Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2000, Qupperneq 14
14
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
DV
Hagsýni
Ruslhreinsun
Gámaþjónusta er víöa starfrækt á
landsbyggöinni.
Gámaleiga:
Lægra verð
á lands-
byggðinni
Fjölmargir aðilar hér á landi
bjóða upp á þá þjónustu að losa fólk
við garðaúrgang og hvers kyns rusl.
Oft er þar um að ræða gáma sem
ekið er heim að húsi og teknir full-
ir af rusli til baka gegn gjaldi.
Á Akureyri er rekið fyrirtæki
sem heitir Gámaþjónusta Norður-
lands ehf. Jörundur H. Þorgeirsson
rekstrarstjóri segir að á Akureyri sé
ekki um að ræða lífræna jarðgerð
eins og tíðkast á höfuðborgarsvæð-
inu. Hins vegar er hann á leiöinni
til Svíþjóðar ásamt yfirverkfræðingi
Akureyrarbæjar til að kynna sér
nýjar aðferðir við moltugerð.
„Garðaúrgangi hér er annars safnað
saman og hann notaður til að hefta
uppblástur og sandfok í gömlu
námunni í Glerárdal. Ekkert mót-
tökugjald er vegna þessa, en fólk
getur nú fengiö gám til að losa sig
við úrganginn á tilboðsverði. Er þá
miðað við að fólk geti haft gáminn
hjá sér yfir helgi og er hann þá sótt-
ur á mánudegi. Þannig kostar
minnsti opni gámurinn sem völ er á
7.715 krónur. Þetta er 7 rúmmetra
gámur. Meðalgámur, um 11
rúmmetrar að stærð, kostar 9.773
krónur með virðisaukaskatti, dag-
gjald er síðan frá 260 til 460 krónur
eftir stærð gámanna.“ Miðað við
verð á Reykjavíkursvæðinu hlýtur
þetta aö teljast nokkuð ódýrt, en það
ræðst að sögn Jörundar að mestu af
styttri vegalengdum vegna losunar.
Annað rusl en garöaúrgangur er
urðað i Glerárdal án endurgjalds
fyrir íbúana. Jörundur segir enn
nægt land til urðunar í Eyjafirði, en
verra sé að benda á einhverja sem
tilbúnir eru til að taka við ruslinu
og á því strandi í dag. Einir tiu að-
ilar annast sorphirðu á Eyjafjarðar-
svæðinu nú en þar er GN
langstærst og býður upp á alhliða
þjónustu á þessu sviði.
Hagstætt verö í
Vestmannaeyjum
Hjá Gámaþjónustu Vestmanna-
eyja ehf. fengust þær upplýsingar að
kostnaður við að fá meðalstóran
gám heim að húsi og taka hann aft-
ur fullan til baka væri 4.036 krónur.
Þá fengust þær upplýsingar að
gámastærðin skipti ekki öllu máli.
kostnaöurinn við að koma með þá
og sækja væri sá sami. Gámamir
eru allt að 14 rúmmetrar að stærð.
Ekki er rukkað daggjald fyrr en eft-
ir tvo til þrjá daga. Ekkert móttöku-
gjald er vegna garðaúrgangs. Hann
er notaður til að þekja annan úr-
gang eins og vegna múrbrots. Húsa-
sorp er brennt í sorpbrennslu stað-
arins en timbur er flokkað frá og
kurlað. Jámi er safnað saman og
sent til Reykjavíkur en gler, múr-
brot og annað er urðað. -HKr.
Að losa sig við rusl og garðaúrgang:
Hugsum áður en
við hendum
- flokkun getur sparað drjúgan pening
Á þessum árstíma er tiltekt og
hreinsun í görðum, bílskúrum og
geymslum í hámarki. Mikil umferð er
því á gámastöðvar Sorpu sem tekur
við mestu af heimilissorpi og garða-
úrgangi. Það getur þó skipt miklu
máli að fólk vandi vel flokkun á því
sem henda á. Fyrir sumt þarf að
borga móttökugjald en annað ekki.
