Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Síða 26
26
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
Afmæli
Sigríður Guðnadóttir
Sigrlður Guðnadóttir kennari,
Reykjabraut 4 Þorlákshöfn, verður
fimmtug þann 13. febrúar nk.
Sigríður er fædd í Reykjavík. Hún
útskrifaðist úr Kennaraskóla íslands
árið 1972 og varð stúdent frá sama
skóla árið 1973. Hún stundaði nám
veturinn 1979-1980 í Kennaraháskól-
anum í Árósum í Danmörku (í
kennslu yngri bama).
Hún hefur sótt ýmis námskeið, hæði
innan lands og utan. Hún stundaði
söngnám við Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar og Tónlistarskóla Ámesinga
og tók þaðan burtfararpróf vorið
1998.
Sigríður hóf kennsluferil sinn við
Bamaskólann á Sauðárkróki 1973 en
kom til starfa við Breiðholtsskóla i
Reykjavík áriö 1974 og starfaði þar
til ársins 1977. Hún kenndi íslensk-
um börnum í Árósum veturinn
1978-1979. Hún vann á skrifstofu ITT
Standard Electric Kirk
A/S Horsens í Danmörku
1977-81. Hún vann á
skrifstofu Útsýnar á Ak-
ureyri 1982. Sigríður
kenndi við Barnaskóla
Akureyrar 1981-1986.
Hún var fulltrúi deUdar-
stjóra hjá Ríkisútvarpinu
á Akureyri 1986-1990.
Hún kenndi við Hvamms-
hlíðarskólann á Akureyri
1990-1995 en hefur verið
kennari við Grunnskól-
ann í Þorlákshöfn frá
1995. Sigríður hefur einnig unnið
sumarstörf af ýmsum toga. Hún hef-
ur sungið í ýmsum kóram og tekið
þátt í uppfærslum hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar á My Fair Lady, Cabaret og
Leðurblökunni.
Sigríður giftist maka sinum, Sigurði
Jónssyni, skipulags- og byggingar-
fuUtrúa hjá Sveitarfélagi
Ölfuss, f. 17.2.1951, þann 8.
mars 1975.
Foreldar Sigurðar voru
Helga Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, húsfreyja og fisk-
verkakona á Sauðárkróki,
f. 10.4.1922, d. 2.2.1985, og
Jón Bjömsson, verkstjóri
á Sauðárkróki, f. 9.1.1916,
d. 13.11. 1975.
Böm Sigríðar og Sigurðar
eru Helga Jóna, f. 15.12.
1975 og Guðný, f. 5.10.
1988, Steingerður Ágústa
Gísladóttir, f. 12.7.1969, gift Hreiðari
Hreiðarssyni, varðstjóra hjá lögregl-
unni á Húsavik en börn þeirra eru
Sigurður Ágúst, f. 3.10. 1991, Ragn-
hUdur, f. 16.8. 1996 og Sigurjón, f.
16.8. 1996.
Systkini Sigríðar eru Þorsteinn
Guðnason, f. 7.8.1952, hagfræðingur,
kvæntur BrynhUdi Ásgeirsdóttur
kennara, búsettur í San Diego, Kali-
fomíu í Bandaríkjunum. Þau eiga
þrjú böm; Þorfmnur Guðnason, f.
4.3. 1959, kvikmyndagerðarmaður
kvæntur Bryndisi Gunnarsdóttur í
Reykjavík, hún á eina dóttur.
Hálfsystur Sigriðar samfeðra eru
Steinunn Guðnadóttir, f. 10.6. 1937,
búsett í Utah, Bandaríkjunum, Gerð-
ur Karítas Guðnadóttir, f. 10.7. 1942,
bankamaður, búsett að Vegghömr-
um í Borgarfirði.
Foreldrar Sigríðar eru Guðni Þórar-
inn Þorfmnsson, f. 8.3. 1916, d. 13.2.
1966, skrifstofumaður, og Steingerð-
ur Þorsteinsdóttir, f. 2.2. 1926, fyrr-
verandi gjaldkeri hjá Mjólkursam-
sölunni, búsett í Reykjavík.
Sigríður og eiginmaður hennar taka
á móti gestum á morgun, laugardag-
inn 12. febrúar, í sal Grunnskólans í
Þorlákshöfn milli kl. 17 og 20.
