Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
I>V
Verðbólgan hefur magnast, þvert á forsendur kjarasamninga:
Verðbólgan ógnar
kjarasamningum
- stefnir í kaupmáttarrýrnun þrátt fyrir 3,9% hækkun
„Við höfum miklar áhyggjur af
þvi sem gerst hefur frá því í fyrstu
kjarasamningunum í mars. Hug-
myndafræðin var sú að verðbólg-
an færi hratt lækkandi en það hef-
ur hún ekki gert,“ segir Rannveig
Sigurðardóttir, hagfræðingur ASÍ.
Og það er ekki ofsögum sagt því
verðbólga næstliðinna tólf mánaða
mældist 5,6% í febrúar sl. en 5,9%
í nýjustu mælingunni frá í maí.
I kjarasamningunum er trygg-
ingarákvæði sem kveður á um að
ef ekki dragi úr verðbólgu fram til
febrúar á næsta ári sé samningur-
inn uppsegjanlegur. ASÍ og Sam-
tök atvinnulífsins (SA) hafa ekki
gefíð upp við hvaða verðbólgustig
sé miðað í þessu sambandi en vert
er að hafa í huga að samið var um
3,9% kauphækkun og markmið
verkalýðshreyfingarinnar var að
verja þann kaupmátt sem til stað-
ar var. Þvi má ætla að miðað sé
við að verðbólgan mælist a.m.k.
ekki hærri en 3,9% þegar stáðan
verður metin í febrúar 2001.
En Rannveig segist engu vilja
svara um það verðbólgustig sem
ASÍ og SA miðuðu við.
Vill samstillt átak
„Það var samkomulag að tölumar
yrðu ekki uppgefnar enda voru sum-
ir hræddir við að þá myndi verðbólg-
an bara hanga í þeirri tölu. En við
gerðum ráð fyrir því að hægt yrði að
ná verðbólgunni það hratt niður að
kaupmáttur ykist á samningstíman-
um,“ segir Rannveig.
Veröbólgan verö-
ur að minnka
„Ef viö náum ekki
veröbólgunni hratt
niöur er hættan sú
aö samningunum
veröi sagt upp
vegna þessa
verðbólguákvæö-
is, “ segir Rannveig
Sigurðardóttir,
hagfræöingur ASÍ.
Að því er
Rannveig segir
er það svo að
þegar almennt
er samið um
3,9% launa-
hækkun á árinu
og að á sama
tíma geri spár
ráð fyrir 5%
verðbólgu innan
ársins og 4%
verðbólgu innan
næsta árs séu
forsendur gjör-
beyttar: „Ef við
náum ekki verð-
bólgunni hratt
niður er hættan
sú að að samn-
ingunum verði sagt upp vegna
þessa verðbólguákvæðis.“
Rannveig segist telja að stjórn-
völd þurfi sérstaklega að beina
sjónum sínum að hækkunum á
innflutningsvörum sem í mörgum
tilfellum eigi sér hvorki stoð í
gengisþróun né verðlagi í við-
skiptalöndunum.
„Viö höfum viljað að allur inn-
flutningur sé skoðaður en ríkis-
stjórnin hefur valið að skoða bara
matvöruna. Og nú þarf að gerast
það sem gerðist 1990 og 1991 þegar
verðbólgan var keyrð niður með
samanteknum ráðum og eftirliti.
Það þarf að skoða hvem þátt þeg-
ar hann hækkar og allir þurfa að
vera á verði,“ segir Rannveig Sig-
urðardóttir. -GAR
Byggðastofnun til Sauðárkróks:
Ráðherra
ákveður hag-
kvæmniathugun
DV, AKUREYRI:
A ársfundi Byggðastofnunar, sem
haldinn var á Akureyri i gær, var
samþykkt að leggja til við iðnaðar-
ráðherra að flytja stofnunina alfarið
frá Reykjavík til Sauðárkróks en um
þriðjungur starfsemi Byggðastofnun-
ar er þegar á Sauðárkróki, þ.e. þró-
unarsviðið. Litlar umræður urðu um
þetta á fundinum og virtist einhugur
ríkjandi um flutninginn.
