Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
17
Sport
H>V DV
Sport
Meistaramótið í frjálsum íþróttum:
Ungir áberandi
Hlutabréf í skoska liöinu Celtic hafa
fallið í þessari viku sem nemur um
8%. Tapiö um siöustu helgi í deild-
inni gegn Hearts og svo í bikarkeppn-
inni gegn Iverness hefur komið
miklu róti á hlutabréfln og segja fjár-
málamenn að þau kunni aö lækka
enn frekar.
Hj| John Barnes var síðan
I rekinn frá Celtic i gær
ásamt Terry
' McDermott þjálfara og
i mun Kenny Dalglish
, stjórna liðinu til að
« byrja með en
; stjórnarmenn skoska
P liðsins ætla að vanda
valið á fjórða stjóra fiðsins á aðeins
tæpum þremur árum.
Stan Colfymore hefur
náö samkomulagi viö
Leicester um að leika
með þeim. Eftir miklar
vangaveltur og dvöl hjá
Aston Villa sem breytt-
ist í martröð getur hann
loksins farið að einbeita
sér aö því að koma
knattspyrnuferlinum á réttan kjöl.
Með tilkomu Collymores til Leicester
er ljóst að Arnar Gunnlaugsson
verður að spýta í lófana ætli hann sér
sæti i liöinu.
ítlaska skíðakonan Isolde Kostner
sigraði í sinni þriðju brunkeppni á
heimsbikarmótinu í vetur þegar hún
sigraði á móti í Santa Caterina á Ital-
íu. 1 öðru sæti varð Regina Haeusl
frá Þýskalandi og i þriðja sæti lenti
Corine Rey-Bellet frá Sviss.
Danski knattspymu-
maöurinn Brian
Laudrup sem leikur
með Ajax í Hollandi ætl-
ar ekki að leika með
Dönum i úrslitakeppni
EM í sumar en Bo Jo-
hansson, landsliðsþjálf-
ari Dana, fór þess á leit
við Laudrup að hann gæfl kost á sér
á ný í danska landsliðið. Laudrup
ákvaö að leggja landsliðskóna á hill-
una eftir heimsmeistarakeppnina í
Frakklandi árið 1998 en hann á að
baki 82 landsleiki.
Margir stuöningsmenn Barcelona
hafa gefið félagi sínu langt nef hvað
varðar komu á heimaleiki félagsins á
Nou Camp leikvanginn glæsilega. Á
þessari leiktíð er meðalaðsókn á
heimaleiki Börsunga 57.000 manns en
hefur verið þetta í kringum 70.000
manns á síðustu árum. Tapið á
heimavelli gegn Alaves um siöustu
helgi mun ekki bæta úr skák fyrir
Börsunga en stuðningamenn félags-
ins voru allt annaö en ánægðir.
Sigurður Jónsson
ásamt tveimur öðrum
leikmönnum hjá
Dundee United eru
með flensu og hefur
verið skipaö af lækni
félagsins að koma
ekki nærri leikvangi
félagsins svo þeir
smiti ekki aðra leikmenn. Siguröur
missir af leiknum gegn Aberdeen um
næstu helgi og Paul Sturrock, stjóri
Dundee Utd., á í erfiðleikum með að
stilla upp liði vegna veikinda og
meiðsla leikmanna. -JKS/GH/ÓÓJ
íkvöld
Úrvalsdeildin i körfuknattleik:
KFÍ -Akranes ................20.00
Nissandeild karla:
ÍBV-Afturelding .............20.00
ÍR-Víkingur .................20.30
Valur-Fylkir.................20.30
Nissandeild kvenna:
Valur-KA ....................18.30
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum innanhúss fer fram í Bald-
urshaga og í íþróttahúsinu í Mos-
fellsbæ um helgina. Mótið hefst
klukkan 9.30 í Baldurshaga og þvi
lýkur laust eftir hádegi á sunnudag.
