Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Síða 19
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
19
úis.
Krakkakluþbsinö
Lovísa Þ. Harðardóttir Móabarða 26, 220 Haliiarfirði 15219
Haraldur J. Haraldsson Háholti 9, 220 Hafttarfirði 11764
Heiðrún Þórðardóttir Sunnubraut 6, 230 Keflavík 5833
Sunna B. Ragnarsdóttir Þórustíg 28, 260 Njarðvík 7491
Anna Bryndís Stefánsd. Tjarnalundi 49, 600 Akureyri 11456
Erla Salomé Ólafsdóttir Hraunstíg 4, 685 Bakkafirði 12314
Fiimur Jónsson Brekkubyggð 20, 210 Garðabær 5476
Snævar Dagur Pétursson Mávahlíð 12, 105 Reykjavík 12563
Sigurður F. Vilhelmsson Lýsubergi 12, 815 Þorlákshöfn 10062
Ragnhildur Finnbogadóttir Austurbrún 23,104 Reykjavík 14668
_______________Fréttir
Borholan í Öxarfiröi:
Ný hola bor-
uð í sumar
DV, Akureyri:
„Holan er heldur vaxandi - bæði
þrýstingur og rennsli hefur aukist
eins og menn reiknuðu með að
myndi gerast,“ segir Franz Árna-
son, formaður stjórnar íslenskrar
orku ehf. sem stóð fyrir borun á
2000 metra djúpri holu á Austur-
sandi í Öxarfirði á síðasta ári.
Ekki liggur endanlega fyrir
hverju holan mun skila en Franz
segir að hún sé að hitna og í raun-
inni gangi hlutirnir fyrir sig eins
og við hafi verið búist. Hann segir
hins vegar ljóst að holan verði ekki
svo heit aö hægt verði að nýta hana
til raforkuframleiðslu eins og vonir
manna hafi staðið til. Holan sé hins
vegar fín og ekkert því til fyrir-
stöðu að nýta hana fyrir iðnað sem
þurfi lágþrýsta gufu og heitt vatn.
íslensk orka ehf. er hins vegar
að leita fyrir sér með raforkufram-
leiðslu í huga og þess vegna hefur
verið ákveðið að í sumar verði bor-
uð önnur hola á svæðinu. Franz
Árnason segir að komið hafi í Ijós
að holan sem boruð var hafi verið
í útjaðri háhitasvæðisins í Öxar-
firði en holan sem boruð verður í
sumar verði í miðju þess. -gk
Síldarvertíðin:
Húnaröstin
langaflahæst
DV, Akureyri:
Húnaröstin frá Hornafirði er
langaflahæsta skipið á síldarvertíð-
inni. Vertíðin er langt komin,
veiðst hafa rúmlega 92 þúsund
tonn, langmest á sumar- og haust-
vertíð og eru eftirstöðvar kvóta um
10 þúsund tonn. Húnaröstin hefur
komið með 6.334 tonn að landi, en
þau skip sem koma næst eru: Þor-
steinn EA 5.293 tonn, Beitir NK
4.899 tonn, Antares VE 4.820 tonn,
Jóna Eðvalds SF 4.763 tonn, Hákon
ÞH 4.384 tonn, Amey KE 4.273 tonn
og Oddeyrin EA 4.234 tonn. -gk
^Lottó til bjargar:
Óraunhæf leið
„Að sjálfsögðu er þetta ekki raun-
hæf aðferð til að leysa greiðslu-
vanda,“ segir Elín Sigrún Jónsdótt-
ir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna, aðspurð um
lottóauglýsingar að undanfórnu sem
hafa gjaman beinst að fólki í skulda-
súpu. Sú súpa er einna mögnuðust
nú um stundir þegar greiðslukorta-
reikningarnir frá jólahátíðinni em
komnir fram yfír gjalddaga. Fyrsti
vinningurinn i Víkingalottóinu var
um 300 milljónir króna í fyrrakvöld
en hann skiptist milli fimm vinn-
ingshafa, tveggja Dana, tveggja
Norðmanna og eins Finna. -GAR
Góða skemmtun!
Franska heilbrigðisráöuneytiö varar við notkun róandi lyfja:
Þekkt lyf talin valda
sjálfsvígshugleiðingum
- hafa verið notuð til nauðgana
DV, Akureyri:
Arkitektarnir að breytingunum,
sem gerðar voru á Ráðhústorgi á
Akureyri fyrir fjölmörgum árum,
skrifuðu bæjaryfirvöldum á Akur-
eyri bréf á dögunum þar sem þeir
áskildu sér rétt til fébóta og hótuðu
einnig lögbanni ef breytingar yrðu
gerðar á hugverki þeirra á Torginu.