Það borgar sig að flokka
sorpið
Þegar fólk þar að losa sig við úr-
gang af ýmsum toga, þá er í fuilu sú
gullvæga regla sem segir okkur að
hugsa áður en við hendum. Flokkun
á gmða- og öðmm lífrænum úrgangi
frá öðru sorpi getur margborgað sig.
Hver rúmmetri sem þannig er skilinn
frá af garðaúrgangi sparar 1.370 krón-
ur í móttökugjald.
Vórt daglegt rusl er gjaldfntt
Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu
greiðir ahnenningur ekkert móttöku-
gjald fyrir úrgang sem getur talist
falla til við daglegan heimilisrekstur
á endurvinnslustöðvum fyrirtækis-
ins. Annar úrgangur sem til fellur,
t.d. vegna breytinga á íbúðarhús-
næði, vegna bifreiðaviðgerða, vegna
húsdýrahalds og fyminga sem yflr-
teknar eru vegna húsakaupa er háð
móttökugjaldi. Þá greiðir allur at-
vinnurekstur fyrir móttöku úrgangs.
Lágmarksgjald á blönduðum úr-
gangi hjá endurvinnslustöðvum Sorpu
í A-flokki er 685 krónur með virðis-
aukaskatti og
miðast þá við
mest hálfan
rúmmetra. Fyrir
hvem heilan
rúmmetra í stök-
um förmum er
gjaldið hins vegar
1.370 krónur. Lág-
marksgjald af
endurvinnanleg-
um bylgjupappa í
B-flokki er 345
krónur og 685
krónur fyrir
rúmmetra af stök-
um fórmum. Fyr-
ir endurvinnanlegt timbur í C-flokki
em greiddar að lágmarki 345 krónur
en 685 krónur fyrir hvem rúmmetra af
stökum fórmum.
Tvenns konar gjaldskrá
Hafa skal í huga að tvenns konar
gjaldskrá er í gildi hjá Sorpu. Annars
vegar er um að ræða gjaldskrá miðað
við vigt sem gildir í móttöku- og flokk-
unarstöð Sorpu í Gufunesi og hins veg-
ar gjaldskrá sem miðast við rúmmetra-
verð og gildir á öðrum endurvinnslu-
stöðvum Sorpu.
Lágmarksgjald í móttöku- og
flokkunarstöö
Sorpu í Gufú-
nesi fyrir bland-
aðan úrgang i
flokki A er 1.821
króna með vsk.
Ekki má þá vera
meira í farminum
en 250 kg. Gjaldið
er síðan 6,63
krónur fyrir
hvert kíló fýrir
stærri farma, eða
6.630 krónur fyrir
hvert tonn. Tveir
aðrir flokkar era
fyrir blandaðan
úrgang auk nokkurra verðflokka fyrir
endurvinnanlegt sorp og eyðingu trún-
aðarskjala.
Ódýrast fyrst á morgnana
I Gufúnesi gildir líka tímastýring.
Ódýrast er að losa frá kl. 7.30 til kl. 8.00
og fæst þá 16% afsláttur. Siðan lækkar
afslátturinn um 2% á hálftíma fresti og
Viö snyrtingu garöagróöurs fellur til
talsvert af lífrænum úrgangi
Garðahreinsun
Flokkun á garöa- og öörum
lífrænum úrgangi frá ööru
sorpi getur margborgaö
sig.
13-15.000 krónur með virðisauka-
skatti. Inni í því er akstur til og frá
viðkomandi húsi og losun. Síðan er
daggjald 250 krónur auk vsk. Greiða
þarf fyrir móttöku á þessum úrgangi
hjá Sorpu. Þannig getur kostnaðurinn
á losuninni hlaupið frá 10 og upp í
kannski 30 þúsund krónur.
