Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Side 60
68
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Tilvera
r>v
StMI
h 11 p: / * w wyyatf gk o r n u b i o /
Byggt á sannsögulegum
atburdum.
Byggt á
sannsögulegum
atburdum.
★ ★★
Ó.4. Bylgjan
Ó.FJ. Kausverk
Julia
Rqberts
is
Erin
Brockovich
rockovich
Fjö!skyMan Wr aí staskka... \
Sýndkl. 4,6,8 og 10.
Stundum ver&ur
ma&ur a& sleppa sér til
a& halda sönsum.
Forsýnd laugardag kl. 10.30.
Sýndkl. 5.30,8 og 10.30.
Sýnd kl. 330,5.45,8 og 10.15.
fS W 553 2075
ALVÖFSU BÍÓ! mpolby
STflFRÆNT SMSMUHLDHim
HLJÓÐKERFI j I LJ V
ÖLLUM SÖIUIVI!
ÞU GETUR EKKI
LEIKIÐ A
DAUÐANN...
ÞAÐ ER ENGIN
UNDANKOMULEIÐ!
Margverölaunoð sai^ögulegt m,e
bandariska unglingsstelpúVem UtL
strákur rog&Jyaaðilegum attmMngui
hefuj;.íéugic' m! virtustu verölaun he
^sírfa á Teena*Marie Brandon, m.a. I
ársins hjá National Bord of Revíew, I
Critics, New Vork Filrn Critics Circh
Critics að ógleymdum Óskarsverðlat
leikkona ársin%í aöajhtuL
Fínal
DESTINATION
og er rni
rinsalasta
myndin í
heiminum í
dag.
T down
to you
Geföu fyrstu ástinni
annaö tækifæri meö því
aö fara á myndina.
A.S. DV .
irýrir’i!|
Tvihöfðf
★ ★★'i
ertu mr
OFE.Hausverk
Vígamaöur mafíunnar
Forest Whitaker leikur dularfullan
bööul mafíunnar í Ghost Dog: The
Way of the Samurai.
Atvinnumorð-
ingi sem enginn
veit deili á
Háskólabíó tók til sýningar í gær
nýjustu kvikmynd Jims Jarmusch,
Ghost Dog: The Way of the
Samurai. í henni leikur Forest
Whitaker atvinnumorðingja sem
starfar á vegum mafiunnar. Hann
hafði boðist til að starfa fyrir
mafíuforingja þegar sá hinn sami
hafði bjargað lífi hans. Skilaboðin
um hvem hann á að drepa fær
hann með bréfdúfu á þakhæð þar
sem hann býr. Morðinginn hefur
tamið sér lifnaðarhætti hinna
japönsku samúræja og þykir meira
en lítið dularfulur af nágrönnum
sinum sem að sjáifsögðu vita ekki
hver hann er. Þegar maflan vill
losa sig við þennan liðsmann sinn,
kemur í ljós að enginn veit hvað
hann heitir eða hvar hann býr...
Jim Jarmusch er einn þekktasti
óháði kvikmyndagerðarmaður
Bandaríkjanna og hefur hann eign-
ast fjölda aðdáenda í áranna rás.
Meðal mynd hans má nefna Night
on Earth, Mystery Train og Down
By Law.
14 konur læra myndlist í Neskaupstað:
Enginn karl
DV, NESKAUPSTAÐ:_____________
Fjórtán norðfirskar konur eru þessi
kvöldin á myndlistarnámskeiði hjá
Kristbergi Péturssyni, hinum góð-
kunna hafnfirska listmálara, sem
jafnframt sýnir verk sín í Kaffihús-
inu.
„Þetta gengur mjög vel og við lær-
um heil ósköp," sagði Berglind Þor-
bergsdóttir, ein í listaklúbbnum, sem
ræður yfir eigin húsnæði, Þórsmörk.
