Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 20
20
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Helgarblað
James Bond og drykkjuvenjur hans:
Hristan en
ekki hrærðan
- hvert er leyndarmálið á bak við góðan martini-kokkteil?
„Hristan, ekki hrærðan." Þetta
er ein frægasta lina þekktasta
njósnara kvikmyndasögunnar,
James Bond. Hitt svarið sem allir
þekkja er það sem töffarinn gefur
alltaf þegar hann er spurður að
nafni: „Bond, James Bond.“
Þegar bíófiklar heyra beð-
ið um martinikokkteil,
hristan en ekki hrærðan,
sjá þeir Sean Connery eða
Pierce Brosnan fyrir sér í
smóking á barnum að fá
sér hestaskál, rétt áður en
einhver íðilfagur kven-
kyns gagnnjósnari er tek-
inn til kostanna.
En hvað er svona
merkilegt við martini-
kokkteil og af hverju skiptir
svona miklu máli að hann sé
hristur en ekki hrærður? Hér er
ekki allt sem sýnist, því mart-
ini-kokkteill Bonds er ekki
beinlínis hefðbundinn frek-
ar en margt annað við
hetjuna.
Hln efna sanna
uppskrift
í fyrstu bók Ians Flem-
ing um Bond er því lýst í
smáatriðum hvernig
drykkurinn skal vera og
segir þar í sjöunda kafla:
„Ég vil fá þurran mar-
tini,“ sagði hann, „í
djúpu kampavínsglasi”
„Oui, monsieur."
„Bíddu aðeins. Það eiga
að vera þrír sjússar af Gor-
James Bond heldur á byss-
unni af sama öryggi og hann
skálar í martini
Martini Bonds veröur alltaf aö
vera hristur en ekki hræröur.
Hvers vegna skyldi þaö vera?
þarna er efinn..
Þeir sem unna kokkteilum af þessu
tagi skiptast í tvo hópa og er önnur
fylkingin hreintrúarmenn sem myndu
aldrei leyfa vodka-
tári að læðast í ginkokkteil undir
nokkrum kringumstæðum og svo eru
hinir sem eru frjálslyndari. Báðar
fylkingar eru þó sammála um að mik-
ill munur er á hristum og hrærðum
martini.
í fyrsta lagi er hristur
kokkteill alltaf mun kaldari
en sá hrærði, því ísmolarn-
ir fá tækifæri til að vinna
sitt verk í hristaranum. I
öðru lagi kemst loft í blönd-
una þegar hún er hrist og
hreintrúarmenn telja að
slíkt spilli bragðinu af gin-
inu og geri kokkteilinn of
bitran á bragðið. I þriöja
lagi blandast vermóðurinn
mun betur saman við giniö
i hristiun kokkteil og dreg-
ur úr olíukenndum keim
sem sumum finnst vera
af vermóð í kokk-
teilum.
dons gini, einn af vodka
og hálfur af Kina Lillet.
Hristu þangað til bland-
an er vel köld og bættu
þá við stórri sneið af
sítrónuberki."
Bond kallar þenn-
an drykk Vesper í
höfuðið á ægifögr-
um gagnnjósnara
sem hann á í
höggi við í sömu
bók. Rétt er að
skýra út að Kina
Lillet er ákveðin
tegund af vermóð.
Réttur martini
í öðrum Bond-bókum biður
hann stundum um miðlungs-
þurran vodka martini, sem
þýðir þá væntanlega að jöfn
hlutfóll skuli nota af vodka og
gini. Ekki er tekið fram í öllum
bókunum um Bond að kokkteill-
inn skuli vera hristur en ekki
hrærður en það er þó gert víö-
ast hvar.
Hefðbundinn martini-kokk-
teill er blandaður úr gini og
þurrum vermóð og annað hvort
ólífu eða sítrónuberki bætt 1 en
ólífuútgáfan er mun algengari.
Stundum er þurrt hvítvín notað
í staðinn fyrir vermóðinn en
það sem skiptir miklu máli hér
er að hefðbundinn martini-
kokkteill er aldrei hristur,
alltaf hrærður. Algengustu
hlutfóllin eru tveir ginsnafsar
á móti einum vermóð.
Að hrista eða hræra,
Kokkteilar hafa á sér yfirbragð helmsvanra hófdrykkjumanna
Nútíminn svolgrar í sig bjór og smjattar á léttvínum en maöur í smóking getur
ekki drukkiö bjór.
Þegar vodka er sett í martini-kokk-
teil er mjög mikilvægt að drykkurinn
sé kaldur, því annars verður kokk-
teillinn á bragðið eins og kveikjara-
bensín. Því kaldari sem drykkurinn
er, því meira hverfur vodkabragðið.
Þarna er kominn skýringin á því
hvers vegna Bond lætur alltaf hrista
kokkteilinn. Honum finnst vodka-
bragðið vont. Vanir gindrykkjumenn
myndu ráðleggja honum aö snúa sér
alfarið að hefðbundnum martini og
njóta mýktar ginsins í bland við sætt
bragðið af vermóð og hinn salta und-
irtón ólífunnar.
Ekki heiisunnar vegna
Sú skýring hefur verið sett fram að
hristur kokkteill auki andoxunaráhrif
alkóhóls og þess vegna sé hristur
kokkteill með einhverjum hætti hoO-
ari en hrærður. Það má fullyrða að
Bond drekkur ekki martini heilsu
sinnar vegna frekar en aðrir sem það
gera. Hafi drykkjumenn áhyggjur af
heilsu sinni ættu þeir frekar að
drekka gulrótarsafa en kokkteilblönd-
ur eins og þessa.
Blindpróf hafa leitt í ljós að jafnvel
óvanir martinidrykkjumenn eiga auð-
velt með að þekkja hristan martini frá
hrærðum. Það skýrist fyrst og fremst
af kuldanum og áhrifunum á gin-
bragðið.
Að lokum má geta þess að því
minni vermóður sem er 1 hefðbundn-
um martini-kokkteil, þvi sterkari
verður hann og virkar hraðar á þann
sem drekkur. í hálfkæringi er mönn-
um því ráðlagt að þegar blanda skuli
reglulega hressandi martini-kokkteil
sé nóg að setja ginið í glasiö með ólíf-
unni og taka siðan glasið með kokk-
teilnum og sýna því vermóðflöskuna.
Síðan skal hræra varlega og drekka.
Endurtakist eftir þörfum. -PÁÁ
í hjónaband
á jólunum
Poppdrottningin Madonna og
kærastinn hennar, breski leik-
stjórinn Guy Ritchie, ætla að
gifta sig um jólin samkvæmt
frétt breska slúðurblaðsins Sun
og bresku
fréttastofunni
PA.
Vígslan er
sögð munu fara
fram í Domoch-
dómkirkjunni í
norðaustur-
hluta Skotlands
22. desember.
Brúðkaups-
veislan verður
haldin í Ski-
bokastalanum
sem er þar ekki
langt frá.
Ef marka má
fréttina verður
það Stella
McCartney,
dóttir Pauls
McCartneys,
sem teiknar
brúðarkjólinn.
Madonna er
sögð hafa heim-
sótt Stellu í Par-
ís á dögunum
til að máta
ýmsa kjóla.
Ekki er talið
útilokað að son-
ur Madonnu og
Guys, Rocco litli,
verði skírður um
leið og foreldr-
amir verða gefnir saman.
í Skibokastalanum, sem er
vinsæll meðal fræga fólksins,
sögðu menn að brúökaupsveisl-
an hefði ekki verið bókuð.
Guy og Madonna
Fullyrt er aö turtildúfurnar láti gefa sig saman um
jóiin.