Aþenu-hópurinn svokallaði mun
setja svip sinn á mótið en okkar
besta frjálsíþróttafólk verður fjarri
góðu gamni en það dvelur flest er-
lendis við æfingar til undirbúnings
Haukar unnu sannfærandi sigur á
bitlitlum bikarmeisturum Grindavík-
ur, 71-60, i leik hinna sterku varna i
Hafnarfirði í gær.
Sigurinn var þó í óþarflega mikilli
hættu í lokin en Haukar hættu í síð-
ari hálfleik að sækja að körfu
Grindavíkur og létu sér nægja að
skjóta fyrir utan.
Grindvíkingar skoruðu þá 11 stig í
röð og minnkuðu muninn í 4 stig þeg-
ar tvær mínútur voru eftir. Þá skor-
aði Bragi Magnússon mjög mikilvæg-
ar körfur fyrir Hauka og tryggði þar
með sigurinn. Haukamir spiiuðu vel
hver fyrir annan í leiknum og upp-
skáru eftir því.
Frábær vamarleikur Hafnfirðinga
nær allan leikinn lagði granninn að
fyrir Evrópumótið innanhúss sem
verður í Genk í Belgíu í lok þessa
mánaðar. Þó er hugsanlegt að Jón
Amar Magnússon, sem æflr í Svi-
þjóö, komi til landsins og taki þátt í
einhverjum greinum.
Vala Flosadóttir, Þórey Edda Elís-
dóttir og Guðrún Amardóttir æfa
öll erlendis og verða ekki með á
meistaramótinu að þessu sínni.
sigrinum en Haukar tóku 23 af 31 frá-
kasti í fyrri hálfleik (74%). Hjá Hauk-
um var það liðsheildin með þá Mar-
el, Guðmund og Braga sem bestu
menn.
Hjá Grindvíkingum var engu lík-
ara en hátíðarhöldin eftir bikarsigur-
inn sætu í mönnum. Það munaði
vitaskuld miklu fyrir þá að „sá
gamli“, Alexander Ermolinskij, gat
ekkert leikið í síðari hálfleik vegna
meiðsla og svo spilaði Bjarni einnig
mjög lítið af sömu sökum.
Haukamir hafa því með þessum
sigri sett enn meiri spennu í deildina
nú fyrir lokasprettinn því þeir eru
núna aðeins tveimur stigum frá
toppliðum Grindavíkur og Njarð-
víkur. -VÍK
Sá næst stysti
- Njarðvík vann Snæfell á klukkutíma og 13 mínútum
Njarðvík vann Snæfell, 77-91, í
Hólminum í gær, sinn fyrsta
útisigur á nýrri öld.
Leikur Snæfells og Njarðvíkur
var hraður og skemmtilegur í
byrjun og flaut vel. Meðan lið
Snæfells náði að hafa sitt
sterkasta liö inn á spiluðu þeir
virkilega vel. Þá fékk Pálmi Sig-
urgeirsson í liði Snæfells sína 4
villu og lið Snæfells má alls ekki
við því að hafa Pálma á bekknum
og það tók Njarðvíkinga ekki lang-
an tima að ná þokkalegu forskoti.
í seinni hálfleik kom getumun-
ur liðanna berlega í ljós og eftir að
Hermann Hauksson hafði farið á
kostum í liði Njarðvíkur og skorað
13 stig á skömmum tima gátu þeir
leyft sér að hvila sitt sterkasta lið
og um tíma voru 4 landsliðsmenn
ásamt Keith Veney á bekknum.
Að vfsu veröur að segja að ekki er
auðskilið hvað Njarðvík er að gera
með leikmann eins og Veney í liði
sinu, ekki er það til að bæta leik
liðsins svo mikiö er víst því aldrei
spiluðu þeir betur en þegar hann
var útaf. í liði Njarðvíkur átti þri-
eykið Hermann, Teitur og Friðrik
Ragnarsson góðan dag. Páll Krist-
insson spilaði vel í fyrri hálfleik.
