Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Fijálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
VTsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Anddyri íslenska Netsins
Netmiðlar hafa mjög styrkt stöðu sína og hafa á
skömmum tíma náð góðri fótfestu til hliðar við aðra fjöl-
miðla, dagblöð, tímarit, útvarp og sjónvarp. Raunar hef-
ur þróunin verið ævintýraleg og notkun nú orðin al-
menn. Stærstu netmiðlamir eru í tengslum við dagblöð-
in og fleiri fjölmiðla. Með þeim hætti samnýtast kraftarn-
ir og neytendur fá betri þjónustu, lesendur innanlands
jafnt sem utan.
Stærstu netmiðlarnir, Vísir.is og Mbl.is, veita ekki að-
eins öra fréttaþjónustu heldur Qölmargt annað. Vísir.is
er, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, vinsælasta vef-
svæði landsins. Þar má m.a. lesa fréttir og íþróttafréttir
DV, fféttir Dags og viðskiptafréttir Viðskiptablaðsins
auk frétta fréttastofu Vísis. En netmiðill eins og Vísir.is
segir ekki aðeins nýjustu fféttir. í vikunni var kynnt ný
forsíða Vísis.is, mun stærri og efnismeiri en áður. Þar er
meðal annars afþreyingarefni af ýmsu tagi og netverslun
sem er viðskiptamáti í örum vexti. Á forsíðunni er
einnig aðgangur að Frípósti Vísis.is og íslenska leitarsíð-
an Leit.is skipar þar veglegan sess. Með breytingunum á
forsíðu Vísis.is má segja að að komið hafi verið upp nýju
anddyri að íslenska Netinu.
Með nýrri og bættri forsíðu, fféttavefnum, ýmsum
undirvefjum og verslunarplássi auðveldar Vísir.is al-
menningi umferð um netmiðilinn. Eiríkur Hjálmarsson,
ritstjóri Vísis.is, sagði, þegar hin nýja forsíða var opnuð,
að fólk treysti í síauknum mæli á einstaka netmiðla til
að vísa sér veginn um Intemetið en gerði mn leið aukn-
ar kröfur til slíkra miðla. Það væri hlutverk Vísis.is að
verða við þeim kröfum.
Með því að auka verslunarpláss á Vísi.is er verið að
svara kalli tímans. Netverslun hefur vaxið hratt á síð-
ustu mánuðum. Hún sexfaldaðist til dæmis á Vísi.is á
liðnu ári. Um leið og netverslun verður aðgengilegri og
þægilegri nýta fLeiri þjónustuna.
Þá hefur Vísir.is verið í farabroddi hraðrar þróunar
samgangs Netsins og GSM-síma. GSM-símaeign er al-
menn orðin og þúsundir íslendinga nýta sér VIT-þjón-
ustu í samvinnu við Landssímann og nú hefur WAP-
þjónustu verið bætt við.
Vöxtur netmiðlanna hefur verið ör en hann kemur
sem viðbót við fjölmiðlaneyslu landsmanna. Dagblöð og
ljósvakamiðlar dafna vel eftir sem áður. Þessir miðlar
hafa svarað kalli tímans um þróun og endurnýjun og um
leið samstarf við netmiðla. En vöxtur netmiðlanna kall-
ar líka á mikla ábyrgð þeirra sem stýra þeim og starfa
við þá. í nýrri skoðanakönnun kom fram að fleiri en þrír
af hverjum fjórum netverjum heimsækja Vísi.is reglu-
lega og Mbl.is fylgir í kjölfarið. Æ fleiri notendur net-
miðlanna verða að geta treyst því að grundvallaratriði
blaðamennsku um áreiðanleika upplýsinganna og að-
skilnað ritstjómarefnis- og auglýsinga séu virt, sem og
siðareglur þær sem blaðamenn hafa sett sér.
Samspil dagblaðs og netmiðils býður upp á nýja mögu-
leika, öra og öfluga fréttaþjónustu. Segja má að fréttaþjón-
usta netmiðilsins keppi í tíðni helst við útvarp. Kosturinn
við netmiðilinn er þó sá að hann er ekki háður ákveðn-
um fréttatímum. Notandinn, hafi hann til þess búnað,
tölvu eða ákveðna gerð síma, getur fylgst með því sem er
að gerast, lesið eða hlustað á, þegar honum hentar.
