Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Fréttir
DV
61,4 milljaröa vegafé á fjórum árum:
Dygðu fyrir 2 sólarlandaferðum
- og einni Lundúnareisu aö auki fyrir hvern einasta íslending
Á fjórum árum, eða fram til ára-
móta 2004, er áætlað að nota 61 þús-
und og fjögur hundruð milljónir
króna til vegaframkvæmda á ís-
landi. Ekki gera þó allir sér grein
fyrir stærð þessara talna. Fyrir þá
peninga mætti t.d. kaupa hús á
Spáni fyrir flmmtung þjóðarinnar.
Þó flestir hafi ekki talið vanþörf á
átaki í vegamálum og jafnvel of lít-
ið í lagt þá má líka skoða þessa
hluti í öðru ljósi. Til að átta okkur á
þeim upphæðum sem þama um
ræðir mætti t.d. deila þeim niður á
íbúa landsins.
Ef við skoðum tölur um fólks-
fjölda á íslandi eins og hann var 1.
desember 1999 þá voru íbúar lands-
ins 287.702 talsins. Sextíu og einn
komma Qórir milljarðar króna þýða
að framlag til vegagerðar mun
nema á þessu árabili sem svarar ríf-
lega 213 þúsund krónum á hvert
mannsbarn í landinu. Fyrir hverja
fjögurra manna fjölskyldu er þetta
nákvæmiega 853.661 króna.
Hús á Spáni
Leikarinn Þórhallur Sigurðsson,
öðru nafni Laddi, hefur verið að
selja íslendingum íbúðir á Spáni og
þegar hafa nokkrir slegið til. Hann
segir mikinn áhuga á þessum íbúð-
um, enda séu þær á góöum stað í
landi þar sem sól er á lofti yfir 300
daga á ári. Vetrarhitinn fer kannski
niður í 15-17 gráður. Hann segir að
íbúð i raöhúsi með tveimur svefn-
herbergjum kosti þar á bilinu 5-6
milljónir króna. Ef við gefum okkur
að allir vegapeningamir næstu fjög-
ur ár verði notaðir til íbúðakaupa á
Spáni þá liti dæmið trúlega þokka-
lega út fyrir Ladda. Ef við gefum
okkur að hann veiti talsverðan
magnafslátt og við fáum hverja íbúð
á 4,5 milljónir króna, þá fengjust
fyrir þessa peninga 13.555 íbúðir.
Það þýðir að 54.220 íslendingar
gætu eignast hús í sólinni. Það eru
rétt eins og allir ibúar Hafnarfjarð-
ar, Garðabæjar, Bessastaðahrepps,
Kópavogs og Seltjamaness til sam-
ans.
Ef við ákveðum hins vegar að
vera ekki svona flott á því heldur
láta sólarlandaferð duga fyrir
mannskapinn þá litur dæmið samt
ágætlega út. Miðað við að hver ein-
asti íbúi landsins fari með um
hundrað þúsund krónur í flug, gist-
ingu og uppihald þá duga þessir
fjármunir til að bjóða öllum íslend-
ingum í tvær sólarlandaferðir og
þeir gætu þar að auki skroppið í
eina Lundúnaferð þegar vel stæði á
á næstu fjórum árum. -HKr.
Nóatúnsbúð í Keflavík:
Bærinn gleymdi
grenndar-
kynningu
- nágrannar kærðu
Framkvæmdir við byggingu
stórmarkaðar Nóatúns við Hafnar-
götu í Keflavík vom stöðvaðar
seint á miðvikudag og byggingar-
leyfi afturkallað af byggingafull-
trúanum í Reykjanesbæ. Grennd-
arkynning hafði farist fyrir og
verkinu seinkar um allt að fjórar
vikur, að sögn Halldórs Ragnars-
sonar, verktaka í Húsanesi hf., og
trúlegt er að bæjaryfirvöld Reykja-
nesbæjar þurfi að greiða allháar
skaðabætur. Málið var til umræðu
í bæjarráði í gærdag.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þetta gerist og auðvitað er það
mjög bagalegt að þurfa að stoppa
framkvæmdir," sagði Halldór í
gær.
Gunnar Már Eðvarðsson, að-
stoðarmaður byggingafuEtrúa
Reykjanesbæjar, kannaðist við að
mistök hefðu orðið hjá embættinu,
grenndarkynning var ekki full-
nægjandi. Gunnar Már sagði að
þama hefðu átt sér stað leið mis-
tök.