20% álag á útgefna gjaldskrá. Tekið er
við gjaldskildum úrgangi til eyðingar
gegn staðgreiðslu (peningar eða kort)
eða gegn framvísun viðskiptakorts
sem afhent er samkvæmt viðskipta-
samningi.
Klippfkort
Hægt er að kaupa svoköiluð
klippikort fyrir 5 rúmmetra. Veitir það
um 20% afslátt frá gjaldskrá. Þá em
greiddar 5.400 krónur fyrir hveija
komu með blandaðan úrgang, 2.700
krónur fyrir hveija komu með bylgju-
pappa og 2.700 krónur fyrir hveija
komu með timbur.
Kortin gilda fyrir 5 rúmmetra alls,
eða 10X0,5 rúmmetra af úrgangi. Þá
má mest losa 4 rúmmetra í einu og
minnst 0,5 rúmmetra. Hægt er að fá
klippikort við vigt hjá Móttökustöð-
inni í Gufúnesi og endurvinnslustöðv-
um Sorpu.
Losað fyrir 10-30 þúsund
Talsvert er um að húsfélög leigi
gáma frá gámaflutningaaðilum til að
koma alls kyns msli frá sér. DV gerði
lauslega könnun á verðlagningu slíkra
gáma í algengustu stærð. Gámur til
Moltugerð
Moltugerð hefur verið tíðkuð um
langt skeið hjá Sorpu og sumir garð-
eigendur brúka sína eigin safnkassa
til að búa til gróðurmold. Hjá Gáma-
þjónustunni hf. er líka tekið á móti
garðaúrgangi til jarðvegs- eða moltu-
gerðar, þó það sé mest frá fyrirtækj-
um og sveitarfélögum. Það er dóttur-
fyrirtæki Gámaþjónustunnar, Garða-
mold, sem sér um þann þátt. Slík mót-
taka er endurgjaldslaus fyrir húseig-
endur líkt og hjá Sorpu. Fyrfrtækið
safnar mikið af lífrænum úrgangi frá
verslunum til moltugerðar. Er úr-
ganginum þá safnað saman tvisvar í
viku og fluttur suður á jarðgerðar-
svæði fyrirtækisins í Hamranesi. Fyr-
irtækið er svo með höfuðstöðvar á
Berghellu í Hafnarfirði og þar er tek-
ið við öllu timbri sem hakkað er og
nýtt sem stoðefni í vinnsluferli moltu-
gerðarinnar.
Hjá verslunum er þannig búið að
mynda með þessu hringrás. Ónýtir
ávextir, grænmeti og annar lífrænn úr-
gangur er sendur til moltugerðar og
moltan er síðan aftur seld í neytenda-
umbúðum i verslununum sem potta-
mold.
Beint inn á kort
Nú er komið í notkun tölvukerfi til að
halda utan um endurgreiðslur tE við-
skiptavina sem skila inn skilagjalds-
skyldum umbúðum (dósum, gler- og
plastflöskum) og til að fá endurgreiðsl-
una lagða beint inn á reikning með
framvísun bankakorts. í stað þess að fá
ávísun skráða á móttakanda greiðslu
sem ekki er hægt að skipta annars stað-
ar en í bönkum eða sparisjóðum er nú
hægt að fá upphæðina lagða inn á reikn-
ing í banka eða spari-
sjóði með þvi að
renna banka-
korti i gegn-
um debet-
korta-
skanna.
Leggst þá
endurgreiðsl-
an strax inn á
viðkomandi
reikning.
-HKr.
Gjaldskrá á endurvinnslustöðvum Sofptl
Lágmarksgjald Stakir farmar kr. pr. m3
A Óendurvinnanlegur blandaður úrgangur 685 1.370
B Endurvinnanlegur bylgjupappi 345 685
C Endurvinnanlegt timbur 345 685
Gjaldskrá á móttöku- og flokkunarstöð Sorpu
Blandaður úrgangur A Lágmarksgjald 1.821 Krónur á kíló 6,63
Blandaður úrgangur B 1.821 8,81
Grófur úrgangur 1.821 11,0