„Við höfum mikinn áhuga og það er
fyrir mestu, það stendur ekki til að
skapa nein meistaraverk, en þetta er
skemmtilegt tómstundagaman," sagði
Berglind. Enginn karlmaður hefur
látið sjá sig á námskeiðinu að þessu
sinni, sagt að þeir þori ekki. Eskfirð-
ingar hafa mætt á námskeiðin, og þá
bara karlar, en þeir komust ekki að
þessu sinni. -RN
DV-MYND REYNIR N.
Efnileg listakona
Kristbergur leiöbeinir yngstu listakonunni, Fjólu, sem er 14 ára
og efniteg.
Ragnar Leósson sýnir í Beco
- fyrsta einkasýning ungs ljósmyndara
Ragnar Leósson opnar ljósmynda-
sýningu í dag, laugardag, á milli
klukkan 13 og 16 að Langholtsvegi 84
(gengið inn bakdyramegin). Sýningin
er haldin í tveimur sölum í kjallara
Beco ljósmyndaþjónustu og á henni
eru 22 svarthvítar myndir af gjörning-
um, götulífsmyndir, portrett og fleira.
Flestar eru myndirnar unnar á sein-
asta ári utan nokkrar sem eru eldri.
Myndimar 22 verða enn fremur sýnd-
ar af sýningarvélum ásamt 30 öðrum.
Munu vélamar ganga stöðugt á með-
an á sýningu stendur.
Ragnar er 24 ára gamall og hefur
fengist við ljósmyndun í fjögur ár.
Hann hefur meðal annars lokið nám-
skeiði í Ljósmyndaskóla Sissu og
stefnir á frekara nám í faginu í fram-
tíðinni. Þetta er fyrsta einkasýning
Ragnars en áður hefur hann tekið
þátt í funm samsýningum. Sýningin
stendur í viku til tíu daga og verður
opin á sama tíma og verslunin, frá
klukkan 10 til 18 virka daga.
-EÖJ
Ragnar Leósson - sjálfsmynd
Ein mynda Ragnars sem nú eru til
sýnis í Beco á Langholtsvegi.
Sumardjass
Annað kvöld verður sumarlegur
djass á Múlanum, Sóloni íslandus.
Fram koma
Ómar Einars-
son gítarleikari
og félagar. Á
efhisskránni
eru léttir djass-
standardar,
nýir og gamlir,
bossa nova og
sving í bland.
Hljómsveitina
skipa Ómar
Einarsson gítar-
leikari, Kjartan
Valdimarsson
píanóleikari,
Jóhann Ás-
mundsson
bassaleikari og Jóhann Hjörleifsson
trommuleikari.
Omar Einarsson
gítarleikari ieikur
djass á Sóloni ís-
landus annaö
kvöld.
Úr og í
í listasafninu á Akureyri var í gær
opnuð sýningin Úr og í en þar sýna
ungir íslenskir tískuljósmyndarar og
leiðandi skartgripa- og fatahönnuðir
verk sin í samstarfi við Eskimo Mod-
els, Atmo og Futurice. Jafnframt
mun Listasafnið gangast fyrir söfnun
á notuðum fotum í samvinnu við
Rauða kross Islands og verður tekið
á móti honum þegar safnið er opið.
Þannig verður fatnaði á barmi tor-
tímingar gefið annað líf.
Þátttakendur í sýningunni eru
fatahönnuðirnir Linda Björg Árna-
dóttir, Bára og Hrafnhildur Hólm-
geirsdætur, Ragna Fróðadóttir, Sæ-
unn Huld Þórðardóttir og Þuríður
Rós Sigurþórsdóttir; skartgripahönn-
uðirnir Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir,
Hulda B. Ágústsdóttir, Elisabet Ás-
berg, Katrín Pétursdóttir og Michael
Young, ásamt nokkrum tískuljós-
myndurum. Einnig getur að lita verk
eftir fimm unga finnska fatahönnuði
á sýningunni.