Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 11
11 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 X>V Skoðun Gömul gildi og gervimiðlar Fyrir skömmu var ég fenginn til að halda erindi á ráðstefnu ÍMARK, félags markaðsfólks, um áhrif fjöl- miðla á fyrirtæki. Af einhverjum ástæðum sem mér eru ekki ijósar fór erindi mitt eitthvað öfugt ofan í annan fyrirlesara sem hefur at- vinnu af því að hjálpa fyrirtækjum i samskiptum við fjölmiðla og al- menning - sinnir á tinu máli al- mannatengslum. Ekki þarf að eyða mörgum orðum um þá staðreynd að ímynd fyrir- tækja getur ráðið úrslitum um vel- gengni þeirra, hvort heldur er á al- mennum hlutabréfamarkaði eða á samkeppnismarkaði þar sem keppt er um hylli almennings. Þetta vita forráðamenn fyrirtækjanna manna best og því leggja þeir mikla áherslu á að byggja upp rétta ímynd og allt er það meira eða minna gert með hjálp sérfræðinga. Til að byggja upp eða styrkja ímynd sína þurfa fyrir- tæki á fjölmiðlum að halda og leggja því rækt við tengslin annaðhvort beint eða óbeint eins og berlega hef- ur komið í ljós í tengslum við norð- urpólsfor Haralds Arnar Ólafsson- ar. Gervimiðlar Ég hef áður í þessum pistlum bent á að samkeppnin um athygli almennings hefur margfaldast á undanfornum árum og hún á eftir að harðna á komandi árum, sam- hliða aukinni fjölbreytni í miðlun upplýsinga- og afþreyingarefnis. Þessi aukna samkeppni kallar á gjörbreytt vinnubrögð og viðhorf þeirra sem standa í atvinnurekstri, stjórnmálum, listum, reka íþrótta- og mannúðarfélög - í raun allra sem á einn eða annan hátt þurfa að koma upplýsingum á framfæri. Að hluta tii hefur þessi aukna samkeppni um athygli orðið vegna Laugard; Óli Björn Kárason ritstjóri byltingar í fjölmiðlun og því miður hafa gervimiðlar hvers konar náð að skjóta rótum í skjóli byltingar- innar. Þessum gervimiðlum fjölgar stöðugt, hvort heldur er á öldum ljósvakans, á Internetinu eða á pappír. Gervimiðlar, sem ég vil kalla svo, byggja alla tilveru sína á subbulegum tengslum við fyrirtæki þó sumir reyni eftir mætti að fela þessi tengsl með því að klæða þau í viðeigandi búninga. Um slika fjöl- miðla hef ég lítið að segja annað en ég óttast þá. Þetta hefur aftur leitt til þess að sífellt verður auð- veldara fyrír fyrirtœki og hagsmunaaðila að mis- nota fjölmiðla - fá þá til að gera ýmislegt sem aldrei hefði veríð fallist á ef gildi heiðarlegrar blaðamennsku hefðu fengið að ráða. Hér er ekki rúm til að verja mörgum orðum um gervimiðla en vert er að benda á að þeir eru þegar famir að smita út frá sér og þeir fjölmiðlar og fjölmiðlungar sem vilja láta taka sig alvarlega eru farnir að leggja heiðarleg sjónarmið blaðamennskunnar til hliðar. Þeir eru smátt og smátt að verða eins konar skemmtikraftar - fréttir eru færðar í skemmtibúning eða hreint afþreyingarefni er matreitt sem fréttaefni. Afleiðingin er sú að skil- in milli frétta og afþreyingar verða æ óljósari og almenningur stendur eftir varnarlaus. Þetta hefur aftur leitt til þess að sífellt verður auðveldara fyrir fyrir- tæki og hagsmunaaðOa að misnota fjölmiðla - fá þá til að gera ýmislegt sem aldrei hefði verið fallist á ef gildi heiðarlegrar blaðamennsku hefðu fengið að ráða. Þannig er trúnaðurinn sem við fjölmiðlungar eigum að gæta gagnvart lesandan- um, áhorfandanum, smátt og smátt að bresta. Trúverðugleiki fjölmiðla mun því með tímanum hverfa og þar með verður það tæki sem fyrir- tæki og markaðsmenn vilja gjaman nota til að koma á framfæri upplýs- ingum og sjónarmiðum ónýtt. Hin nýj'a stétt Breytingarnar á íslensku við- skiptalífi hafa verið stórkostlegar á undanfomum árum. Við sem vinn- um á fjölmiðlum höfum þurft að glíma við þessar breytingar og um- fjöllunarefni okkar verður sifellt flóknara, erfiðara og viðkvæmara viðfangs. Til að gera verkefnið enn erfiðara hefur komið fram á sjónar- sviðið ný stétt fagmanna sem hefur lifibrauð af því að mata fjölmiðla á upplýsingum, matreiða þær og hafa bein áhrif á efni og efnistök fjöl- miðla um einstök mál, fyrirtæki, stofnanir, stjómmálaflokka og jafn- vel einstaka stjómmálamenn. Fjöl- miðlar hafa ekki enn lært að um- gangast þessa nýju stétt sem að stór- um hluta er skipuð reyndum fjöl- miðlungum sem kunna sitt fag. Nýlegt dæmi um snjöll vinnu- brögð sérfræðinga í almannatengsl- um og markaðsmálum er hvemig fyrirtækinu Bakkavör hf. var kom- ið snyrtilega á framfæri í fjölmiðl- um nokkru áður en hlutafjárútboð fór