Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 28
32 &ikmyndir FMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 I,' ^ Frumsýningar um helgina: Ævintýri í fortíð og gullverðlaunamynd framtíð og frá Berlín Magnolia Paul Thomas Anderson skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann leikstýrði Boogie Nights, þar sem hann tók föstum tökum á klám- myndaiðnaðinum í Los Angeles. Með þeirri mynd sýndi Anderson að vænta má mikils af honum og með Magnolia þykir hann hafa staðið undir væntingum. Myndin gerist á einum degi í San Francisco Valley þar sem við fylgjumst með deyjandi föður, ungri eiginkonu, húsverði, týndum syni, ástföngnum lögreglu- manni, ungum snillingi, fyrrum ungum snill- ingi, Framtíðarmaðurinn Robin Williams leiöbeinir einum úr fjölskyldunni i Bicen- tennial Man. hvert á annars líf sem leiöir til mik- illa breytinga.. Segja má að enginn leikari sé í aðalhlutverki en margir þekktir leikarar leika í myndinni með stór- stjömuna Tom Cruise í einu hlut- verkanna og hefur hann verið til- nefndur til óskarsverðlauna í auka- hlutverki fyrir leik sinn. Meðal annarra leikara eru Melinda Dillon, Philip Baker Hall, William H. Macy, Philip Seymour Hoffman, Al- fred Molina, Julianne Moore, John C. Reilly Kínverski leikarinn Chow Yun-Fat leikur kónginn í Síam í Anna and the King. Á innfelldu myndinni er Jodie Foster í hlutverki kennslukonunnar. After) hefur sagt að hann hrífist mest af kvikmyndum á borð við Doctor Zhivago, Braveheart og Out of Africa, epískum stórmyndum þar sem sagðar em stórar og dramatísk- ar sögur. Með Anna and the King hefur hann fengið tækifæri til að gera eina slíka mynd, sögulega stór- mynd eftir eftir klassískri bók sem meðal annars Rogers and Hammer- stein gerðu hinn fræga söngleik sinn The King and I eftir. í Anna and the King segir frá kennslukonunni Önnu Leonowens, ungri ekkju sem ferðast þúsundir kílómetra ásamt syni sín- um til landsins Síams sem vestrænar þjóðir þekkja aðeins af af- spurn. Hún hefur verið ráðin af kon- ungi landsins til að kenna fimmtíu og átta börnum hans. Hún veit ekkert annað um kónginn en að þegnar hans líta á hann sem guð. Anna, sem er alin upp í bresku samfé lagi, telur kónginn siðlausan og kemst fljótt að því að kóngur- inn hef- ur sama álit á henni hún á hon- um. Með tím- anum læra þau að treysta hvoru öðru og finna hvort í fari annars ýmis- legt sem þau er Jodie Foster sem leikur kennslukonuna og kínverski hasar- myndaleikarinn Chow Yun-Fat. Anna and the King verður frumsýnd á morgun í Háskóla- bíói, Bíóhöllinni og Borgarbíói á Akureyri. Framtíðarmað- Julianna Moore í hlutverki sínu i Magnolia. A inn- felldu myndinni eru Tom Cruise og Jason Robb- ards. urinn í Bicentennial Man leiða þeir saman hesta sina á ný Chris Col- umbus og Robin Williams, en þeir gerðu saman hina skemmtilegu og vinsælu Mrs. Doubtfire. Um er að ræða gamanmynd sem gerist í nán- ustu framtíð. Á fyrsta áratug þessa árþúsunds hefur þróunin í hugbúnaði tekið risastökk. Allt er gert til að einfalda dagleg störf fólks. Húsverkin heyra sögunni til því þau eru nú í höndum vélmenna. Richard Martin (Sam Neill) kaupir gjöf handa fjölskyldu sinni, glænýtt módel af NDR-114 vél- menni. Framleiðslunafn vélmennis- ins er Andrew (Robin Williams). Fyrr en varir gerir Martin-fjölskyld- an sér grein fyrir að hér er enginn venjulegur róbót á ferðinni því með timanum fer Andrew að þróa með sér tilfmningar, smitandi sköpunar- gáfu og gervigreind með meiru. Börnin á heimilinu, Grace og Am- anda, taka ekkert of vel á móti vél- menninu Andrew og ekki líður á löngu þar til þær nýta sér hlýðni- skyldu þess. Þegar Grace biður hann að stökkva fram af gluggasyllu gerir hann það. Heimilisfaðirinn fær