Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2000, Qupperneq 29
XXV ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
37
* i. -r.
Georg Guöni sýnir málverk sín í
Galleríi Sævars Karls.
Landslags-
stemmur
Á laugardaginn var opnaði Ge-
org Guðni málverkasýningu í
Galleríi Sævars Karls. Georg
Guðni hefur lengi verið í sérflokki
meðal ungra íslenskra listmálara
fyrir sjálfstæða útleggingu sína á
íslensku landslagsheföinni. Um
miðjan níunda áratuginn gekk
hann fram fyrir skjöldu með allt
að því geistlega túlkun á landslagi
þar sem einstök fjöll og náttúru-
fyrirbæri voru einfölduð uns eftir
stóð upphaf eftirmynda þeirra.
Seinna fór Georg að velta fyrir sér
rómantískum innileik frumherj-
anna í íslensku landslagsmálverki
og hefur síðan málað miklar
landslagsstemmur, uppfullar af
draumkenndu andrúmslofti.
Sýningar
Georg Guðni nam við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1980
til ‘85 og við Jan Van Eick Aka-
demie, Maestricht í Hollandi, 1985
til ‘87. 1988 hlaut Georg Guðni
Menningarverðlaun DV. Hann
hefur haldið fjölda einkasýninga
og tekið þátt í samsýningum hér
heima á íslandi og erlendis. Verk
eftir listamanninn má finna á
helstu söfnum á íslandi og annars
staðar á Norðurlöndum. Verkin á
sýningunni eru ný og hafa ekki
verið sýnd áður.
Nám barna sem
eiga í náms-
örðugleikum
Á morgun, kl. 20, verður fyrirlest-
ur á vegum Félags aðstandenda
bama með sérþarfir í Setbergsskóla
i Hafnarfirði. Fyrirlesari verður
Ragna Freyja Karlsdóttir sérkenn-
ari og mun hún fjalla um nám
barna sem eiga í námsörðugleikum
og um samstarf kennara og foreldra.
Mun hún leitast við að gefa góð ráð
og kynna verkefni sem hún hefur
Samkomur
unnið að þar sem markmiðið er að
auka félagslega fæmi bama og ung-
linga við óskipulagðar aðstæður í
daglegu lifi þeirra. Allir eru vel-
komnir og er aðgangur ókeypis.
Frelsið
Samkoma verður í Frelsinu,
kristilegri félagsmiðstöð, kl. 20 í
kvöld og annað kvöld. Fyrirlesarar
eru pastor Paul Tan frá Malasíu og
Pastor Chin Siong Ting frá
Singapúr.
Barn dagsins
í dálkinum Bam dagsins eru
birtar myndir af ungbörnum.
Þeim sem hafa hug á að fá birta
mynd er bent á að senda hana í
pósti eða koma með myndina,
ásamt upplýsingum, á ritstjóm
DV, Þverholti 11, merlcta Barn
dagsins. Ekki er síðra ef barnið á
myndinni er i fangi systur, bróður
eða foreldra. Myndir eru endur-
sendar ef óskað er.
Möguleikhúsið:
Langafi prakkari
Möguleikhúsið hefur sem fyrr
verið iðið að skemmta börnunum í
skammdeginu og að undanfórnu
hefur leikhúsið sýnt Langafa prakk-
ara, sem er leikgerð Péturs Eggerz
af sögunum Langafi prakkari og
Langafi drullumallar eftir Sigrúnu
Eldjárn og tekur útlit
persónanna í leikritinu
mið af myndskreyting-
um bókanna. í leikgerð-
inni er ekki um beina framvindu að
ræða heldur er brugðið upp mynd-
um af skemmtilegum
atvikum í lífi Önnu
litlu þar sem langafi
kemur einnig við sögu.
í upphafi er Anna í hlutverki sögu-
manns sem talar beint til áhorfenda
og myndar sá inngangur nokkurs
konar ramma um hina eiginlegu at-
burðarás. Langafinn sem Anna er
búin að kynna fyrir áhorfendum
líkamnast síðan á sviðinu og við
tekur röð atriða þar sem skötuhjúin
bregða á leik. Við fáum að fylgjast
með þeim þegar þau búa til dýrind-
is drullukökur og setja upp
langömmugildru, svo dæmi séu tek-
in, og svo má ekki gleyma blindra-
hundinum Jakobi sem geysist inn
um miðbik leiksins.
Leikarar eru Bjami Ingvarsson
og Hrefna Hallgrímsdóttir, ung leik-
kona sem er nýlega komin heim eft-
ir leiknám í Bandaríkjunum. Leik-
stjóri er Pétur Eggerz. Tónlist
samdi Vilhjálmur Guðjónsson. Bún-
ingar og brúðugerð var í höndum
Katrínar Þorvaldsdótur. Leikmynd
gerði leikhópurinn. Næsta sýning
er í dag en síðan er sýning á sunnu-
daginn.
Bjarni Ingvarsson og Hrefna Hallgrímsdóttir eru í hlutverkunum í Langafi
prakkari.
Skemmtanir
■2tS ■6°0 Á
»
101 -7^
* 0°/3j| '2°3
* * * * * ^ * * k \ -1’3 \
Hvassviðri eða stormur
Viðvörun: Búist er við stormi
suðvestan- og vestanlands í kvöld.
Sunnan og suðvestan 5-8 m/s. É1
suðvestan- og vestanlans í fyrstu en
léttskýjað norðan- og austanlands.