Með samþættingu dagblaða og netmiðla við hlið ljós-
vakamiðla verður ekki annað séð en allir miðlarnir
muni lifa góðu lífi á nýrri upplýsingaöld.
Jónas Haraldsson
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrv. menntamálaráöherra: þekkingarmarkmiöin sitji í fyrirrúmi. - Björn Bjarnason
menntamálaráðherra leiöir Edelstein til öndvegis á ný.
Edelstein snýr aftur
dóttir, sagði á Alþingi
að „þekkingarmark-
miðin eigi að sitja í
fyrirrúmi". „Ég tel að
varast eigi að láta
staðreyndakennslu
víkja fyrir viðhorfa-
kennslu," sagði hún.
Niðurstaðan varð
sú að starf samfélags-
fræðihópsins stöðvað-
ist í miðjum klíðum. í
stað þess var gripið
til námsefnis í ís-
landssögu sem ég
hafði verið leika mér
að því að skrifa, þar
sem samfelldri ís-
landssöguyfirferð var
„Óneitanlega er svolítið skondið
að Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra skuli leiða á ný til önd-
vegis þau sjónarmið í sögu-
kennslu sem flokkssystir hans
Ragnhildur Helgadóttir stóð fyrir
að ryðja út af mestum ofsa á síð-
asta áratug.“
Kjallarinn
Gunnar Karlsson
prófessor
Veturinn 1983-84
geisaði hér á landi
heiftarleg deila um
kennslu í sögu þjóðar-
innar í grunnskólum.
Starfshópur á vegum
skólarannsóknadeild-
ar menntamálaráðu-
neytisins undir
forystu þýsk-íslenska
félagsfræðingsins
Wolfgangs Edelstein
hafði þá lagt drög að
nýju námsskipulagi
þar sem sagan var
samþætt við landa-
fræði, félagsfræði og
átthagafræði undir
heitinu samfélags-
fræði. Sögunni skyldi
einkum beitt sem
tæki til þess að nem-
endur gætu dregið af
henni fróðlegar,
menntandi ályktanir
um mannlegt samfé-
lag.
Þetta viðhorf hafði
í för með sér að gefið
var upp á bátinn að
kenna samfellt yfirlit
yfir sögu þjóðarinnar.
Sagt var að slík saga
hlyti alltaf að vera
staðreyndaklungur sem erfittt
væri að gera skiljanlegt eða lær-
dómsríkt bömum; betra væri að
stikla á þeim atriðum sem væru
fallin til fróðlegra ályktana og lík-
leg til að höfða til bama.
Uppreisn sögusamfellunnar
Gegn þessu félagsfræðilega sjón-
armiði var risið í sögukennsludeil-
unni 1983-84, einkum af hálfu
hægriarms íslenskra stjómmála
og einkum gegn því að hætta við
samfellda sögu viðurkenndra meg-
inatriða íslandssögunnar. Mennta-
málaráðherra, Ragnhildur Helga-
haldið en staðreyndasafn gömlu
sögunnar grisjað verulega.
Gagnsókn ósamfelldrar sögu
Á síðastliðnu ári gaf mennta-
málaráðherra út nýjar námskrár
fyrir grunnskóla og framhalds-
skóla. í framhaldsskólaskránni er
komið langt til móts við það sjón-
armið sem réð starfi samfélags-
fræðihóps Wolfgangs Edelstein á
sínum tíma. Þar er að vísu gert
ráð fyrir tveimur yfirlitsáföngum í
sögu, öðrum frá fornöld til átjándu
aldar, hinum þaðan til samtímans.
En áfóngunum er skipt í afmark-
aða efnisflokka og aðeins lagt fyr-
ir að kenna efni úr rúmlega helm-
ingi þeirra. Þarna má jafnvel kom-
ast hjá því að lesa nokkra sögu
tímans fyrir lok miðalda, um 1500.
Að minnsta kosti er hægt að snið-
ganga alla fornmenningu íslend-
inga, því hún er aðeins í einum
efnisflokki. Aðrir söguáfangar
framhaldsskólans snúast um ann-
að en söguyfirlit.
