Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Side 17
17
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
X>V_______________________________________________________________________________________________________________________Menning
Umsjón: Silja A&aisteinsdóttir
Tjáningarríkur og blíður
Fyrirlestur háskóla-
rektors Færeyja
Á morgun kl. 16.30 mun rektor
Fróðskaparseturs Færeyja,
Malan Marnersdottir, flytja
fyrirlestur í stofu 101 í
Odda um sögu fær-
eyska háskólans og
framtíðaráform
hans. í fyrirlestrin-
um verður enn-
fremur flallað um
mikilvægt og
virkt hlutverk
skólans í þeirri
þjóðernisvakn-
ingu sem verið
hefur í Færeyjum
síðari hluta 20. ald-
ar.
Fróðskaparsetrið
var stofnað árið 1965
sem fræðasetur en var gert
að háskóla árið 1987. Við Fróð-
skaparsetrið eru þrjár deildir, ein i færeysku,
önnur í sagnfræði og félagsvísindum og sú
þriðja í náttúruvísindum. Við setrið starfa
átján kennarar og visindamenn og átján
stundakennarar, en stúdentar eru 110 auk
íjögurra doktorsnema. Þeir stunda nám í fær-
eysku og færeyskum bókmenntum, norræn-
um fræðum, sögu og félagsvísindum, líffræði,
stærðfræði, eðlisfræði, olíuverkfræði og tölv-
unarfræði.
Samkór Kópavogs til
Ungverjalands
Samkór Kópavogs heldur ungversk-ís-
lenska tónleika í Digraneskirkju á laugar-
daginn kl 17. Ungverskt yfirbragð tónleik-
anna er í tilefni af ferð Samkórsins til Ung-
verjalands í lok maí í vor. Á leið þangað
verður sungið í Dómkirkjunni í Salzburg. í
Búdapest verður dvalið í 5 nætur og verða
konsertar á ýmsum stöðum svo sem í Máty-
ás-templon á kastalahæðinni. Einnig verða
tónleikar í bænum Köszeg skammt frá Búda-
pest.
Stjórnandi Samkórsins, Dagrún Hjartar-
dóttir, nam söng við Franz Liszt akademíuna
í Búdapest og munu kennarar við þann skóla
undirbúa dvöl og konserta kórsins i Ungverja-
landi. Á tónleikunum syngja einsöngvararnir
Stefán Helgi Stefánsson og Hrafnhildur
Bjömsdóttir með kórnum.
Camerarctica hjá Kamm-
ermúsíkklúbbnum
Fimmtu tónleikar starfsársins hjá Kamm-
ermúsíkklúbbnum verða á sunnudagskvöldið
i Bústaðakirkju kl. 20.30. Þar leikur Camer-
arctica hópurinn freistandi strengjakvartett
eftir Shostakovich og kvintetta eftir Boccerini
og Dvorák. í hópnum eru Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Guð-
mundur Kristmundsson, Sigurður Halldórs-
son, Hallfríður Ólafsdóttir, Richard Korn og
Örn Magnússon.
Matargeröarlist við afhendingu Menningarverðlauna DV á Hótel Holti í dag:
Ovænt
og sígilt
Stinglaxinn er Ijosfjólublar djup-
sjávarfískur sem veiöist stöku
sinnum hér viö land. Mynd eftir
Jón Baldur Hlíðberg úr Sjávar-
nytjum viö Island (1998). Til
hliöar er hann matreiddur
Þegar þetta blaö kemur á götuna er veriö aö
afhenda Menningarverólaun DV á Hótel Holti
í 22. sinn. Að fornum sið veröur snœtt sjófang
á undan afhendingunni, aö þessu sinni bœói
nýstárlegt og sígilt, eins og nánar kemur fram
í lýsingu Hákonar Más Örvarssonar yfirmat-
reiöslumanns.
„Að venju eru tveir réttir," segir Hákon
Már. „í forréttinn fundum við stinglax sem
veiddist suður af Reykjaneshrygg. Ég hef
aldrei matreitt hann áður enda er hann óal-
gengur hér við land, en hann er mikið nytjað-
ur í Portúgal og á Madeira."
