Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Side 12
12
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
DV
Fréttir
Síðastliðinn þriðjudag var dómur
kveðinn upp í nokkuð óvenjulegu
dómsmáli á Bretlandi. Breski sagn-
fræðingurinn David Irving, sem í
fyrra höfðaði meiðyrðamál á hend-
ur bandaríska prófessornum
Deborah Lipstadt fyrir ummæli
hennar þess efnis að Irving væri
gyðingahatari sem neitaði Helför-
inni og væri hliðhollur nýnasisma,
tapaði málinu eftir að Lipstadt var
sýknuð af ákæru um ærumeiðingar.
Neitar Helförinni
Þar með lauk rúmlega 30 daga
réttarhöldum sem vakið hafa gríð-
arlega athygli ekki síst vegna
þeirra ummæla sem Irving hefur
látið frá sér fara um Helförina.
Hann hefur m.a. neitað þvi að
gasklefarnir í Auschwitz hafi verið
til og segir að þeir hafl verið reist-
ir eftir stríð sem eins konar Dis-
neyland fyrir þá sem vildu skoða
hörmungar stríðsins. Þá hefur Irv-
ing sagt að það hafl ekki verið ætl-
un Hitlers að útrýma gyðingum á
kerflsbundinn hátt og að tölur yfir
þá sem létust i þýskum útrým-
ingarbúðum séu stórlega ýktar og
að þar hafi ekki fleiri látið lífið en
gengur og gerist i fangabúðum þar
sem tala dauðsfalla er í hærri kant-
inum.
Ummæli af þessum toga hafa
verið áberandi í bókum Irvings
undanfarin 10-15 ár en hann hefur
skrifað yfir 30 bækur um Helförina
og áhrifamenn innan þýska ríkis-
ins á timum seinni heimsstyrjald-
ar. Þar hefur hann einkum getið
sér orð fyrir nákvæmni í rann-
sóknum sínum og umfjöllun um
einstök atriði auk þess sem fáir
fræðimenn skáka honum hvað
varðar þekkingu á sögu Þýska-
lands á valdatíma Hitlers.
Erlent
■
fréttaliós
*
__________..
Dáður af þjóðernissinnum
Á seinni árum hefur orðið æ erf-
iðara fyrir Irving að fá bækur sín-
ar útgefnar og árið 1992 voru bæk-
ur hans bannaðar í Þýskalandi og
honum meinað að stiga fæti á
þýska grund framar en þar í landi
er refsivert að neita Helförinni eða
sýna samúð með sjónarmiðum nas-
ista af hvaða tagi sem er. Sama er
uppi á teningnum í Kanada, Aust-
urríki, Ástralíu og á Ítalíu en öll
þessi ríki hafa meinað honum að-
gang á þeim forsendum að hann
hafi gerst brotlegur við lög.
Irving hefur því bæði verið dáð-
ur og hataður en meðal þeirra sem
hafa sótt kjark í skrif hans eru
ýmsir hópar þjóðernisinna í
Bandaríkjunum og Evrópu og næg-
ir þar að nefna samtök Ku Klux
Klan í Bandaríkjunum, nýnasista
í Evrópu og Bandarikjunum og
Landssamband evrópskættaðra
Bandaríkjamanna sem er með höf-
uðstöðvar sínar í New Orleans.
Þeir sem hafa gagnrýnt Irving
hvað harðast eru auk Ísraelsríkis,
gyðinga og afkomenda þeirra sem
létust í Helförinni, samtök á borð
við Simon Wiesenthal-stofnunina
og prófessorar og fyrirlesarar sem
kenna sögu gyðinga og ofsókna á
hendur þeim.
Höföar meiöyröamál
í þessum hópi er Deborah Lip-
stadt, prófessor við Emory-háskóla
í Atlanta i Georgíufylki, en hún
gagnrýnir Irving i bók sinni, Hel-
Irving á leið í réttarsalinn
David Irving þurfti aö fara úr jakkanum viö réttarhöldin eftir aö eggjum var fleygt í hann fyrir utan dómhúsiö
þjóðernissinna þar sem hann héldi
fyrirlestra úr efni bóka sinna sem
samræmast skoðunum þeirra.
Hann bar til baka fullyrðingar
Irvings - sem hann heldur fast í
enn þann dag í dag - að gasklefarn-
ir hafi verið uppspuni, að Hitler
hafl ekki verið ábyrgur fyrir dauða
gyðinga og að mun færri hafi látist
í útrýmingarbúðum en tölur gefa
til kynna.
Sagði Justice Gray dómari að
þessar rangfærslur væru vísvit-
andi settar fram af hans hálfu til
að þær samræmdust persónuleg-
um skoðunum hans. Gray viður-
kenndi að vísu að sumar af fullyrð-
ingum Lipstadt um Irving væru
óviðurkvæmilegar en sagði að
ásakanir þær sem bornar hefðu
verið á hann og væru jafnframt
sannar væru það alvarlegar að allt
annað félli í skuggann af því.
í kjölfarið var málinu vísað frá
og Irving gert að greiða allan máls-
kostnað og önnur tilfallandi gjöld
aö upphæð 200 milljónir króna.
Staðreyndum leynt
Óvist er hvort Irving áfrýjar
dómnum en menn hafa á orði að
hér hafi hann fallið á eigin bragði.
Hann mun þó eiga að vinum
fjölda fjársterkra stuðningsmanna
og skoðanabræðra sem eru boðnir
og búnir að standa straum af máls-
kostnaði og halda baráttu hans
áfram við að endurheimta trúverð-
ugleika sinn sem fræðimaður.
En er efasemdamaður um Hel-
förina hæfur til að skrifa sem sagn-
fræðingur?
Mark Mazower, sagnfræðingur
við Princeton-háskóla, sagði að „ef
menn einskorðuðu sig við höfunda
sem eru fræðilega á sama máli og
þeir væru ýmsar sagnfræðilegar
staðreyndir útilokaðar á sama
tíma“. Það sé því nauðsynlegt að
taka allar hugmyndir til greina en
„mestu máli skiptir hvemig slíkt
efni er meðhöndlað".
Michael Geyer, prófessor í evr-
ópskri samtímasögu við háskólann
í Chicago, bendir hins vegar á að
það sé ótækt að útiloka staðreynd-
ir svo að þær samræmist ákveð-
inni kenningu líkt og Irving hefur
gert í ritum sínum.
Rithöfundurinn Raul Hilberg
tekur í sama streng þegar hann
segir: „Þú getur skapað tálsýn sem
gefur algjörlega rangar upplýsing-
ar með því að leyna staðreyndum,
jafnvel þó allt sem þú segir sé
satt.“
förinni neitaö: Vaxandi árás á
sannleika og minningu þar sem
hún fer m.a. hörðum orðum um Ir-
ving og kallar hann „hættulegasta
talsmann þeirra sem neita Helför-
inni“ og að „honum sé tamt að
nýta nákvæmar upplýsingar og
móta þær og samræma að sínum
niðurstöðum".
Þessi ummæli voru Irving hins
vegar um megn - hann hafði mætt
miklu andstreymi frá andstæðing-
um sínum og var það farið að hafa
áhrif a trúverðugleika hans sem
fræðimanns. Árið 1996 hætti út-
gáfufyrirtækið St. Martin’s Press
viö að gefa út nýjustu bók hans
sem var pólitísk ævisaga þýska
áróðursmeistarans Jósefs Göbbels
þar sem Irving hélt því m.a. fram
að það hefði verið Göbbels - ekki
Hitler - sem stóð að baki
fjöldamorðunum á gyðingum.
Irving höfðaði sem áður segir
meiðyrðamal á hendur Lipstadt en
kaus að gera það i Bretlandi en
ekki í Bandaríkjunum þar sem
samkvæmt bresku réttarkerfi er
undir hinum ákærða komið að
sanna réttmæti ásakananna (í
þessu tilfelli Lipstadt) en ekki Ir-
vings eins og þekkist í bandaríska
réttarkerfinu. Það var því ljóst að
það var á brattann að sækja fyrir
prófessor Lipstadt að sanna rétt-
mæti jafnalvarlegra ásakana og að
ásaka aðra manneskju um gyð-
ingahatur og að afneita Helförinni.
Að mati Lipstadt kom þó aðeins
eitt til greina og það var að berjast
til síðasta blóðdropa.
Gyöingahatari
Síðastliðinn þriðjudag, eftir 30
daga stif réttarhöld, var dómur
loks upp kveðinn þar sem dómari
las m.a. upp úr útdrætti á 66 siðna
dómsúrskurði sínum. Þar segir
hann augljóst að Irving hafi í rit-
um sínum dregið verulega úr vægi
ódæðisverka Hitlers, sérstaklega
með tilliti til viðhorfa hans til gyð-
inga og ábyrgðar gagnvart meðferð
nasista á gyðingum.
Hann sagði augljóst að hann
væri hliðhollur hugmyndafræði
nasista og benti í þessu sambandi
á hversu tíður gestur Irving væri á
samkomum ýmissa hægrisinnaðra
Byggt á the Times, The New York
Times, Reuters o.fl.
Lipstadt ásamt fórnarlambi úr fangabúðum nasista
Lipstadt felldi tár eftir aö dómurinn var upp kveöinn.
David Irving tapar meiðyrðamáli á hendur Deborah Lipstadt og Penguin-útgáfufyrirtækinu
Féll á eigin bragði