Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Page 60
68
Olíuofnar
Góðir í bústaðinn
Eigum/útvegum einnig
kveiki í ýmsar
gerðir oiíuofna
Panasonic rafhlöður
Rafborg ehf.
Rauðarástíg 1 Sími 562 2130
#BIACKSi
Hi'kk
Rafmagns-
hekkklippa
með 51 sm.
löngu blaði
Kr. 7.490.-
klippa
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farió fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 26. útdráttur
4. flokki 1994 - 19. útdráttur
2. flokki 1995 - 17. útdráttur
1. flokki 1998 - 8. útdráttur
2. flokki 1998 - 8. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júni 2000.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá íbúóalánasjóði,
í bönkum, sparisjóóum og verðbréfafýrirtækjum.
*
Ibúðalánasjóður
idsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
___________________________________________________LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
Tilvera I>V
Sævar
Bjarnason
skrifar um skák
Skákþátturinn
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði
örugglega á Reykjavíkurmótinu og á
glæsilegan hátt þannig að það verð-
ur lengi í minnum haft. Keppendur
voru frá um 20 þjóðum og stórmeist-
aramir voru um 20 talsins. Það er
athyglisvert að hvorki Timman né
Sokolov komust á verðlaunapall og
það gerðu ekki heldur Bandaríkja-
mennimir sem börðust um sigurinn
1998, þeir Christiansen og de Firmi-
an. Verðlaun fengu keppendur í sæt-
unum 1-8. Hér er birtur listi yfir þá
sem vom í sæti 1-21.
1 Hannes Stefánsson 2566 7,5
2-8 Nigel D. Short 2683 6,5
Viktor Kortsjnoj 2659 6,5
Alexander Grischuk 2581 6,5
Aleksander Wojtkiewicz 2563 6,5
Anthony J. Miles 2579 6,5
Xiangzhi Bu 2565 6,5
Jaan Ehlvest 2621 6,5
9-13 Ivan Sokolov 2637 6,0
Jan H. Timman 2655 6,0
Tomasz Markowskí 2531 6,0
Stuart Conquest 2563 6,0
Julen L. Arizmendi 2445 6,0
14-21 Luke J. Mcshane 2438 5,5
Helgi Áss Grétarsson 2543 5,5
Andrea Drei 2351 5,5
Olli Salmensuu 2418 5,5
Evgenij Agrest 2603 5,5
Tomas Oral 2545 5,5
Helgi Ólafsson 2491 5,5
Leif Erlend Johannes. 2431 5,5
Úrslitaskák mótsins var án efa
skák Hannesar og Kortsjnojs. Vikt-
or gamli hafði teflt af miklum krafti
á mótinu þangað til Hannes sagði
hingað og ekki lengra. Ný öld er
gengin í garð hjá skákmönnum -
virðingarvert hjá Kortsjnoj að tefla
svona vel, 69 ára gamall.
Hvítt: Hannes H. Stefánsson
Svart: Viktor Kortsjnoj
Drottningar-indversk vöm
1. d4 RfB 2. Rf3 e6 3. g3 b6 4.
Bg2 Bb7 5. c4 Be7 6. Rc3 0-0 7.
Dc2 c5 8. d5 exd5 9. Rg5
Það var hér á árum áður að Kort-
sjnoj hafði mikið dálæti á þessu af-
brigði og beitti því meðal annars í
einvígum gegn Polugajevski og Kar-
pov á 8. áratugnum. Hannesi kemur
því ekki á óvart að Viktor beiti þvi
en Hannes kemur ekki að tómum
kofunum.
9. - h6 10. Rh3 b5! Svona eiga
menn að tefla. Svartur hefur þegið
peð og viR gefa það til baka undir
hagstæðum kringumstæðum! 11.
Rf4 Rc6 12. cxd5 Rd4 13. Ddl b4
14. Ra4 Bd6 15. 0-0 He8. Hannes
hefur komið ár sinni vel fyrir borð,
er með hótanir í hverjum leik og
hefur greinilega frumkvæðið. 16. e3
Rb5 17. a3 a5 18. Hel Hc8 19. e4
Be5 20. axb4 axb4 21. Be3 c4 22.