Hákon lærði þó ekki uppskriftina af Portú-
gölum heldur fann leiðina að matreiðslunni
sjálfur. „Þetta er frekar feitur fiskur og ég
ætla að ofnbaka hann, það hæfir honum mjög
vel. Rétturinn verður byggður upp á þremur
Hvítvínsgufusoðinn þorskur meö hrognum og
lifur aö hætti Hákonar Más.
Meistarakokkarnir á Hótel Holti með veisluréttina fyrir framan sig. Sá sem situr á myndinni eryfir-
meistarinn, Hákon Már Örvarsson. DV-myndir ÞÖK
hrærunni eru svo soðin hrogn hrærð með
rauðu paprikumauki til að ítreka litinn,
smjöri og kryddi.“
Með fiskréttunum verður drukkið amerískt
hvítvín, Beringer Fumé Blanc frá ‘97, fremur
þurrt vín með örlitlu eikarbragði sem Hákon
Már mælir sérstaklega með sem úrvalsdrykk
með jafnólíku fiskmeti og verður á borðum. Á
undan verður að venju Tio Pepe sjerrí en með
kaffinu verður borið fram Fonseca púrtvin,
árgerð 1992.
bragðefnum, hvítum baunum
sem verða í mauki undir fiskin-
um, svo verður jarðsveppa-
vinaigrette með madeira og kjúklinga-
soði og loks verður kóríander saxað yfir fisk-
inn og í olíu með. Þetta er góð bragðheild, eng-
ar sveiflur."
Þorskur með óvæntum turni
Matreiðslumaður ársins reynir alltaf að
finna eitthvað nýtt úr hafinu en ef ekki finnst
nein framandi sjókind er ágætt ráð að fara
yfir í hinar öfgarnar - jafnvel gömlu góðu
soðninguna.
„Ég stakk upp á því að hafa bara þorsk en
matreiða hann á nýstárlegan máta og hafa
með bæði hrognin og lifrina," segir Hákon.
- Hvað felst í hinum „nýstárlega máta“?
„Þorskurinn
verður gufusoðinn
í gufu frá
og kryddjurtum.
Með honum verða kóngasveppir
og sósa úr kóngasveppum, tónuð aðeins með
Tio Pepe sjerríi. Svo verður klassísk frönsk
kartöflukaka sem ég held mikið upp á, hún er
kölluð Lyonnaise og það eru í henni laukur og
steinselja milli laga. Loks er á diskinum turn
sem er byggður þannig upp að neðst er kína-
hreðka, ofan á henni er flan af þorsklifur,
hrærð með eggjum og rjóma sem myndar
skemmtilega andstæðu við stökka kínahreðk-
una. Ofan á lifr-
ar-
Álfamærin Áshildur Haraldsdóttir sem frumflytur í kvöld ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands flautu-
konsert eftir Hauk Tómasson. DV-mynd E.ÓI.
Áshildur Haraldsdóttir leikur í kvöld einleik
með Sinfóníuhljómsveit íslands í flautukonsert
eftir Hauk Tómasson sem hlaut Menningarverð-
laun DV í tónlist 1998. Konsertinn samdi Hauk-
ur sérstaklega fyrir Áshildi.
„Haukur skrifaði fyrir meira en áratug
verk fyrir flautu og sembal og ég kom svolítið
að þeirri vinnu með honum," segir Áshildur.
„Það verk varð eitt af mínum uppáhaldstón-
verkum og síðan hef ég nefnt reglulega við
Hauk að skrifa flautukonsert. Hann lét loks
verða af því og lauk við hann 1997. I þrjú ár
hefur konsertinn svo beðið síns tíma því þetta
er viðamikið verk fyrir flautu og stóra hljóm-
sveit - extra marga bassa til dæmis og nokk-
ur hljóðfæranna eru meira að segja mögnuð
upp, harpan, píanóið og flautan sjálf. Það þýð-
ir að hljómsveitin getur alveg sleppt sér lausri
og spilað eins sterkt og hún viU án þess að
hafa áhyggjur af að yfirgnæfa einleikarann."
- Þetta fer að hljóma svolítið popplega ...
„Já, kannski, „segir Áshildur og brosir ynd-
islega, „en sú er ekki raunin. Þetta verk
Hauks uppfyllir alla drauma flytjandans
vegna þess að við fyrstu yfirferð er það mjög
áheyrilegt og áferðin á því höfðar til manns
undir eins. Svo er endalaust hægt að kafa ofan
i það. Haukur er einmitt þannig tónskáld.
Maður þarf ekki að heyra verkin hans fjórum
sinnum áður en maður getur myndað sér
skoðun á'þvi hvort það sé skemmtilegt eða
ekkL Þetta er það erfiða við nútímatónlist af
því maður fær oft ekki að heyra verk oftar en
einu sinni. En Haukur gefur mikið strax og
svo meira og meira þegar maður heyrir verk-
in oftar. Hinar öfgamar eru líka til - að verk
sé voðalega skemmtilegt fyrst en maður fái al-
veg nóg eftir nokkrar æfingar."
- Hvaða hughrif vill Haukur fá fram í
konsertinum?
„Eftir því sem ég æfi hann meira finnst mér
hann verða tjáningarríkari og blíðari," segir
Áshildur, „en þetta er átakaverk, flautan spil-
ar eiginlega allan tímann og heyr sannkallað
einvígi við hljómsveitina. Einleikarinn er
mikil hetja, spilar hratt og hátt, en inn á milli
koma kaflar sem mynda algera andstæðu við
hetjuskapinn. Að því leyti er þetta dæmigerð-
ur konsert - annars vegar er hetja sem berst
við hljómsveitina með allt á fullu og hins veg-
ar tjáningarfullir og fallegir kaflar."
Þetta er frumflutningur á konsertinum en
Áshildur getur ekki ímyndað sér annað en
hann muni heyrast oft á næstu árum - og hún
vonar auðvitað að hún fái að leika hann sjálf
viðar. Að lokum gat Áshildur þess að stjóm-
andi kvöldsins væri Diego Masson frá Frakk-
landi, sem hefur stýrt hljómsveitinni einu
sinni áður. „Hann er bæði reyndur og þægi-
legur í viðmóti en líka hugmyndaríkur. Það er
gott að hafa hann við hliðina á sér.“
Slavnesk tónlist í
Hafnarborg
Fjórðu tónleikarnir í tónleikaröð Tríós
Reykjavikur og Hafnarborgar verða á sunnu-
daginn kl. 20. Á efnisskránni sem eingöngu
verður helguð slavneskri tónlist verða tríó eft-
ir tékkneska tónskáldið Smetana og rúss-
nesku tónskáldin Rachmaninoff og Schosta-
kovits.
Gestur Triós Reykjavikur að þessu sinni
verður fiðluleikarinn Auður Hafsteinsdóttir
sem leikur með föstum meðlimum triósins,
Peter Máté píanóleikara og Gunnari Kvaran
sellóleikara.
Danmarks Radios
Symfoniorkester
Danska útvarpshljómsveitin heldur tón-
leika í Háskólabíói á mánudagskvöldið kl. 20
undir stjórn Yuri Temirkanov. Efnisskráin er
norræn; þar eru verk eftir Poul Ruders, Carl
Nielsen og Jean Sibelius.
Danska útvarpshljómsveitin var stofnuð
árið 1925 og er talin besta hljómsveit Dan-
merkur. Hún hefur aðsetur sitt í Kaupmanna-
höfn en umfangsmiklar tónleikaferðir skipa
stóran þátt i starfsemi hennar. Undanfarin ár
hefur hljómsveitin ferðast til Bretlands,
Skandinavíu, Þýskalands, Austurríkis, Sviss,
Spánar og á þessu 75. afmælisári hljómsveitar-
innar verða meðal annars ísland og Bandarík-
in heimsótt með Yuri Temirkanov sem stjóm-
anda.