Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Qupperneq 58
66
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Tilvera
1 1 f 1 A
Síldin kemur og
síldin fer
í kvöld er komið að hinni ár-
lega áhugaleiksýningu í Þjóð-
leikhúsinu. Hún er að þessu sýn-
ing leiklistarhóps Ungmennafé-
lagsins Eflingar í Reykjadal á
Síldin kemur og síldin fer eftir
Iðunni og Kristínu Steinsdætur.
Þrjátíu leikarar taka þátt í sýn-
ingunni og leikstjóm var i hönd-
um Amórs Benónýssonar. Að-
Klassík
■ BURTFARARTONLEIKAR I SALN-
UM Oddný Sigurðardótti mezzo-
sópran heldur burtfarartónleika í
einsöng frð Tóniistarskóla Kópa-
vogs í Salnum kl. 17.
■ KÓR AKUREYRARKIRKJU Í MÝ-
VATNSSVEIT heldur tónleika í Skjól-
brekku í Mývatnssveit kl. 17.
Opnanir
■ AFMÆLISYNING I VESTUR-
BÆNUM 20 ára afmælissýning
Gangsins. Rekagranda 8, veröur
opnuö í dag.
■ CAFÉ ÓSK Kl. 15 opnar Antonios
Hervás Amezcuaa sýningu á olíu-
verkum og grafíkmyndum á Café
Osk, Drafnarfelli 18, Breiöholti.
■ GALLERÍ GEYSIR Fyrsta árs
nemar í grafískri hönnun viö Listahá-
skóla íslands opna sýningu milli kl.
16 og 18 í Gailerí Geysi Hinu Hús-
inu v/lngólfstorg. Nemendurnir
fengu þaö verkefni í vetur aö hanna
plakat „Unglistar 2000“ og er af-
rakstur þeirra vinnu nú til sýnis í
Galleríinu.
■ GULA HÚSH) Tvær sýningar
veröa opnaöar í Gula husinu kl. 15.
Annars vegar er sýning Steingríms
Eyflörös ð tússteikningum og hins
vegar sýning popptónskáldsins Arn-
þruðar Ingjaldsdóttur á Ijósmyndum
og hljóöum.
■ HRAUN OG VATN Svava Sigríöur
Gestsdóttir opnar myndlistarsýningu
í Veislugalleríi Usthussins við Laug-
ardal.Sýningin ber heitiö Hraun og
vatn.
■ JÓNÍNA Í LÓUHREHMMNU Jónína
Björg Gísladóttlr opnar málverka-
sýningu í Lóuhreiðrinu á Laugavegin-
um kl. 16 í dag.
■ USTHÚS ÓFEIGS Kl. 15 opnar
Daníel Hjörtur sýningu á tréskúlpt-
úrum í Listhúsi Ofeigs, Skólavörðu-
stíg 5. Sýning ber yfirskriftina Konur
og menn og stendur til 27. maí.
■ STUTTSÝNING í GALLERÍ
REYKJAVIK Leirlistakonan Helga
Jóhannesdóttir oþnar sýningu í Gall-
erí Reykjavík. Á sýningunni eru ný-
leg verk unnin úr leir, gler og málrni
Fundir
■ FRÆÐSLUFUNDUR UM BARNA-
GIGT Gigtarfélag Islands heldur
fræðslufund um barnagigt í Safnaö-
arheimili Árbæjarkirkju, Rofabæ, kl.
14.
■ FRÆÐSLUFUNDUR Almennur
fræðslufundur um latex-ofnæmi
veröur haldinn aö Efstaleiti 9 (húsi
Rauða krossins) og hefst fundurinn
stundvíslega kl. 14.
■ MÁLÞING j ÞJÓDARBÓKHLÓP-
UNNI Málræktarsjóður stendur fýrir
málþlngi til kynningar á þeim verk-
um sem Lýöveldissjóður styrkti árin
1995-1999 til eflingar íslenskri
tungu. Þingiö stendur frá 10 -16.
Sjá nánar: Lífio eftlr vinnu á Vísi.is
Nýsköpunarkeppni grunn-
skólanemenda var haldin í
níunda skiptið í ár og hef-
ur þátttaka aldrei verið meiri en
yfir 2000 hugmyndir bárust frá
tæplega 60 skólum. Verðlaun
verða veitt fyrir sex hugmyndir:
þrjár uppfinningar og þrjár útlits-
hannanir en vinningshafar verða
kynntir í Gerðubergi kl. 14.00.
Mun forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, veita verðlaun-
in.
Um leið verður opnuð sýning í
Gerðubergi á hugmyndum nem-
enda sem tóku þátt í keppninni,
bæði teikningar og módel, og segir
í fréttatilkynningu að þá sé hægt
að komast að því hvað sé gert við
Pokahjálpina.
Telma Rún Sigfúsdóttir er 14 ára
nemandi í 8. bekk Öldutúnsskóla í
Hafnafirði. Telma tók þátt í Ný-
sköpunarkeppninni og af sjö hug-
myndum sem hún sendi inn
komust tvær í úrslit. Önnur þeirra
vann síðan til verðlauna.