Hjá Snæfelli voru þeir Pálmi Sig-
urgeirsson og Kim Lewis bestir.
Það var áberandi við leikinn
hversu hratt hann gekk fyrir sig
og að sögn fróðra manna er þetta
næst stysti leikur í úrvalsdeild-
inni frá upphafi en hann hófst kl.
20.00 og lauk kl 21.13. -KS
-JKS
1. deild kvenna í körfubolta í gær:
Tvær hliöar KR-kvenna
Stúdínur rifu sig upp eftir
bikartap gegn Keflavík um síðustu
helgi og veittu íslandsmeisturum
KR verðuga keppni framan af leik
liðanna í Kennó í 1. deild kvenna í
gær. ÍS hafði yfir í hálfleik, 22-21,
en 18 tapaðir boltar í seinni
hálfleik og 20 stig gestanna í röð á
5 minútum í hálfleiknum tryggði
öruggan 42-68 sigur KR-stúlkna.
KR átti afleitan fyrri hálfleik
þar sem baráttuglaðar stúdínur
gáfu þeim engan grið og KR
misnotaði 16 af 19 síðustu skotum
sínum í hálfleiknum. ÍS missti
taktinn gegn sterkri pressuvöm
KR í þeim seinni, en KR stal þá 15
boltum og nýtti líka 17 af 32
skotum sínum.
Stig ÍS: Kristjana B. Magnúsdóttir
10, Svana Bjarnadóttir 8 (9 fráköst),
Stella Rún Kristjánsdóttir 9, Georgia
Kristiansen 5 (4 stoðsendingar), Hafdís
Helgadóttir 4 (10 fráköst), Júlía
Jörgensen 2, Jófríður Halldórsdóttir 2,
Hallbera Gunnarsdóttir 2.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 13 (6
af 9 í skotum), Hanna B. Kjartansdóttir
13 (4 stolnir), Gréta María Grétarsdóttir
11, Linda Stefánsdóttir 8 (5
stoösendingar, 4 stolnir) Kristin Björk
Jónsdóttir 8, Guöbjörg Norðfiörð 8 (2 af
2, í 3ja stiga skotum), Emilie Ramberg
7. -ÓÓJ
Bitlitlir bikarmeistarar
Maurice Spillers og félagar
í Þór, Akureyri, voru
nálægt því að leggja
KR-inga að velli í
vesturbænum í gærkvöld.
Hér sækir Spillers, sem
skoraði 28 stig fyrir
Þórsara, að körfu KR-inga.
Á innfelldu myndinni er
Hafsteinn Lúðvíksson með
knöttinn en til varnar hjá
KR eru þeir Hjalti
Kristinsson og Ólafur Jón
Ormsson.
■bíÍBé >k. 1m :SS ; 1 .... "# 'XWt
f .. WlM ■JLmm ‘Hh j '^JII
1
ð®
URVALSDEILDIN
Þórsarar sömdu við nær alla sína
leikmenn til tveggja ára fyrir timbiliö
og því ljóst að Þórsarar tefla fram svo
til sama liöi næsta vetur. Að auki
hefur Maurice Spillers sýnt áhuga á
að leika annað tímabil með Þór og
Þórsarar hafa, samkvæmt heimildum
DV, að auki áhuga á að næla sér í
innlendan leikmann í
landsliðsklassa.
SK
Grindavík 17 13 4 1487-1305 26
Njarðvík 16 13 3 1452-1234 26
Haúkar 17 12 5 1416-1286 24
Tindastóll 17 12 5 1430-1308 24
KR 16 11 5 1287-1173 22
Keflavík 17 8 9 1563-1392 16
Hamar 17 8 9 1324-1389 16
KFÍ 16 6 10 1277-1337 12
Skallagr. 17 6 11 1417-1523 12
Þór A. 17 5 12 1353-1566 10
Snæfell 17 5 12 1240-1367 10
ÍA 16 1 15 994-1360 2
Taphrina úti
Keflvíkingar enduðu sex leikja
taphrinu sína með eins stigs
sigri á Hamar í Hveragerði í
gær, 87-88. Hamarsmenn leiddu
framan af og voru yflr í hálfleik
55-48 þökk fyrir stórleik
Brandons Titus en hann skoraði
28 stig í hálfleiknum.
