Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 13. MAl 2000
27
DV
Helgarblað
Sviðsljós
Ferrari eöa ekki Ferrari
Sviðsljósið beinir jafnan
framlugtinni að kvikmyndastjörn-
um og poppstjömum en áhugasvið-
ið er víðara en svo. Áhugi þess á
íþróttastjörnum fer stigvaxandi og
verður reyndar æ erfiðara að greina
á milli um hvers slags stjörnur sé
að ræða. Madonna syngur og leikur,
Vinnie sparkar og leikur, Jordan
treður og leikur o.s.frv. Nýjasti
markvarðahrellirinn í enska boltan-
um, Kevin Phillips, á þó varla eftir
að leika eða syngja í framtíðinni.
Hann býr einfaldlega ekki yfir þeim
sjarma sem tU þarf að ná langt á þvi
sviði. En hann er búinn að gera sitt
til að vinna bug á sjarmaleysinu.
Hann er búinn að kaupa sér Ferrari
á hvorki meira né minna en 20
miUjónir íslenskra króna. Þær fara
iétt með þetta fótboltastjörnumar
en PhiUips er með þrjár miUur á
viku. Fyrir sex ámm var guttinn þó
ekki með nema tíuþúsundkaU á
viku í verksmiðjuvinnu. Annars
þykir Sviðsljósinu ahnennt litið tU
Finninn Mika Hákkinen var aö selja
sinn Ferrari um daginn.
enskra eða þýskra knattspyrnu-
manna koma, þeim mun hrifnara er
það af sjarmörunum á Ítalíu og
Spáni. Del Piero, Figo, Zidane, Raul,
Buffon, Inzaghi, Batistuta og Lippi
eru sannir heimsborgarar sem
sýna, svo ekki verður um viUst,
hversu yfirborðskennt tískuflipp
Englendingsins Beckhams er. Með-
an köppunum í suðri er þetta eðlis-
lægt er hann tilbúningurinn upp-
málaður. Kannski hann verði leik-
ari, ólikt PhiUips, en vonandi ekki
söngvari. ímyndið ykkur dúettinn:
David and Victoria. Ekki orð um
það meir.
Ein gerð íþróttamanna slær þó
jafnvel út suðræna sparkkappa en
það eru svellkaldir ökuniðingar.
Enginn er flottari en Finninn Mika
Hákkinen sem var að selja sinn
Ferrari um daginn. Það hafði ekkert
með það að gera að Ferrari-sam-
steypan (sem er í eigu FLAT líkt og
þokkafyUsta knattspyrnuliðið -
Juventus) skyldi vera helsti keppi-
nautur McLaren sem Hakkinen
keyrir í formúlunni. Ástæðan var
einfaldlega sú að eiginkona Mika
kom innkaupapokunum ekki fyrir í
kerrunni - og hana nú.
Nýjasti markvarðahrellirinn í enska boltanum, Kevin Phillips, er búinn aö
kaupa sér Ferrari á hvorki meira né minna en 20 milljónir íslenskra
króna.
• • •
Vélarstærð
1800 cc
Hestöfl ABS Loftpúðar Hnakkapúðar CD Hátalarar Lengd Breidd
112 já 2 5 já 4 4,60 m 1,77 m
Verð frá
1.589.000 kr.
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðrir af fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er í margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagöroum 24 • s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bílasala Akureyrar s. 461 2533
Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bílavík ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT