Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 DV Helgarblað 60 ARA FAGLEG REYNSLA 27 Samstarf, ekki sameining Nú er uppi sú staða í íslensku leiklistarlífi að stærsti keppinaut- ur Þjóðleikhússins hefur fengið nýjan yfirmann sem er vinsælasti leikstjóri Þjóðleikhúss til margra ára. í samtíma okkar er og mikið rætt um sameiningu og hagræð- ingu á ýmsum sviðum. Hefur sú hugmynd heyrst að sameina leik- húsin? „Ekki í alvöru," segir Stefán og finnst hugmyndin augljóslega brosleg. „Samkeppni og þá einkarlega heiðarleg samkeppni er stóru leik- húsi eins og þessu alveg nauðsyn- leg og ég vil að hún sé til staðar. Ég vænti góðs af samstarfi við Guðjón Pedersen á ýmsum svið- um. Samstarf húsanna hefur verið svolítið, einkum í formi lána á leikurum, en ég get vel séð fyrir mér aukið samstarf. En ekki sam- einingu. Þjóðleikhúsið hefur í minni tíð átt mikið samstarf við ýmsa leik- hópa í samfélaginu og ég tel að það samstarf hafi alltaf verið báð- um til góðs og hyggst halda áfram að líta jákvætt á alla þróun á því sviði.“ Meira pláss væri gott Nú er Þjóðleikhúsið eitt grón- asta kennileiti borgarinnar en það er 50 ára gamalt hús, byggt eftir teikningu frá 1930. Er ekki orðið þröngt um ykkur? „Það var rætt þegar við vígslu hússins að nauðsynlegt væri að byggja við það og stækka og það var hugmynd Guðjóns Samúels- sonar arkitekts að slikt væri góð- ur kostur. Húsið var endurbætt mjög mik- ið fyrir skömmu en það var ein- ungis sá hluti sem snýr að áhorf- endum. Endurbætumar náðu ekki nema að sviðsbrúninni. Þótt stóra sviðið sé gott leikhús þá eru geymslur af skornum skammti og tæknibúnaður úr sér genginn og margt sem ekki svarar kalli tím- ans. Mér finnst eðlilegt að halda endurbótum áfram og byggja síð- an við húsið að austanverðu. Þar gætu orðið til góðar geymslur og síðan mætti verða til 250-300 áhorfenda salur í kjallara. Smíða- verkstæðið, sem komið var á fót í minni tíð, hefur löngu sannað gildi sitt en er heldur lítið. Hitt er svo annað mál að Þjóðleikhúsið verður alltaf hér enda þetta gamla og merka hús sneisafullt af góðum leikhúsöndum hálfrar aldar.“ En hvenær kom Stefán fyrst í Þjóðleikhúsið? „Ég man það afskaplega vel. Ég var sex ára gamall árið 1951 og það var verið að sýna Snædrottn- inguna eftir H.C. Andersen. Ég var algerlega heillaður og tel mig enn muna heilar senur úr verk- inu. Mörgum árum seinna, þegar ég kom hér inn i öðru hlutverki, „Við höfum á að skipa mjög sterkum leikara- hópi, ég vil segja einum þeim fjölhœfasta og sterkasta frá upphafi starfseminnar. Hér starfa 40 fastráðnir leikarar og ég tel að í þeim hópi liggi styrkur okkar. “ gerði ég þau mistök að fara og skoða ljósmyndir úr sýningunni og þá reyndist leikmyndin ekki vera eins glæsileg og í minninu. En þetta er galdur leikhússins." Vísir frá vígsludegi Fátt skilar tíðarandanum betur en gömul dagblöð og við skulum grípa niður í frásögn Vísis af vígslu Þjóðleikhússins 20. apríl 1950 eins og hún birtist lesendum daginn eftir. „Þá hófst sýning á Nýársnótt- inni eftir Indriða Einarsson, en segja má að kvöldið hafl verið helgað þessum frumkvöðli og af- bragðsmanni í íslenzkum leik- menntarmálum. Gangur leiksins skal ekki rakinn hér að sinni, að- eins tekið fram að leikendur stóðu sig með mikilli prýði eins og vera bar á þessum merkisdegi. Vafalaust má telja að leikhús- gestir hafi orðið hrifnir af ljósaút- búnaði sviðsins ekki sist þá, er sýnd var skæðadrífa, snemma í leiknum, norðurljós á himni og ýmislegt annað sem til þessa hef- ur ekki gefizt kostur á að sýna hér. Má með sanni segja, að nú loksins hefur íslenskum leikurum gefizt boðlegur leikvangur og sæmilegir atvinnumöguleikar með hinu nýja og veglega húsi.“ -PÁÁ HE 500 Kr.15.2D5,- LAUFSUGUR-BLÁSARAR G LIMGERÐISKLIPPUR KURLARAR FÖSTUO., LAUGARD., SUNNUD. KLIPPT OG SKORIÐ fyrir sumario HE 400 Kr. 11.250. Kr. 19.980,- aBi ___ _______A 1 Aw I XV Ijt Grcen verslunarmiðstöð STEKICJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.