Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Síða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
DV
Trúir á kjötmjölsbann
David Byrne, kommissar hjá ESB, er
fullviss um að samþykkt veröi bann
viö notkun kjötmjöls í dýrafóöur.
Búist við að ráð-
herrar samþykki
bann á kjötmjöli
David Byme, sem fer með öryggi
matvæla í framkvæmdastjóm Evr-
ópusambandsins, sagðist í gær full-
viss um að landbúnaðarráðherrar
ESB myndu samþykkja bann við
notkun dýramjöls í fóður á fundi
sínum á mánudag.
„Ég á von á því að eining náist á
mánudag," sagði Byme á fundi meö
fréttamönnum í Madríd í gær.
Byme lagði tU á miðvikudag að
bannið myndi gUda í sex mánuði,
frá 1. janúar næstkomandi.
Talið er að kúariða berist í naut-
gripi með fóðri úr dýramjöli. Vís-
indamenn telja að kjöt af smituðum
gripum geti valdið nýju afbrigði af
Creutzfeldt-Jakob heilarýmunar-
sjúkdóminum í mönnum.
Ný kjarnorkuver
í slæmu ástandi
Tvö kjamorkuver sem eiga að
koma í staðinn fyrir kjarnaofnana i
Tsjemobýl í Úkraínu em í hættu-
lega lélegu ástandi. Þetta kemur
fram í austurriskri skýrslu sem um-
hverfissamtökin Greenpeace gerðu
opinbera í London í fyrradag.
Stjómendur Þróunarbanka Evr-
ópu koma saman í næstu viku til að
ákveða hvort styrkja eigi verkið um
sem svarar 120 milljörðum is-
lenskra króna.
Grænfriðungar segja að hætta
eigi við kjarnorkuver þessi vegna
bágborins öryggisástands. í þeirra
stað eigi að reisa hefðbundin orku-
ver. Mesta kjarnorkuslys sögunnar
varö í Tsjernobýl 1986.
Hákon og Mette-Marit
Norski krónprinsinn og kærastan op-
inberuöu trúlofun sína í gær.
Hákon krónprins
bað kærustunnar
Hákon krónprins í Noregi og
kærastan hans, Mette-Marit
Tjessem Haiby, eru nú búin að
ákveöa aö ganga í hjónaband.
„Ég bað hennar og gaf henni
hring í dag. Við emm búin að
ákveða að gifta okkur 25. ágúst
2001,“ sagði Hákon á fundi með
fréttamönnum í gær.
Hákon starfar í utanríkisráðu-
neyti Noregs þar sem hann er að
læra til diplómats en Mette-Marit,
sem hefur verið kölluö Öskubuskan
frá Kristianscmd, stundar háskóla-
nám. Mette-Marit verður titluð
krónprinsessa eftir giftinguna.
„Ég hlakka til að giftast Hákoni
og ég hlakka til að takast á við nýtt
hlutverk," sagði Mette-Marit við
fréttamenn. Hún á þriggja ára gaml-
an son frá fyma sambandi.
Lögmenn Bush og Gores fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna:
Úrskurður væntan-
legur
Hæstiréttur Bandaríkjanna tók
deiluna um atkvæðatalninguna úr
forsetakosningunum í Flórída fyrir
í gær þegar dómararnir níu hlýddu
á málflutning lögmanna forseta-
frambjóðendanna Georges W. Bush
og Als Gores.
Niðurstaða dómaranna, sem ekki
er væntanleg fyrr en eftir nokkra
daga, gæti ráöið úrslitum um hvor
þeirra Bush eða Gores verður næsti
forseti Bandaríkjanna.
En málið er ekki aðeins mikil-
vægt fyrir frambjóðenduma, heldur
einnig Hæstarétt sjálfan sem aldrei
fyrr hefur þurft að hafa afskipti af
forsetakosningum.
Sjö dómaranna voru skipaðir af
repúblikönum og tveir af demókröt-
um.