Samkvæmt bókinni virðist gert
ráð fyrir samfelldara yfirliti í
grunnskólunum. Það fer þó mikið
eftir námsefninu. í Morgunblað-
inu 18. janúar sl. segir Þorsteinn
Helgason, sem líklega má kalla að-
alhöfund námskránna, svolítið frá
væntanlegri sögunámsbók fyrir 8.
bekk. Þá kemur í ljós að þar
verða jafnaldrar nemenda og
ferming þeirra í brennidepli og
meðal annars reist á bréfum frá
óþekktum unglingi á síðari
hluta 19. aldar. Að vísu fá Jón
Sigurðsson og Ingibjörg kona
hans sinn stað í 8. bekk líka, seg-
ir Þorsteinn, en auðvitað hljóta
fermingin og óþekkti unglingur-
inn að taka pláss frá venjuhelg-
uðum meginatburðum þjóðar-
sögunnar. Upplegg Þorsteins
virðist því félagsfræðilegt og
minna mikið á stefnu samfélags-
træðihóps Wolfgangs Edelstein.
Óneitanlega er svolítið skondið
að Bjöm Bjarnason menntamála-
ráðherra skuli leiða á ný til önd-
vegis þau sjónarmið í sögukennslu
sem flokkssystir hans Ragnhildur
Helgadóttir stóð fyrir að ryðja út
af mestum ofsa á síðasta áratug.
En auövitað ber okkur áhugafólki
um sögunám að taka vel á móti
Edelstein þegar hann snýr aftur,
því umfram ailt þarf sögunám að
vera í stöðugri endurnýjun, eins
og annað nám. Höldum aldrei að
við séum komin á leiðarenda.
Gunnar Karlsson
Skoðanir annarra
Sameining sjúkrastofnana
„Sameining sjúkrastofnana getur leitt til endur-
skipulagningar og betri nýtingar tækja og starfsfólks.
Skilja þarf á milli kaupenda og seljenda heilbrigðis-
þjónustu ... Kaupendur þurfa að hafa góða þekkingu á
öllum þáttum heilbrigðismála, góðan aðgang að tölvu-
væddum upplýsingum um einstaka þætti, gæði og
verðlagningu þjónustunnar. Til að ná þjóðhagslega
mestum árangri þarf samningsgerð að samþætta þjón-
ustu heilsugæslu, hjúkrunarheimila og sjúkrahúsa."
Kristján Sigurðsson yfirlæknir í Mbl. 10. fcbrúar.
Vottorð frá Ferðamálaráði?
Ríkislögmaður hefur haldið þvi fram, að íslending-
ar yrðu að athlægi á alþjóðavettvangi ef fallist yrði á
bótakröfu manns sem sat 9 mánuði saklaus i fangelsi.
í fyrradag gat forsætisráðherra þess að „okkar ást-
kæra söngkona" hefði verið svo góð landkynning að
hún gæti fengið eyju eina til afnota án endurgjalds en
á þvi hafa ekki aðrir átt kost. Ýmsir telja einnig að
kvikmyndagerðarmenn eigi að fá 200 milljónir úr sjóð-
um ríkisins árlega þar sem verk þeirra séu góð land-
kynning. Vef-Þjóðviljinn þarf ekki að hafa áhyggjur af
þessum atriðum þar sem hann hefur getið sér gott orð
út fyrir landsteinana. Aðrir sem vilja hafa vaðið fyrir
neðan sig ættu að fá vottorð frá ferðamálaráði um að
þeir séu landi og þjóð til sóma á erlendum vettvangi
og eigi því að fá milda afgreiðslu fyrir dómstólum og
lipra þjónustu hjá öðrum yfirvöldum.
Úr Vef-Þjóðviljanum 9. febrúar.
Holdgerving kvótans
„Brostinn er flótti í sægreifalénum. Fyrsti greifinn
axlar nú skinnin norðan heiða og færir herfangið suð-
ur á verðbréfaþing ... Huglægur kvótinn er nú loksins
orðinn hlutlægur fengur sem mölur og ryð fá grandaö.
Þjóðareignin hefur eignast ásjónu af blóði og merg og
beini. Kvótinn fær kennitölu. Holdgerving... í dag fara
kátir karlar á Kútter Haraldi ekki til fiskiveiða frá
Akranesi heldur til fjárfestinga suður á verðbréfaþing
... Kaupþing gerir upp kvótann eftir gömlu skipta-
reglunni um aflahlut. Væntanlega fá þeir fleiri en
fimmtán fiska í hlut eftir að hafa kostaö sautján ára
róður hjá greifanum sínum."
Ásgeir Hannes Eiríksson í Degi 10. febrúar.