fregnir af þessu athæfi og segir við dætur sínar tvær að þótt Andrew sé tæknilega hlutur í þeirra einkaeign skuli samt koma fram við hann eins og manneskju. Árin líða og með tímanum gerir Andrew sér grein fyrir að hann er ódauðlegur og er ekki alls kostar sáttur við það. Bicentennial Man er frumsýnd á morgun í Stjörnubíói og Sam-bíóun- um. -HK Þrjár nýjar bandarískar kvik- myndir verða frumsýndar um helg- ina, Bicentennial Man, framtíðar- mynd um róbót sem vill verða mannlegur, Anna and The King, rómantísk örlagasaga um enska kennslukonu sem fór til Síams á nítjándu öld og Magnolia sem um helgina var valin besta kvikmyndin á Kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hún hefur einnig fengið nokkrar óskarstilnefningar, meðal annars er Tom Cruise tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki. getraunaþáttastjómanda og erfiðri dóttur. Allt þetta ólíka fólk er kem- ur fyrir í einni sögu sem hefur margar fléttur. í gengum tilviljanir og óvænt atvik hafa þau öll áhrif og Jason Robards. Magnolia verður frumsýnd í Laugarásbíói á morgun. Anna og kóngurinn Leikstjórinn Andy Tennant (Ever Regnboginn -The Talented Mr. Ripley Kropið við altari hálfguða +++ Hér er okkur boðið að finna til samkenndar með nær algerlega siðblindum morð- ingja sem á yflrborðinu er hinn ljúfasti piltur, hlédrægur, vingjarn- legur og umhyggjusamur. Að það skuli ekki vera ýkja erfitt er ekki bara frábærum leik Matt Damon að þakka heldur og þeim lífsstil sem hann fær nasasjón af og sýgur sig fastan við með öllum tiltækum ráð- um. Maður hneigist gjarnan til að nota það sem maður hefur og Ripley er kameljón og sjónhverfingamaður >• af guðs náð. Þetta er vissulega ekki jafn mikið örlagadrama og síðasta verk Minghella, óskarsverðlauna- myndin The English Patient, en engu að síður afskaplega glæsilegt stykki og svipar til hinna róman- tísku stórstjörnumynda sem Hollywood sendi frá sér í gamla daga (allir flottir til fara, fallegir og *, glæsilegir, exótískir staðir, ríki- dæmi og lífsins lystisemdir). Sú sið- blinda og þrá eftir samsömun sem drífur aðalpersónuna áfram minnir auk þess á hinar dökku gæðamynd- ir Bertolucci og Antonioni, The Conformist og The Passenger, þar sem leitin að sjálfsmynd bar aðal- persónurnar út yfir brúnina. Ripley er kannski ekki í sömu úrvalsdeildinni sem saga, en fær ekki ósvipaða meðhöndl- un. Fyrir misskilning telur ríkur skipa- kóngur að Ripley hafi verið með syni hans í Princeton og biður hann að skreppa til Ítalíu sem snöggvast og fá soninn til að hætta ólifnaði og koma heim. Ripley gripur gæsina af ein- hverri eðlishvöt en fljótlega verður ljóst að hann hefur aðrar hugmyndir en þær að leiða ríkan iðjuleys- ingja frá villu sins vegar. Reyndar eru markmið Ripley honum sjálfum ekkert sérlega ljós en strákurinn er fljótur að hugsa og kann þá list að. snúa aðstæðum sér í hag. Úr verður ískyggileg flétta þar sem allt er lagt undir enda til mikils að vinna. Minghella er svolitið sér á báti í kvikmyndaflóru nútímans, allavega er yfirbragð síðustu mynda hans frekar í ætt við stórmyndir gullald- arára Hoflywood. Slíkum myndum fylgir aðdáunarvert sjálfsöryggi og vandað handbragð, þetta eru stjömusýningar þar sem óbreyttur almenningur fær tækifæri til að krjúpa við altari hálfguða, sannköfl- uð andhverfa við allt sem flokkast undir hvunndag, raunsæi og gróf- komótta áferð. Fyrir þá sem kvarta yfir því að þeir geri ekki lengur myndir eins og í gamla daga kemur þessi eins og himnasending. Leikstjórn og handrit: Anthony Minghella. Kvikmyndataka: John Seale. Tónlist: Gabriel Yared. Aðal- hlutverk: Matt Damon, Gwyneth Paltrow, Jude Law, Cate Blanchett. Asgrímur Sverrisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.