Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Side 29
LAUGARDAGUR 13. MAl 2000_________________________________________________________________
DV____________________________________________________________________________Helgarblað
DV-MYNDIR GUÐRNNUR
jjt:
Stofan á Svínavatni sem varöveitt er í heilu lagi á byggöasafninu.
Hreyfanlegt byggðasafn
- segir nýr forstöðumaður á Reykjum í Hrútafirði
DV, HÓLMAVÍK:
„Byggðasafnið hefur ekki að-
eins það hlutverk að safna, skrá-
setja, forverja og rannsaka menn-
ingarsögulegar minjar frá fyrri
tíð heldur er afar mikilvægt að sú
stefna sé mörkuð að settar verði
upp sýningar tímabundið úti í
héruðunum sem að safninu
standa, sýningar sem tengjast at-
burðum einstakra staða eða öðru
sérstöku í sambandi við atvinnu-
eða mannlíf eða einhverju tíma-
bili sem verið er að kynna á við-
komandi stað. Þá legg ég mikla
áherslu á að safnið geti haft víð-
tækt hlutverk við varðveislu
hvers kyns menningarminja á
svæðinu og kynni af kostgæfni
sögu og menningu og glæði vit-
und ibúanna fyrir uppruna sínum
og möguleikum og verði veiga-
mikill þáttur í uppbyggingu
menningartengdrar ferðaþjónustu
á svæðinu," segir Pétur Jónsson,
nýráðinn forstöðumaður byggða-
safnsins að Reykjum í Hrútafirði
sem Húnavatnssýslurnar báðar,
auk Strandasýslu, eru stofnaðilar
að og hafa stjórnað um áratuga-
skeið.
Upphaf sögu byggðasafnsins á
Reykjum má rekja til brennandi
áhuga fólks sem yfirgeflð hafði
heimabyggð sína og starfaði í átt-
hagafélögum þessara sýslufélaga,
einkum í Reykjavík. Að þeirra
frumkvæði var þeim skilaboðum
komið heim í hérað að sýslufélög-
in þrjú sameinuðust um byggingu
húss sem geymdi merka muni
sem voru að ljúka eða höfðu lokið
hlutverki sínu og beið ekki annað
en að verða jörðu orpnir vegna
breyttra vinnubragða og búskap-
arhátta til sveita.
Það sem knúði á um byggingu
safnahúss var að sjómaðurinn og
bændahöfðinginn Pétur í Ófeigs-
flrði á Ströndum hafði þá nokkru
fyrr gefið Þjóðminjasafninu há-
karlaskipið Ófeig. Þjóðminjavörð-
ur hafði fengið leyfi skólanefndar
á Reykjum til að byggja 120 fer-
metra skála yflr skipið. Þar komst
Ófeigur í hús 1961. Eftir þetta
varð eftirleikurinn auðveldari átt-
hagatrygga fólkinu syðra og það
hóf íjársöfnun til styrktar bygg-
ingu byggðasafns. í júlí 1967 var
svo 380 fermetra byggðasafnshús
opnað á Reykjum.
Hinn ungi forstöðumaður
byggðasafnsins, Pétur Jónsson, er
sagnfræðingur að mennt, ættaður
frá Súluvöllum á Vatnsnesi sem
er í næsta nágrenni við safnið.
Hann stjórnar för blaðamanns um
safnið. Andblæ genginna kyn-
slóða og löngu liðins tíma leggur
að vitum - og fyrir augu ber bús-
hluti fyrri tíðar. Fortíðartengslin
flnnast gjörla þegar farið er hönd-
um um muni eins og þá sem eru í
baðstofunni frá Syðsta-Hvammi
sem þar er uppsett svo og stofan
frá Svínavatni. Innanstokks er á
að líta eins og íbúarnir hafi
skyndilega, jafnvel daginn áður,
yfirgefið íverustað sinn, svo eðli-
legur er allur umbúnaður. For-
stöðumaður upplýsir að búið hafl
verið í baðstofunni í Syðsta-
Hvammi fram undir 1960.