„Hver af hugmyndum þínum
vann til verðlauna og til hvers er
hún notuð?“
„Það var skeiðastoppari. Þú
smeygir honum á skeið og hengir
á skálarbarm þannig að hann helst
kyrr.“
„Hvernig í ósköpunum stóð á
því að þú hannaðir skeiðastopp-
ara?“
„Ég var orðin svo ótrúlega
þreytt á því að skeiðarnar runnu
alltaf ofan í skálina þannig að ég
ákvað að búa til tæki sem myndi
halda skeiðunum kyrrum.“
Telma segist í samvinnu við
smíðakennara sinn, Svenna, hafa
búið til eintak af skeiðastopparan-
um.
„Það er bara til eitt eintak og
það er á sýningunni.“
Aðspurð um hvort hún telji að
skeiðastopparinn verði kominn í
almenna sölu áður en langt um líð-
ur er hún hógværðin uppmáluð og
segist ekki eiga von á því.
Telma kom einnig með hug-
myndir að fleiri gripum og má þar
nefna sleikjóstatíf sem einnig
Upprennandi uppfinningamaöur. Telma segir einungis eitt eintak til af skeiöastopparanum og er þaö eintakiö á
sýningunni.
Telma Rún Sigfúsdóttir, 14 ára
Hannaði skeiðastoppara
komst í úrslit.
Það er í laginu eins og sleikjó og
það er hægt að nota hann ef mað-
ur þarf að leggja frá sér
sleikjóinn," segir Telma um hug-
myndina sína.
Af fleiri uppfinningum hennar
má einnig nefna þar til gerð lóð
sem sett eru framan á stóla í
kennslustofum tU að koma í veg
fyrir að þeir sporðreisist þegar
þungar töskumar eru látnar hvOa
á stólbökunum. En hvað ætlar
Telma að gera nú þegar hún hefur
unnið tU verðlauna? Er hún með
hugmyndir að fleiri uppfinning-
um?
„Ég er ekki með neinar hug-
myndir eins og er en ég stefni að
þvi að taka þátt á næsta ári,“ seg-
ir Telma að lokum. -KGP
Bíógagnrýni
Ari.rfi.c- -
Háskólabíó - Microcosmos: ★ ★ ★
Dýragarður við húsvegginn
Skrýtinn svipur
Eitt hinna örsmáu skordýra sem fá á sig mynd meö aöstoö tækninnar.
Skordýr eru ekki uppáhaldsdýr
fólks. Oftast er það svo að fólk fær
ákveöinn hroU þegar það hugsar tU
kóngulóa, moskítóUugna og annarra
tegunda sem valda ekki bara óþæg-
indum heldur einnig sárum. Samt
er það nú svo að Oest skordýr eru
meinlaus og það sem meira er stór
hluti þeirra eru ekki í návígi við
okkur, eða það skyldum við ætia...
Hin snjalla franska kvikmynd,
Microcosmos, sannar þó annað. Það
er nánast hetil dýragarður i hverju
spori sem við tökum á frjósamri
jörð, hér á landi sem og annars stað-
ar.
Claude Nuridsany og Marie
Perennou, sem standa að gerð
Microcosmos, hafa valið lítið gras-
lendi í Frakklandi, nálægt byggð,
þar sem þau sýna með hátækniþró-
aðri kvikmyndatöku hvernig lífs-
baráttan gengur fyrir sig í veröld
þar sem ekki er háð minni barátta
fyrir tUvist en hjá mannfólkinu. í
veröld þar sem lífið er stutt á okkar
mælikvarða og í fóstum skorðum án
nokkurra breytinga.
I Microcosmos er ekkert verið að
reyna að búa til einhverja sögu í
kringum atburðina heldur er mynd-
in byggð upp á nokkrum einstökum
og ólíkum atriðum, sumum kómísk-
um eins og þegar bjaUa ein (undir-
ritaður verður að viðurkenna að
einu skordýrin sem hann þekkti
með nafni voru kóngulær og maur-
ar) veltir á undan sér moldarbolta,
sem er tvöfalt stærri en hún. Geng-
ur á ýmsu í þeirri viðleitni hennar
að koma honum á áfangastað en
bjaUa þessi kann að bjarga sér þeg-
ar erfiðleikar steðja að. Einnig er
broslegt atriðið þegar margfætiur
,sem aUar eru á lengdina, ganga i
skrúðgöngu og verða stundum að
víkja fyrir öðrum skrúðgöngum.
Önnur atriði eru ekki eins vinaleg
eins og þegar kóngulóin pakkar
saman maur einum, sem hefur hætt
sér of nálægt henni, í vef sinn og
setur hann í forðabúr og snýr sér
síðan að næsta fómarlambi. Þá eiga
skordýrin í stanslausri baráttu við
náttúruöflin. Rigning af þeirri gerð
sem við köUum skýfaU er nánast
eins og faUbyssuárás á ibúahverfi
skordýra og leggur aUt i rúst. Svona
mætti lengi telja.
GreinUegt er að mikiU metnaður
hefur verið lagður í gerð þessarar
kvikmyndar og þolinmæðin mikU
og gera má ráð fyrir að atriðin sem
eru í myndinni séu aðeins brot af
því sem kvikmyndað hefur verið.
Microcosmos er mikið kvikmynda-
afrek sem veitir innsýn í veröld sem
oft er fótum troðin.
Hilmar Karlsson.
Leikstjórn og handrlt: Claude Nuridsany
og Marie Pérennou. Kvikmyndataka: Thi-
erry Machato o.fl. Tónlist: Bruno Coula-
is.