Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 Fréttir Eigandi Ánastaöa í Hraunhreppi á Mýrum: Kærður fyrir van- fóðrun hrossa - rannsóknar óskaö á fóðurgæslu og eftirliti Eigandi jaröarinnar Ánastaöa i Hraunhreppi á Mýrum hefur verið kærður til sýslumannsembættisins í Borgamesi fyrir vanhirðu á hross- um sem hann hafði í umsjá sinni. Hann er kærður til refsingar fyrir brot á dýraverndunarlögum. Þá er jafnframt óskað eftir rannsókn á fóðurgæslu og eftirliti með hrossum á bænum. Eins og komið hefur fram í frétt- um reyndist um vanfóðrun á hross- um á Ánastöðum að ræða þegar héraðsdýralæknir, fóðurgæslumað- ur og fleiri gripu inn í. Eigandi jarð- arinnar hafði verið meö allmörg hross i hagagöngu, auk sinna eigin. Hagagönguhrossin hafa öll verið tekin af jörðinni. Þó mun a.m.k. eitt hross enn ófundið þrátt fyrir mikla leit. Hrossin á Ánastöðum eru nú fóðruð undir eftirliti. Hesteigandi sem var með þrjú hross í hagagöngu á Ánastöðum i haust og byrjun vetrar lagði fram ofangreinda kæru. Þegar þau komu þaðan voru tvö þeirra orðin mjög Ola aflögð. Aflífa varð annað hross- ið, sex vetra fola, af þeim sökum. Að sögn Stefáns Skarphéðinsson- ar, sýslumanns í Borgarnesi, er rannsókn hafin á málinu. Hann kvaðst ekki geta sagt til um hvenær henni lyki. Það þyrfti að kalla marga aðila fyrir sem ekki væru all- ir á sama stað. Málið þyrfti því að fara á milli embætta, a.m.k. í Borg- amesi og Reykjavík. „Eflitlitsaöilamir hafa þá laga- skyldu að fara tvær skoðunarferðir á ári, að hausti og vori. Þegar þeir hafa skoðað þetta í haust þá hefur verið um að ræða birgðakönnun á fóðri og skepnutalningu. Síðan skoðuðu þeir þetta eftir áramót. Það eru því ef til vill ekki stórir mögu- leikar á að hengja neinn.“ -JSS Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra átti í gær fund með Jesus Posada Moreno, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og matvælaráöherra Spánar. Ræddu þeir m.a. fiskveiðistjórnun og samvinnu landanna í sjávarútvegi. DV-mynd PÖK Glerártorg á Akureyri: Styttist í útboð á framkvæmdum áskrift - borgar sig Hljómflutningstæki til áskrifenda DV: Mjög góðar viðtökur „Ef það heldur áfram sem horfir fer hver að verða síðastur að nýta sér tilboðið,“ segir Hallgrimur Hall- dórsson, verslunarstjóri i Japis, en áskrifendum DV býðst nú að kaupa Panasonic hljómflutningstæki frá Japis á tilboðsverði. Hallgrímur sagði tilboöiö hafa fengið mjög góðar viðtökur en hljómflutningstækin bjóðast nú á 29.900 krónur sem er 10.000 króna afsláttur af uppsettu verði. Tilboðið stendur til 28. febrúar. -hól Stykkishólmur: Skatttekjur hækka um 10% Fjárhagsáætlun Stykkishólms- bæjar árið 2000 var samþykkt í bæjarstjóm í síðustu viku. Gert er ráð fyrir að skatttekjur verði 239 milljónir króna, hækki um 10% á milli ára. Almenn rekstrargjöld, aö frádregnum tekjum mála- flokka, em áætluð 198 milljónir. Áætlunin gerir ráð fyrir að út- gjöld verði um 83% af skatttekj- um. Stefnt er að lækkun skulda eftir miklar framkvæmdir á liðn- um árum. Fræðslumál eru stærsti málaflokkurinn. Til hans fara 40% af skattekjum. Þá koma æskulýðs- og íþróttamál með 