Veðrið í dag
Frost 0 til 5 stig. Gengur í suðaust-
an hvassviðri eða storm (18-23 m/s)
með slyddu eða snjókomu sunnan-
og vestanlands seint í kvöld en all-
hvöss suðaustanátt og fer að snjóa
norðaustan til í nótt. Höfuðborgar-
svæðið: Sunnan og suðvestan 5-8
m/s og él í fyrstu en síðan úrkomu-
lítið. Hiti i kringum frostmark.
Gengur í hvassa suðaustanátt með
snjókomu í kvöld en hægari vindur
og rigning eða slydda í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 18.22
Sólarupprás á morgun: 08.58
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.38
Árdegisflóð á morgun: 08.54
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri hálfskýjað -1
Bergstaðir skýjað -2
Bolungarvik íéttskýjaó -4
Egilsstaðir -4
Kirkjubæjarkl. léttskýjað -5
Keflavíkurflv. úrkoma í grennd 1
Raufarhöfn heiðskírt -7
Reykjavík snjóél á síó. klst. -1
Stórhöfói snjóél á síó. klst. 0
Bergen súld á síó. klst. 1
Helsinki snjókoma -8
Kaupmhöfn skýjaö -2
Ósló snjókoma -3
Stokkhólmur snjókoma -10
Þórshöfn skýjað 3
Þrándheimur snjókoma -3
Algarve þokumóöa 11
Amsterdam lágþokublettir 1
Barcelona þokumóða 8
Berlín skýjaö -3
Chicago skýjaö 6
Dublin rigning 5
Halifax heiðskírt -11
Frankfurt snjók. á síö. klst. 1
Hamborg snjók. á síó. klst. 1
Jan Mayen alskýjað -1
London mistur 0
Lúxemborg snjók. á síö. klst. 0
Mallorca heiðskírt 3
Montreal alskýjað -6
Narssarssuaq -17
New York léttskýjaö 3
Orlando hálfskýjaö 12
Paris skýjaö 4
Vín léttskýjað -4
Washington alskýjaö -1
Winnipeg léttskýjaö -1
Lilja
Myndarlega stúlkan á
myndinni, sem fengið hef-
ur nafnið Lilja Mist,
fæddist á fæðingardeild
Barn dagsins
Mist
Landspítalans 31. desem-
ber síðastliðinn. Við fæð-
ingu var hún 3050 grömm
og 49 sentímetrar. For-
eldrar hennar eru Sigrún
E. Davíðsdóttir og Sigur-
jón Ámason og er hún
þeirra fyrsta barn.
Þungfært á
Melrakkasléttu
í morgun var verið að hreinsa vegi á Vesturlandi
og með suðurströndinni og átti því að vera lokið
um hádegisbilið. Á Norðausturlandi er þungfært
Færð á vegum
fyrir Melrakkasléttu, milli Kópaskers og Þórshafn-
ar, en ófært um Brekknaheiði. Ófært er um Möðru-
dalsöræfi og þæfingur á Vopnafjarðarheiði.
Skafrenningur
0 Steinkast
0 Hálka
Q} Ófært
m Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
□ Þungfært © Fært fjallabílum
Ástand vega
Russell Crowe leikur uppljóstrar-
ann Jeffrey Wigand.
Uppljóstrarinn
Laugarásbíó sýnir The Insider,
kvikmynd sem hefur fengið mjög
góðar viðtökur alls staðar þar sem
hún hefur verið sýnd og hefur
núna fengið sjö tilnefningar til ósk-
arsverðlauna. í myndinni segir frá
dramatískum formála að einu
stærsta réttarmáli í Bandaríkjun-
um, þegar stóru sígarettufyrirtæk-
in töpuðu sínu fyrsta máli. Sá sem
kom höggi á þau var vísindamaður
að nafni Jeffrey Wigand og er það
ástralski leikarinn Russell Crowe
sem leikur hann og hefur hann
fengið óskarstilnefn-
ingu. Helsti mótleik- '/////////
Kvikmyndir
ari hans er A1 Pacino
sem leikur fréttastjóra
í hinum þekkta fréttaskýringa-
þætti 60 minutes. Einnig kemur
mikið við sögu sá þekkti frétta-
maður Mike Wallace sem
Christopher Plummer leikur. The
Insider er kvikmynd sem óhætt er
að mæla með.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Three Kings
Saga-bíó: Bringing out the Dead
Bíóborgin: Breakfast of Champions
Háskólabíó: Drop Dead Gorgeous
Háskólabíó: American Beauty
Kringlubíó: Toy Story 2
Laugarásbíó: The Insider
Regnboginn: The Talented Mr.
Ripley
Stjörnubíó: Bone Collector
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
e
10 11
12 13
14 II
17 18
19
Lárétt: 1 framlag, 8 krota, 9 dvelj-
ast, 10 fljót, 11 varðandi, 12 boð, 14
svelgnum, 17 flýtir, 18 harmur, 19
kroppað.
Lóðrétt: 1 peningurinn, 2 græn-
meti, 3 torveldir, 4 gort, 5 tréð, 6
ánægja, 7 umgerðin, 13 köttur, 15
planta, 16 nudd.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 form, 5 áma, 8 áleit, 9 ið,
10 agi, 11 strá, 13 mastur, 15 bónum,
18 otar, 20 lek, 22 trúar.
Lóðrétt: 1 fá, 2 Olga, 3 reisn, 4 mist-
ur, 5 átt, 6 mirra, 7 að, 10 amboð, 12
ásaka, 14 umla, 16 ótt, 19 ar, 21 er.
JC
t