Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000
DV
Fréttir
5
Sinueldar tröllríða skráþurri jörð:
Mikil hætta stafar
af eldum
- í alla staði skaðlegt, segir starfsmaður garðyrkjudeildar
Mikil hætta stafar af sinueldum
Sinueldar geta valdið miklu tjóni á mannvirkjum oggróðri. Fólk getur sjálft slökkt lltla sinuelda, eins og þessi börn
sem hjáipuðu borgarstarfsfólki að slökkva sinueld í Fossvogsdal í síðustu viku.
Eldur er góður þjónn en harður
húsbóndi, segir málshátturinn sem
sumir hafa væntanlega fengið í
páskaegginu sínu um helgina. Hið
þurra vor um mestallt land hefur
valdið þvi að sinubruni hefur farið
úr böndunum og margsinnis hefur
legið við stórskaða. Til dæmis mun-
aði minnstu að sinueldur næði í
sumarbústaði í Stóru-Skógum í Borg-
arflrði um páskahelgina og unnu 50
manns að því að slökkva eldinn.
Slökkviliðin á höfuðborgarsvæð-
inu eru kölluð út mörgum sinnum á
dag til þess að slökkva sinueld.
„Þetta er að sumu leyti mjög vont
veður,“ sagði Trausti Jónsson veður-
fræðingur og bætti því við að veðrið
hefði verið óvenjuþurrt síðustu tvær
vikumar á Suður- og Vesturlandi og
snjór að mestu bráðnaður.
Mikil dægursveifla er á hitanum,
sem veldur því að efsta lag jarðarinn-
ar þiðnar og vatnið gufar svo upp.
Efsta lagið er því þurrara en ella
væri og sinueldar kvikna því auð-
veldlega og brenna hratt.
Einhverri rigningu er spáð í vik-
unni, sagði Trausti.
Sinueldur skaðar
Sinueldur getur valdið miklu tjóni.
Margra ára gömul tré drepast vegna
sinuelda, bæði í Elliðaárdal og í
Öskjuhlíðinni, og fugla- og dýralíf er
í hættu lika.
Gunnsteinn Olgeirsson, verkstjóri
hjá garðyrkjudeild Reykjavíkurborg-
ar, sagði að sú trú fólks að sinueldur
væri góður fyrir gróðurinn væri mis-
skilningur.
„Sinan eins og hún er óbrennd er
góð fyrir jarðveginn. Þegar búið er að
brenna hana þá er lítið af næringarefn-
um eftir í henni,“ sagði Gunnsteinn.
„Síðan hitar þetta upp jarðveginn og
örverur sem lifa i yfirborði jarðar drep-
ast og að því leytinu til er þetta ekkert
gott. í alla staði er þetta skaðlegt."
Garðyrkjustjóri og gatnamálastjóri
Reykjavikur hafa verið með átta til
níu bíla, hvem með tveimur til þrem-
ur starfsmönnum, á hverjum degi í
því að slökkva sinuelda seinustu vik-
umar. Bannað er að kveikja sinu
innan borgarlands en úti á landi má
fá leyfi frá landbúnaðarráðuneytinu
til sinubruna.
Sinubrunar hafa orðið í lengri
tíma í vor heldur en önnur vor vegna
þurrkanna en Gunnsteinn sagðist
ekki vita hvort það væru fleiri eldar
í ár en önnur ár. Hann bætti þvi við
að vegna þess hversu þurrt væri þá
væru sinueldar famir að kvikna út
frá sígarettuglóð.
Taka tíma slökkviliðanna
Aðalvarðstjóri slökkviliðsins í
Reykjavík, Kristján Ólafsson, sagði
að ein helsta hættan sem stafar af
sinueldum væri sú að slökkviliðin
væru upptekin úti í móa við eldana.
Ef eldur kviknar í miðbæ Reykjavík-
ur þegar slökkviliðið er í útjaðri
borgarinnar að slökkva sinueld þá
getur það tekið langan tíma fyrir bil-
ana að mæta á eldsstað, sérstaklega
ef þeir em orðnir vatnslausir.
Kristján sagði að mikilvægt væri
að fólk gerði sér grein fyrir því að
flestir geta slökkt lítinn sinueld.
Skóflur, kústar og blautir strigapok-
ar duga vel til þess að berja niður
eldinn.
Bæði hús og sumarbústaðir era
skyldutryggð og í flestum tilfellum
borga tryggingar skemmdir sem
sinueldar valda á mannvirkjum. Til
eru tryggingar á láusum munum
sem sinueldar geta skemmt i görðum
en þær tryggingar verður að kaupa
aukalega.
-SMK
Fernt á slysadeild
Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar á mánudagskvöldið. Farþegi i öðr-
um bílnum og ökumaður ásamt tveim farþegum í hinum bílnum voru fluttir á slysadeild með minni háttar meiðsli.
Báðir bílarnir voru mikið skemmdir og einnig skemmdist umferðarljósaviti i árekstrinum.
Akureyri:
Gæsluvellirnir aflagðir
DV, AKUREYRI:______________________
Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur
ákveðið að halda sig við fyrri
ákvörðun um að aðeins verði boðið
upp á eitt úrræði fyrir böm á leik-
skólaaldri 1 bænum, þ.e. leikskóla,
en það er m.a. hugsað svo að það efli
starfsemi leikskólanna. Foreldrar
hafa mótmælt og afhent undir-
skriftalista en ákvörðun skólanefnd-
ar stendur og gæsluvellimir verða
aflagðir.
í nýrri fundargerð nefhdarinnar
segir að í febrúar og mars hafi að-
eins sótt gæsluvellina að staðaldri 12
börn sem ekki era á leikskóla nú
þegar eða á biðlista eftir leikskóla-
plássi. Aftur á móti sæki 46 böm
gæsluvellina sem era annaðhvort á
leikskóla eða á biðlista. I bókuninni
segir að þegar nýr leikskóli rís við
Iðavelli og biðlistinn eftir leikskóla-
plássi tæmist miðað við núverandi
forsendur ætti aðsóknin að gæslu-
völlunum að dragast enn saman frá
því sem nú er. Þá ákvað skólanefnd-
in að þangað til nýi leikskólinn verð-
ur opnaður verði einn gæsluvöllur
starfræktur í bænum, Eyrarvöllur.
-gk
Sumarnótt í Mýrdal.
Buslað í fjörunni. Hjörleifshöfði í
baksýn.
Mýrdælskur
eilífðar-
himinn
DV, SUDURLANDI
Þær eru oft fallegar, sumar-
næturnar í Mýrdalnum. Nú,
þegar sumarið er komið enn á
ný, eru nætumar farnar að
styttast, mörgum til mikillar
gleði. Þetta sjónarspil á mýr-
dælskum næturhimni er til
marks um hve náttúran getur
verið okkur stórfenglegt sjónar-
spil og skapað myndir og sýnir
sem erfitt er aö láta úr huga
renna. Þessi himnasýn er frá
Vík til fjalla. í baksýn er Mýr-
dalsjökull, til hægri er Hatta og
vinstra megin er Grafarhöfuð
eins og steinrunnið andlit sem
vakir yfir öllu en virðir þó fyrir
sér sköpunarverk náttúrunnar.
-NH
14" sjónvarps- og
myndbandstæki, sambyggt
Cassiopeia lófatölva
Hárblásari
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 - SfMI 569 1500
umboðsmenn um land allt