Dómaramir spurðu lögmenn
Bush og Gores spjörunum úr.
Theodore Olson, lögmaður Bush,
færöi rök fyrir því að Hæstiréttur
Flórídarikis heföi farið út fyrir
valdsvið sitt þegar hann úrskurðaði
einróma fyrir tveimur vikum að
framlengja frestinn til að handtelja
næstu
Mótmælendur við Hæstarétt
Mikill fjöldi manna safnaöíst saman
utan viö Hæstarétt Bandaríkjanna í
gær þegar rétturinn tók fyrir deiluna
um kosningaúrslitin í Flórída.
atkvæði úr forsetakosningunum í
Flórída.
Laurence Tribe, lögmaður Gores,
var ekki á sama máli. Hann sagði að
daga
úrskurðurinn hefði tryggt að öll at-
kvæði sem greidd voru í Flórída
væru tekin með þegar kosningamar
væm gerðar upp.
Dómararnir hlýddu á lögmennina
í hálfa aðra klukkustund. Þeir létu
ekkert uppi um á hvorn veginn þeir
myndu úrskurða og af spurningum
þeirra að dæma mátti ætla að þeir
skiptust í tvö hom.
Ef úrskurðurinn verður Bush í
hag eykst forskot hans úr 537 at-
kvæðum í 930, eins og það var áður
en handtalin atkvæði voru tekin
með. Fari svo, verður nær útilokað
fyrir Gore að halda frekari málaferl-
um í Flórída áfram, að sögn lög-
manna sem fréttamaður Reuters
ræddi við.
Úrskurði Hæstiréttur hins vegar
Gore í hag gefur það honum aukinn
tíma og tækifæri til að fá hnekkt
staöfestingu kjörstjómar Flórída á
sigri Bush. En Gore á ekki létt verk
fyrir höndum því 12. desember verð-
ur að liggja fyrir hverjir kjörmenn
Flórída verða. Kjörmenn velja síðan
forsetann þann 18. desember.
Löggan stuggar viö lögmönnum
Franska lögreglan þurfti aö stugga viö lögmönnum sem efndu til mótmælaaögerða fyrir utan dómsmálaráöuneytiö í
París I gær. Lögmenn kröföust þess aö fá hærri greiöslur fyrir vinnu sína. Til smáryskinga kom milli hópanna.
Alþjóðlegur baráttudagur gegn alnæmi í gær:
Heimurinn verður að vakna
- segir forstjóri alnæmisstofnunar SÞ
Afríkubúum sem smituöust af
HlV-veimnni fækkaði í fyrsta skipti
á þessu ári. 1 nýrri skýrslu kemur
fram að 3,8 milljónir manna í
Afríku sunnan Saharaeyðimerkur-
innar hafi smitast af veirunni sem
veldur alnæmi. í fyrra smituðust
fjórar milljónir manna.
Skýrslan sem var gerð á vegum
alnæmisstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNAIDS) greinir frá því að 36
milljónir manna í heiminum eru
smitaðar af HIV. Mest er aukningin
í Austur-Evrópu og Rússlandi.
Peter Piot, forstöðumaður
UNAIDS, var vonsvikinn þegar
hann lagði skýrsluna fram í gær, á
alþjóðlegum baráttudegi gegn al-
næmi.
„Nú verður heimurinn að vakna.
Þessar tölur slá út jafnvel svartsýn-
ustu spár. Þetta er miklu verra en
nokkur sá fyrir fyrir tíu árum,“
sagði Piot.
Þrjár milljónir manna hafa látist
Barist gegn alnhæmi
Hin 13 ára gamla Evelina Andova,
sjálfboöaliöi hjá Rauöa krossinum í
Búlgaríu, skrifar slagorö gegn al-
næmi á kinn sér áöur en hún heldur
út á götur til aö dreifa smokkum og
bæklingum um alnæmi.
úr alnæmi í heiminum á þessu ári,
fleiri en nokkru sinni fyrr.
