Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 64
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gastt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Keflavíkurmorðið:
Enn unnið
að rannsókn
Lögreglan í Reykjanesbæ vinnur
enn að rannsókn Keflavíkurmorðs-
ins svokallaða. Ung kona, Áslaug
Óladóttir, beið bana eftir að Rúnar
Bjarki Ríkharðsson réðst inn á
heimili hennar að morgni 15. apríl
sl.
Rúnar Bjarki, sem er 21 árs, var
handtekinn sama dag og játaði hann
verknaðinn við yfirheyrslur. Hann
er í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Talið er víst að dauði Áslaugar
tengist nauðgunarmáli sem átti sér
stað í Reykjanesbæ í mars. Rúnar
Bjarki er sakaður um að hafa
nauðgað fyrrverandi unnustu sinni
og bar Áslaug vitni gegn honum í
því máli.
„Rannsókn á því máli er svo gott
sem lokið og það verður sent til sak-
sóknara innan tíðar,“ sagði Þórir
Maronsson, yfirlögregluþjónn í
Reykjanesbæ.
Alþingi
fundar enn
Ekki tókst að ljúka umræðum og at-
kvæðagreiðslum í gær um þau mál
sem enn voru á dagskrá Alþingis þeg-
ar fundur hófst þar í gærmorgun. Al-
þingismenn voru að tram á kvöld en
umræðum um samgöngumál og
skattamál forseta íslands hafði verið
frestað til klukkan niu í dag en ekki
var ljóst hvort umræðum um fleiri
mál yrði frestað. Búast má við því að
þinghaldið þurfl að halda áfram á
mánudag þannig að þingmenn komast
ekki í sumarfrí enn um sinn. -GAR
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
5
LU
>
o
z
í
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
DV-MYND GVA
Byggt við Öxarárfoss - leiðin frá bílastæðum að hátíðarsvæði
7/7 aö gestir á kristnitökuhátíð komist einfaida og fallega leið frá bílastæðum niður að hátíðarsvæði er verið að byggja
tröppur, sjá t.v., paila og brýr niður að völlunum þar sem hátíðin fer fram. Sjá nánar á bls. 6.
Menningarborg 2000:
Erfingjar
stöðva kvik-
myndasýningu
Erfingjar Óskars Gíslasonar kvik-
myndagerðarmanns hafa komið í
veg fyrir að kvik-
mynd Óskars,
Reykjavík vorra
daga, verði sýnd á
vegum Menning-
arborgar 2000 og
Kvikmyndasafns ts-
lands í Háskólabíói á
sunnudaginn. Sættu erf-
ingjar Óskars sig ekki við að búið
var að stytta myndina um heilar
þrjár kiukkustundir en upphaflega
útgáfa myndarinnar tekur fjóra
tíma í sýningu.
Að sögn Sigurjóns Baldurs Haf-
steinssonar, safnstjóra í Kvik-
myndasafni íslands, voru einnig
tæknilegir örðugleikar á sýningu
myndarinnar.
Menningarborg 2000 hafði sent út
fjölmörg boðskort af þessu tilefni og
munu boðsgestir ganga bónleiðir til
búðar á sunnudaginn vegna
óánægju erflngja Óskars Gíslasonar
með styttingu myndarinnar. Reynt
verður að sýna Reykjavík vorra
daga í ásættanlegri lengd i septem-
ber að sögn Sigurjóns Baldurs Haf-
steinssonar.
Ögmundur Jónasson útilokar ekki sérframboð Vinstri-grænna til borgarstjórnar:
R-listinn er haldinn
einkavæðingaráráttu
„Það er að eiga sér stað uppstokk-
un í islenskum stjómmálum sem á
sér málefnalegar rætur.
Þvi fyrr sem menn losa sig við
þær söguskýringar sem þeir eru að
daðra við núna, því betra,“ segir Ög-
mundur Jónasson, alþingismaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs í Reykjavík, um stöðu
síns flokks í sambandi við Reykja-
víkurlistann. Hann segir fólk vera
að koma til liðs við nýjar stjóm-
málahreyfingar á sínum eigin for-
sendum.
„Við höfum markað mjög skýra
stefnu sem er frábrugðin stefnu Sam-
fylkingar i ýmsum veigamiklum mál-
um. Það mun ráðast á sveitarstjórnar-
vettvangi sem á landsvísu hvemig
málefni skipast. Við munum taka af-
stöðu til framboða á grundvelli mál-
efna,“ segir Ög-
mundur.
Hann segist
hafa sterkan fyrir-
vara við ýmislegt
í stefnu Reykja-
víkurlistans.
