Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 15. APRIL 2000 Tímarit mánaðarins ...a tilboðsverði Helgarblað ________________________________________________________________H>"V Pagur i lífi________________________________________________ z / Olafur Guðsteinn tónlistarmaður, einnig þekktur sem OGUÐ: Hátíðartónleikar á Gauknum - undirbúningur, átök og fögnuður IFæst á blaðsölustöðum Síðasti þriðjudagur í lífi mínu var tileinkaður rokki og róli. Þá stóð Örkumlútgáfan, sem ég tilheyri, að tónleikum á Gauki á Stöng ásamt Logsýru, útgáfufyrirtæki Saktmóði- gs. Þessir tónleikar voru hugsaðir sem nokkurs konar kynningar- og fjáröflunartónleikar fyrir pönk- safndisk sem Örkumlútgáfan er að fara að gefa út á næstunni. Diskur- inn á að vera minnisvarði um pönk- hátíðimar þrjár sem Örkumlútgáf- an stóð fyrir í MH ‘96, ‘97 og ‘98 og verða á honum einungis lög sveita sem þar komu fram. Tvö bönd voru því fengin til viðbótar við Örkuml og Saktmóðig til að spila á tónleik- unum. Það voru Fallega gulrótin og Forgarður helvítis. Einnig kom fram hljómsveitin Óskalög sjúk- linga sem sérstakur gestur en á ekki efni á diskinum. Risið úr rekkju - tvisvar Nokkurn veginn svona leið dag- urinn. Eitthvað glumdi í eyrum mér í sí- fellu: „Pabbi, vaknaöu, pabbi, vakn- aðu.“ Að lokum náði mælandinn til- ætluðum árangri. Er ég nuddaði stírurnar úr augunum varð mér strax ljóst að dagurinn var enn all- ungur. Kannski of ungur. Tóku nú við hefðbundnar morgunvenjur þar sem morgunhanakomi og kalki í vökvaformi var dælt í skál fyrir litla hávaðasegginn. Að þessu loknu læddist sú hugsun að mér að réttast Olafur Guösteinn „Nú var maöur tilbúinn í átökin og ekkert því aö vanbúnaöi fyrir þaö fara aö rokka úr sér og öörum ráö og rænu. “ væri að skríða aftur upp í fletið, til að hvíla sig betur. Auðvitað lét mað- ur það eftir sér. Reyndar þurfti að hóta litla skrípinu því að það myndi missa úr nammidag fengi gamli maðurinn ekki að hvíla sig ögn bet- ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR HJÁ OKKUR. r. . .......... yrtivörur - •■vv-H■ ■„■■■■ ..... Nýtt körtatímabii. Opið 10:00- 18:00 iau. FULL BÚÐ AF GLÆNÝJUM VÖRUM. TOPSHOP ' T O P M A N ur. Það var jú stór og mikill dagur fram undan og nauðsynlegt að vera vel stemmdur. Um það bil klukkutími leið, og risið var úr rekkju á ný. Næst á dag- skrá var að ferðbúast. För var heit- ið á leikskólann Lindarborg þar sem sú litla hefur aðsetur á daginn, á meðan pabbi og mamma gegna sínum mikilvægu störfum. Haldið var svo heim aftur, þar sem rýnt var í skólabækurnar og rembst við að rækta toppstykkið, ásamt því mikilvæga verki að setja bjórinn i kæli (enginn verður spældur ef bjórinn er nógu vel kældur). Öðru hvoru var þó tekin pása frá andans iðjunni og var þá tekið til við að hringja og senda tölvupóst í gríð og erg lil fjölmiðla. Einhverjir verða jú að vita af því sem í vændum er. Tilbúinn í átökin Er þarna var komið við sögu var aðeins farið að líða á daginn og komið að leiðinlegasti hluta þess að standa í tónleikahaldi. Að róta. Það þurfti aumingja ég að gera einn (ég á samt ekkert betra