„Það sem menn misstigu sig á
var að byggingin var færð til á lóð-
inni frá upphaflegri tillögu. Það
hefði þurft að fara í formlega
grenndarkynningu," sagði Ellert
Eiríksson bæjarstjóri í gær. í gær
og í dag er verið að útbúa kynn-
inguna og i kvöld ætlaði bygginga-
fulltrúi aö fara fótgangandi og i
eigin persónu til allra þeirra sem
grenndarkynninguna eiga að fá.
Framkvæmdir ættu að geta hafist
að nýju eftir 5 vikur en búið er að
steypa sökkla. -ÞGK/JBP
Þrenn jarögöng á teikniborðinu:
21 göng til viðbótar á óskalista
- efst á blaði eru þrenn á Vestfjörðum og fimm á Austfjörðum
Samkvæmt fyrir-
liggjandi hugmyndum
um jarðgangagerð á ís-
landi og flýtingu fram-
kvæmda eru nú þrenn
jarðgöng að komast á
teikniborðið. Hug-
myndir em einnig fyr-
irliggjandi um gerð
tuttugu og einna jarð-
ganga til viðbótar.
Þrenn göng á 10,3
milljarða
Samkvæmt jarð-
gangaáætlun sam-
gönguráðherra em þau
göng sem nú er ætlun-
in að ráðast í að undir-
búa framkvæmdir við á
milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar, milli
Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar og á miUi Reyð-
arfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar. Samkvæmt
kostnaðaráætlun er
reiknað með að göngin
þrenn kosti um 10,5
mOljarða króna og verði lokið á
næstu átta árum. Það þýðir árlegan
kostnað upp á 1,1 milljarö króna.
Gert er ráð fyrir að Dýrafjarðar-
göng verði einbreið og kosti um 2,2
milljarða króna. Siglufjarðargöng
verða tvibreiö og munu kosta um
5,3 milljarða króna og Reyðarfjarð-
argöng verða einnig tvíbreið og
munu kosta um 3 milljarða króna.
Óshlíö vi/sigluQöröur
. Súöavík
t Pýrafjöröur Eyrarflall
. Dynjandishelöl Vaölahelöl Vopnafjöröur
» Trollatunguheiöi Kiettsháls . Öxnadalshelöl Seyölsflöröur Noröfjörður
/Kolgrafarfjöröur Reyöarfjöröur ) Fáskrúösfjöröur
Brattabrekka Skrlðdalur f Stöövarflöröur Undir Berufjörö ,Jj
Almannaskarö.
ÍfHelllshelöl
Vestmannaeyjar /Reynlsfjall
m
21 göng á óskalista
Samkvæmt jarðgangaáætlun sam-
gönguráðherra telur Vegagerðin að
tuttugu og ein jarðgangafram-
kvæmd eigi að koma til skoðunar
síöar. Þær eru í landfræðilegri röð:
1. Staðarsveit-Kolgrafarfjörður.
2. Brattabrekka.
3. Klettsháls.
4. Dynjandisheiði.
5. Óshlíð.
6. Ísafjöröur-Súðavik.
7. Eyrarfjall í Djúpi.
8. Tröllatunguheiði.
9. Öxnadalsheiði.
10. Vaðlaheiði.
11. Vopnafjörður-Hérað.
12. Seyðisfjörður-
Iiérað/Norðfjörður.
13. Norðfjörður-
Eskifiörður.
14. Fáskrúðsfiörð-
ur Stöðvarfiörður.
15. Stöðvarfiörður-
Breiðdalsvik.
16. Skriðdalur-
Berufiörður.
17. Undir Berufiörð.
18. Almannaskarð.
19. Reynisfiall í
Mýrdal.
20. Vestmannaeyjar.
21. Hellisheiði.
Ýmsar aðstæður í
byggðaþróun, breyting-
ar á samgöngumynstri
og áherslum í gerð
samgöngumannvirkj a,
ásamt framþróun vega-
kerfisins almennt eru
talin ráða hugsanlegri
framkvæmdaröð. í
áætlun ráðherra er
talið að innan nokk-
urra ára þurfi að taka
ákvörðun um hvert áð-
urnefndra verkefna
eigi að setja á rann-
sóknastig. Ekki er þó búist við að
framkvæmdir vegna þeirra gætu
hafist fyrr en eftir tíu ár.
