vöxtunum.
Helga Björk Arnardóttir nemi: Ég
myndi kaupa rosa flottan bíl og hús.
Guðbjörg Bima Björnsdóttir
nemi: Ég myndi kaupa Eimskip.
María Björg Ágústsdóttir nemi:
Skipta á milli fjölskyldumeðlima,
lifa á mínum vöxtum og fara í
heimsreisu.
Jóhann Sigurðsson nemi: Festa
kaup á eyðieyju og byggja.
Guðmundur Sveinsson nemi:
Gefa til góðgerðarmála og lifa i leti
til æviloka.
Lesendur
Hver á að gæta
bróður míns?
Percy Benedikt
Stefánsson.
Percy Benedikt Stefánsson ráð-
gjafi skrifar:
Fréttir hafa verið að berast af nán-
ast óbreyttri útbreiðslu alnæmis og
framhaldi á óskilj-
anlegum tómleika
samfélagsins gagn-
vart alvöru þessa
máls. Samkvæmt
fréttum frá Land-
læknisembættinu
höfðu 7 einstak-
lingar greinst HIV-
jákvæðir um mitt
árið 1999. Alls
höfðu 128 einstak-
lingar greinst HlV-jákvæðir og þar
af eru 32 látnir. Þessar tölur segja
auðvitað lítið um raunveruleikann
sem HlV-jákvæðir, vinir og fjölskyld-
ur þeirra lifa við. Vélstjóramálið
svokallaða haustið 1999, þar sem
manni var sagt upp vegna HIV-
smits, afhjúpaði svo ekki varð um
villst bitran raunveruleikann.
Fræðsla og mestöll umræða um al-
næmi hefur legið niðri um nokkurt
skeið. Það er kannski þögnin sem
gerir okkur íslendinga að „ham-
ingjusömustu" þjóð í heimi? Sama
virðist á hveiju þessi þjóð byrjar, við
endumst aldrei til að ljúka neinu
með eðlilegum og vitrænum hætti.
Annaðhvort gerum við langtímaá-
ætlun um ljúka málinu (sem þýðir í
raun „svæfingu") eða við trompum
allt í gegn (sem þýðir þá „rothögg").
Og sömu ástæðumar liggja í raun að
baki báðum leiðunum.
Forvarnarstarf tilheyrir t.d.
„svæfingarhópnum“, en Eyjabakka-
Sjö einstaklingar sem greinast HlV-jákvæðir á sex mánuöum er sjö of mik-
iö, segir Percy m.a. Fræösla eyöir fordómum og eykur skilning. - Framfarir
á sviði alnæmis kynntar á blaöamannafundi.
málið var lagt með „rothöggi“. Góð-
ur vilji til að þóknast öllum, óöryggi,
óþol, þekkingarleysi og skortur á
auðmýkt fyrir skoðunum annarra.
En aftur að upphafinu. Brýnt er
að ekkert minna en upplýsingaher-
ferð fyrir rétti HlV-jákvæðra til lífs-
ins fari nú af stað hjá heilbrigðisyf-
irvöldum. Að skilningur lækna á
sjúkdóminum nái út fyrir sjálft sjúk-
dómshugtakið, veirumagn og auka-
verkanir. Þar hefur verulega skort á.
Ný lyf breyttu miklu. Og þó ekki, því
það er allt þama innra með okkur.
Og staðan er óljós hjá mörgum.
Skilningur heilbrigðisyfirvalda verð-
ur' að taka breytingum. Forvamar-
starf er ekki kynning á málefni, eitt-
hvað sem gerist á skömmum tíma,
og svo búið. Forvamarstarf hlýtur
að kosta mikla fiármuni og taka
langan tima. Sjö einstaklingar sem
greinast á sex mánuðum er sjö of
mikið. Sjö til viðbótar sem ásamt
fjölskyldum sínum upplifa óvissu,
ótta, sorg, einmanaleika og tilfinn-
ingalegan doða. Fræðsla eyðir for-
dómum og eykur skilning, það er
langtímamarkmið sem krefst kjarks
og þolinmæði.
Formaður nýrrar Samfylkingar
- Össur víkur fyrir framboði Margrétar
Jóhannes Einarsson skrifar:
Þegar nú er búið að fresta stofn-
fundi fyrir endumýjaða Samfylk-
ingu allt til vors er ekki örgrannt um
að margir sem léðu Samfylkingunni
atkvæði sitt séu famir að óttast
verulegt fylgistap í næstu kosning-
um. Nema auðvitað að vel takist til
um forystumálin og fyrirkomulag
við formannskjörið á flokksstofnun-
inni.
