Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
DV
Fréttir
Uppreisnarforinginn Foday Sankoh í Sierra Leone:
Lét höggva hendur af
óbreyttum
borgurum
„Valdið og auðinn í hendur fólks-
ins.“
Þannig hljóðar áletrun á vegg-
spjaldi sem fannst utan við hús
Fodays Sankohs, uppreisnarforingja
í Afríkuríkinu Sierra Leone, sem
hópur mótmælenda lét greipar sópa
um í byrjun vikunnar. Þannig hljóð-
ar líka slagorðið sem Sankoh lagði
upp með þegar hann hóf stríð sitt
gegn stjórnvöldum í Sierra Leone
árið 1991.
Sankoh hitti í mark með slagorði
sínu. Sierra Leone, sem er auðugt
að demöntum, hafði lengið verið
stjórnað af spilltri valdaklíku sem
samanstóð af líbönskum kaupsýslu-
mönnum og innfæddum blökku-
mönnum úr borgunum. Margir
þessara innfæddu valdamanna voru
afkomendur leysingjanna, sem höf-
uðborgin Freetown er kennd við og
mynduðu þar forréttindastéttina.
Að uppræta spillinguna
Hinn gráskeggjaði Foday Sankoh,
sem nú er kominn á sjötugsaldur-
inn og hefur vart meira en barna-
skólamenntun að baki, var hins veg-
ar fulltrúi öreiganna í sveitum
landsins. Hann og hersveitir hans í
Sameinuðu byltingarsamtökunum
(RUF) segja að með hernaði sinum
1991 hafi þeir ætlað að uppræta þá
miklu spillingu og óstjórn sem ríkti
í landinu.
Víðtæk spilling og ólögleg við-
skipti með demanta hafa valdið því
að Sierra Leone er eitthvert fátæk-
asta land í heimi. Kanadískir eftir-
litsmenn segja að demöntum fyrir
milljónir dollara sé smyglað yfir
landamærin til nágrannaríkisins
Líberíu á hverjum degi og afrakstur
sölu þeirra sé notaður til að fjár-
magna stríðsrekstur uppreisnar-
manna.
Augu umheimsins hafa beinst aö
Sankoh og mönnum hans alla þessa
viku vegna þess að þeir halda í gísl-
ingu um fimm hundruð friðar-
gæsluliðum Sameinuðu þjóðanna og
láta ófriðlega. Gæsluliðamir voru
handteknir í vikubyrjun eftir að
ágreiningur kom upp milli þeirra og
uppreisnarmanna um tilhögun af-
vopnunar hinna síðarnefndu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa tæp-
lega níu þúsund friðargæsluliða í
Sierra Leone en þeim hefur gengið
erfiðlega að sinna störfum sínum
eins og skyldi.
Breskir hermenn komu til Sierra
Leone í vikunni og hafa þegar flutt
hundruð erlendra ríkisborgara á
brott.
Gamli friðargæsluliðinn
Það er hálfkaldhæðnislegt að
E!
mM
Foday Sankoh og menn hans skuli
halda friðargæsluliðum SÞ í gisl-
ingu í valdatafli sinu í heimaland-
inu. Sankoh var nefnilega sjálfur i
þessum sömu gæslusveitum fyrir
fjörutíu árum eða svo. Þá var hann
ungur undirforingi í breska ný-
lenduhemum og var sendur til
Kongó-Kinshasa sem þá hafði ný-
lega öðlast sjálfstæði. Sameinuðu
þjóðirnar sendu þangað hersveitir
til að reyna að koma aftur á friði.
Sankoh segist hafa fyrirskipað
þegar þeir reiddu sveðjurnar og ax-
imar til höggs.
Sankoh var dæmdur til dauða fyr-
ir landráð eftir að hersveitir Vestur-
Afríkuríkja, undir forystu Nígeríu-
manna, komu Ahmad Tejan Kabbah
forseta aftur til valda árið 1998, eft-
ir skammlífa herforingjastjórn. í
kjölfar friðarsamningsins sem und-
irritaður var i Lomé, höfuðborg To-
gos, þann 7. júlí 1999 voru Sankoh
og mönnum hans gefnar upp sakir.
Það sem meira er, Sankoh var gerð-
ur að varaforseta. Hann fer einnig
með yfirráð yflr náttúruauðlindum
landsins í ríkisstjórninni.
Friöargæsluliði SÞ i Sierra Leone
Indverskur gæsluliöi fylgist meö
brottflutningi útlendinga.
Pappírstigrisdýrið S.Þ.
Uppreisnarmennimir féllust á að
láta vopn sín af hendi í skiptum fyr-
ir sakaruppgjöf. Það hafa þeir aftur
á móti ekki gert. Þeir ráða nú yfir
demantanámum landsins og þær
gefa gott af sér. Þá hafa þeir gert
friðargæsluliðum S.Þ. erfitt fyrir,
einkum þó í demantahéruðunum.
„Þeir geta ekki neytt neinn til að
láta vopn sín af hendi og ef þeir
reyna það eiga þeir eftir að iðrast
þess,“ sagði Sankoh um gæsluliðana
í desember síðastliðnum. „Hvað
geta Sameinuðu þjóðirnar gert? Þær
eru bara pappírstígrisdýr."
