Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2000, Page 7
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
DV
7
Fréttir
Sameining sveitarfélaga í Eyjafirði:
Meirihluti vill sameiningu
PV, AKUREYRI:__________________________
Talsverður meirihluti ibúa í
Eyjafirði vill sameina öll sveitar-
félögin á svæðinu. Þetta kemur
fram í könnun sem Gallup gerði
fyrir Akureyrarbæ. Um er að ræða
13 sveitarfélög, allt frá Siglufirði í
vestri til Grenivíkur í austri, og
eru Hrísey og Grímsey einnig inn
í myndinni.
Skemmtiferöaskip á Pollinum á Ak-
ureyri. dv-mynd, gk.
Skemmtiferðaskip:
Fleiri og
stærri skip
koma
DV, AKUREVRI:____________
Alls hafa 33 skemmtiferðaskip boð-
að komu sína til Akureyrar í sumar,
og er það nokkur fjölgun ffá fyrra ári.
Þá vekur athygli að skipin sem koma
eru yflrleitt stærri en þau sem komið
hafa áður, og er um að ræða 40%
aukningu sé horft til brúttótonna
skipanna. Stærsta skipið sem kemur
er Oriana, en það er tæplega 70 þús-
und brúttótonn og 260 metra langt. Til
gamans má nefna að stærsti togarinn
sem landar afla á Akureyri er Baldvin
Þorsteinsson sem er um 1900 tonn.
Reikna má með að faþegar með
þessum skipum verði tæplega 20 þús-
und og áhafnarmeðlimir skipanna
eru um 9 þúsund manns. Skipin koma
á tímabilinu 12. júní til 12. september.
Fyrir mun koma aö fleiri en eitt
skemmtiferðaskip verða samtímis á
Akureyri, og t.d. verða þau þrjú 5.
júlí, Royai Princess, Sapphire og Ar-
kona, og munu þau öÚ liggja við
ankeri á Pollinum.
I tengslum við þessar skipakomur
verða ýmsar uppákomur. Þannig mun
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
fara um borð og hitta skipstjóra fyrsta
skipsins sem kemur nk. mánudag,
Karlakór Akureyrar mun syngja fyrir
farþega Royal Princess sem kemur 5.
júlí og Lúðrasveit Akureyrar leikur
fyrir farþega nýja skipsins Europa
sem kemur 17. júlí. Hraðskákmót
verður haldið 21. júlí og vonast er til
að farþegar af tveimur skipum sem þá
verða á Akureyri taki þátt. Þann 25.
ágúst verður mikil flugeldasýning við
höfriina kl. 23 þegar eitt skipanna læt-
ur úr hööi. -gk.
Smygl á fíkniefnum innvortis:
Stór-
hættulegt
- segir eiturefnasérfræðingur
„Þetta er lífshættulegt opnist um-
búðimar innan í fólki. Magnið er það
mikið að fari eitthvað úrskeiðis er það
dauðaskammtur," segir Curtis Snook,
eiturefiiasérffæðingur hjá Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, en í seinustu viku fúnd-
ust 500 e-töflur innvortis í 22 ára
manni og á mánudag fúndust 200 g af
kókaíni falin á sama hátt í 24 ára konu.
Venjulega er búið um efiiin í smokk-
um og þeir gleyptir. Hættan er sú að
þeir rifni eða opnist því efiiin komast
mjög hratt út í blóðrás, sérstaklega
kókaínið. „Svo stórir skammtar er oft-
ast banvænir, þeir stuðla að heilablasð-
ingu og hjartaáfalli eða, í vægari tilfell-
um, eyðileggja hluta meltingarvegar.“
Curtis segir það algengast að menn
smygh kókaíni og heróíni á þennan
hátt en það komi fyrir að sami háttur
sé hafður á með e-töflur. -HH
í flmm sveitarfélögum var að
vísu meirihluti á móti samein-
ingu, en sé litið á tölur yflr alla þá
sem greiddu atkvæði í könnun-
inni í öllum sveitarfélögunum 13
voru 65% hlynntir sameiningu,
11% tóku ekki afstöðu en 24%
voru mótfallnir sameiningunni.
Akureyrarbær hefur beitt sér fyr-
ir því að komið var á fót nefnd til
að skoða sameiningarmál á öllu
svæðinu og voru niðurstöður
skoðanakönnunarinnar kynntar á
fundi nefndarinnar.
„Við ákváðum að senda niður-
stöður til allra sveitarstjóma og
fá fram hvaða skref þau vilja
stíga. Að þeim svörum fengnum
verður nefndin kölluð saman að
nýju og ákveðið með framhaldið.
Ég túlka niðurstöður könnunar-
innar á þann veg að sameining
allra sveitarfélaga í Eyjafirði í eitt
öflugt sveitarfélag njóti víðtæks
stuðnings íbúa. Því verðum við að
fara að fá skýr svör frá sveitar-
stjórnum um hvað þær vilja
gera,“ segir Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri á Akureyri.
Um helgina var kosið um sam-
einingu þriggja sveitarhreppa í
Eyjafirði, Glæsibæjarhrepps,
Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps.
Sameiningin var samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða, í
Glæsibæjarhreppi samþykktu
91% íbúanna sameiningu, í
Skriðuhreppi 77,5% og í Öxna-
dalshreppi 90%.
gk
;> * :■',** -*. . v •n\v"W-x-'
casall'
#sSP
Tískudagamir eru byrjaðir og allt er á hvolfi í Nanoq.
t Við bjóðum Þér íalle9an og vandaðan tískufatnað
á sérstöku tilboði - 25% afsláttur.
Kíktu til okkar og kynntu þér úrvalið!
nzæn
S P O R T
Opið hjá NANOQ í Kringlunni:
Mánud.-miðvd. 10-18.30 • fimmtud. 10-21
föstud. 10-19 og laugard. 10-18
NANOQ+
1 / «• X / » i