Ég er enn þeirrar skoðunar, sem
og margir aðrir, að enginn sé betur
fallinn til forystu í fyrstu lotu en
Margrét Frímannsdóttir sem hefur
ávallt komiö einstaklega vel fýrir,
bæði á mannfundum og i viðtölum
við íjölmiðla (síðast sá ég hana i
sjónvarpsviðtali sl. miðvikud. þar
sem hún reifaði lagasetningu til að-
halds á verðbréfamarkaðinum).
Fram hefur komið að nokkrir
frammámenn Samfylkingarinnar
skoði nú hug sinn gagnvart framboði
til formanns og varaformanns.
Einnig að Össur Skarphéðinsson
muni ekki keppa að formennsku gefi
Margrét kost á sér. Þetta er drengi-
legt af Össuri og honum líkt. Vafa-
samt er að aðrir fari þá að leggja í
mótframboð gegn henni.
Margrét hefur staðið þannig að
málum í sameiningarferli flokkanna
að Samfylkingin ætti að standa sem
einn maður aö kjöri hennar til for-
manns. Raunar ættu flokksmenn að
skora á Margréti að gefa kost á sér í
þetta embætti eins og áður hefur
komið fram oftar en einu sinni.
Gisting á landsbyggðinni:
Efri-Brú kemur á óvart
Bréfritari gefur Efri-Brú háa einkunn fyrir aöbúnaö og viöurgjörning. - Frá
Efri-Brú í Grímsnesi.
Ragnar skrifar:
Ég er einn þeirra sem allt of sjald-
an ferðast um landið og nýti mér þá
þjónustu sem er oröin svo viðtekin
víða um landsbyggðina. Ég á eink-
um við þjónustu sveitabýla við
ferðamenn í formi gistingar, veit-
inga og ýmiss konar aíþreyingar
sem býðst - mismunandi að fjöl-
breytni auðvitað. Veturinn er ekki
lengur til trafala í þessu sambandi
og margir nýta sér þjónustuna
einnig á þeim árstíma. Ég átti þess
kost að heimsækja einn þessara
staða á laugardegi í fylgd sauma-
klúbbs í vetrarblíðunni sem ríkti
nánast um allt land á miðjum þorra.
Bærinn var Efri-Brú í Grímsnesi.
Húsbúnaður og gistirými gefur í
engu eftir vinsælum gististöðum og
mótelum í Evrópu og Ameríku. Ný-
tísku herbergi, smekklega klædd í
hólf og góif, með baði og góðum
breiðum rúmum bíða gesta. í sama
húsi er setustofa þar sem gestum
býðst að njóta léttra veitinga eins og
hver kýs. Á staðnum eru einnig
tveggja manna hús til útleigu, og
sömuleiöis sérstakt fjölskylduhús.
Matsalur er í tengibyggingu og
þar var boðið upp á þorramat að
þeim hætti sem tíðkast við bestu að-
stæöur og úr frábæru hráefni sem
unnið er á staðnum. Ríkulegur og
fjölbreyttur morgunverður beið
manns að morgni.
Á Efri-Brú kemur fólk heldur
ekki að tómum kofunum að því er
varðar aðbúnaö og veitingar þar
sem Hildegard Dúrr og Böðvar Guð-
mundsson ráða ríkjum ásamt Sig-
rúnu Hauksdóttur sem er rekstrar-
aðili ásamt hjónunum.
í gönguferð um staðinn og ná-
grenni má sjá að þama er einstak-
lega fallegt á sólbjörtum morgni. Að
mati þeirra sem ferðast hafa mikið
um landið er þetta einn af bestu
gististöðunum í dreifbýlinu. Undir
það er hægt að taka. - Það er gott að
hafa fengið Efri-Brú í þennan hóp.