Byggðastofhun heyrir nú undir
iðnaðarráðherra eftir að hafa heyrt
undir forsætisráðuneytið til þessa.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra hefur í framhaldi af ákvörðun
stjómar Byggðastofnunar ákveðið að
fram fari hagkvæmniathugun á
flutningi stofnunarinnar til Sauðár-
króks og verður hún unnin af hlut-
lausum aðilum.
Sú ákvörðun að flytja Byggðastofn-
un út á landsbyggðina er hugsuð sem
liður í byggðastefnu en Kristinn H.
Gunnarsson, formaður stjómar stofh-
unarinnar, segir að árangur byggða-
stefnu á landsbyggðinni hafi verið
síðri en á höfúðborgarsvæðinu vegna
þess að hið opinbera hafi beitt sér mun
meira á höfuðborgarsvæðinu. -gk
DV-MYNÐ-E. ÓL.
Almannavarnaæfingin Samvöröur 2000 hófst í gær
Almannavarnaæfingin Samvörður 2000 er hafm og mun standa yfir dagana 7.-12. júní. Rússiand er eitt
þátttökuríkjanna en samskipti Rússlands og Atlantshafsbandalagsins rofnuöu á meðan á loftárásum bandalagsins
stóð í Júgóslavíu í fyrra. Á myndinni er rússneskur sjóliði.
Fimm manns hafa séð umdeildan starfslokasamning formanns VMSÍ:
Kjaftasögur um að ég
hafi stolið kassanum
- segir Björn Grétar Sveinsson og hafnar því að vera á gráu svæði
„Þegar kjaftasögur um að ég hafi
hirt kassann hjá Verkamannasam-
bandinu bárust fjölskyldu minni til
eyma fann ég mig knúinn til að segja
frá þvi að ég væri hættur af öðmm
ástæðum," segir Bjöm Grétar Sveins-
son, fráfarandi framkvæmdastjóri
Verkamannasambands íslands, vegna
þeirra orða Hervars Gunnarssonar,
sitjandi varaformanns VMSÍ, að hann
væri kominn á grátt svæði með yfir-
lýsingum sínum um starfslokin.
Fram kom hjá Hervari að formaður-
inn hafi jafnvel brotið gegn ákvæðum
samningsins. 1 starfslokasamningn-
um, sem færir Bimi Grétari full laun
í tvö ár er, samkvæmt heimildum
DV, ákvæði um að formaðurinn frá-
llcivar OunnarMon vcilur varafonnaður Vcrkainanna.vamixiudsint:
Björn Grétar á gráu svæði
- t-f ckki brotlegur viö ákræði ctarfslokasamnings
farandi tjái sig ekki um málefni
VMSÍ á gildistímanum. Það er mat
Hervars að Bjöm Grétar sé kominn á
ystu nöf í þeim efnum. Sjálfur þver-
tekur Bjöm Grétar fyrir slíkt og seg-
ir einnig rangt sem kom fram hjá
Hervari í DV að aðeins tveir menn
hafi séð samninginn umdeilda sem
vakið hefur gífurlega
reiði í landsbyggðar-
armi Verkamanna-
sambandsins.
„Samningurinn er
undirritaður af
tveimur auk þess að
á honum era þrír
vottar sem skrá nöfn
sín á hann. Ég hef
engar yfirlýsingar gefið um innihald
hans og hvergi sneitt að neinum í við-
tölum sem nauðsynlegt var að gefa
svo ekki væri haldið áfram að rægja
mig með ásökunum um þjófnað. Þeg-
ar ekkert er sagt spretta upp allskyns
sögur,“ segir hann.
Bjöm Grétar, sem er 56 ára, segist
hverfa af vettvangi verkalýðsmál-
anna með hreina samvisku.
„Ég vann í 15 ár fyrir íslenskt
verkafólk og hverf með hreina sam-
visku. Ég hef áður skorað á menn að
snúa sér að aðalatriðunum sem er að
sameina verkafólk og vinna að hag
þess. Ég hef þó herðar til að bera það
umtal sem sprottið hefur af brott-
hvarfi mínu,“ segir Bjöm Grétar sem
neitar að öðra leyti að tjá sig um
skyndileg starfslok sem rakin era til
forystumanna Flóabandalagsins og
þriggja formanna landsbyggðarsam-
taka.
