Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Qupperneq 24
24
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Sviðsljós
DV
Leo kann vel við
frægðina
Leonardo DiCaprio kvartar
ekki. Heimsfrægðin gerir honum
kleift að velja hlutverkin sem
hann leikur á hvíta tjaldinu og
þar með ráða ferðinni. Á móti
kemur að hann fær aldrei stund-
legan frið. „Ég finn svo sannar-
lega fyrir því að ég á ekki jafn-
mikið einkalíf og áður en kostir
þess að vera stjama vega upp á
móti óþægingunum, og vel það,“
sagði leikarinn þegar hann kom
til frumsýningar nýjustu myndar-
innar sinnar, Strandarinnar, í
Lundúnum í vikunni.
Stúlkur í bleiku og rauðu vekja alltaf mikla athygli. Það veit tískuhönnuður-
inn Han Feng mætavel. Hér má sjá glæsiflík úr haustlínu hans sem var til
sýnis í New York á dögunum. Fyrirsætan gefur sér góðan tíma svo Ijós-
myndararnir geti nú smellt af eins og þeir eru langir til.
Whoopi seldi
húsið á Netinu
Aumingja Whoopi Goldberg
var búin að reyna að selja húsið
sitt í Connecticut í fjögur ár, eftir
þessum hefðbundnu leiðum en
ekkert gekk. Þá datt fraukunni
allt í einu í hug að auglýsa kofann
á Netinu og þá fyrst fóru hjólin að
snúast. Traffikin var gífurleg og
fyrr en varði var húsið og allt sem
því fylgir selt á rúmar sjötíu millj-
ónir króna. Þá hló Whoopi alla
leið í bankann sinn.
Gwyneth setur
óskar í geymslu
Leikkonan Gwyneth Paltrow
skammast sín svo mikið fyrir
vælið í sér þegar hún tók við ósk-
arsverðlaununum í fyrra að hún
er búin að koma styttunni eftir-
sóttu fyrir inni i geymslu. Og þar
skal hún vera. „Ég vil ekki sjá
hana 1 húsinu. Ég er hrædd við
hana,“ segir Gwyneth í viðtali við
kvennatímarit. Éftir því var tekið
á sinum tíma hvað leikkonan var
væmin þegar hún tók við verð-
laununum.
Cúmnií
Tilvalið
í bflskúrinn
Hlífir gólfinu
fyrir óhreinindum
dreglar
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Ástir kryddstúlknanna blómstrar sem aldrei fyrr:
Mel B er komin
með nýjan gæja
Þar fór sjensinn sá. Kryddpían
Mel B er komin með nýjan kærasta
og það er ekki sá gamli Fjölnir. Nei,
nýja ástin í lífi þessarar fyrrum til-
vonandi tengdadóttur íslands heitir
Max Beesley og er 27 ára leikari.
Vinir segja að þau séu óaðskiljan-
leg.
Raunar svo mjög að þau brugðu
sér saman í frí til Seychelles-eyja í
hinu hlýja Indlandshafi. Sjónarvott-
ar segja að slefan hafi varla slitnað
á milli þeirra á meðan á flugferð-
inni stóð.
„Þeim semur rosalega vel og bæði
hafa hárbeitta kímnigáfu," segir
vinur Mel í viðtali við breska æsi-
blaðið The Sun.
Mel lét eiginmanninn,
gógódansarann Jimmy göslara
Gulzar, róa í kringum hátíðarnar
þegar tilraunir til að bjarga hjóna-
bandinu fóru út um þúfur. Þau
Mel okkar B hefur fundið ástina á
nýjan leik í leikaranum Max.
gerðu jú víst lítið annað en að rífast
upp á síðkastið.
Max hefur ekki verið við eina
flölina felldur í kvennamálum, enda
maðurinn fenginn til að leika þann
alræmda kvennabósa Tom Jones í
sjónvarpsmynd BBC. Max skildi við
sjónvarpsstjömuna Melanie Sykes
rétt áður en hjónaband hinnar Mel-
aniunnar, Mel B, fór i vaskinn.
„Ég er æsilegur í bólinu," gortaði
Max um daginn. „Mér fiirnst gaman
að hitta fallegar konur. Ég get ekk-
ert að því gert en ég er mjög kyn-
ferðislega þenkjandi."
Hvort piltur notfærði sér við-
kvæmt ástand söngkonunnar skal
ósagt látið. Hitt er þó víst að Mel B
fékk að gráta upp við öxlina á hon-
um þegar hún var að skilja við gösl-
arann. Og trúði honum fyrir öllum
leyndarmálunum sínum. Og svo
blossaði ástin allt í einu upp.
Bono tekur ekki
ofan sólgleraugnn
þótt rigni í Berlín
írski poppsöngvarinn Bono tók
ekki ofan sólgleraugun í Berlín um
daginn þótt þar
rigndi eldi og
brennisteini. Eng-
in þörf á því þar
sem hann var bað-
aður sviðsljósinu
vegna frumsýning-
ar nýjustu myndar
Wims Wenders,
Millj óndollarahót-
elsins. Myndin er
nefnilega byggð á hugmynd Bonos.
„Það er ótrúlegt að fá að upplifa
afrakstur hugmyndar sem ég byrj-
aði að leika mér með fyrir mörgum
árum. Og það er dálítið sérstakt að
koma aftur hingað til Berlínar,"
sagði popparinn Bono, syngjandi
sæll og glaður.
Julianne eltir
hann Hannibal
Allar líkur eru á að hin gullfal
lega Julianne Moore taki að sér
að eltast við mannætuna og
skepnuna Hannibal Lecter í fram-
haldinu af löbunum sem þagna.
Sem kunnugt er neitaði Jodie
Foster að leika FBI skvisuna Cl-
arice Starling, eins og hún gerði í
upprunalegu myndinni. Jodie
þótti handritið víst dálítið svaka-
legt. Julianne Moore er meðal
annars fræg fyrir leik sinn í
myndinni Endalokum ástarsam-
bands, á móti þeim ágæta leikara
Ralph Fiennes.
Jade segir frá
erfiðri æsku
Jade Jagger, dóttir Mikka Jag-
gers og hinnar nikaragúsku
Biöncu, ber foreldrum sínum ekki
vel söguna i viðtali við tímaritið
Talk. Þar segir stúlkan, sem orðin
er 28 ára gömul, að hún hafi af-
skaplega sjaldan getað leitað til
foreldra sinna og stólað á þá. Þeg-
ar þeir hafi verið heima, sem ekki
kom allt of oft fyrir, hafi þeir
komið fram við dótturina eins og
eitthvert lukkudýr en ekki afkom-
anda sinn. Mick og Bianca voru
sem sé slæmir foreldrar, enda
Mick alltaf á kvennafari.