Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 Helgarblað mmmm Systurnar þögðu yfir leyndarmáli í 20 ár: Skerandi óp móður um miðja nótt Það var úði um nóttina þann 11. nóvember 1979. Það sást ekki kött- ur úti á götu í bænum Isselburg í Nordhrein-Westfalen í Þýska- landi. Vindurinn gnauðaöi á gluggunum í rauðu múrsteinshúsi i bænum. Það var slökkt í öllum húsum götunnar nema i þessu. Skyndilega heyrðist skerandi óp um miðja nóttina frá rauða hús- inu. Litlu stúlkumar í húsinu, Nicole, sem var 7 ára, og Sandra, sem var 10 ára, vöknuðu skelfingu lostnar. Hvaða hljóð var þetta? Hver hafði æpt? Stúlkumar litu hræddar hvor á aðra. Þær heyrðu nú foreldrana rífast, hvorki mikið né lengi því skyndilega heyrðu þær dynk. Eldri telpan, Sandra, steig fram úr rúmi sínu og gekk að baðher- berginu. Hún sá móður sína liggja í baðkerinu. Faðir hennar stóð í dyrunum og sagði: „Mamma er í baði. Farðu bara aftur að sofa vin- an.“ Móöirin Hin lífsglaöa Erika Hebing ,,svipti sig lífi“ daginn eftir aö hún keypti sér bíl sem hún haföi lengi hlakkað til aö eignast. svipt sig lífi.“ Lögreglan fann Eriku Hebing, sem var 28 ára, nakta og látna í baðkerinu sem var fullt af vatni. Hún var með gardínusnúru um hálsinn. Annar endi hennar var festur við handsturtuna. Heimilis- læknir fjölskyldunnar skrifaði dánarvottorðið. Dánarorsökin var sögð sjálfsmorð. Réttarlæknir frá háskólasjúkrahúsinu í Múnster komst að sömu niðurstöðu: Erika Hebing hafði án nokkurs vafa svipt sig lífi. Lögreglan hætti því rannsókn sinni. Engum datt i hug að yfir- heyra litlu stúlkurnar. Þær voru jú bara börn, atburðurinn hafði átt sér stað eftir miðnætti og sjálf- sagt hefðu þær legið í fasta svefni þegar móðir þeirra tók þessa hræðilegu ákvörðun um að stytta sér aldur. Og faðirinn hafði ekki sagt neitt við Söndru til þess að hræða hana ekki. Þetta var mjög tillitssamur faðir. Fyrningarfrestur Þann 9. nóvember 1999 gekk Werner Hebing, sem var 53 ára, hvíldarlaust fram og aftur um íbúðina sína. Hann leit enn einu sinni á dagatalið og þvi næst taugaóstyrkur á úrið sitt. Nú voru aðeins 48 klukkustundir þar til, sem sagt aðeins 2 dagar, liðin væru 20 ár og fymingarfresturinn þar með búinn að taka gildi. Þetta höfðu ekki verið skemmtileg ár, heldur þvert á móti. Þau voru hins vegar senn á enda og hann var enn frjáls maður. Bráðum gæti hann slappað alveg af. Honum skjátlaðist hrapallega. Þegar Werner Hebing hafði nótt- ina 1979 sent Söndru dóttur sína aftur í rúmið beið hann lengi þar til dætumar féllu aftur í svefn. Eftir það hringdi hann til lögregl- unnar og sagði: „Konan mín hefur Systurnar Nicole og Sandra þögöu í 20 ár yfir hræöulegu leyndarmáli. Töluöu aldrei um ópin Árin liðu og Nicole og Sandra uxu úr grasi. Þær giftu sig og eignuðust sjálfar börn. Þær töluðu aldrei um ópin sem þær höfðu heyrt nóvembernóttina 1979. Þær ræddu heldur ekki um rifrildi for- eldranna. Systurnar nefndu þetta aldrei við annað fólk, ekki einu sinni við eiginmenn sína. Þær voru þögular, eins og þær vildu af- neita þessu - þar til faðir þeirra kvæntist aftur. Þar með þótti þeim hann sýna að hann væri bú- inn að vinna bug á sorginni vegna „sjálfsmorðs" móður þeirra og þá trúðu þær frænku sinni fyrir mál- inu. Þær sögðu henni frá því hversu lífsglöð móðir þeirra hefði verið. Hún hefði alltaf verið í góðu skapi og þær hefðu gert margar glæsi- legar framtíðaráætlanir með henni. Þær sögðu henni að daginn fyrir „sjálfsmorðið" hefði móðir þeirra keypt sér nýjan bíl sem hún hafði hlakkað til í marga mánuði að eignast. Systurnar sögðu jafnframt í fyrsta sinn frá rifrildi foreldranna og ópinu sem þær höfðu vaknað við. Og Sandra greindi frá því að hún hefði séð móður sína liggja í baðkerinu og að faðir hennar hefði sent hana aftur 1 rúmið. Faöir þeirra þrátt fyrir allt „Þið skuluð strax tilkynna lög- reglunni þetta,“ sagði frænkan en systurnar hikuðu. Þær mundu eft- ir hversu sorgmæddur faðir þeirra hafði verið við fráfall móð- urinnar. Hafði það bara verið hræsni? Þær vissu það ekki og gátu heldur ekki vitað það. Hann var auk þess þrátt fyrir allt faðir þeirra og ef til vill var hann sak- laus. Þess vegna ákváðu þær fyrst að leita til lögmanns til að biðja hann að rannsaka málið nánar. Þær höfðu ekki tækifæri til að lesa skýrslu lögreglunnar en það hafði lögmaðurinn. Þegar hann hafði skoðað skýrsluna sá hann að i Rauða múrsteinshúsið Hús Hebing-fjölskyldunnar var í bænum Isselburg í Þýskalandi. Þaö var frá þessu húsi sem óp barst vetrarnótt eina fyrir 20 árum. Faðirinn Werner Hebing meö Söndru dóttur sinni. Þegar Sandra vaknaöi um nóttina við ólæti sendi hann hana aftur í rúmiö. „Engum datt í hug að yfirheyra litlu stúlk- urnar. Þær voru jú bara börn, atburðurinn hafði átt sér stað eftir miðnætti og sjálfsagt hefðu þær legið í fastasvefni..." henni stóð ekkert um bílkaup móðurinnar, ópið um nóttina, rifr- ildið eða aðstæðurnar þegar Sandra sá móður slna í baðker- inu. Lögmaðurinn ákvað að rann- saka málið frekar. Hann komst að því að nágrannar fjölskyldunnar höfðu einnig heyrt skerandi óp frá rauða múrsteinshúsinu fyrr- nefnda nótt 1979. Léleg lögreglurannsókn Með þessar upplýsingar í farteskinu hélt lögmaðurinn til lögreglunnar. Hún hóf strax rann- sókn á ný og bað um skýrslu rétt- arlæknisins frá háskólasjúkrahús- inu í Múnster. Nokkrir mánuðir liðu hins vegar áður en skýrslan barst. Og á meðan nálgaðast sú stund að fyrningarfrest- urinn vegna mögulegs glæps tæki gildi. Loksins barst niður- staða réttarlæknisins. Hún var sú að allt benti til að glæpur hefði verið framinn og að rannsókn lögreglunnar á sínum tíma hefði verið ábótavant. Brotnaöi niður Siðdegis þann 9. nóv- ember sótti lögreglan Werner Hebing. Það átti einungis að yfir- heyra hann en þegar Hebing frétti um ástæðu yfirheyrslunnar brotn- aði hann niður. Hann viður- kenndi glæpinn á augabragði. Greinilegt var að honum létti við að geta talað um voðaverk sitt. Hann greindi frá því að hjónaband hans og Eriku hefði verið slæmt. Hann sagði það rétt sem dætur hans hefðu sagt um rifrildið um nóttina. Það hefði farið úr böndunum og hann hefði síðan kyrkt konuna sína með gardínusnúrunni. Werner Hebing bíður þess nú að réttað verði yfir honum. Dætrum hans líður iUa. Þær hafa fengið aðstoð sálfræðings því að atburðurinn, sem átti sér stað fyrir 20 árum, varð aftur ljóslifandi fyrir þeim. Menn velta því fyrir sér hvers vegna þær þögðu yflr grunsemdum sínum í 20 ár. Lögmaður þeirra telur sig vita skýringuna. „Þær vildu ekki einnig missa fóður sinn í kjölfar dauða móðurinnar. Þess vegna skipti það ekki máli hvað hann hafði gert. Þó svo að þær væru bara sjö og tiu ára gamlar vissu þær að bamaheimilið biði þeirra yrðu þær sviptar föður sínum." Heimskuleg morðáætlun Cranog Jones var þreyttur á konunni sinni og vildi skipta á henni og vngri.s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.