Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
Fréttir__________________
Ólafsfj arðarvegur:
Tvö hross dauð
eftir árekstur
DV, Akureyri:
Ökumaður bifreiðar, sem var
ekið norður Ólafsfjarðarveg á
áttunda tímanum í morgun, gat
ekki gert neitt til að koma í veg
fyrir að lenda i hrossahópi sem
kom suður veginn í myrkrinu og
varð af harður árekstur.
Tvö hrossanna drápust sam-
stundis en ekki var fullkomlega
vitað um ástand allra hinna eða
hvaðan þessi lausagönguhross
væru og hversu mörg þau væru.
Ökumaðurinn var einn í bifreið-
inni sem lenti i hrossahópnum,
hann slapp án meiðsla, en bif-
reið hans var mjög mikið
skemmd. -gk
Svangir smáfuglar:
Gefum fuglunum
Nú er hart í búi hjá smáfuglunum
og nauðsynlegt að gefa þeim á gadd-
inn. Lesandi DV benti á að gott væri
að hræra bráðinni feiti saman við
hvers konar mjöl eða fræ. Þetta
verður grófkomótt og auðvelt að
dreifa þvi. Vel getur verið að sumir
eigi gamalt mjöl í pokahominu og
gamla feiti og er þá tilvalið að gefa
þeim það. Þá selja flestar matvöru-
verslanir fuglafóður. Vert er þó aö
hafa í huga að gefa þeim ekki hafra-
grjón nema þau séu soðin. -hól
Sveit Svíþjóðar hafði fádæma yfir-
burði í sveitakeppni Bridgehátíðar
og náði öruggum sigri.
Sveitakeppni
Bridgehátíðar
Flugleiða
Sveitakeppni Bridgehátiðar lauk
með öruggum sigri sveitar Svía sem
voru með 23 stiga forystu á sveitina
í öðru sæti þegar keppninni lauk.
Spilaðar voru 10 umferðir með 10
spila leikjum sunnudaginn og
mánudaginn 20.-21. febrúar og var
sveit Svíþjóðar í forystu nánast frá
upphafi til enda. Skor sveitarinnar
var sérlega glæsilegt og var að með-
altali 20,9 stig i leik. Sveit Svía var
skipuð landsliðsspilurunum
Tommy Gullberg, Lars Anderson,
Peter Fredin og Magnus Lindqvist.
Að venju var mikil þátttaka í sveita-
keppninni og voru 79 sveitir skráð-
ar til leiks. Lokastaða efstu sveita
varð þannig:
1. Svíþjóð 209
2. Þrír Frakkar 186
3. George Mittelman 181
4. Bóhem 177
5. Dillon bar 176
6. Kf. Borgfírðinga 174
7. Samvinnuf./Landsýn 173
8. Jón Sigurbjömsson 172
-ÍS
Grundarfj öröur:
Fá brennivínið
árið 2001
DV, Grundarfirði:
Grundfirðingar hafa, eins og
önnur sveitarfélög, þurft að bíða
lengi eftir því að vínbúð yrði opnuð
í kaupstaðnum. Hreppsnefnd Eyrar-
sveitar vonaðist til þess að hún yrði
opnuð á þessu ári en af því varð
ekki. Þess í stað urðu Dalamenn á
undan. Á síðasta fundi sveitar-
stjómar var tekið fyrir bréf frá for-
stjóra ÁTVR. Þar er staðfest að
stjóm ÁTVR hafl gert tillögu til fjár-
málaráðherra um að opnuð verði
vínbúð í Grundarflrði á árinu 2001.