Hörkubarátta var í báðum
liðum en þegar líða tók á síðari
hálfleik settu Keflvíkingar upp
pressuvöm og náöu með því að
vinna upp stigamun og skoru 12
stig gegn 4.
Undir lok leiksins náðu
Keflvíkingar að sigra 87-88 eftir
hreint ótrúlega spennandi
lokamínútur. Það var ekki fyrr
en tvær mínútur til leiksloka að
Keflvíkingar komust í 82-84 og
þá var ekki aftur snúið.
Skarphéðinn Ingason og
Brandon Titus voru bestir
heimamanna en Gunnar
Einarsson og Jason Smith áttu
stóran þátt í sigri Keflvíkinga,
sem unnu sinn fyrsta útileik í
sex leikjum og síðan gegn
Snæfelli í Hólminum 7.
nóvember 1999. -KB/ÓÓJ
- Þórsarar lengst af yfir gegn slökum KR-ingum en töpuöu 79-71
„Ég er með yngsta liðið i deildinni
og strákamir eiga að mörgu leyti hrós
skilið fyrir þennan leik. Vamarleikur
okkar var sterkur og mun betri en í
síðustu leikjum. Okkar vantar meiri
stöðugleika og hann kemur með tím-
anum,“ sagði Ágúst H. Guðmundsson,
þjálfari Þórs frá Akureyri, eftir að
kornungt lið hans hafði tapaði fyrir
liði KR í úrvalsdeildinni í gærkvöld í
KR-húsinu, 71-79.
Afar efnilegt lið Þórsara, sem lék án
Óöins Ásgeirssonar sem er veikur,
skaut KR-ingum skelk í bringu. Lék
grimma vörn og baráttan var til stað-
ar. Undir lok leiksins náðu heima-
menn að tryggja sér sigurinn en
naumt var það.
Þór er með langyngsta lið deildar-
innar og ef norðanmenn halda rétt á
spilum í nánustu framtíð er útlit fyr-
ir að Þórsarar eignist sitt sterkasta lið
í mjög langan tíma. Um helmingur
leikmanna er enn að leika í unglinga-
flokki þar sem þeir fara á kostum og
reynslan sem þeir öðlast í úrvalsdeild-
inni í vetur er drjúgt innlegg í
reynslubankann.
Maurice Spillers var góður en mis-
tækur. Mest á óvart kom Davíð Guð-
laugsson sem sýndi mjög góða takta í
síðari hálfleik. Þar fer mikið efni sem
gæti náð í fremstu röð. Þeir Sigurður
Sigurðarson og Magnús Helgason léku
einnig vel ásamt Hafsteini Lúðvíks-
syni. Konráð Óskarsson var að venju
drjúgur.
KR-liðið ofli miklum vonbrigðum í
þessum leik. Meðalmennskan allsráð-
andi og varla það. Keith Vassell var
ekki líkur sjálfum sér þrátt fyrir stig-
in 25 og var hittni hans afleit. Ólafur
Jón Ormsson tók góða rispu í síðari
hálfleik, skoraði þá öll 14 stig sín í
leiknum, og hann sá um að innbyrða
sigurinn öðrum fremur og rifa KR-
liðið af stað með þremur þriggja stiga
körfum í röð. -SK
Aron áfram
- hjá Skjern næstu tvö árin
Aron Kristjánsson hefur framlengt
samning sinn við danska handknatt-
leiksliðið Skjern um tvö ár. Aron
gekk í raðir Skjern frá Haukum eftir
tímabilið hér heima árið
1998 og varð danskur
meistari með liðinu á síð-
asta tímabili. Þá varð
Aron bikarmeistari með
Skjem fyrir áramótin en
leikið var til úrslita fyrir
áramótin.
