Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
4
^Ferðir
DV
Reykingar leyföar
Northwest-flugfélagið hefur leyft
reykingar á lengri flugleiðum, flug-
þjónum til mikillar armæðu.
Bandarískir flugþjónar:
Mótmæla
reykjar-
svælu
Flugþjónar bandaríska flugfé-
lagsins Nortwest Airlines una því
ekki lengur að þurfa að sinna störf-
um sínum í mettri reykjarsvælu í
háloftunum. Flest flugfélög heims-
ins hafa bannað reykingar en ein-
staka félög, þar á meðal Northwest,
leyfa ósómann á lengri flugleiðum.
Þetta fer fyrir brjóstið á flugþjón-
unum og þeir höfðuðu mál gegn fé-
laginu. Áfrýjunardómstóll í Seattle
dæmdi flugþjónunum í vil og taldi
að reyklausir flugþjónar ættu ekki
•' að vinna við slíkar aðstæður. Lög-
menn flugþjónanna fóru fram á
háar skaðabætur. Ekki fylgir
dómnum niðurstaða um hugsanleg-
ar skaðabætur tfl flugþjónanna en
að sögn talsmanns Northwest er
málinu ekki lokið því félagið
hyggst áfrýja dómnum.
Hjólatúristi
Skynjari setur mótor í gang þegar
álagiö verður of mikið.
Rafknúin reiðhjól:
^Harðsperr-
ur heyra
sögunni til
Hjólreiðar geta verið hin mesta
skemmtun einkum þegar ferðast er
um framandi staði. Margir þekkja
þó hversu hjólreiðamar geta tekið í
og harðsperrur eru oft fylgifiskur
hjá ferðamönnum sem hafa ekki
verið duglegir í líkamsræktinni.
Breska fyrirtækið Easyriders hef-
ur fundið lausn á þreytu hjólreiða-
manna. Fyrirtækið býður nú til
leigu reiðhjól, sem við fyrstu sýn
era ekkert frábrugðin venjulegum
s. hjólum, sem eru búin tölvustýrðum
rafmótor. Fullkominn skynjari á
hjólinu nemur hraða hjólsins, álag á
fótstig og vindstyrk. Ef álagið hraði
hjólreiðamannsins minnkar úr hófl
fram og álagið á fótstigin eykst að
sama skapi fer mótorinn í gang.
Þannig er hjólið rafknúið þegar
þurfa þykir en að öðru leyti þarf
hjólreiðamaðurinn sjálfur að sjá um
erfiðið. Þeir sem vilja kynna sér
þessa tegund reiðhjóla geta heimsótt
slóðina www.easy-riders.co.uk á
Netinu.
Býrðu í Kuupmannohöfn?
Ertu ó leiðinni ???
www.isiendingqfelagid.dk
Hegðun og umgengni hótelgesta mismunandi eftir kynjum og stöðu:
Kvæntir karlar hinir
mestu snyrtipinnar
Hver gengur best um hótelher-
bergi? Svar: Sá sem gleymir að setja
klósettsetuna niður heima hjá sér.
Staðreyndin er nefnilega sú að giftir
karlmenn eru snyrtilegri hótelgestir
en konur. Þetta kemur fram í nýrri
könnun Fodor-útgáfufyrirtækisins
þar sem hegðun 600 hótelgesta var
könnuð.
Þátttakendum var skipt upp í
flokka eftir kynjum og einnig eftir
því hvort fólk var gift eða ekki.
Spumingar voru lagðar fyrir hóp-
inn og það til dæmis kannað hvort
fólk tæki fötin sin upp af gólfínu,
hengdi upp handklæði á baðher-
berginu, byggi um rúmið eða tæki
almennt til á herberginu sínu. Meg-
inniðurstöður könnunarinnar voru
þær að ógiftar konur ganga verst
um hótelherbergi en kvæntir karlar
eru hins vegar hinir mestu snyrtip-
innar þegar þeir dvelja á hótelum.
Giftar konur búa um rúmið
Um 68% kvæntra karla sögðust
ávallt ganga frá fotunum sínum
áður en þær færu út að morgni.
Ókvæntir karlar fylgja hinum
kvæntu fast á eftir en 61% þeirra
lætur fataleppa ekki liggja á gólfum
hótelherbergja. Rétt rúmur helming-
ur giftra kvenna, 52%, sagðist
einnig ganga frá fatnaði sínum.
Herbergisþemur ættu að hafa nóg
að gera við að taka til á baðherbergj-
um því það er fremur óalgengt að hót-
elgestir þreyti sig á því að hengja upp
handklæði að notkun lokinni. í þess-
um lið báru kvæntir karlar enn sigur
úr býtum en 12% þeirra kunna lítt að
meta blaut handklæði á gólfum.
Þegar kemur að þvi að búa um
rúmið standa konur sig i fyrsta
skipti vel en 23% giftra kvenna
byrja daginn alltaf á að búa um hót-
elrúmið. Þá mældist munur á hótel-
gestum eftir þvi hvort fólk var í
sumarleyfi eða í viðskiptaerindum.