í kjölfar þess hefur sú spurning
vaknað hvort Ráðhústorgið sé í
rauninni „gísl“ arkitektanna hjá
Batteriinu ehf. i Reykjavík sem
hönnuðu torgið á sínum tíma, hvort
bæjaryfirvöldum verði um ókomna
framtíð óheimilt að gera nokkrar
breytingar þar, hversu mikill sem
þrýstingurinn á slíkt kann að verða
frá bæjarbúum.
Fjölmargir Akureyringar eru
mjög óánægðir með útlit Ráðhús-
torgsins og göngugötunnar en
þrengt er að bæjaryfirvöldum um
breytingar vegna höfundaréttar
arkitektanna sem virðist ótakmark-
aður.
„Nei, ég lít ekki svo á að þeir séu
með Ráðhústorgið I gíslingu. Hins
vegar er þama um höfundarétt að
ræða sem verður að virða. Það sem
við hyggjumst gera er ekki að um-
bylta öllu þama heldur vinna að
fegrun. Fólk kvartar miklið um að
það vanti græna bletti í miðbæinn,
göngugötuna og Ráðhústorgið en ég
sé það fyrir mér að þetta verði hægt
að skapa í SkátagÚinu, koma þar
fyrir bæði gróðri og bekkjum á
Ráðhústorg á Akureyri. Bæjarbúar hafa aldrei tekið í sátt þær breytingar sem gerðar voru á torginu.
stöllum í gilinu," segir Vilborg
Gunnarsdóttir, formaður skipulags-
nefndar Akureyrar.
Akureyrarbær fól í haust Arki-
tektastofunni í Grófargili að vinna
hugmyndir að hugsanlegum breyt-
ingum í göngugötu, Skátagili og
Ráðhústorgi. Páll Tómasson arki-
tekt þar sagði í samtali við DV að
það væri alls ekki ætlunin að
kúvenda þeirri hönnun sem þar er,
heldur reyna innan skynsamlegra
fjárhagsmarka að vinna að lagfær-
ingum til bóta og svara þá um leið
því sem meirihluti bæjarbúa og
bæjaryfirvöld kalla ófullnægjandi
að sínu mati. -gk
verið notað en virkni þessara lyfja
er mjög hliðstæð," segir Sigurður
en samkvæmt ofangreindu er ekki
talin ástæða til að taka lyfíð af
markaði, þó það hafi komið til tals.
„Nær væri að banna áfengi til að
koma í veg fyrir slíka misnotkun,"
segir Sigurður en í nær öllum tilfell-
um þegar um undirbúna nauðgun
er að ræða er alkóhól notað. -hól
Franska heilbrigðisráðuneytið
hefur gefíð út yfirlýsingu að ástæða
þyki að vara við notkun lyfjanna
valium, vival, sobril og rohypnol, á
þeirri forsendu að þau auki hættu á
sjálfsvígshugleiðingum. Á vefsíðu
norska dagblaðsins Verdens Gang
Siguröur Guömundsson landlæknir.
var greint frá því að um 200.000
manns í Noregi tækju þessi ávana-
bindandi lyf að staðaldri, án þess þó
að vera upplýst um þá hættu sem
stafar af lyíjunum. Mjög margir
þessara sjúklinga nota lyfin lengi
þrátt fyrir að talið sé að um helm-
ingur notenda verði háður lyfinu
eftir meira en þriggja mánaða notk-
un. Öll lyfin nema vival eru notuð
hérlendis.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir sagði í samtali við DV að
ekki væru traustar upplýsingar um
að þessi lyf yllu sjálfsmorðshugleið-
ingum en þau eru í flokki róandi
lyfja og svefnlyfja. Þessi lyf eru
mest notuð í meðferð við þunglyndi
en einnig til að slá á kvíða og ótta
og hafa þau verið lengi á íslenskum
markaði. Lyfið vival væri þó ekki i
notkun hér á landi. Sigurður sagði
að frekari áhyggjur væru vegna
mikillar notkunar svefnlyfja hjá
öldruðum en Öldrun-
arfélagið birti nýlega
niðurstöður rann-
sókna um lyfjanotk-
un aldraðra sem er of
mikil og þykir
ástæða til að spoma
við því.
Litarefni í
rohypnol
Glæpamenn er-
lendis hafa stundað
að blanda einu um-
ræddu lyfji,
rohypnoli, í glös
stúlkna á skemmti-
stöðum til að deyfa
meðvitund þeirra en
dæmi eru um hörmu-
legar afleiðingar af
þeim sökum. Við
þessu hafa sumir
framleiðendur brugð-
ist með því að setja
litarefni í lyfið.
„Við höfum leitað
upplýsinga um þessa
óhugnanlegu notkun
en vitum ekki til þess að þetta lyf
hafi verið notað í slíkum tilgangi.
Það hafa komið upp tilfelli um notk-
un svefnlyfja í tengslum við nauðg-
anir en þá hefur lyfið rohypnol ekki
Ráöhústorg á Akureyri í „gíslingu“ arkitekta?
Hóta lögbanni verði
hugverki þeirra breytt