Áður hefur hann sagst vera sáttur
en þó hugsa sitt eftir uppgjörið.
-rt
Geysisgos beint á Vísi.is
í dag klukkan þijú verður sápa sett
í Geysi. Búast má við að gos verði um
klukkustund síðar. Hægt verðu að
fylgjast með viðburðinum á beinni út-
sendingu á VísLis.
Halldór hittir foreidra
Halldór Ásgríms-
son mun eftir hvíta-
sunnuhelgina hitta
þá foreldra þroska-
heftra bama sem
gagnrýndu harðlega
ummæli félagsmála-
ráðherra um sambýli
fatlaðra í opnu bréfi
formanns Framsóknarflokksins
sem birt var í Morgunblaðinu i gær.
Mbl. sagði frá.
lika skerðing á Grund
Elliheimilið Grand getur ekki frek-
ar en Hrafnista veitt fulla þjónustu í
sumar. Undanfarin ár hefúr Grund
tekið við öldraðum sjúklingum sem
era útskrifaðir vegna sumarlokana.
Það verður hins vegar ekki gert í sum-
ar. RÚV sagði frá.
Tannhirða og fyrirburafæðing
Fundist hafa tengsl slæmrar tann-
hirðu á meðgöngu og fyrirburafæðing-
ar, en efriin sem myndast við sýkingu
í tannholdi era þau sömu og koma af
stað fæðingu. Bylgjan sagði frá.
Fuilorðnir rúðubrjótar
Tveir karlmenn á þrítugsaldri vora
handteknir í miðborg Reykjavíkur um
háiffjögurleytið í nótt grunaðir um að
bijóta rúður í versluninni Pelsinum í
Kirkjuhvoli og í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mennimir vora fluttir á lögreglustöð
og gisti annar þeirra fangageymslur
lögreglu í nótt. Vísir.is sagði frá.
Kosið aftur á Raufarhöfn?
Umboðsmaður Alþingis hefur úr-
skurðað að félagsmálaráðuneytinu
hafi borið að ógilda kosningar til sveit-
arstjómar í Raufarhafnarhreppi 1998. >
Ef kosningamar yrðu ógildar þyrfti að
kjósa á ný í Raufarhafharhreppi. Mbl.
sagðifrá.
Vilja nýjan sæstreng
Landssíminn vill
að gerðar verði botn-
rannsóknir á fyrir-
huguðu legusvæði
nýs sæstrengs frá ís-
landi. Gera má ráð
fyrir að farið verði í
undirbúning að út-
boði á þessum rann-
sóknum með það í huga að leggja sæ-
strenginn jafnvel strax næsta sumar.
Mbl. sagði frá.
Stjórnmálamenn óhræddir
Stjómmálamenn virðast telja óhætt
að veiða meira en Hafrannsóknastofn-
un leggur tiL Taka þarf tiilit til þjóðar-
búsins, segir Haildór Ásgrímsson. Jó-
hann Ársælsson viil aflaregluna burt
og viðræður vísinda- og stjómmála-
manna um málið. Dagur sagði frá.
tög um kynferðislega áreitni
Evrópuráðið hefur lagt fram tiilögu
að nýjum lögum sem gilda eiga í Evr-
ópu og sem skiigreina eiga hvað telst
kynferðisleg áreitni. Lögin eiga einnig
að auka rétt launþega af báðum kynj-
um sem kvarta undan kynjamismun-
un á vinnustað og tryggja rétt mæðra
til að snúa aftur til vinnu sinnar eftir
mæðraorlof.
Enn þá prófessor
Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögmaður
Gunnars Þórs Jóns-
sonar, prófessors við
læknadeild HÍ, segir
að Gunnar Þór sé
enn þá i starfi pró-
fessors við deildina
eftir niðurstöðu I
nefndar sem fjallaði um tímabundna
brottvikningu hans úr starii prófess- |
ors. Mbl.sagði frá.
-GAR