Hcl c3 23. b3.
Svartur hefur tryggt sér hag-
stæða stöðu og nú gildir að halda
höfði.
Hannes Hlífar Stefánsson
Sigraði með miklum glæsibrag á hinu sterka Reykjavíkurskákmóti.
23. - Bxf4 24. Bxf4 d6 25. Bfl
Ba6 26. f3 Rd7. Athyglisverð peðs-
fóm til að koma mönnunum í réttar
stöður. Kortsjnoj er einnig þekktur
fyrir að hirða peð svo leikurinn hef-
ur sálfræðilegt gildi. 27. Bxd6
Rxd6 28. Bxa6 Ha8 29. Bfl f5!
Svartur ræðst að veiku peðamið-
borði hvíts. 30. exf5 Rxf5 31. Bh3
Df6 32. He4 Hxe4 33. fxe4.
Hannes skiptir nú upp á drottn-
ingum og riddarar hans fara að
dansa um borðið. 33. - Dd4+ 34.
Dxd4 Rxd4 35. Rxc3. Það er erfitt
að benda á góðar leiðir fyrir hvítan,
Hannes hótaði að leika Hxa4, fylgt
af c2 og svörtu frípeðin renna upp í
borð. Einnig er hótunin Re2+ af-
skaplega (ó)þægileg. 35. - bxc3 36.
Kf2 Rc5! 37. Ke3 c2 38. Kxd4
Rxb3+ Riddaragafílar eins og sjálf-
ur meistari Benóný hefði verið á
ferðinni. Hann hefði ekki haft neitt
á móti því að leggja Kortsjnoj svona!
Hér hefði Kortsjnoj getað gefist upp
með góðri samvisku, hrók undir.
39. Kc3 Rxcl 40. Kxc2 Re2 41.
Kd3 Rgl 42. Be6+ Kf8 43. Ke3
Ha3+ 44. Kf4 Rf3 45. h4 g5+ 46.
hxg5 hxg5+ 0-1.
Skoðum svo að lokum skák í anda
gömlu meistaranna:
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson -
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Evans-bragð
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
b4 Bxb4 5. c3 Ba5 6. d4 d6 7. Db3
Dd7.
Skrýtinn leikur þessi! Það var
fyrir 100 árum rúmum að menn
komust að því að þetta væri besti
leikurinn í þessari stöðu. Þessi byrj-
un er kennd við Evans gamla skip-
stjóra frá Bristol í Englandi. 8. dxe5
Bb6 9. Rbd2 dxe5 10. Ba3 Ra5 11.
Db4 c5 12. Db2 Dc7 13. Bb5+ Kf8
14. Hdl Re7 15. 0-0 f6 16. Rc4 Be6.
Hvemig á að vinna úr þessari
stöðu? Hvitur hefur betri liðskipan
en svartur treystir vamir sínar. Þá
kemur til greina að fóma! 17.
Rcxeð Hd8 18. Hxd8+ Dxd8 19.
De2 fxe5 20. Hdl Dc8 21. Rg5 h6
22. Df3+ Kg8 23. Bd7. Hér bregður
Helgi Áss á það ráð að fóma drottn-
ingunni fyrir þrjá létta menn. Það
þykir nóg ef mennimir ná að vinna
saman. - hxg5 24. Bxc8 Rxc8 25.
Dg3 Rc4 26. Bcl g4 27. f4 gxf3 28.
gxf3 Kf7 29. f4 Hh3 30. Dg5 exf4
31. Bxf4 Ba5 32. Hfl Kg8.
Hér missti Jón Viktor af ágætri
leið sem hefði getað fært honum sig-
ur í skákinni. 33. Dg6 Bd7 34. Hdl
og varnir svarts virðast bresta.
Svona tefla menn á tölvuöld! 33.
Bg3? Það er oft stutt á milli máts og
gráts. - Hh6 34. Khl Bb6 35. Hgl
Bf7 36. Hfl R8d6 37. e5 Re4 38.
Df4 Rxg3+ 39. Dxg3 Bd5+ 40. Kgl
Rd2 41. Hf8+ Kxf8 42. Df4+ Hf6.
0-1.
Heill þér, Hannes
Hlífar Stefánsson