27 milljónir og félagsþjónusta með 24 mifljónir. I gjaldfærða íjárfest- ingu fara 25 m.kr. Stærstu liðir eru uppbygging og skipulagning nýs íbúðarhverfis og gatnagerð. I árslok 1998 voru skuldir um 150.000 á hvem íbúa. -DVÓ DV, Akureyri: „Það er ýmislegt að gerast, það er verið að vinna að hönnun, búið er að auglýsa deiliskipulag, unnið er að flutningi Skinnaiðnaðar úr húsinu og það styttist í útboð," segir Jakob Bjömsson, en hann hefur verið ráð- inn talsmaður þeirra sem standa að framkvæmdunum við Glerártorg, nýju verslunarmiðstöðina sem tekur til starfa á Akureyri í haust. Nýja verslunarmiöstöðin verður hátt í 10 þúsund fermetrar að stærð og sú langstærsta utan höfuðbogar- svæðisins. Reiknað er með að þar verði 20-30 verslanir, fyrir utan stærstu verslanir miðstöðvarinnar sem verða Rúm- fatalagerinn og KEA-Nettó. Að sögn Jakobs verður ELKO einnig þama með verslun og Sport- ver. Ákvörðun um aðrar versl- anir og þjónustu hefur enn ekki verið tekin en mikil ásókn mun i verslunarrými í hús- inu, bæði frá heimamönnum og að- ilum utan bæjarins. Jakob segir að það verk sem fram undan er verði boðið út í þrennu lagi. í fyrsta lagi verður niðurrif og gröftur boðið út mjög fljótlega, end- urgerð stóra hússins og smíði við- bygginga verður boðin út í april og í júní á að bjóða út lóðarfrágang og gerð bílastæða. Allar verslanir í húsinu eiga að vera teknar til starfa 1. nóvember. Það hefur heyrst gagnrýnt að ekki verði nema um 300 bílastæði við verslunarmiðstöðina sem þykir of lítið. Jakob segir að samkvæmt ákveðnum reglum sem í gildi eru þyrftu stæðin að vera fleiri og hann sagðist ekki gera ráð fyrir öðru en gengið yrði í að leysa það mál. -gk Yfirvofandi niöurskurður: Rangt að skera niður á geðdeildum - segir Pétur Hauksson, formaður Geðhjálpar „Þessi tillaga um niðurskurð á geðdeildunum hefur greinilega ekki verið hugsuð til enda þar sem ekki hefur verið gengið frá öörum úr- ræðum. Jóhannes Gunnarsson lækningaforstjóri hefur fullyrt að geðdeildin skipi ekki jafnmikilvæg- an sess og aðrar stoðdeildir innan spitalanna og því liggi beinast við að skera niður þar. Ég tel þetta vera rangt en það sést á þeim fjölda sjúk- linga sem þangað leita og þá sér í lagi í framhaldi af átaki landlæknis- embættisins um þung- lyndi," sagði Pétur Hauks- son, formaður Geðhjálpar. „Umræðan hefur þó haft einhver áhrif þar sem yfir- vofandi niðurskurður er kominn niður í 50 milljónir úr 100 milljónum eins og fram kom á utandagsum- ræðu Alþingis um daginn. Fimmtiu mifljóna niður- skurður á geðdeild Sjúkra- Pétur Hauksson, formaður Geö- hjálpar. urskurður og skýtur skökku við þá umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu um geðsjúka að undan- fómu,“ sagði Pétur enn fremur en stjórnendur Sjúkrahúss Reykjavíkur lögðu til 100 milljóna króna niðurskurð af starfsemi geð- deilda til að spoma við fjár- hagsvanda spítalanna. „Frekar heföi átt að auka húss Reykjavíkur er þó mikill nið- aðstoðina í stað þess að minnka hana. Mun fleiri leita sér aðstoöar nú en áður. Þetta er fólk sem er að átta sig á að vanlíðan þess stafar af sjúkdómi sem hægt er að gera eitt- hvað við,“ sagði Pétur „og auk þess er þetta hápólitískt mál þar sem geðsjúklingar eru látnir gjalda fyrir þann flárhagsvanda sem orðinn er en við fognum því að heilbrigðisráö- herra hefur látið þau orð falla að þjónusta við geðsjúka verði ekki skert og við munum fylgjast með því að svo verði.