Pétur segir það mikilvægt og
viðráðanlegt verkefni að koma
hluta muna safnsins til staða i
héraðinu þegar tilefni gefast. Við
það ætti sér stað góð og þarfleg
kynning á því sem safnið varð-
veitir og héraðsbúar og aðrir um
leið gerðir meðvitaðir um varð-
veislugildi margs konar muna.
„Byggðasafnið hefur enga burði
til að safna öllu sem úreldist og
verður því að takmarka sig og
velja sér varðveisluflokka og hafa
vissa söfnunarstefnu,“ segir Pét-
ur.
Hér við Húnaflóann eru sumir
þættir áhrifameiri í sögulegu til-
liti en aðrir og leggja beri rika
áherslu á þá. Sérstaklega sé ná-
lægðin við haflð sem skapi þá sér-
stöðu, þetta mikla forðabúr mat-
fanga fyrr á tíð.
Rekaviðurinn var mikil upp-
spretta við smíði innréttinga og
nauðsynlegra áhalda. Smíða- og
útskurðarkunnátta varð listgrein
sem tengdi kynslóðir og varð mik-
ilsmetinn þáttur í allri listsköp-
un. Safnið á Reykjum geymir
mikinn fjársjóð listafólks á hand-
verkssviði. Þessum varðveislu-
þætti vill forstöðumaður að safnið
sinni betur í framtíðinni.
„Vel mætti hugsa sér,“ segir
Pétur Jónsson, „að mynda áhuga-
hóp við safnið til að kynna vinnu-
brögð frá fyrri tíð og sýna með og
hlutverk áhalda og muna.“
Verið er að kanna möguleika á
að setja upp sérsýningu á Blöndu-
ósi í sumar og á döfinni er sýning-
arhald í Strandasýslu vegna
Galdrasýningar á Hólmavík.
Pétur segir að mikilvægt sé að
öllum sem áhuga hafa sé veitt
leiðsögn og fólk sé aðstoðað við að
halda til haga þeim munum sem
varðveislugildi hafa.
Safnið er opið í þrjá mánuði
yfir sumarið líkt og undanfarin
ár. Forstöðumaður er búsettur á
svæðinu svo auðvelt er að setja
sig í samband við hann ef óskað
er opnunar utan hefðbundins
tima.
„Ég kalla eftir áhuga fólks í
byggðunum sem eru aðilar að
safninu um söfnun og varðveislu
fágætra muna og vil leggja mig
fram um að auka og bæta sam-
skiptin við íbúana," segir Pétur
Jónsson að lokum. -Guðfinnur
Pétur Jónsson.
Pétur er nýráöinn forstööumaöur byggðasafnsins á Reykjum í Hrútafiröi. Hann stendur hér viö hákarlaskipiö
Ófeig sem er höfuödjásn safnsins.
DALAVEGUR 16B • KÓPAVOGI
SÍMI 544 4454
▲ BRAV0 150S • 150x100x35 • 500 kg -Kr. 89.000,-
▲ BRAVO 205E • 202x112x35 • 500 kg -Kr. 119.000,-
▲ BRAVO 225 • 225x145x30 • 746 kg -Kr. 145.000,-
▲ Ál 1205 N/H • 203x128x30 - 500 kg • Kr. 158.000,-
▲ BRAVO 310 TB • 310x168x30 • 1.600 kg • Kr. 295.000,
▲ E-750 stór og sterk • 260x130x40 • Kr. 189.000,-
▲ AlhliSa flutningsvagn • 400x180x24 • 2.400 kg
▲ Ekta bílaflutningavagn • 2.500 kg
A Mótorhjólavagn fyrir 1-2 hjól
lir»iiil«i*iiii
j S L A N D
Smáauglýsingar
DV
550 5000