Sigríður Guðnadóttir.
Kristján Mikkelsen
Kristján Mikkelsen,
bóndi og bókari, Stóm-
Mörk 3, Vestur-Eyja-
fjallahreppi, er fimmtug-
ur í dag.
Kristján fæddist í
Reykjavík en ólst upp á
Selfossi.
Hann lauk verslunar-
prófi frá Samvinnuskól-
anum á Bifröst 1971.
Hann var starfsmaður
Kaupfélags Rangæinga á
árunum 1971-1974 og
var forstöðumaður Lsj.
Bjargar og Verkalýðsfélags Húsa-
víkur 1974-1983. Kristján hefur
sinnt bændastörfum að Stóru-Mörk
frá 1984 og rekið bók-
haldsskrifstofu frá sama
tíma.
Kristján sinnti marg-
háttuðum félagsstörfum
tengdum verkalýðsmál-
um á árunum 1974-1983.
Hann var í stjóm Taflfé-
lags Húsavíkur 1978-1983
og í stjóm Bridgefélags
Húsavíkur á árunum
1979-1982. Hann var for-
maður UMF Baldurs á
Hvolsvelli 1972-1973.
Hann var formaður UMF
Trausta á árunum 1985-1987. Hann
var í stjóm Kaupfélags Rangæinga
1992-1994. Þá hefur Kristján verið í
stjóm Kaupfélags Árnesinga frá
1998. Hann hefur verið skoðunar-
maður Sláturfélags Suðurlands frá
1996 og átt sæti i Hreppsnefnd Vest-
ur-Eyj afj allahrepps frá 1994 og
gegnt starfl varaoddvita frá sama
tíma. Hann hefur einnig átt sæti í
sóknamefnd Stóra Dalskirkju frá
1986. Þá hefur Kristján setið í ýms-
um stjómum á vegum sveitarfélag-
anna.
Kristján hóf sambúð með Guð-
björgu M. Ámadóttur bónda, f. 8.11.
1954, árið 1980.
Foreldrar hennar eru Lilja Ólafs-
dóttir og Ámi Sæmundsson, bænd-
ur í Stóru-Mörk.
Bam þeirra er Lilja Björg, f. 17.9.
1974, kennari, búsett að Seljavöll-
um i Austur-Eyjafjallahreppi. Hún
er í sambúð með Sigurjóni Grétars-
syni. Barn þeirra er Kristjón
Sindri, f. 30.5. 1998.
Systkini Kristjáns eru Valgerður
Anna, f. 18.2. 1946, kennari í Mos-
fellsbæ, og Ása Nanna, f. 21.4.1953,
áfangastjóri á Selfossi.
Foreldrar Kristjáns eru Mangor
Mikkelsen mjólkurfræðingur, f.
11.11. 1918 og Valgerður Jóhanns-
dóttir húsmóðir, f. 7.4. 1918. Þau
eru búsett að Smáratúni 10, Sel-
fossi.
Kristján Mikkelsen verður að
heiman á afmælisdaginn.
Kristján Mikkelsen.
Sæberg Guðlaugsson
Sæberg Guðlaugsson sendibíl-
stjóri, Fljótaseli 36, Reykjavík er
sextugur í dag.
Sæberg fæddist og ólst upp á
Hellissandi og gekk í bamaskóla
Hellissands. Eftir gmnnskólann
gekk Sæberg í Stýrimannaskólann í
Reykjavík veturinn 1963-1964. Sæ-
berg vann sem sjómaður á árunum
1955-1984 en sneri sér þá að öðmm
störfum. Hann var kaupmaður á ár-
unum 1984-1992 og eftir það
sendibílstjóri.
Sæberg giftist Matthildi
Kristensdóttur sendibílstjóra, f,
4.8.1943, þann 22.4. 1965.
Foreldrar hennar eru Sólveig
Hjálmarsdóttir, húsmóðir í Hafnar-
firði og Kristens Sigurðsson sem
nú er látinn.
Böm Sæbergs og Matthildar eru
Viðar Sæbergsson, f. 3.10. 1963;
Hjálmar Sæbergsson, f. 18.8. 1965,
giftur Heiðu Rúnarsdóttur og eiga
þau tvö böm; Sólveig Sæbergsdótt-
ir, f.13.7. 1967, gift Hrólfi Sumar-
liðasyni og eiga þau tvö böm;
Kristín Sæbergsdóttir, f. 13.7. 1968,
gift Amold Bjömssyni; Amar Sæ-
bergsson, f. 8.6.1969, giftur Yrsu E.
Gylfadóttur og eiga
þau tvö böm; og Sús-
anna Sæbergsdóttir, f.
5.2.1976, gift Samúel J.
Samúelssyni og eiga
þau eitt bam.
Systkini Sæbergs
era Þórir Guðlaugsson
sem er látinn, Gunnar
Guðlaugsson, Albert
Guðlaugsson, Kristinn
Guðlaugsson, Guðrún
Guðlaugsdóttir, Lauf-
ey Guðlaugsdóttir og
Líneik Guðlaugsdóttir.
Sæberg Guðlaugsson.
Foreldrar Sæbergs eru
Guðlaugur Alexanders-
son verkamaður, f. 9.11.
1894, d. 22.1. 1986 og
Súsanna Ketilsdóttir
húsmóðir, f. 30.5. 1900,
d. 13.1.1988 en þau voru
búsett á Hellissandi
Sæberg tekur á móti
ættingjum sínum og
vinum á morgun, laug-
ardaginn 12. febrúar, á
heimili sínu að Fljóta-
seli 36, Reykjavík, eftir
kl. 19.
á við baeði um menn og dýr.
«1
cv ,Pínlun
UMFERÐAR >,
RÁÐ
Tll hamingju með afmælið 11. febrúar
85 ára
Gerður Sigurðardóttir, Sigtúni, Sauðárkróki.
80 ára
Halla Einarsdóttir, Eikjuvogi 24, Reykjavík.
75 ára
Jóhanna Gíslína Vigfúsdóttir, Sólvangi, Dalvík.
70 ára
Friðjón Sigurjónsson, Frostafold 1, Reykjavík. Hulda Haraldsdóttir, Sigtúnum, Akureyri.
60 ára
Auður Sveinsdóttir, Álftamýri 32, Reykjavík. Gerður Gunnarsdóttir, Sléttahrauni 32, Hafnarfirði. Guðbjartur I. Gunnarsson, Hátúni 3, Bessastaðahreppi. Halldór Valgeirsson, Hjallabraut 4, Hafnarfirði. Ólöf Finnbogadóttir, Ásbraut 17, Kópavogi. Stefán B. Hjaltested, Huldulandi 5, Reykjavík.
50 ára
Guðlaug Björg Bjömsdóttir, Trönuhólum 6, Reykjavík. Guðrún Þóra Guðmaimsdóttir, Kleppsvegi 54, Reykjavík. Hanný María Haraldsdóttir, Undirhlíð 6, Selfossi. Jón Eyfjörð Steingrímsson, Grímsnesi, Dalvík. Kolbrún B. Viggósdóttir, Brekkubyggð 41, Garðabæ. Sigríður M. Jóhannsdóttir, Brekkusíðu 7, Akureyri.
40 ára
Baldtu- Þórir Jónasson, Hlíðarási 3, Mosfellsbæ. Díana Dröfn Ólafsdóttir, Fjallalind 104, Kópavogi. Elínborg Guðmundsdóttir, Hringbraut 5, Hafnarfirði. Kristbjörg Olsen, Reynimel 52, Reykjavík. Kristrún E. Helgadóttir, Fjarðarási 24, Reykjavík. Ómar Sigurðsson, Grenigmnd 38, Akranesi. Sigurður Kristinn Kolbeinsson, Sunnuvegi 1, Reykjavík. Valdís Valgeirsdóttir, Faxabraut 24, Keflavik.
Baldur
Bjartmarsson
Baldur Bjartmarsson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnusalats ehf.,
Arahólum 2, Reykjavík, verður sex-
tugur á morgun, 12. febrúar. Hann
og eiginkona hans, Kristín Krist-
jánsdóttir, taka á móti vinum og
ættingjum að Dugguvogi 12, Reykja-
vík í dag á milli 18 og 21.