skilið). Dlu er best aflokið, svo að draslinu var Sviösljós rumpað niður á Gauk á mettíma. Þá tók við hljóðprufun sem einnig er leiðin- leg. Sem betur var ekki þörf á aðstoð minni við hana svo að ég gat henst eftir krakk- anum og konunni. Krakkinn var á sínum stað en konan var farin. Ég var vist eitt- hvað seinn fyrir og leiddist henni svo biðin að hún fékk vinkonu sína til að sækja sig í minn stað. Heim aftur. Krakka skilað. Kona kysst. Niður í bæ á ný. Farið yfir tónleikamál og rabbað við Skjá einn ásamt Davíð hógværa úr Sakt- móðigi. Fylgst með endanum á hljóðprufunni. Allt virtist vera að smella saman. Allt er þegar þrennt er, því í þriðja sinn gekk ég inn fyrir þrösk- uldinn á híbýlum mínum. Langþráð hvíld. Sturta. Bjór. Sjónvarpsgláp (aaaaaaaaaaaa). Nú var maður til- búinn í átökin og ekkert að vanbún- aði fyrir það fara að rokka úr sér og öðrum ráð og rænu. Er komið var á Gaukinn hófst neysla á fjörmjólk (bjór), sem er alveg nauðsynleg ætli maður sér að líta sannfærandi út sem rokkari. Góðu kvöidi fagnað Það er skemmst frá því að segja að tónleikarnir tókust vel í flesta staði. Þ.e. aUa nema...... hum!! sleppi því að nefna einhverja van- kanta. Þetta tókst alveg með ágæt- um. Fullt af fólki. Hljómsveitimar í fantaformi. Og örugglega einhver peningur í kassann fyrir útgáfuna. Já, lífið getur verið gott öðru hvoru. Auðvitað varð svo að fagna vel heppnuðu kvöldi er heim var kom- ið. Það kom í verkahring minn og tengdapabba að gjöra svo. Fagnað- arlætin voru góð og stóðu fram und- ir morgun. Stallone og Madonna verst á öldinni - fengu bæði gullna hindberið í Hollywood era ekki aðeins veitt verðlaun fyrir bestu frammistöðu sem allir þekkja og era kennd við Óskar. Þar eru enn fremur veitt árlega verð- laun sem era kölluð Golden Raspberry eða Gullna hindberið. Þau era veitt fyrir alveg sérstaklega slæma frammi- stöðu og era ekki næstum því eins eft- irsótt og óskarsverðlaunin. Verðlaun gullna hindbersins era byggð upp nákvæmlega eins og ósk- arsverðlaunin, með tilnefningum og síðan vali úr þeim hópi í mörgum flokkum. Siðasta verðlaunaafhending var sérstök aldamótaafhending og þá vora veitt tvenn sérstök heiðursverð- laun til versta leikara aldarinnar og verstu leikkonu aldarinnar. Það var Sylvester Enzio Stallone sem fékk gullna heiðurshindberið sem versti leikari aldarinnar. Sérstaklega var minnst á kvikmyndir eins og Judge Dredd og Rambo-myndröðina við af- hendinguna en, eins og aðdáendur Stallone muna eflaust, hefur hann leik- ið í 49 kvikmyndum sem ná yfir allan óþægindaskala bíóunnenda, aút frá því að vera rífandi skemmtilegar yfir í það að vera óbærilega leiðinlegar. Það fylgir ekki sögunni hvort Enzio var mættur á staðinn til að veita hindberinu viðtöku en það var annar ítali sem fékk hin heiðursverðlaunin. Það var nefiiilega Madonna Veronica Louise Ciccone, eða Madonna, sem var útnefnd versta leikkona aldarinnar. Madonna hefur leikið í 22 kvikmyndum og tekist hvað best upp þegar hún leikur sjálfa sig í heimildarmyndum um Madonnu. IJryal -1 stuttu máli sagt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.