-DVÓ
x>v
Hrun rækjunnar kemur
verst við Norðlendinga
DV, Akureyri:
Norðlenskar útgerðir hafa haft
um þriðjung alls úthafsrækjukvóta í
lögsögunni og um tvo þriðju inn-
fjarðarækjuveiðinnar. Hrunið sem
orðið hefur í rækjuveiðunum hefur
því langmest áhrif á Norðurlandi,
og er talið að útflutningstekjutap
Norðlendinga vegna þess nemi tæp-
lega 3 milljörðum króna. Þetta kem-
ur fram í Útveginum, fréttabréfl
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
Um fimmtíu bátar og skip frá
Norðurlandi hafa stundað þessar
veiðar og rækjuvinnslur hafa verið
starfræktar á tíu þéttbýlisstöðum í
fjórðungnum. Hrun rækjunnar hef-
ur því gífurleg áhrif á þessu land-
svæði.
í Útveginum segir að þriðjungs-
hlutdeild Norðurlands í úthafs-
rækjukvótanum jafngildi tæplega 14
þúsund tonna falli í veiðinni miðað
við meðaltal úthlutunar næstu 5 ár
á undan. Miðað við sama árabil hafi
veiði innfjarðarækju dregist saam-
an um tæplega 3 þúsund tonn.
Þannig hafi samtals fallið út um
16.500 tonn af rækju úr veiðinni á
Norðurlandi og útflutningstapið
nemi um 3 milljörðum króna sem
fyrr sagði.
í skýrslu Hafrannsóknastofnunar
um úthafsrækjustofninn, sem birt
var í lok síðasta árs, segir að litlar
líkur séu á bata á allra næstu árum.
Bráðabirgðakvóti yflrstandandi árs
var staðfestur sem endanlegur kvóti
og nemur 20 þúsund tonnum sem er
um 60% minnkun miðað við siðustu
ár. Þegar litið er til Norðurlands
sérstaklega sé höggið þó enn þyngra
í innfjarðarækjunni þar sem veiðin
er aðeins 20% af því sem hún var
síðustu fimm ár á undan.
-gk
íslenskir feögar í Kuummiit:
Skiðalyfta bjargi börnum frá solli
Feðgarnir Sigurður Pétursson skipstjóri, betur þekktur sem ísmaðurinn ógurlegi, og Ólafur Sigurðsson framleiðslu-
ráðgjafi vilja stuðla að því að börnin í Kuummiit fái skíðalyftu. Hér eru þeir á einum örfárra vélsleða i þorpinu.
DV-mynd Reynir
DV, Kuiuniniit:
„Við höfum lengi dáðst að áhuga
krakkanna hérna á skíðaiðkun.
Þeir eru iðulega komnir á skiðin
fyrir allar aldir en aðstaða þeirra
til skíðaiðkunar er engin,“ segja
feðgarnir Sigurður Pétursson og
Ólafur Sigurðsson.
Sigurður hefur búið í Kuummiit
undanfarin rúm tvö ár en Ólafur
sonur hans býr í Nuuk þangað sem
hann flutti fyrir nokkru eftir að
hafa búið í Kuummiit í tæpt ár.
Krakkamir 1 Kuummiit, sem hlotið
hafa heimsathygli fyrir mótmæli
sín gegn óhóflegri áfengisneyslu
hinna fullorðnu, eru daglangt við
alls kyns vetraríþróttir í þorpinu
sem er skammt frá Kulusuk sem ís-
lendingar þekkja sem fyrsta við-
komustað Flugfélags íslands og ís-
landsflugs á Grænlandi. Aðeins er
þó hægt að ferðast beint á milli
þorpanna tveggja á bátum eða
hundasleðum.
Feðgarnir segjast hafa leitað eft-
ir því heima á íslandi hvort ekki
væri hægt að fá 200 til 300 metra
toglyftu fyrir lítið en án árangurs
enn sem komið er. Ólafur, sem
starfar við framleiðsluráðgjöf hjá
Nuka A/S um allt Grænland, segir
fyrirtækið hafa geflð ádrátt um að
styrkja verkefnið.