fram. Undir yfirskini frétta var fyrirtækinu komið á framfæri á ljósvakamiðlum og opnugreinar birtust í prentmiðlum. Til að reka smiðshöggið á verkið tók fyrirtækið höndum saman við Skiðasamband Islands og hvatti fólk til að fara á skíði um páskana. Allt var þetta gert með vönduðum hætti og „PR- herferðin" heppnaðist vonum fram- ar eins og reynslan sýnir. Lítið fór hins vegar fyrir að fiölmiðlar legðu sjálfstætt mat á fyrirtækið sem fiár- festingarkost - úttekt á fiárhags- stöðu, arðsemi og framtíðarmögu- leikum fyrirtækisins skipti litlu. Raunveruleg blaðamennska var því ekki í aðalhlutverki að þessu sinni. Með því að setja blaðamennsku í aukahlutverk var ekki verið að þjóna almenningi og ég dreg í efa að hagsmunir Bakkavarar hafi legið í því að draga ekki upp ítarlega mynd af rekstri og efnahag, enda hluta- bréf fyrirtækisins að likindum sér- staklega góður kostur. Heiðarleg blaðamennska þar sem gömul og góð gildi blaðamennsk- unnar eru í heiðri höfð er besta. trygging fiölmiðla fyrir árangri og um leið eftirsóknarverð fyrir fyrir- tæki og almenning. Pjölmiðlar eiga það hins vegar á hættu að vera teknir herskildi annaðhvort af eigin heimsku og bamaskap eða af sér- hagsmunum og snjöllum talsmönn- um fyrirtækja og stofnana sem sér- hæfa sig í því að búa til leiktjöld hálfsannleika fyrir fiölmiðlamenn og almenning. Það væri nöturlegt ef okkur tækist í sameiningu, fiölmiðl- ungum, sérfræðingum í almanna- tengslum og forstjórum fyrirtækja að eyðileggja fiölmiðla - sameigin- legt tæki til miðlunar upplýsinga. Úrelt mótmæli „Einn galli á nýlegum mót- mælum gegn Al- þjóðabankanum er sá að þau voru ekki í takt við tímann. Bankinn var sakaður um að fiármagna orkuver sem skaða umhverfið en síðan 1980 hefur hlutfall lána hans til orkufyrirtækja fallið úr 21 prósenti í 2 prósent og flest verkefn- in eru núna háð umhverfismati. Bankinn var einnig sakaður um að setja iðnþróun ofar fólki en á síð- ustu tveimur áratugum hafa lán til mennta- og heilbrigðismála og mat- væla rokið úr 5 prósentum í 25 pró- sent. Á vorfundinum í Washington kom þessi stefnubreyting enn frekar í Ijós þegar bankinn lofaði nýjum framlögum til baráttunnar gegn al- næmi. Nýlega voru gefin frekari lof- orð í menntamálum. James Wol- fensohn bankastjóri hét því að ekk- ert þróunarland sem leggur fram skynsamlega áætlun um almenna skólagöngu færi tómhent heim.“ Úr forystugrein Washington Post 11. maí. Jesse til Sierra Leone „Clinton forseti ætlar að senda Jesse Jackson til svæðisins (til Si- erra Leone) til að reyna að koma friðarviðræðum aftur af stað. Sem liður i því verður að endurskoða gildandi friðar- samkomulag. Megingallar þess voru að gefa (upp- reisnarleiðtogan- um) Sankoh og mönnum hans upp sakir fyrir stríðsglæpi og hafa hann með í bráðabirgðastjórn, í embætti sem veitti honum yfirráð yfir ábatasömum gimsteinaviðskipt- um Sierra Leone.“ Úr forystugrein New York Times 12. mai. Mega ekki gefast upp „Viðvörunarmerkið frá Sierra Le- one má ekki vera: þeir bjargi sér sem bjargað geta. Með Bretland í fararbroddi flytja Vesturveldin sína eigin þegna frá Freetown. Þau láta ræna illa útbúnum hermönnum Sameinuðu þjóðanna frá Afríku og Asíu og svipta þá búnaði sínum. Þúsundir fórnarlamba fyrri her- ferða „varaforsetans", demantaræn- ingjans og þjóðarmorðingjans Foda- ys Sankohs sýna hvað getur gerst með þjóð sem lendir í höndum hans. Hann hefur að engu friðarsam- komulagið sem Sameinuðu þjóðirn- ar komu á í fyrra milli hans og for- seta landsins. Uppgjöf fyrir veldi glæpamanna má ekki verða stefna Sameinuðu þjóðanna." Úr forystugrein Aftonbladet ll.maí. Alger hræsni „Poul Nyrup Rasmussen lendir í dag í Peking í upphafi sex daga heimsóknar sinnar í Kína. Forsæt- isráðherrann kemur til lands þar sem, sam- kvæmt Amnesty International, 1077 dauðadómum hefur verið fram- fylgt og þar sem íbúarnir eru enn i járngreipum. Samtímis því sem hafnar eru viðræður við Kína er refsiaðgerðum gegn Austurríki haldið áfram. Hræsnin er alger. í Kína situr stjóm, sem með aðgerð- um sínum traðkar á lýðræði og mannréttindum. I Austurríki situr stjóm, sem með aðgerðum sínum hefur lofað að virða minnihluta og mismunandi kynþætti, trúarbrögð og stjórnmálaskoðanir jafnvel þótt einn af stjómarflokkunum, Frelsis- flokkurinn, hafi haft leiðtoga sem í æsku lét ógeðfelld orð falla um Þriðja ríkið.“ Úr forystugrein Jyllands-Posten 7. maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.