“ -hól & Hvert fer Gunnar? Áfrýjunamefnd Þjóðkirkjunnar hefur fallist á kröfu ýmissa aðila um að sr. Gunnari Bjömssyni, sóknarpresti í Holti, verði veitt áminning og að hann verði fluttur úr emb- ætti sóknarprests í Holti í annað starf á vegum Þjóðkirkj- unnar frá og með 3. mars. Það hefúr löngum gustað um Gimnar en margir minnast mikillar deilu í kringum hann meðan hann var prestur í Fríkirkjimni í Reykjavík. Nú spyrja ófáir hvað verði um Gunnar, hvað starf verði fundið handa honum og eins hver vilji taka við honum eftir lætin, bæði í Reykjavík forðum og nú í Önundarflrði. í þessu sambandi er vert að minnast að Gunnar þykir frambærilegur sellóleikari og Ágústa, eiginkona hans, söngkona og kennari. Því kæmi ekki á óvart ef þau hösluðu sér völl á þvi sviði... Gleðibanki Góður árangur Fjárfestingar- banka atvinnulífsins er gleðiefiii út af fyrir sig og enn- fremur sú ákvörðun forráðamanna bankans að verð- launa starfsmenn fyrir árangurinn með bónus sem nemur að meðal- tali um 2 milljón- um króna á mann. Verður það að teljast góð búbót í samanburði við bónus annarra banka. Bjarni Ár- mannsson forstjóri sagðist í fyrra- kvöld vona að þessi glaðningur myndi hvetja menn til dáða og verða til þess að þeir „krepptu hnef- ana í buxnavösunum" ef á þyrfti að halda. Víst er að fátt hefúr verið meira rætt á kafflstofum lands- manna í gær en þessi glaðningur FBA-starfsmanna. Og þar sem 'þeir hafa væntanlega brugðist glaðir við væri fráleitt annað en kalla FBA Gleðibankann... Berja á Baugi Fjölmiðlar hafa greint frá því að í burðarliðnum sé nýtt fyrirtæki, Is- lenska netfélagið, sem hyggist starf- rækja tvær netkringlur, hér heima á klakanum og erlendis. Það væri í sjálfú sér ekki í frá- sögur færandi nema hvað framkvæmda- stjórinn er Stefán Hrafn Hagalin, sem kemur úr starfl markaðsstjóra Op- inna kerfa. Helsti bakhjarlinn er Hof eða flárfestinga- fyrirtæki Hofs, 3p flárhús. í því sambandi minnast menn þess að Hof kúplaði sig út úr hefðbund- inni smásöluverslun með sölunni á Hagkaupi og meirihlutanum í Bón- usi. Hlakka ófáir því til að fylgjast með gamla Hagkaups-genginu hasla sér vöfl á nýjan leik í þessum bransa með því að beija á Baugi og fleirum á Netinu... Á tali hjá Tóta Árangur Íslandssíma hefur verið það góður upp á síðkastið að eftir hefur verið tekið. Þannig hefur símafyrirtækið unga yfirtekið flar- skiptarekstur hverr- ar stofnunarinnar og fyrirtækisins á fætur annarri á seinustu vikum og mánuðum. Allir koma kúnnamir frá Landssíman- um og hefúr það að vonum valdið húsbændum þar á bæ áhyggjum.'Sagan segir að Þórarinn og hans nánustu samstarfsmenn hringi nú nær látlaust i stóra við- skiptavini í von um að tryggja sér áframhaldandi trúnað þeirra og við- skipti... Umsjón: Haukur Lárus Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.