Aron hefur verið frá
keppni í nokkrar vikur en hann
gekkst undir aðgerð á liðþófa á
hægra hné í desember. Hann tók
þátt í undirbúningi íslenska lands-
liðsins fyrir Evrópumótið í Króatíu
en meiðslin tóku sig upp á ný sem
gerði það af verkum að hann fór ekki
tfl Króatíu.
„Hnéð bólgnaði upp og það þurfti
að tappa af því svo ég þurfti að byrja
aftur í endurhæfmgu. Ég er svona
smátt og smátt að koma til og ég von-
ast til að geta byrjað að spila þann 26.
febrúar og að verða með í undirbún-
ingi landsliðsins fyrir leikina gegn
Makedóníu í sumar. Það er
lífsnauðsynlegt fyrir ísland
að komast á HM eftir þetta
gengi út í Króatíu" sagði
Aron við DV í gær. Skjem
er í 5. sæti í dönsku A-deild-
inni þegar síðari umferðin
er nýhafln en sú breyting
hefur verið gerð á móta-
fyrirkomulaginu að aöeins fjögur
efstu liðin í defldarkeppninni komast
í úrslitakeppnina.
„Við eigum að hafa alla burði á að
komast í úrslitin en við erum að fá
menn tO baka sem hafa átt í meiðsl-
um,“ sagði Aron.
Aron sagði að Anders-Dahl Nielsen
þjálfari Skjern hafi skrifað á dögun-
um undir nýjan samning við félagið
sem gildir tO ársins 2003. -GH
Eiður heitur
Það er ekki spurning
hvort heldur hvenær Eiður
Smári Guðjohnsen verður
kominn til liðs í ensku A-
deOdinni í knattspyrnu.
Þessi 21 árs gamli framherji
skoraði sitt 15. mark fyrir
Bolton á leiktíðinni þegar
hann tryggði liði sínu 0-1
sigur á Port Vale og
frammistaða hans í vetur hefur opn-
að augu margra knattspyrnustjóra í
A-deOdinni fyrir honum.
Það kom mörgum á óvart þegar
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, sagði að Eiður væri ekki fal-
ur fyrir minna en 580 milljónir
króna. Kollegum Allardyce fannst
þetta óraunhæf upphæð fyrir 21 árs
gamlan leikmann úr B-deildinni en
smátt og smátt eru þessir sömu menn
famir að sannfærast um að Eiður
Smári sé hverrar krónu virði.
Sagi Burton varnarmaður Port
Vale þurfti að kljást við Eið Smára í
leiknum gegn Bolton í vikunni og
hann hafði svo sannarlega í mörg
hom að líta.
„Það er engin spurning að
Eiður er einn besti fram-
herjinn í þessari defld. Ég
hafði ekki séð mikið tO
hans en eftir þennan leik
kemur mér ekki á óvart að
hann skuli vera búinn að
skora 15 mörk. Hann er
mjög góður leikmaður og
það er ansi erfitt að leika gegn hon-
um. Hann er líkamlega sterkur, er
með mjög gott vald á knettinum og
hefúr góðan skilning. Hann hefur
alla burði tO að verða klassa sóknar-
maður,“ sagði Burton í samtali við
Bolton Ewening News.
Aflardyce er að vonum mjög
ánægður með Eið Smára. „Þessi
strákur er aðeins 21 árs gamall og er
í fyrsta skipti að spfla heOa leiktíð.
Það má ekki gleyma því að hann hef-
ur misst mikið úr vegna meiðsla en
nú þegar hann er komast í gott form
verður hann betri og betri með
hverjum leik,“ segir Allardyce.