En hvað svo sem segja má um
Foday Sankoh er nokkuð ljóst að
ekki verður fundin varanleg lausn á
vargöldinni í Sierra Leone án þátt-
töku hans.
Byggt á New York Times, Libér-
ation, Reuters, Aftenposten,
Washington Post, Aftonbladet og
Le Monde.
Trúarsetningar og maóismi
Fyrri helming síðasta áratugar
var Sankoh að mestu úti í frum-
skógum landsins þar sem hann
þjálfaði skæruliða sína og prédikaði
yfir þeim blöndu trúarsetninga, her-
Ahmad Tejan Kabbah
Forseti Sierra Leone situr viö völd í
skjóli friöargæslusveita SÞ sem eiga
í mesta basli meö aö hafa hemil á
uppreisnarmönnum Sankohs.
Á flótta undan vígamönnum
Þúsundir óbreyttra borgara í bænum Waterloo flúöu undan framsókn
uppreisnarmanna í vikunni og héldu til höfuöborgarinnar Freetown. Her
Sierra Leone tókst aö stööva sókn uppreisnarmanna og reka á flótta.
----------------------------------------------Blóði drifinn uppfcionofforingi
Foday Sankoh, leiötogi uppreisnarmanna í Vestur-Afríkuríkinu Sierra Leone, á blóöi drifmn feril að baki í heimalandinu.
Hann hóf hernaö gegn stjórnvöldum á árinu 1991 og allt þar til friöarsamningar voru geröir í fyrrasumar drápu menn
hans og limlestu þúsundir óbreyttra borgara. Sankoh er enn á allra vörum, nú vegna fimm hundruö friöargæsluliöa
SÞ sem menn hans halda í gíslingu og hafa ekki enn fengist til aö leysa úr haldi.
mönnum sínum að láta gæsluliðana
lausa en viðurkennir að hann hafi
kannski ekki fullt vald á þeim.
„Friðargæsluliðamir ættu að
hætta að ögra bardagasveitunum
þar sem þær gætu tekið til sinna
ráða, án yfirstjórnar minnar," sagði
Sankoh í liðinni viku.
Fann guð í fangelsinu
Sankoh var löngum upp á kant
við ráðandi öfl í her Sierra Leone.
Hann gagnrýndi liðsforingjana sem
frömdu fyrsta valdaránið árið 1967
og gerðu Siaka Stevens að forseta.
Hann mátti dúsa sex ár í fangelsi á
valdatíma Stevens á áttunda ára-
tugnum, dæmdur fyrir að skipu-
leggja valdarán. í fangelsinu snerist
Sankoh til kristinnar trúar.
Þegar Sankoh losnaði loks úr
tugthúsinu gerðist hann meðal ann-
ars ljósmyndari og ferðaðist milli
námuborganna í austurhluta lands-
ins. I bænum Bo í Sierra Leone
sunnanverðu skipulagði hann sellu
stúdenta sem varð síðan grunnur-
inn að uppreisnarher hans. Megnið
af liðsmönnum RUF eru hins vegar
unglingar sem Sankoh rændi i þús-
undatali. Nýliðamir voru síðan
mataðir á krakki, kókaíni og öðrum
eiturlyfjum og sendir út að berjast
og fremja hvert voðaverkið á fætur
öðru. Fyrrum liðsmenn Sankohs
segja að innrætingin hafl meðal
annars falist í því að segja þeim að
foreldrar þeirra væru látnir og að
Sankoh væri nú faðir þeirra.
kænsku, maóisma í anda Pols Pots
og afriskrar þjóðernisstefnu.
Hagur Sankohs á hemaðarsvið-
inu fór ekki að vænkast almenni-
lega fyrr en á árinu 1990 þegar hann
var í slagtogi við Charles Taylor
sem þá var helsti stríðsherrann í Lí-
beríu. Taylor, sem nú er forseti
landsins, notaði Sierra Leone sem
bækistöð fyrir hernað sinn.
Sankoh hóf stríðsrekstur sinn
heima fyrir árið 1991. Hann fylgdi
þeirri stefnu Taylors að beina spjót-
um sínum að óbreyttum borgurum,
kvelja þá og pína svo mikið að þeir
gerðu kvalara sinn að forseta til
þess eins að binda enda á þjáning-
arnar.
Sveðjurnar syngja
Sankoh og uppreisnarmenn hans
eru alræmdir fyrir þá miklu
grimmd sem þeir beittu óbreytta
borgara í stríði sínu. Uppreisnar-
menn hikuðu ekki við að höggva
hendur og handleggi af saklausum
borgurum svo þúsundum skipti.
Belgískir nýlenduherrar höfðu beitt
sömu aðferð áratugum fyrr í ný-
lendu sinni í Kongó. Sankoh og
menn hans hjuggu hendurnar af
fólki af því að það hafði notað þess-
ar sömu hendur til að kjósa núver-
andi forseta landsins, Ahmad Tejan
Kabbah, árið 1997.
Engar hendur, ekki fleiri at-
kvæði, sögu uppreisnarmennirnir