Herbergisþjónusta er til að mynda
mun meira notuð af þeim sem eru í
Konur búa frekar um rúm
Um 23% giftra kvenna þyrja daginn á að búa um sig.
vinnuferðum og þeir hótelgestir eru
að sama skapi mun snyrtilegri en
hinir sem eru að skemmta sér. Tæp-
ur helmingur þeirra sem er í fríi
hefur ekki fyrir því að tina spjarim-
ar upp af gólfmu né hengja hand-
klæðin upp á baðherberginu. -
cnn/travel
Lundúnaaugað vekur
áhuga víða um heim
Þrátt fyrir að brösuglega hafl
gengið að koma Lundúnaauganu,
stærsta Parisarhjóli heims, af stað
um síðustu áramót vekur hjólið
mikinn áhuga víða um heim. Hjólið
er ekki einasta vinsælt meðal ferða-
manna sem heimsækja London
heldur hafa fjölmargar borgir,
þeirra á meðal Boston, Toronto og
Sydney, sýnt því mikinn áhuga að
koma upp eftirlíkingu hjólsins.
Talsmenn flugfélagsins British
Airways, sem eiga stærstan hlut í
Lundúnaauganum, segja ekkert því
til fyrirstöðu að fleiri hjól verði
reist. Ferðamálaráðið í London er
ekki alveg eins hriflð þvi þar á bæ
telja menn að hjólið sé þegar orðið
tákn borgarinnar, rétt éins og Eiffel-
tuminn í París og Empire State
byggingin í New York.
Vinsældir Lundúnaaugans njóta vaxandi vinsætdí
enda útsýni úr hjólinu einstakt.
Hring eftir
hring
Kóngafólk kann
líka aö meta
gott útsýni.
Andrés prins og
fyrrum kona
hans, Sarah
Ferguson, buðu
dætrum sínum í
Lundúnaaugaö.
Lundúnaaugað hóf ekki að snúast
fyrr en í febrúar síðastliðnum en bilun
gerði vart við sig í hemlabúnaði þegar
átti að vigja það um áramótin. Vin-
sældir hjólsins hafa vaxið jafnt og seld-
ir aðgöngumiðar nálgast fýrstu millj-
ónina. Ferð með hjólinu tekur tæpa
klukkustund og kostar 7.45 pund á
mann. Langar biðraðir eru við hjólið á
degi hveijum og svartamarkaðsbrask
er þegar farið að gera vart við sig. Hjá
bröskurum kostar aðgöngumiðinn
ekki undir tólf pundum. -reuter
Mótmæla
Flugmenn Air France vilja tala
frönsku við sitt heimafóik.
Franskir flugmenn æfir:
Fyrirskipað
að tala
ensku
Flugmenn franska flugfélagsins
Air France eru ekki kátir þessa dag-
ana enda hefur þeim verið bannað
að tala sína ylhýru frönsku þegar
þeir nálgast heimaland sitt. Flugfé-
lagið hefur gefið út skipun þess efn-
is að öll samskipti flugmanna við
flugumsjónarmenn í Frakklandi
eigi eftirleiðis að vera á ensku.
Málið hefur vakið athygli í
Frakklandi og málhreinsunarmenn
segja þetta hinn mesta yfirgang og
að nauðsynlegt sé að hamla gegn yf-
irgangi enskrar tungu á þessum víg-
stöðvum sem annars staðar.
Ástæða þess að flugfélagið setti
þessar reglur er þó ekki hrifning
þess á ensku heldur að tryggja að
flugmenn annarra flugfélaga geti
alltaf skilið hvað fer fram í talstöðv-
um þeirra þegar þeir fljúga til og frá
Frakklandi. Þá blása talsmenn Air
France á mótmælin og benda á að
samræður flugmanna og flugum-
sjónarmanna séu einfaldlega ekki
hluti af franskri menningu. Öryggið
beri að setja á oddinn og því verði
flugmennimir að hlýða. Ekki er þó
útséð um endalok þessa máls því
þar sem Air France er i eigu ríkis-
ins verða stjómvöld að samþykkja
breyttar reglur og má búast við nið-
urstöðu á næstunni.
Himbriminn á siglingu
Um tuttugu farþegar komast i hverja
siglingu og algengast er að útsýnis-
sigling taki um eina og hálfa
klukkustund.
Skemmtisiglingar um
Þingvallavatn í sumar:
Náttúran
frá nýju
sjónar-
horni
Þingvallasiglingar hafa undanfar-
in sumur boðið upp á hefðbundnar
útsýnis- og fræðsluferðir um Þing-
vallavatn, allt eftir óskum hvers
hóps. í sumar er ráðgert að halda
siglingunum úti og í boði verða
ýmsar sérferðir, til að mynda I
tengslum við Kristnitökuhátíðina.
Meðal ferða sem í boði verða má
nefna siglingu með þjóðgarðinum
að Amarfelli, Sandey, Nesjaey, Arn-
arkletti, Hestvík og Jórukleif þar
sem sögur herma að tröllskessan
Jóra hafi búið fyrrum.
Þá verða sérferðir fyrir hópa, til
dæmis veiðiferðir. Þaulvanur
heimamaður siglir bátnum, sem
tekur um 20 farþega, og kynnir far-
þegum jafnframt sögu og staðhætti.
:
j
;
:
;
I