-GH
Draumabyrjun
Tindastólsmenn gerðu nánast út
um leikinn gegn Skallagrími á
Króknum í gærkveldi á fyrsta leik-
fjórðungnum. Heimamenn sýndu þá
snilldar varnar- og sóknartOþrif.
Shown Mayers varði hvert skotið á
fætur öðru og Kristinn Friðriksson
með flugeldasýningu hinum megin.
Staðan um miðbik fyrri hálfleiks
var 24:2 fyrir Tindastól og hlýtur að
vera afar fátítt að lið skori svo lítið
á löngum leikkafla.
Önnur karfa gestanna kom ekki
fyrr en á 11. mínútu leiksins. Borg-
nesingum tókst engu að siður að
rétta úr kútnum með góðri baráttu.
Gestirnir komu ákveðnari tO seinni
hálfleiks og tókst að minnka mun-
inn í sjö stig um miðjan hálfleikinn,
en Tindastólsmenn bitu í skjaldar-
rendur, sögðu hingaö og ekki lengra
og bættu síðan í á lokakaflanum.
Niðurstaðan var öruggur Tinda-
stólssigur 81-60.
Shawn Mayers var geysOega góð-
ur í gær, hirti fjölda frákasta og
spOaði vel. Kristinn Friðriksson var
einnig mjög góður, sérstaklega í
fyrri hálfleiknum, ísak var geysi-
sterkur í vöminni og góður í leik-
stjórnendahlutverkinu og Svavar
vann sig vel inn í leikinn eftir
slæma byrjun.
Hjá Borgnesingum var Hlynur
Bæringsson bestur. Grikkinn
Chaves barðist vel, Birgir var
sterkur og átti brjúgan þátt í því
að rffa félaga sína upp úr ládeyð-
unni, og Torrey var góður í seinni
hlutanum. -ÞÁ
Mikil óánægja rikir
meöal forráöamanna
Viking í Stavangri í
garð knattspyrnusam-
bands íslands. Ástæö-
an er sú að þegar Rík-
haróur Dadason fór
til La Manga meö is-
lenska landsliðinu
gekk hann ekki alveg
heill til skógar. Á Spáni spilaöi hann
þrjá leiki á fimm dögum. Stuttu eftir
aö hann kom til Noregs aftur meidd-
ist hann síðan á hné og þarf aö fara í
uppskurð. Þar meö missir hann af
dýrmætum undirbúningi fyrir kom-
andi keppnistimabil. Ríkharður fer
með Viking-liðinu til La Manga í
næstu viku en mun ekki spila þá þrjá
leiki sem fyrirhugaðir eru þar.
Lazio vann í gœr Venezia, 5-0, i
fyrri leik liöanna í undanúrslitum
ítalska bikarsins i knattspyrnu. Ro-
berto Mancini (2), Sinisa
Mihajlovic (2 viti) og Fabrizio
Ravanelli skoruðu mörk Lazio í
leiknum. Inter vann Cagliari í hinni
viöureigninni, 1-3, 1 fyrrakvöld og
ættu bæði lið að vera nokkuð örugg
með að mætast í úrslitaleiknum.
Þaö verða Nígeria og Kamerún sem
mætast í úrslitum Afríkubikarsins á
sunndaginn en undanúrslit keppn-
innar fóru fram i gær. Nígería vann
Suður Afríku, 2-0, og Kamerún vann
Túnis, 3-0, og komst Kamerún þar
meö í úrslitin í fyrsta sinn í 12 ár en
róður liðsins gæti þó orðið erfiður
því Nigería hefur ekki tapað lands-
leik á heimavelli í heil nítján ár.
PSVEindhoven vann í gær sannfær-
andi sigur, 4-0, á Ajaz í hollensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu og skor-
aði Ruud van Nistelrooy þrennu í
leiknum, sína fimmtu fyrir PSV-liðið
í vetur. Nistelrooy hefur gert 26 mörk
fyrir PSV í vetur og meðal áhorfenda
á þessum leik var framkvæmdastjóri
Chelsea, Gianluca Vialli.