„Það er vel hugsanlegt að Nuka
styrki þetta mál. Við höfum horft
til þess að fengist lyfta á íslandi
verði hægt að flytja hana með skipi
hingað. Það er áríðandi að þessir
krakkar fái tækifæri til að stunda
heilbrigðar íþróttir. Áfengisvanda-
mál er mikið hér og allt sem heitir
að efla íþróttastarf forðar ungu
fólki frá að falla í þá gryfju," segir
Ólafur. -rt
Fjóröa Vetraríþróttahátíö ÍSÍ:
Vígsla skautahallar og al-
þjóðleg mót hápunkturinn
DV, Akureyri:
Vetraríþróttahátíð íþrótta- og
Ólympíusambands Islands verður
nú haldin í fjórða sinn á Akureyri
og fer fram 3. mars til 26. apríl.
Áður hefur hátíðin verið haldin
1970, 1980 og 1990.
Vetraríþróttahátiðin í ár verður
með nokkuð öðru sniði en fyrri há-
tíðir, hún nær yflr lengri tíma og
mun fleiri vinna að undirbúningi
hennar og framkvæmd. Hátíðin
verður sett í Skautahöllinni laugar-
daginn 4. mars kl. 17 og í tengslum
við upphaf hátíðarinnar verður
Strýta í HLíðarfjalli vígð um þá
helgi.
íþrótta- og Ólympíusamband ís-
lands leggur áherslu á að almenn-
ingi sé gert hátt undir höföi i dag-
skrá íþróttahátíðarinnar og sérstak-
lega höfðað til fjölskyldunnar. Leit-
ast verður við að fylgja þessu mark-
miði með námskeiöahaldi og kynn-
Þessi mynd var tekin einn sólardag-
inn í Oddsskarði, þar sem kornung-
ur skíðamaður, Sveinn Fannar Sæ-
mundsson, var á ferðinni í skíða-
braut ungu fjallaljónanna og sýndi
aö fyrstu sporin í snjónum lofa
góðu. DV-mynd Reynir Neil
ingu á íþróttum og útivist sem nái
til sem flestra aldursflokka.
Einnig verður (íþrótta)keppni í
fjölmörgum greinum, hefðbundnum
vetraríþróttum, alpagreinum og
skíðagöngu, íshokkí og listhlaupi á
skautum, nýjum íþróttagreinum eins
og snjóbrettaíþróttum, skíðaskotfimi
og „curling" sem tillaga er um að
kalla „krulla" á íslensku, þá verða
akstursíþróttamenn með snjósleða-
keppni og aksturskeppni á stórum og
smáum bflum á ís. Hestamenn reyna
með sér í hestaiþróttum og halda
hestasýningar.
Farið verður í göngu- og skíða-
gönguferðir um Eyjafjörð og til fjalla.
Á boðstólum verða ratleikir og ísklif-
ur.
Námskeið verður í vetraríþróttum
fyrir fatlað fólk og aðstandendur
þess. í sambandi við það koma þekkt-
ir ieiðbeinendur frá Bandaríkjunum
sem kenna það nýjasta sem er að ger-
ast í heiminum i þessum efnum.
Hápunktur hátíðarinnar verðm-
helgina 24.-26. mars en þá daga
verður fjöibreytt dagskrá þar sem
m.a. Skautahöflin verður vígð. Þann
dag verður íslandsmót í listhlaupi á
skautum, alþjóðleg skíðamót verða í
Hlíðarfjalli i skíðagöngu og alpa-
greinum. Göngumótið er fyrsta al-
þjóðamót í skíðagöngu sem haldið
er hér á landi. Hestamenn verða
með sýningu í bænum, akstursí-
þróttamenn keppa á vélsleðum, vél-
hjólum og bflum.
Þessa helgi verður þing Iþrótta-
og Ólympíusambands íslands en
það sækja á þriðja hundrað fuUtrú-
ar af öUu landinu.
HeUsugæslustöðin mælir svo
blóðþrýsting hjá almenningi í mið-
bænum ef viU.
Það má segja að um aUar helgar
og oft í miðri viku frá 3. mars og
fram yfir páska verði eitthvað að
gerast í sambandi við Vetraríþrótta-
hátíð ÍSÍ. -gk