Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Síða 49
57
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
DV Tilvera
Klassíkin skyldi ráða
- stúlkan átti það svo sannarlega skilið
Hann heitir Hinrik Auðunsson og
rekur matstaðinn Svarta svaninn
við Rauðarárstíg. Honum er margt
til lista lagt og sjálfur segist hann
vera kokkur yfir meðallagi en ekki
án mistaka í gegnum tíðina.
Fyrsta reynsla manna við mat-
reiðslu er oft skemmtileg enda vitum
við sem höfum reynt, að fyrsta skipt-
ið gengur aldrei áfallalaust fyrir sig.
„Mig langar til að segja frá einu
af fyrstu skiptunum sem ég bauð
dömu heim að borða. Nú átti sko að
hafa það flott, mér fannst hún eiga
það skilið. Eftir vandlega umhugs-
un um hvað ætti að bjóða henni var
farið í búöina og verslað, eingöngu
fyrsta flokks hráefni, auðvitað.
Klassíkin skyldi ráða. Rjómalöguð
sveppasúpa í forrétt, snöggsteikt
nautapiparsteik og heimalagaður ís
(uppskrift frá mömmu) í eftirrétt, og
auðvitað flott rauðvín með. Daman
átti að mæta um áttaleytið, þannig
að ég hófst handa við eldunina
snemma, til að vera með allt á
hreinu. Farið var i kokkabækumar
hennar mömmu og uppskrift að
rjómalagaðri sveppasúpu fundin,
piparsteikumar gerðar klárar, ísinn
var gerður daginn áður. Daman
mætti seint eins og við var að búast
og auðvitað var allt tilbúið, kerta-
ljós og huggulegt. Rauövínið opnað
og látið anda, andrúmsloftið losað
við spennuna og fljótlega var súpan
borin fram. Rjómalagaða sveppa-
súpan reyndist vera svolítið bragð-
sterk en stúlkan gaf ekkert út á það,
en það var einkennilegt að nógur af-
gangur var handa heilu fótboltaliði.
Nautapiparsteikin var betri en á
bestu veitingahúsum og ísinn topp-
aði allt saman. Eftir aö hafa vaskað
upp í sameiningu, héldum við
áfram að hafa það huggulegt, drukk-
um meira rauðvín og nú átti það
sko að vera rómó. En ekki hvað, það
leið ekki á löngu þar til hún fór að
kvarta yfir magaverk og þegar hún
minntist á það var ég sjálfur farinn
að flnna fyrir smáverk. Þegar hún
var farin að svitna af verkjum
ákvað ég nú að athuga málið nánar
og kom þá í ljós að ijóminn sem ég
notaði í súpuna var óvart gömul
fema sem hafði gleymst í ísskáp
piparsveinsins," sagði Hinrik og
bætti svo við:
„Tekið skal fram að daman sem
um ræðir er enn á lífi og hefur set-
ið til borðs hjá mér síðan.“
Rjómalöguð sveppasúpa
Þar sem bragðlaukamir ráða
em ekki til nákvæmar mælingar
á súpunni en í henni er:
Vatn
Campbell’s-sveppasúpa
nautakraftur
salt & pipar
sveppir
NÝR rjómi
koníak
Vatnið látið sjóða, Campbell’s-
sveppasúpa sett út í og smávegis
nautakrafti bætt við. Hrært vel.
Rjóminn þeyttur og settur út i,
hrært meira.
Ferskir sveppir skomir niður,
hreinsaöir í köldu vatni áður.
Pínulítið af salti og pipar sett út í
og koníak eftir hentugleika.
Nautapíparsteik
Nautalund er besti bitinn.
Pannan hituð á fullum straumi og
kjötið ekki sett á fyrr en pannan er
alveg sjóðandi heit. Kjötinu lokað,
steikt í hálfa mínútu á hvorri hlið,
þá má fyrst fara að krydda. Krydd-
að eftir hentugleika, notið helst
svartan pipar og malið hann og gott
er að hafa rósapipar með.
Steikt í mjög skamman tíma, bor-
iö fram með piparsósu.
Heímalagaður ís að hættl
mömmu
Eggjarauður
mjólk
sykur
vanillustöng
súkkulaðispænir
(mamma yrði alveg brjáluö ef ég
segði rétt magn)
Mjólkin og vanillustöngin em hit-
uð saman. Þegar suðan kemur upp
er eggjarauðunum bætt út í og
sykrinum, hrært vel. Látið kólna i
smástund, bætið súkkulaðispænin-
um út í og frystið.
Ég skora hvorki meira né
minna en á heimskautafarann,
Harald Öm Ólafsson.
Sykurlausir
jógúrtdrykkir
Hættulega hollir
Fyrir fjóra
I
360 g hrein jógúrt
60 g bananar
30 g appelsínusafi
30 g strásæta
4-6 ísmolar
H
360 g hrein jógúrt
150 g ferskur ananas
30 g strásæta
4-6 ísmolar
safi úr 1 sítrónu
Afhýðið ávextina og maukið í
matvinnsluvél, hvora uppskrift fyr-
ir sig. Safanum, strásætunni og
ísmolunum bætt út í og maukað
áfram. Að lokum er jógúrtinni bætt
út í. Borið fram í háum glösum,
skreytt með ferskum ávöxtum.
Ávextir í umslagi
Sætur og safaríkur.
500 g blandaðir, ferskir ávextir í
bitum (t.d. vinber, kiwi, blæjuber,
melónur og bananar)
1 msk. sykur
1 tsk. vanilludropar
2 msk. hvítvín
4 arkir álpappír
1/2 1 vanilluís (eða önnur bragð-
tegund)
Ávöxtunum blandað saman, deilt
í fjóra hluta og pakkað inn í álpapp-
ír. Sett á grillið og grillað í 6 mínút-
ur.
Meðlæti
Nykaup
Þar semferskleikinn býr
Uppskríftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Áður en umslagið er borið fram
er það opnað að ofan og ein ískúla
sett í hvert umslag. Skreytt með
ferskum ávöxtum eftir smekk.
Rómeó og Júlía
verslun
Fákafeni 9, 2. hæð
Sími 553-1300
Afcjreiðslutími
mánud.-föstud. 10-18,
laugard. 10-16
gegnum árin höfum við blásið
í gamlar glæður og
í verslun okk
af spennanfii
Frábært ú
ð nýja elda.
gt úrval
um ástalífsins.
öndum.
Við erum best í bví sem við erum að gera,
að bæta ástalífið
Ath. Ábyrgð tekin á öllum vörum
iAiww.romeo.is
netverslun
Opin allan sólarhringinn