Barcelona vann í gcer Osasuna, 04,
á útivelli i fyrri leik liðanna í átta
liða úrslitum spænsku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu. Luis Enrique (2),
Dani Garcia og Patrick Kluivert
gerðu mörkin fyrir Börsunga i leikn-
um sem eru nánast öruggir áfram.
Lemgo burstaói Magdeburg í þýsku
Bundesligunni i handbolta á útivelli í
gær, 19-27 og komst Ólafur Stefáns-
son ekki á blað fyrir Magdeburgarlið-
iö í leiknum en Lemgo fór með
sigrinum upp í annaö sætið.
Nú er orðið ljóst að Pavla Hama-
kova mun keppa við Völu Flosadótt-
ur á stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum
5. mars en Hamakova er núna númer
þrjú á heimslistanum, Hún er jafn-
aldra Völu, eða 22 ára á þessu ári.
Verulegar líkur eru á að fleiri stór-
stjömur muni keppa viö þær stöllur á
mótinu í Höllinni. Hamakova hefur
verið í mikilli framfor og stökk hún
4,43 metra í Þýskalandi 4. febrúar síö-
astliðinn. Hún sigraði Völu í vetur er
þær stukku báðar 4,30 metra en Ham-
akova í færri tilraunum.
-GH/ÓÓJ
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Phoenix-Minnesota........101-85
Robinson 16, Kidd 16, Gugliotta 10 -
Mithcell 16, Sealy 11, Garnett 10.
LA Clippers-Vancouver . . .90-112
Anderson 29, Olowokandi 14, Jones 13
- Dickerson 40, Rahim 22, Bibby 14.
Sacramento-Denver.........96-84
Webber 22, Anderson 20, Divac 13 -
McDyess 21, Clark 19, Stith 13.
Hamar (55) 87 - Keflavík (48) 88 ■■■ KR (33) 79 - Þór Ak. (36) 71 ■■■ Tindastóll (41) 81 - Skallagrímur (27) 60 ■■■ Haukar (38) 71 - Grindavík (23) 60 ■■| Snæfell (37) 77 - Njarðvík (45) 91
24, 5-8, 9-8,15-14, 22-16, 25-18, 30-29, 40-37, 4543, 5246, (5548), 61-55, 68-55, 70-57,
73-65, 77-71, 79-73, 80-79, 82-84, 85-87, 87-88.
Brandon Titus 33
Pétur Ingvarsson 15
Ólafur Guðmundsson 11
Skarphéðinn Ingason 10
Óli S. Barðdal 9
Ómar Sigmarsson 5
Hjalti Jón Pálsson 4
Fráköst: Hamar 26 (8-18),
Keflavik 36 (17-19).
3ja stiga: Hamar 25/13,
Keflavík 13/6.
Dómarar (1-10): Jón
Bender og Eggert Þór
Aðalsteinsson (7).
Gœði leiks (1-10): 8.
Víti: Hamar 17/15, Keflavík
19/13.
Jason Smith 28
Gunnar Einarsson 19
Hjörtur Harðarson 12
Elentínus Margeirsson 8
Guðjón Skúlason 8
Halldór Rúnar Karlsson 7
Fannar Ólafsson 2
Magnús Þór Gunnarsson 2
Kristián E. Guðlaugsson 1
Áhorfendur: 450.
2-0, 9-13, 11-16, 13-18, 19-24, 21-27, 25-31, 25-36, (33-36), 35-36, 4340, 4649, 48-52,
• 50-57, 52-60, 62-62, 66-66, 69-67, 71-67, 79-71.
Keith Vassell 25
Ólafur Ormsson 14
Jesper Sörensen 14
Steinar Kaldal 9
Jakob Ö. Sigurðarson 5
Amar Kárason 4
Guðmundur Magnússon 3
Ólafur M. Ægisson 3
Hjalti Kristinsson 2
Fráköst: KR 33, Þór Ak. 30.