„Ég hef verið
mjög gagnrýninn
á stefnu R-listans í
málum á borð við
einkavæðingu þar
sem hart hefur verið gengið fram. Ég
fæ ekki betur séð en slík áform séu
aftur uppi gagnvart Strætisvögnum
Reykjavíkur. Ég minni á að SVR-mál-
ið varð öðrum fremur til þess að fella
Sjálfstæðisflokkinn i borginni á sín-
um tíma, þannig að ég hefði haldið að
fólk léti sér það að kenningu verða.
Gagnrýni min á R-listann á við í
mörgum málum og m.a. vegna þessar-
ar einkavæðingaráráttu og ég sé ekki
betur en þessi draugur sé að rísa upp
aftur núna í formi hugmynda um að
gera SVR að hlutafélagi," segir Ög-
mundur og bætir við að einmitt á
þessum forsendum taki menn afstöðu
til sameiginlegs framboðs.
Aðspurður um það hvort VG stefni
þá ekki í sérframboð sagði Ögmundur
það ráðast af málefnum.
„Ég get hugsað mér að við höfum
þau áhrif á stjóm borgarinnar að berj-
ast fyrir okkar hugsjónum. Hvaða
form sem sú barátta tekur er síðan
önnur saga,“ segir Ögmundur og telur
sjónarmið sín faila ahnennt að sjónar-
miðum annarra flokksmanna VG.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri-grænna, tók í sama streng og
sagði afstöðu til framboðs undir hatti
Reykjavíkurlistans ráðast fyrst og
fremst af málefnum.
„Menn standa frammi fyrir því,
hvað varðar samstarf innan sveitar-
stjórna, að flokkar sem stóðu að fram-
boðum í síðustu kosningum eru ein-
faldlega horfnir og aðrir komnir í
staðinn. Það blasir við ef litið er til
skoðanakannana að drjúgur hluti
þeirra sem kusu R-listann og önnur
sameiginleg framboð gefur sig upp
sem stuðningsmenn okkar. Nú á að
láta þetta kjörtímabil líða en setjast
síðan niðtu' þegar nær dregur kosn-
ingum og ákveða hvort um sameigin-
legt framboð verður að ræða eða
flokkarnir bjóði sjálfir fram,“ segir
Steingrímur J.
Sjá nánar fréttaljós: Með lík í lest-
inni á bls. 14 og tengdar fréttir á bls.
6. -rt
Ogmundur
Jónasson.
Vonir stóðu til í gær að pólfaraleiðangurinn kæmist til Kanada í dag:
Eurovision-kvöld í Ottawa?
- ásýndin heima verður breytt þegar ég kem, segir Haraldur Örn
„Ég hef spáð í það af og til hvað er
að gerast yflrleitt heima, grasið að
grænka og svo framvegis. Þegar ég
fór að heiman var vetrarbylur
þcumig að ásýndin verður breytt þeg-
ar ég kem. Ég heyrði fréttayfirlit á
Bylgjunni áðan (í gær) og hjó þá eft-
ir því að það er Eurovision-keppni
núna. Það hafði ég ekki hugmynd
um. Ætli það verði ekki bara
Eurovision-kvöld hjá okkur þegar
við verðum væntanlega komin til
Ottawa í Kanada á laugardagskvöld-
ið,“ sagði Haraldur Öm Ólafsson við
DV í gær. Þá var hann staddur á rek-
andi ísnum, um 3
kílómetra frá
norðurpólnum,
þar sem hann ætl-
aði 6 klukku-
stundum síðar,
um miðnættið í
gærkvöld, að taka
á móti Unu
Ómarsdóttur
konu sinni, bak-
varðasveitar-
mönnum og flugmönnum á Twin
Otter-vél.
Sólin skein á pólnum og frostið
var 10 stig fyrir utan tjaldið þegar
Haraldur sat þar inni og ræddi við
DV. „Ég get eiginlega varla verið í
flíspeysunni hér inni, það er það
heitt og ég svitna það mikið,“ sagði
Haraldur Öm. Góðar líkur vom á að
flugvélin gæti lent enda var hagstæð
veðurspá fram eftir kvöldi. Hins veg-
ar var ekki ólíklegt að veðrið breytt-
ist í nótt. Tækist leiðangrinum að
lenda með Harald Öm í Resolute í
morgun var gert ráð fyrir að hópur-
inn færi til Ottawa í kvöld og Boston
á morgun. Þaðan verður flogið til
Keflavíkur á mánudagsmorgni.
- En hvað langar pólfarann mest
að vita um hvað hefur verið að
gerast í fréttum þann tíma sem
hann hefur verið í burtu?
„Ég hef mestan áhuga á þjóð-
málaumræðunni, hvað er að ger-
ast í þjóðfélaginu. Síðan er ég for-
vitinn um heimsfréttirnar, hvem-
ig forsetaframboðin verða næst,
þingkosningarncU’ og hvernig hlut-
irnir ganga í Evrópu. Ég hef á síð-
ustu 2 mánuðum mest verið að
ímynda mér hvað hefur verið að
gerast.“
-Ótt