„Tölumar eru að minnsta kosti 50
prósentum hærri en svartsýnustu
vísindamenn og stjómmálamenn á
sínum tíma sáu fyrir. Heimurinn
hefur greinilega vanmetið hversu
alvarlegur þessi faraldur myndi
verða," sagði Piot.
Rúmlega þrettán milljónir bama
eru munaðarlausar af völdum al-
næmis. Alvarlegast er ástandið í
Afríku þar sem búa 25 milljónir af
þeim 36 milljónum manna sem smit-
aðar eru af HIV-veirunni. Það þýðir
að um tíundi hver íbúi Afríku sunn-
an Sahara er smitaður.
Nelson Mandela, fyrrum forseti
Suður-Afríku, flutti ávarp í tilefni
dagsins í gær og hvatti fólk til að
nota smokka til að hefta útbreiðslu
alnæmis.
„Veriö trú einum aðila og notið
smokka. Sýnum aðgæslu,“ sagði
hinn 82 ára gamli Mandela.
Stuttar fréttir
Páfi enn á móti smokkum
Ef einhverjum
hefur dottið í hug
að páfi og kaþólska
kirkjan væru um
það bil að breyta af-
stöðu sinni til
smokka, þá er það
borin von. Ráða-
menn í Páfagarði
hafa ítrekað andstöðu sína við notk-
un smokksins til að hefta útbreiðslu
alnæmis.
Muna eftir Ijósunum
Rúmlega þrír af hverjum fjórum
hjólreiðamönnum í Danmörku
muna eftir að setja luktir á hjól sín
áður en þeir fara út í haustmyrkrið.
Þetta kemur fram í árlegri lukta-
talningu hjólreiðasamtakanna.
Á spítala eftir e-pilluát
Fjögur ungmenni í Danmörku
voru flutt á sjúkrahús aðfaranótt
föstudagsins eftir að hafa gleyt e-
pillur, að sögn sjúkrahúslækna.
Unglingar takast á í Kenía
Átök brutust út milli íslamskra
og kristinna unglinga í Naíróbí, höf;
uðborg Kenía, í gær. Æðsti klerkur
landsins særðist þegar hann reyndi
að stilla til friðar.
Niðurskurður í Norðursjó
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lagt til mikinn nið-
urskurð á fiskveiöikvótum í Norð-
ursjó. Meðal annars er lagt til að
þorksveiðar dragist saman um
helming vegna þess að stofninn er í
útrýmingarhættu.
Danaprins til Bosníu
Friörik Dana-
prins heldur til
Bosníu siðar i mán-
uðinum til að ræða
við danska her-
menn sem eru þar í
alþjóðlega friðar-
gæsluliðinu. Frið-
rik verður þrjá
daga í Bosníu og mun hafa aðsetur
í bænum Doboj, norður af Tuzla.
Króatar klárir í ESB 2006
Króatar ætla að verða tilbúnir til
að ganga í Evrópusambandið við
árslok 2006. Að sögn helsta samn-
ingamanns þeirra við ESB gera þeir
sér vonir um að fara fram fyrir
hægfara ríki á leiðinni.
semja
Bill Clinton
Bandaríkjaforseti
hefur sett sig í sam-
band við Evrópu-
sambandið og lagt
til að viðræöumar
um loftslagsbreyt-
ingar verði teknar
upp að nýju seni
allra fyrst. Clinton vill aö samkomuí
lag takist um leiðir til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda, helst
fyrir áramót, að sögn þýska dagj
blaðsins Súddeutsche Zeitung.
Pinochet skuli handtekinn
Dómari í Chile úrskurðaði í gær
aö Augusto Pinochet, fyrrum harð-
stjóri, yrði handtekinn og að réttað
verði yfir honum fyrir mannrán.
ísraelar drápu tvo
ísraelskir hermenn drápu tvo
Palestínumenn á heimastjórnar-
svæðunum í gær, á fyrsta fostudegi
Ramadans, fóstumánaðar múslíma.
Clínton vill