3ja stiga: KR 6/14, Þór Ak.
5/16.
Dómarar (1-10):
Rögnvaldur Hreiðars-
son og Björgvin Rúnars-
son, 5.
Gœði leiks (1-10): 5.
Víti: KR 18/27, Þór Ak.
15/16.
Áhorfendur: Um 250.
Maurice Spillers 28
Siguröur Sigurðarson 11
Konráð Óskarsson 9
Davíð Guðlaugsson 9
Magnús Helgason 8
Hafsteinn Lúðviksson 6
8-0, 24-2, 26-8, 28-16, 35-23, (41-27), 45-33, 51-39, 5343, 58-51, 67-55, 73-59, 81-60.
w
Shawn Myers 23
Kristinn Friðriksson 20
Svavar Birgisson 16
Friðrik Hreinsson 7
ísak Einarsson 6
Sune Henriksen 4
Valur Ingbnundarson 3
Flemming Stie 2
Fráköst: Tindastóll 36,
Skallagrimur 19.
3ja stiga: Tindastóll 9/6,
Skallagrímur 12/4.
Dómarar (1-10): Kristján
Möller og Sigmundur Már
Herbertsson (8).
Gteði leiks (1-10): 8.
Víti: Tindastófl 18/17,
Skallagrímur 6/3.
Áhorfendur: 325.
Torrey John 18
Hlynur Bæringsson 16
Enrique Chaves 12
Birgir Mikaelsson 10
Ari Gunnarsson 5
2-0, 13-2, 15-3, 20-6, 24-9, 24-15, 27-17, 29-21, 32-21, 36-23, (38-23), 40-23, 43-26,
45-30, 45-36, 49-39, 5441, 6247, 62-58, 64-60, 71-60.
84, 15-16, 25-25, 32-36, (3745), 41-58, 48-65, 53-73, 58-79, 65-82, 77-91.
Guðmundur Bragason '18
(12 fráköst)
Stais Boseman 17
Marel Guðlaugsson 15
Bragi Magnússon 12
Jón Amar Ingvarsson 5
Ingvar Guðjónsson 4
Fráköst: Haukar 40 (16-24),
Grindavík 24 (9-15).
3ja stiga: Haukar 14/6 ,
Grindavik 23/7.
Dómarar (1-10): Kristinn
Óskarsson og Jón Halldór
Eðvaldsson (9).
Gceði leiks (1-10): 7.
Víti: Haukar 19/14,
Grindavík 12/7.
Áhorfendur: 200.
Brenton Birmingham 23
Pétur Guðmundsson 10
Guðlaugur Eyjólfsson 9
Bergur Hinriksson 9
Unndór Sigurðsson 7
Dagur Þórisson 2
Kim Lewis 28
Pálmi Sigurgeirsson 16
Jón Þór Eyþórsson 14
Adonis Pomonis 9
Rúnar Sævarsson 5
Baldur Þorleifsson 5
Fráköst: Snæfell 34,
Njarðvík 32.
3ja stiga: Snæfell 7,
Njarðvík 10.
Dómarar (1-10): Leifur S.
Garðarsson og Rúnar
Gíslason (8).
Gceði leiks (1-10): 7.
Viti: Snæfell 17/10,
Njarövíkr 15/10..
Áhorfendur: 300.
Hermann Hauksson 24
Teitur Örlygsson 19
Friðrik Ragnarsson 15
Keith Veney 11
Páll Kristinsson 10
Friðrik Stefánsson 5
Gunnar Örlygsson 3
Logi Gunnarsson 2
Ragnar Ragnarsson 2
Maður leiksins: Jason Smith, Keflavík.
Maður leiksins: Maurice Spillers, Þór.
Maður leiksins: Shawn Myers, Tindastól.
Maður leiksins: Marel Guðlaugsson, Haukum.
Maður leiksins: Hermann Hauksson, Njarðvík.