Lagt er til að jarðgangaáætlun
verði til tíu ára í senn og endur-
skoðuð á fiögurra ára fresti. Líklegt
er talið að eftir fiögur ár verði ein-
hver af verkefnum nr. 5-7 á Vest-
Qörðum sett í forgang og nr. 11-15 á
Austfiörðum. -HKr.
Vedri& r kvöíd
Enn blæs úr suðri
Suðaustan 5-10 m/s suðvestan til en annars
hæg suðlæg átt eöa hafgola. Skýjað og sums
staðar súld sunnanlands og á annesjum
vestanlands en annars bjart veður. Áfram
verður hlýtt í veðri, einkum norðaustan- og
austanlands.
Sólargangur og sjávarföff | Vedríö á rnorgun
Sólariag í kvöld
REYKJAVIK AKUREYRI
22.32 22.35
Sólarupprás á morgun 04.15 03.42
Síödeglsflóö 15.21 19.54
Ardegisflóð á morgun 03.38 08.11
SiíýúBgar á ysíbmiakmm *—Hm 151 -10°
^VINDSTYRKUR 1 niðtnim á sekfindu *Vrost HEIDSKÍRT
M 43 O
LETTSKYJAÐ HALF- SKÝJAÐ SKYJAÐ ALSKYJAÐ
RIGNING O SKÚRIR 'W’ SLYDDA Q SNJÓKOMA
Q &
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞÖKA
Smttatti
Veðurblíða um helgina
Það hefur veriö sannkölluö sumarblíöa
á landinu að undanförnu, einkum fyrir
noröan og austan þar sem mælar hafa
sýnt hátt í 20 stiga hita. Það er útlit
fyrir áframhaldandi hlýindi um helgina
og því upplagt að nýta sér það, skella
sér í sólbaö eöa fá sér ís með
börnunum. Eftir helgi veröur þaö of
seint því þá mun hann rigna að nýju,
flestum til armæöu en sumum til gleöi.
Hlýindi fyrir norðan
Búast má við suðlægri átt, 5-10 m/s. Bjart veöur og víða 15 til 20 stiga
hiti um landið noröaustanvert en víða rigning og hiti á bilinu 7 til 12 stig
sunnan- og vestanlands.
Miamirdi
Þfidjií.tía m Mióvi
Vinriur:
5-10 m/s
Hiti 8* til 15°
Vindur:
3-8 m/»
Hiti 7°til 14°
44
Vindun
8-12
Hiti 5° til 10°
Á mánudag er spáó
austlægri átt um mest altt
land og vætusömu veöri.
Áfram veröur fremur hlýtt.
Á þriöjudag er spáö
áframhaldandl austlægri
átt um mest allt land og
vætusömu veöri. Enn
veröur fremur hlýtt.
Á mlövikudag snýst í
norölæga átt meö rignlngu
eöa súld noröan- og
austanlands. Kólnandi
veöur.
AKUREYRI léttskýjaö 19
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 19
B0LUNGARVÍK skýjaö 10
EGILSSTAÐIR 19
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 10
KEFLAVÍK þokumóöa 8
RAUFARHÖFN léttskýjaö 12
REYKJAVÍK úrkoma 9
STÓRHÖFÐI þokumóöa 6
BERGEN léttskýjaö 13
HELSINKI úrkoma 7
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 14
ÓSLÓ léttskýjaö 15
STOKKHÓLMUR 9
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 10
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 11
ALGARVE léttskýjaö 21
AMSTERDAM skýjað 22
BARCELONA mistur 19
BERLÍN heiöskírt 17
CHICAGO
DUBUN þokumóöa 11
HAUFAX alskýjaö 5
FRANKFURT rigning 19
HAMBORG léttskýjaö 19
JAN MAYEN léttskýjaö 0
LONDON skýjaö 19
LÚXEMB0RG rigning 15
MALLORCA léttskýjaö 28
MONTREAL heiöskírt 12
NARSSARSSUAQ
NEW YORK alskýjaö 15
ORLANDO heiöskírt 23
PARÍS skýjaö 20
VÍN léttskýjaö 26
WASHINGTON hálfskýjaö 18
WINNIPEG þoka 6
iiW4nd:hl|Ji.SMI.-HIII.',H:Wltllll:m.lJIII.-iH.'liM