Fjármagnseigend-
ur fjármagni
Stefán Ólafsson skrifar:
Ég tek heilshugar undir lesenda-
bréf í DV í dag (miðvikud. 9.2.) und-
ir fyrirsögninni Auðmenn gefa til
góðgerðarmála. Þarna var tekið á
viðkvæmu efni sem menn geta svo
verið sammála eða ósammála eftir
atvikum. Mér er hins vegar ekkert
launungarmál að mér finnst eðlilegt
og til fyrirmyndar þegar stórir fjár-
festar, auðjöfrar, eða hvað við köll-
um slíka leggja til fé í framkvæmdir
sem líta verður á sem þjóðhagslegar
og koma öllum til góða. Við höfum
dæmi um svona nokkuð, t.d. um
sjóði athafnamanna eins og Sigur-
liða heitins Kristjánssonar kaup-
manns (Silli & Valdi) sem stofhaði
sjóð til styrktar efnilegum náms-
mönnum og var hvatamaður að
stofnun Hjartavemdar. Ég las líka
fyrir stuttu um að einn ríkasti núlif-
andi einstaklingur, ef ekki sá rík-
asti, Gunnar Björgvinsson, búsettur
í Lichtenstein, fjármagnar nú stöðu
við Háskóla íslands í frumkvöðla- og
nýsköpunarfræðum. Þetta hefði lík-
lega reynst ógerlegt nema með að-
stoð Gunnars. Þetta er tilraun sem
fróðlggt er og spennandi að sjá hvort
heppnast jafn vel hér og víða erlend-
is. Ég segi bara: Áfram á þessari
braut, íslenskir fjárfestar.
Ódýr fargjöld til
sólarlanda
íslenskur húseigandi á Spáni
sendi þennan pistil:
Ég sá að fargjöld frá íslandi til
Evrópulanda em nú að lækka,
a.m.k. tímabundið. Ég las líka ný-
lega auglýsingu frá Flugleiðum til ís-
lenskra húseigenda á Spáni og átti
að vera tilboð um lág fargjöld, eitt-
hvaö um 32.000 kr. Þetta þykir mér
ekki vera nein tilboðsverö. Þarna
vantar verulega á enn þá. Fargjöld
frá íslandi til sólarlanda veröa að
lækka til að vega upp á móti lækkuð-
um fargjöldum til annarra Evrópu-
landa. Það era ekki allir sem vilja
kaupa „pakkaferðir" á vegum Fiug-
leiða eða ferðaskrifstofanna. Og
margir aðrir en íslenskir húseigend-
ur á Spáni vilja gjarnan kaupa bara
fargjald og sjá um sig sjálfir að öðra
leyti. En lága verðið vantar.
Haider í íslensk-
um stjórnmálum?
Axel hringdi:
Það vantar ekki fordæminguna í
Evrópusambandslöndunum á nýrri
ríkisstjóm í Austurríki. Eðlilega
hræðast margir Evrópubúar hvers
konar öfgahreyfmgar og þeir eru enn
minnugir hörmunganna úr síðustu
heimsstyrjöld. Þeir fengu skrekk við
óróann á Balkanskaga og fognuöu
inngripi NATO áður en allt fór úr
böndunum, og var nóg samt. En ekki
þýðir að setja sig upp á móti niður-
stöðum lýðræðislegra kosninga í
Austurríki. Viða era fyrir einstak-
lingar á borð við Haider hinn austur-
ríska í stjómmálum, en þeir hafa
ekki enn náð fótfestu á Vesturlönd-
um. í íslenskum stjómmálum era
líka nokkrir Haiderar, en þeir hafa
ekki náð að beita áhrifúm sínum hér
öðravísi en að standa fyrir fjöldamót-
mælum og andófi með nokkuð frið-
samlegum hætti enn sem komið er.
En við skulum samt vera á verði.
Ber rassinn
frálKEA
Sigurður Einarsson skrifar:
Mikið óskaplega er maður orðinn
leiður á að þurfa að beija augum
þessar heimskulegu auglýsingar fyr-
ir og á milli dagskrárliða á sjón-
varpsstöðvunum. Það er eins og aug-
lýsingastofur eða bara fyrirtækin
sjálf hafi engan smekk eða útsjónar-
semi til að selja vörur sínar. Og mest
og verst fara þessar innlendu út-
færslur af nektinni í mínar taugar.
Ég er ekki frá því að margir séu mér
sammála. Hvaö t.d. með karlinn með
bert rassgatið beint framan í mann í
sófaauglýsingunni frá KEA? Skyldi
hann selja vel? Er þessi lifandi bak-
hluti virkilega táknrænn fyrir
innstú óskir og hugsanir íslendinga
í skammdeginu?